Tíminn - 04.02.1994, Síða 16

Tíminn - 04.02.1994, Síða 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburiand og Subvesturmib: Dálítil snjómugga en slydda eba rigning á mibum. • Faxaflói og Faxaflóamib: Austan gola en síban kaldi og stinnings- kaldi. Dálítil snjókoma eba slydda sunnantil en annars þurrt. • Breibafjörbur, Vestfirbir, Breibafjarbarmib og Vestfjarbamib: Subaustan gola en kaldi og síban stinningskaldi. El a stöku stab, annars bjart vebur meb köflum. • Strandir og Norburíand vestra, Norburland eystra, bjorbvest- urmib og Norbausturmib: Subaustan stinningkaldi í dag. El á stöku stab. • Austuriand ab Glettingi, Austfirbir, Austurmib og Austfjarba- mib: Subaustan og austan stinningskaldi og síbar allhvasst á mibum. Súld, einkum á mibum og annesjum. • Subausturiand og Subausturmib: Hægt vaxandi austan og sub- austan átt en allhvasst og síban hvasst á mibum. Áfram rifiö viö Skúlagötu Ekki er Ijóst hver ber ábyrgb á ammoníaksleka, sem varb í gömlum byggingum Sláturfélags Suburlands vib Skúlagötu á mibvikudagskvöld. Reykjavíkur- borg eignabist húsib og lóbirnar fyrir tœpu ári, en undanfarib hefur verib unnib vib ab rífa húsib. Þó nokkurt magn af ammoníaki lak út í andrúmsloftib úr leibslum kœlikerfis, en talsmenn SS telja sig hafa tœmt allt ammoníak af kerfinu þegar þeir afhentu borginni húsib. Ác/Tímamynd cs 850 tonn af lambokjöti á markaö í Svíþjóö, Fœreyjum, Bandaríkjunum og meginlandinu: Offramleiösla í lambakjöti seld Af hálfu sjómanna er áscett- anleg lausn í sjónmáli í kvótabraskinu: Davíö og Þorsteinn efni gefin loforo „Það liggur ljóst fyrir af> bæöi forsætisráðherra og sjávarút- vegsráðherra hafa lofað okk- ur því aö setja styrkingar- ákvæöi inn í lög varöandi kjarasamningana, þannig að menn veröi ekki reknir fyrir það eitt að láta í sér heyra," segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands. Hann segir að kvótabraskið ætti aö verða úr sögunni í öll- um venjulegum viðskiptum með tilkomu þessara styrking- arákvæða, ásamt tillögum Þrí- höfðanefndar um kvótaþing, þannig að ekki verði hægt að greiða fyrir afla með veiðirétti, eins og verið hefur í tonn á móti tonni. Fulltrúar sjómanna og útvegs- manna vom kallaðir fyrir sjáv- arútvegsnefnd Alþingis í vik- unni. Þar vom fulltrúar sjó- manna spurðir fjölda spum- inga og m.a. álits á bráðabirgðalögunum, hvört til- lögur Þríhöfðanefndar væm ásættanlegar og mundu leysa þeirra mál og hvaða áhrif þær mundu hafa fyrir landsbyggð- ina. Viðbúiö er að fulítrúar hagsmunaaðila verði aftur kall- aðir fyrir sjávarútvegsnefndina sökum þess hversu viðamikið þetta mál er. „Mér finnst gæta dálítils mis- skilnings í þessu máli af því að við segjum að tillögur nefndar- innar einar og sér nægi ekki. En þá reiknum viö alltaf með því að loforð komi í framkvæmd. Maður sér ekkert skárra í þessu en þetta," segir Helgi Laxdal. Hann segist ekki hafa orðið var viö að búið sé að leggja fram fmmvarp til laga sem tek- ur á kvótabraskinu. Helgi segist hafa skilið það svo að fyrir 1. febrúar sl. mundi verða lagt fram fmmvarp sem útilokaði þátttöku sjómanna í kvóta- kaupum. -grh Verið er aö ganga frá sölu á þeim 850 tonnum af lamba- kjöti sem til féllu utan kvóta á síðasta hausti. Kjötið er selt úr landi án útflutningsbóta og búist er viö aö unnt verði aö selja út nokkur hundruð tonn til viðbótar á árinu. Hér er um s.k. umsýslukjöt að ræða, en það er í raun offram- leiðsla sauðfjárbænda sem er án nokkurrar ríkisábyrgðar. Þetta er sá huti framleiöslunnar sem lýt- ur algerlega markaðslögmálum og skilaverö til bónda ræðst af því hversu hátt verð fæst á markaöi erlendis. Mestur hluti lambakjötsins veröur seldur til Svíþjóðar og Færeyja, en gert er ráð fyrir að um 600 tonn fari til Svíþjóöar og um 150 til Færeyja. Þessi útflutningur er samvinnu- verkefni Goða og Sláturfélags Suöurlands. Verðið fyrir hvert kíló er um 240 krónur, sem þýð- ir um 170 króna skilaverð til bóndans. Þaö er um 70% af venjulegu grundvallarveröi fyrir innlagt kjöt, en taka verður með í reikninginn að beingreiðslur ríkisins til bænda eru ekki inni í grundvallarverði. Þá hefur Kaupsýslan hf. þegar sent fyrstu sendingu af lamba- kjöti til Bandaríkjanna. Einung- is er um lítið magn kjöts að ræða, en ætlunin er að reyna að markaðssetja íslenska lamba- kjötið vestanhafs sem lífræna framleiðslu. í einhverjum tilfell- um hafa litlar sendingar af kjöti verið seldar á meginlandi Evr- ópu. -ÁG Össur Skarphéöinsson umhverfisráöherra segist ekki vera aö brjóta lög á starfsmönnum veiöistjóra: Lögunum um embætti veibistjóra verbur bráblega breytt Össur Skarphéðinsson um- hverflsráöherra segir ab flutn- ingur á embætti veiðistjóra til Akureyrar kalli á lagabreyt- ingu og vísar því á bug að til standi ab brjóta lög á starfs- mönnum embættisins með því að flytja þab frá Reykja- vík. Laganefnd BHMR telur að um- hverfisráðherra skorti lagaheim- ild til að leggja veiöistjóraemb- ættiö niður og telur einnig aö hann hafi ekki virt rétt starfs- manna samkvæmt stjómsýslu- lögum. „Það kemur alveg skýrt fram í þessum úrskurði að laganefnd BHMR er sammála því að ráð- herra hafi vald til að flytja stofnanir á milli landshluta. Nefndin heldur því hins vegar fram að það sé lögbrot hjá mér aö ætla að sameina embætti veiðistjóra við setur Náttúm- fræðistofnunar á Akureyri. Það er alveg skýrt, eins og ég tók fram þegar ég kynnti þetta mál á Akureyri, að það þarf að breyta lögum ef það á aö vera hægt að sameina embætti veiðistjóra Náttúmfræðistofnun á Akureyri og það verður gert. Ríkisstjómin hefur þegar samþykkt að gera slíka breytingu." Össur sagðist ekki vera sam- mála þeirri skoðun laganefndar BMHR að verið sé að leggja niö- ur störf þeirra sem vinna hjá veiöistjóraembættinu í dag með því að sameina embættið setri Náttúmfræðistofnunar á Akur- eyri. Hann sagði að ef álit laga- nefndarinnar væri rétt þá séu til lög í landinu um hvemig eigi að fara með slík mál. „Þetta er algjör prófsteinn á það hvort hægt sé að flytja stofnanir frá Reykjavík. Þetta er lítil stofnun. Hún sinnir verk- efnum á landsbyggðinni og þess vegna er í hæsta máta eðlilegt að hún sé staðsett á landsbyggð- inni. Ég tel rökrétt að hún sé sett undir setur Náttúmfræði- stofnunar á Akureyri vegna þess að þar vantar dýrafræðideild," sagði Össur. Óssur sagði að nýlega hefðu farið fram viðræður á milli um- hverfisráðuneytisins og starfs- manna veiðistjóraembættisins. Hann sagði að í viðræðunum hefði komið fram ósk frá starfs- mönnum um að embættið yrði ekki flutt frá Reykjavík fyrr en um áramót og hann hafi ákveb- ið ab verða vib því. Viðræðun- um veröur haldið áfram. -EÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.