Tíminn - 08.12.1993, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.12.1993, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 8. desember 1993 íþróttir Umsjón: Krístjón Grímsson 7 Visadeildin Valur-Skallagr..90-80 (38-33) llndast.-Njarðvík 76-88 (38-42) Stoóan A-riðill ÍBK ......12 7 5 1171-1031 14 Snæfell ..12 5 7 977-1029 10 Skallagr. ...12 4 8 964-1006 8 Valur..... 12 3 9 1030-1163 6 ÍA .......11 2 9 887-1036 4 B-riðill Njarðvík .13 12 1 1186-1018 24 Haukar ...12 8 4 1007-902 16 Grindavík .11 8 3 969-929 16 KR........ 11 6 5 1018-984 12 Tindastóll .12 4 8 891-1002 8 NBA-körfuboltinn Utah Jazz-New York....103-96 Seattle-Washington ....103-96 Handknattleikur Frakklandsmótið Frakkland-fsland ...21-20 (11-8) Sviþjóð-Rússland .......19-23 Bikarkeppni karla 16 lióa úrslit Völsungur-Selfoss ......21-29 Selfoss mætir Aftureldingu í 8- liða úrslitum. Enska knattspyman Arsenal-Tottenham.........1 -1 Oldham-Swindon ...........2-1 Sheff. Utd-Man. Utd.......0-3 Staðan Newcastle ..18 Arsenal....19 Aston Villa 18 Norwich.... 17 QPR.......18 Liverpool ...17 WestHam .18 Everton ...18 Sheff. Wed. 18 Tottenham 19 Coventry... 18 Wimbledon 18 Ipswich...18 Oldham ....19 Man. City ..18 Sheff. UTD. 19 South......18 Chelsea....18 Swindon ....19 1 39-15 48 3 32-21 33 4 24-16 32 5 34-18 31 4 18-11 31 4 21-17 30 3 27-18 28 6 31-25 28 7 25-19 26 6 15-17 26 8 20-23 24 5 30-26 23 6 24-21 23 5 18-20 23 6 20-26 22 5 7 6 16-22 22 46 9 14-29 18 3 7 8 18-23 16 3 7 9 18-31 16 4 2 12 18-29 14 3 5 10 11-21 14 17 11 15-40 10 Skotfand Dundee-Dundee Utd.......1-2 Raith-Aberdeen..........1-1 Man. UTD .19 15 3 Leeds ....18 9 6 Blackbum ..18 9 5 94 87 8 6 7 7 84 8 2 7 5 7 3 5 8 5 8 5 8 5 7 Evrópukeppni félagsliöa 3. umfero, seinni leikir Salzburg-Sporting ...3-0 (3-2) La Coruna-Frankfurt ..0-1 (0-2) Boavista-OFI ........2-0 (6-1) V. J r KörfuknotHeikur Visadeild KR-Grindavík.........kl. 20 HandknatHeikur 1. deild kvenna Armann-Stjaman.....kl. 18.00 Geir Sverrisson. Timamynd Árni Bjama Geir Sverrisson íþróttamaóur ársins 1993 úr roðum fatlaðra fþróttasambcind fatlaðra valdi í gær Geir Sverris- son íþróttamann ársins 1993 innan hreyfingarinn- ar. Geir er 22 ára gamall og leggur stund á tölvun- arfræði við Háskóla íslands. Geir hóf að stunda hinar ýmsu íþróttagreinar, svo sem knattspymu, sund, seglbrettasiglingar og frjálsar íþróttir, í heimabæ sínum, Keflavík, ungur að ámm. Fötlun Geirs er í því fólgin að við fæðingu vantaði hægri handlegg hans neðan olnboga. Geir hefur unnið til fjölda verðlauna í sundi, hér innanlands sem utan, og hefur verið nánast ósigr- andi í sinni grein, lOOm bringusundi, hvort sem um hefur verið að ræða NM-mót, EM-mót, HM- mót eða Ólympíumót fatlaðra. Geir setti m.a. heimsmet í lOOm bringusundi á EM fatlaðra 1991 og synti vegalengdina á 1:19.20 mínútum og stendur það óhaggað enn í dag. Á Ólympíumótinu í Barcelona 1992 sigraði hann einnig í sinni grein og setti nýtt ólympíumet, 1:19.48. Eftir Ólympíumótið í fyrra hefur Geir eingöngu helgað sig fijálsum íþróttum og æft af krafti undir merkjum Glímufélagsins Ármanns. Geir keppti í sumar með ófötluðum á Meistaramóti FRÍ og hafn- aði í 2. sæti í 200 og 400m hlaupi og var ásamt þeim frábæra árangri í sigursveit Ármanns í 4x1 OOm boðhlaupi. í Bikarkeppni FRÍ var Geir einnig meðal þátttakanda og lenti í 2. sæti í 400m hlaupi og var í sveit Ármanns er bar sigur úr být- um í 4x1 OOm og 4xl000m boðhlaupi. f síðast- nefnda hlaupinu hljóp Geir síðasta sprettinn og tryggði Ármenningum sigur. Geir Sverrisson bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn í sumar, og án efa einni þeirri glæsilegustu, þegar hann var fyrstur fatlaðra íslenskra íþróttamaxma valinn í boðhlaups- sveit íslands í 4x400m hlaupi í Evrópubikarkeppni landsliða, sem fór fram í Danmörku 12.-13. júlí. Með vali Geirs í landslið ófatlaðra í fijálsum íþrótt- um var brotið blað í sögu íþrótta fatlaðra á íslandi. Geir sagði í samtali við Tímann í gær að hámarkið á ferlinum væri þegar hann var valinn í landslið ófatlaðra. .Núria legg ég mesta áherslu á að bæta mig í 400m hlaupi og takmarkið er að hlaupa und- ir núgildandi heimsmeti fatlaðra í greininni, sem er 49.78." Þess má geta að Geir hljóp þessa vegalengd á innanfélagsmóti UMFA á 49.6, en tíminn fékkst á handtímatöku. íslenska liéié hárs- breidd frá sigri íslenska handknattleikslandslið- ið í karlaflokki var hársbreidd frá því að tryggja sér sigur gegn Frökkum á Frakklandsmótinu, sem fer fram í Strassborg. Loka- tölur urðu 21-20 fyrir Frakka, sem leiddu í hálfleik 11-8. Ár- angur íslenska liðsins er góður miðað við að hópurinn var að stórum hluta skipað varamönn- um. íslenska liðið spilaði vamar- leikinn mjög framarlega, sem heppnaðist mjög vel og á tíma- bili í seinni hálfleik, þegar stutt var til leiksloka, náðu íslending- ar forystu 17-18, en Frakkar höfðu sigur í lokin. Jón Krist- jánsson skoraði 6/5 mörk, Valdi- mar Grímsson 5, Gústaf Bjama- son 5, Guðjón Árnason 3, Gunnar Beinteinsson 2, Patrek- ur Jóhannesson 1. Rússar unnu Svía á sama móti, sem þýðir að íslendingar leika við Svía í kvöld um 3. sætið. Guðni og Jón þriðju ó HM i kraft- lyftingum Guðni Sigurjónsson og Jón Gunnarsson náðu mjög góðum árangri á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum, sem haldið var í Svíþjóð um síðustu helgi, og hlutu báðir bronsverðlaun í sín- um flokkum. Guðni keppti í 125 kg flokki og munaði ekki miklu að hann næði gullinu, en hann missti stöngina í réttstöðulyftu í síð- ustu umferðinni og þar með af gullinu. Ef Guðna hefði tekist að lyfta þeim 377.5 kg, sem á stönginni voru, hefði íslands- metið fallið, en heimsmetið er 10 kg meira. Jón Gunnarsson keppti í 90 kg flokki. Hann lyfti 335 kg í hné- beygju og setti þar með íslands- met. Þá lyfti Jón 182,5 kg í bekkpressu og 310 kg í rétt- stöðulyftu. Samanlagt lyfti Jón 827,5 kg, sem tryggði honum þriðja sætið af 19 þátttakendum. 3ja stiga körfurnar skildu liöin ai Valur sigra&i Skallagrím 90-80 í Visadeildinni „Ég er ánægðastur með vamar- leikinn, sem er að smella saman hjá okkur loksins. Það er ánægjulegt að vera búnir að vinna tvo leiki í röð og þurfa ekki að hugsa í bili um falldraug- inn. Þetta er skemmtilegasti leik- ur sem við höfum spilað, enda stemning í hópnum mjög góð og liðsheildin frábær," sagði Ragnar Þór Jónsson, fyrirliði Vals, eftir sigurleik á Skallagrími 90-80 í Visadeildinni í gærkvöldi. Leik- urinn fór fram að Hlíðarenda. Staðan í hálfleik var 38-33 fyrir Val. Gæði körfuboltans voru ekki mikil í þessum leik. Leikmenn voru miklir klaufar upp við körf- una, fjöldinn allur af sniðskotum fór forgörðum og þá helst hjá Skallagrímsmönnum. Annars var jafmæði í byijun leiksins, en góður kafli Vals um miðbik hans, þar sem komu þrjár 3ja stiga körfur í röð frá Ragnari Þór og Booker. Þetta gaf þeim góða forystu og leiddu þeir í hálfleik 38-33. Skallagrímur byrjaði seinni hálfleik af krafti, náði að jafna fljótlega og komast yfir 43- 44 með víta- skotum Henn- ings Hennings- sonar. Adam var þó ekki lengi í Paradís. Gestgjafamir byrjuðu þá að raða niður 3ja stiga körfum og er óhætt að segja að þær körfur hafi gert gæfumuninn í þessum leik. Val- ur náði mest 72-62 forystu þegar 5 mínútur voru eftir og það bil gátu gestimir ekki brúað. Loka- tölur 90-80 fyrir Val. Ragnar Þór Jónsson, Bjarki Guðmundsson og Franc Booker voru bestir Valsmanna. Hjá Skallagrími var Alexander Ermo- linskíj bestur, ásamt Ara Gunn- Tímama&ur leiksins: Raqnar Þór Jónsson, Val Stóð sig mjög vel baeSi í vörn sem sókn. Aðall hans eru 3ja stiga körfurnar, en af 28 stigum í öllum leiknum komu 24 stig eftir 3ja stiga skot. Fróbær skytta. arssyni. Gatigur láksins: 3-0, 3-4, 6-8, 19- 10, 21-17, 27-19, 38-33— 38- 38, 43- 44, 57-49, 59-56, 65-62, 72-62, 77- 73, 82-76, 90-78. Stig Vals (3ja stiga körfur í sviga): 28 (8), Franc Booker 26 (4), Bjarki Guðmundsson 12, Brynjar Sigurðsson 10 (2), Bergur Emils- son 3 (1), Guðni Hafsteinsson 3 (1), Björn Steffensen 2, Björn Sigtryggsson 2, örvar Erlendsson 2. Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskíj 25, Birgir Mikaels- son 21 (2), Ari Gunnarsson 14, Henning Henningsson 10 (1), Gunnar Þorsteinsson 4, Grétar Guðlaugsson 4, Sigurður Elvar Þórólfsson 2. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Héðinn Gunnarsson. Góðir. 1. deildarliðin í 32ja-liða úrslit bikarkeppninnar Á 48. ársþingi KSÍ, sem haldið var um helgina, var samþykkt sú breyting á Mjólkurbikarkeppninni að lið úr 1. deild koma inn í 32ja-liða úrslitin, í stað 16-liða, og leika þá á útivelli ásamt þeim sex félögum, sem urðu efst í 2. deildinni eftir síðasta keppnistímabil. Liðin úr 1. og 2. deild dragast ekki saman í 32ja-liða úrslitunum. Bikarúrslitaleikurinn verður sem áður í lok ágúst eða byijun september, en tillaga um að bikarúrslitin iæri fram eftir síðustu umferð 1. deildarinnar var felld. Þá var samþykkt að þeir leikir, sem hafa úrslitaáhrif á hvaða lið geta orð- ið meistarar eða fallið úr 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla, skuli fara fram á sama tíma. Óheimilt verður að treysta á flug. Þá var Eggert Magnússon endurkjörinn formaður KSÍ næstu tvö árin og hlaut hann „rússneska' kosningu. Sama er segja um aðra stjómarmenn. Gascoigne til Leeds? Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra í knattspymuheiminum að enski landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne sé á leið til Leeds Un- ited í ensku úrvalsdeildinni, en hann leikur nú með ítalska fé- laginu Lazio. Leeds hefur sýnt áhuga á að kaupa kappann, en forráðamenn Lazio segja að Gascoigne sé alls ekki á förum frá félaginu. „Paul Gascoigne verður ekki seldur frá félaginu, sama hvað býðst í hann. Hann er einfaldlega ekki til sölu," sagði Enrico Bendoni, aðalfram- kvæmdastjóri Lazio.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.