Tíminn - 08.01.1994, Qupperneq 13

Tíminn - 08.01.1994, Qupperneq 13
Laugardagur 8. janúar 1994 Tíminn 13 DACBÓK T^jr\j\j\jvj\AJ\JUAJ\jtj Laugardagur 8 janúar 8. dagur ársins - 357 dagar eftir. 1. vika Sólriskl. 11.09 - sólarlag kl. 16.00 Dagurinn lengist um 4 mínútur Jólatrésskemmtun Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur jólatrésskemmtun í dag, laugardaginn 8. janúar, kl. 15. Allir velkomnir. Félag eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni Sunnudagur: Bridskeppni, tví- menningur, kl. 13 og félagsvist kl. 14. Spilað er í Risinu, Hverf- isgötu 105. Dansað í Goðheim- um kl. 20. Leikritið „Margt býr í þok- unni" sýnt í Risinu miðvikudag 12. jan. og laugardag 15. jan. kl. 16. Sunnudag 16. jan. kl. 20.30. Miðapantanir á skrifstofu fé- lagsins s. 28812 og á kvöldin s. 12203 Brynhildur og s. 10730 Sigrún. Fríkirkjan í Reykjavík Sunnudagur: Bamaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta ld. 14. Organisti Pavel Smid. Prestur Cecil Haraldsson. Ferbafélag íslands Sunnudagsferð 9. janúar kl. 13: Bessastaðir-Álftanes. Það er við hæfi aö hefja fyrstu sunnudags- göngu þessa lýðveldisafmæli- sárs í nágrenni Bessastaða. Þetta er einnig ágæt fjölskylduganga í upphafi árs fjölskyldunnar. Strönd Álftaness er eitt af skemmtilegustu útivistarsvæð- um í nágrenni höfuðborgar- svæðisins. Verö aðeins 660 kr., frítt fyrir böm með fullorönum. Brottför frá Umferöarmiðstöð- inni, austanmegin (stansað við Mörkina 6). Ferðafélag íslands þakkar frá- bæra þátttöku í fjölskyldugöngu og blysför um Öskjuhlíð á þrett- ándanum þar sem mættu á ann- að þúsund manns. Fyrsta myndakvöld ársins er miöviku- dagskvöldiö 12. janúar í Sóknar- salnum. Gleðilegt ferðaár! Ættfræbinám- skeíb í Reykjavík og víbar Ættfræðiþjónustan í Brautar- holti 4 byrjar upp úr miðjum mánuöinum með ný námskeið fyrir byrjendur (5-7 vikur), framhaldsnámskeið fyrir lengra komna og grunnnámskeið á nokkrum stöðum úti á landi. Á námskeíðunum fræðast menn um íslenska ættfræði, heimjldir, leitaraðferðir og úrvinnslu upp- lýsinga í ættarskrám af ýmsu tagi. Auk þjálfunar í vinnu- brögðum fá þátttakendur góðan tíma og aðstöðu til að rekja eig- in ættir og frændgarð, með notkun kirkjubóka, annarra frumheimilda, handrita og prentaðra bóka. Leiðbeinandi er Jón Valur Jensson. Innritun er hafin í símum 27100 og 22275. Ný stór mat- reibslubók um heilsufæbi Út er komin hjá Fjölvaútgáf- unni Stóra Toppforms matreiðslu- bókin eftir Marilyn Diamond í þýðingu Margrétar Ákadóttur. Þetta er mikið verk með hver- skyns upplýsingum um heilsu- fæði og hollustumataræði. Bók- in er ekki myndskreytt, þar sem útgefendur telja litmyndir af réttum í matreiöslubókum aðal- lega markaðssetningu, sem engu raunhæfu hlutverki gegni. Hinsvegar eru í bókinni mörg hundruð uppskriftir að hver- skyns hollusturéttum, en Mari- lyn Diamond hefur með ljúf- fengum uppskriftum sínum átt vemlegan þátt í heilsubylgju þeirri, sem gengið hefur um hinn vestræna heim aö undan- fömu. Fyrir nokkmm ámm kom út hjá Vasaútgáfunni bókin „í Toppformi" eftir Marilyn og Harvey eiginmann hennar með ráöleggingum m.a. um ávaxta- fæði á morgnana og um rétta samsetningu fæðunnar. Hefur sú bók notið mikilla vinsælda hér á landi, orðið metsölubók og hjálpað fjölda fólks til að taka upp nýtt mataræði til að bæta líkamslögun sína og öðlast lífskraft. Stóra Toppforms matreiðslubókin er 400 bls. með töflum, heim- ildaskrám og atriðisorðaskrám. Kápumynd gerði Jean Posocco, en bókin er xmnin í G.Ben. Prentstofu. ívar Brynjólfsson sýnir Ijósmyndir í Gallerí Sævars Karls ívar Brynjólfsson sýnir ljós- myndir í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, 7. janúar til 2. febrúar. Hann er fæddur 13. maí 1960 og stundaði nám við ljós- myndadeild San Francisco Art Institute (BFA) árin 1984-1988. ívar var ljósmyndari Lands- bókasafns íslands 1988-1990 og er nú Ijósmyndari Þjóðminja- safns íslands. Hann hefur áður haldiö tvær einkasýningar: „Vondar myndir frá liðnu sumri" í Djúpinu 1986, og „Myndir af venjuleg- um stöðum" I Gallerí 1 1 árið 1991.. Sýningin í Gallerí Sævars Karls ber heitið „Landslag — Jarð- rask". „Jörðin mun breytast á meöan maðurinn er að, sem og hún mun halda áffam aö gera eftir að maðurinn verður horf- inn," segir í fréttatilkynningu. Sýningin er opin á verslunar- tíma, á virkum dögum frá kl. 10-18. j:: Eins og sjá má hefur Valentino toppinn gegnscejan oð Hér er kjóllinn fleginn í barminn og hafbur þröngur um mestu, sem magnar hina kvenlegu dulúð um leið og mjabmirnar. Hvort tveggja undirstrikar hinar ávölu, kjóllinn verbur tcelandi. kvenlegu línur, sem Valentino eru svo hugleiknar. Tælandi og kvenlegir ballkjól- ar þetta árið Ljóst er að kvöldkjólamir í ár, „svörtu samkvæmiskjólamir" sem stundum em kallaðir svo, verða tælandi og kvenlegir, en hönnuðir eins og Balmain og Valentino lögðu nú fyrir hátíð- amar línuna í þessum efnum. Gegnsætt siffon eða önnur álíka efni em áberandi og draga fram kvenleika og kynþokka. Allar línur I hönnuninni em í þess- um anda, mjúkar og ávalar, og áhersla er lögð á vandað yfir- bragð. Almennt er talið að þeg- ar líöa tekur á árið 1994 og næsta tískubylgja fer að nálgast, verði þessi útfærsla á „svarta samkvæmiskjólnum" ágæt tenging við það sem koma skal, en það telja menn að muni verða enn meiri blúndur og boröar, dúkkulísulegir en vand- aðir kvöldkjólar. Þá muni upp rísa öld „blúndanna", sem Rósa Ingólfsdóttir kallaði svo, til að- greiningar frá ónefndum vað- málskerlingum. Cegnsœ efnisslikjan dregur úi því hversu þessi Balmain-kjóll er fleginn Engu ab síbur hefur nábst fram skemmtileg togstreita milli siba- vendni og dirfsku. I spegli Tímans Hér er Balmain-útfœrsla á tœlandi kjól meb gegnsœjum toppi, nema hvab hér er meira hulib og því meira gefíb í skyn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.