Tíminn - 04.02.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 4. febrúar 1994
3
Framsóknarmenn á Akureyri leggja fram lista til bœjarstjórnar:
Tefla fram politísku
bæjarstjóraefni
Framsóknarmenn á Akureyri
tefla fram pólitísku bæjarstjór-
arefni í kosningum til bæjar-
stjómar í vor. Þetta er svipab
fyrirkomulag og tíökast hefur
í kosningum til borgar- og
bæjarstjóma á höfubborgar-
svæbinu, en framsóknarmenn
setja þennan valkost fram
fyrstir flokka fyrir norban.
Hingað til hefur tíökast að Ak-
ureyringar hafi sótt bæjarstjóra
út fyrir raðir framboðslista
flokkanna. Þannig var núver-
andi bæjarstjóri áður fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri og fyrirrenn-
ari hans var áður sveitarstjóri á
Skagaströnd.
Jakob Bjömsson skrifstofu-
stjóri, efsti maöur á lista Fram-
sóknarflokksins fyrir bæjar-
stjómarkosningamar í vor, er
jafnframt bæjarstjóraefni flokks-
ins. í öðm sæti er Sigfríður Þor-
steinsdóttir, Þórarinn Sveinsson
mjólkursamlagsstjóri, skipar
þriðja sæti listans, Guðmundur
Stefánsson framkvæmdastjóri er
í fjórða sæti og Ásta Sigurðar-
dóttir sjúkraliði skipar fimmta
sætið.
Framboðslisti flokksins til bæj-
arstjómar var samþykktur sam-
hljóða á fundi fulltrúaráðs á
miðvikudagskvöld. Miklar
breytingar em á listanum frá síð-
ustu kosningum og í 10 efstu
stætum listans er einungis einn
frambjóðandi í sama sæti og fyr-
ir fjómm ámm. Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir, núverandi odda-
maður framsóknarmanna í bæj-
arstjóm á Akureyri, gefur ekki
kost á sér áfram og ekki heldur
Kolbrún Þormóðsdóttir, sem
skipaði 4. sæti listans. Jakob
Bjömsson færist úr 3. í 1. sæti,
Sigfríður Þorsteinsdóttir úr 5. í
2. sæti, Þórarinn Sveinsson úr 2.
í 3. sæti. Þá færist Guðmundur
Stefánsson úr 18. sæti í 4. og
Ásta Sigurðardóttir er ný á list-
anum.
Framsóknarmenn á Akureyri
telja sig tefla fram mjög sterkum
lista og þaö vakti m.a. athygli að
í neðri sætum listans em þekkt
nöfn, sem ekki hafa verib áber-
andi í pólitík áöur. Þannig er
Konráð Alfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar, í
13. sæti og Jóhann Sigurjóns-
son, konrektor við Menntaskól-
ann á Akureyri, er einnig á list-
anum.
Bæjarstjórn á Akureyri skipa 11
manns. Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur em nú með
4 fulltrúa hvor, Alþýðubandalag
með 2 og Kratar meö einn full-
trúa. -ÁG
Félag starfsfólks í veitingahúsum:
Allt ab 20%
atvinnuleysi
„Þab er ab harbna á dalnum
hjá okkur, eins og öbrum. Þá
er talsvert atvinnuleysi mebal
félagsmanna, eba allt ab
20%," segir Sigurbur Gub-
mundsson, formabur Félags
starfsfólks í veitingahúsum.
Hann hefur það eftir veitinga-
mönnum að á sl. tveimur til
þremur ámm sé búinn að vera
40%-50% samdráttur hjá veit-
ingahúsunum.
„Þab þýðir ekki að samdráttur-
inn í heild sinni hafi verið
þetta mikill, því stöbum hefur
fjölgað. Það hefur hinsvegar
ekki haft í för með fleiri störf,
nema síður sé."
Sigurður segir að ljósi punkt-
urinn í atvinnustarfseminni sé
ótvírætt í ferðaþjónustunni í
heild sinni og alveg ástæðu-
laust að gera lítið úr því. Hins-
vegar er samdráttarskrúfan allt-
af ab heröast þannig að aukn-
ing í ferðaþjónustu gerir mönn-
um aðeins kleyft að spyma vib
fótum. „Svo vib förum ekki
neðar."
Þrátt fyrir samdráttinn hefur
ekki verib jafn mikið um gjald-
þrot í bransanum og áður var.
Þá var á tímabili unnið í hluta-
starfi á skrifstofu félagsins vib
að gera kröfulýsingar í þrotabú.
„Eg vona þó að stærsta alda
gjaldþrota sé liðin, en það er þó
alltaf eitthvað smávegis. Hins-
vegar sáum við að það verður
sífellt erfiðara um skil, sem sýn-
ir náttúmlega þá erfiðleika sem
við er að etja í greininni," segir
Sigurður Guðmundsson, for-
maður Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum.
-grh
lönnemar uröu aö hœtta viö fyrirœtlanir um aö innrétta Bjarnaborg sjálfir undir stjórn meistara:
Báru reglurnar sigurorb af
skynseminni í Bjarnaborg?
Félagsíbúbir iðnnema hafa
undirritab verksamning vib
Trésmibju Snorra Hjaltason-
ar um lokafrágang á Bjama-
borginni í Reykjavík, fyrst
og fremst innréttingu 15
leiguíbúba fyrir ibnnema.
Talsmabur Félagsíbúba, Ól-
afur Þórbarson, var því
spurbur um hvab orbib hefbi
um þær upphaflegu hug-
myndir iönnema ab innrétt-
ing Bjamaborgar yrbi eins
konar verkskóli nema í
byggingargreinunum sem
ekki höfbu fengib starfsþjálf-
un vib Iðnskólann, sem
mundu vinna ab öllum verk-
þáttum undir stjóm meist-
ara, 1 fyrir hverja 2-3 nema.
„Fræðslunefndir byggingar-
greinanna gátu ekki sætt sig
við þetta. Vinnuregla þeirra er
að það skuli vera einn meist-
ari, eba sveinn í hans umboði,
á hvem nema. Það þarf því
alltaf a.m.k. einn svein á móti
hverjum nema, og þau skilyröi
gátum viö ekki uppfyllt. Þar
meö var þessi tilraun stöðvub,
sem hefði verið ómetanleg,
m.a. vegna hins mikla starfs-
þjálfunarvanda, þar sem stór
hluti ibnnema sem er að út-
skrifast úr skólum nær aldrei
að klára nám sitt."
Heildarkostnað vib Bjama-
borgina segir Ólafur áætíaðan
um 85 milljónir króna að
framkvæmdum loknum. Þar
af sé kaupverð hússins í núver-
andi ástandi u.þ.b. helmingur.
Meginhlutinn, eða tæplega
87% kostnaðarins, er fjár-
magnaður með láni úr Bygg-
ingarsjóbi verkamanna, um
3,5% (3 milljónir) meb styrk
Bjamaborg í dag.
Tímamynd CS
frá Reykjavíkurborg og um
10% verbi eigin fjármögnun
Félagsíbúða.
Að sögn Ólafs er húsið núna
einn geimur. Nánast öll inni-
vinna sé eftir. „Við og arkitekt-
amir höfum tekið þá stefnu að
halda sem mest hinni upp-
runalegu húsaskipan. Þ.e.a.s.
skiptingu íbúða og frágangi
veggja. Ég á m.a. von á því að
íbúðimar verði panelklæddar í
hólf og gólf." Ýmsu verður þó
að breyta því ekki gildir t.d.
lengur að fjölskyldur geri sig
ánægðar með að vera tvær til
þrjár um sama eldhúsið. Og
því síður ab þurfa ab notast
við kamar úti í garði, eins og
þeir sem bjuggu í Bjamaborg
fyrstu árin. Mest bjuggu um
170 manns í húsinu í einu, eða
rúmlega 11 manns ab meðal-
tali í hveri íbúð, sem vom 15
talsins.
Áætlað er að innrétta aftur 15
Hjá Félagsíbúbum ibnnema var létt yfir mönnum vib undirskríft samninga
um lokafrágang Bjarnaborgar. Efrí röb: Ólafur Þórbarson, Halldóra Ing-
varsdóttir og Brjánn jónsson. Fremrí röb: Snorrí Hjartarson trésmíbameist-
arí, Krístinn E. Einarsson og Ceorg Páll Skúlason. Tímamynd cs
íbúðir í Bjarnaborg, 5 á hvorri
hæb, fjórar í risi og eina í kjall-
ara, ásamt lesstofu og leikher-
bergi fyrir böm. Grunnflötur
hússins er 270 fermetrar sem
þýðir 54 fermetra aö meðaltali
á íbúðimar 10 á hæðunum.
Stærð íbúðanna verður nokk-
uð mismunandi, frá 45 ferm.
upp í um 65 fermetra. Fram-
kvæmdum á að vera lokið
þann 27. ágúst þegar áætíað er
að afhenda fyrstu leigjendum
íbúbirnar.
Hvaö snertir starfsþjálfunar-
vandann sem áður er á minnst
segir Ólafur hann vera miklu
stærra vandamál en margir
virðast gera sér gein fyrir.
„Menn em að koma út eftir
3ja til 4ra ára skólanám og
vantar 9 til 18 mánaða starfs-
þjálfun til þess að fá ab ljúka
námi. En þeir fá hana ekki og
þar af leiðandi eru allt þetta
nám ónýtt," segir Ólafur.
Framansagt leiðir hugann að
ennþá nærtækara dæmi, við-
haldi sjálfs Iðnskólans í
Reykjavík, þar sem um 1.700
ungmenni (t.d. álíka fjöldi og
allir íbúar Borgamess) stunda
nám, þar af stór hluti í bygg-
ingargreinunum. Hljóta ekki
að vera þar stór og viðvarandi
verkefni fyrir „verkskóla" inn-
an dyra?
„Við skulum orða það þannig
aö iönnemamir í skólanum fá
ekki ab koma nálægt viðhaldi
Iðnskólans í Reykjavík. Hins
vegar hefur hann nánast sér-
stööu ab þessu leyti. í fjölda
iðnmenntaskóla annars staðar
á landinu vinna nemamir í
sínum tímum við ýmisskonar
vibgerðar- og viðhaldsvinnu í
skólunum. Nærtækasta dæm-
ib er hér uppi á Akranesi,"
sagði Ólafur Þórðarson.
-HEI