Tíminn - 18.03.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 18.03.1994, Blaðsíða 9
Föstudagur 18. mars 1994 Æ5%T«1%!» m |TyrriTv|r 9 Reynsluakst- ur Ford Mondeo 2.0 I hlaðbaks Asíöasta ári kynntu Ford- verksmiöjumar arftaka Sienunnar á Evrópu- markaöi. Bamiö hét og heitir enn Ford Mondeo og þótti bráöefnilegt strax viö fæöingu. í útliti minnir hann nokkuö á stóra bróöur Taums. Mondeo hefur sópaö aö sér verölaunum, en hann var, eins og viö höfum áöur skýrt frá í bílaþætti, kjörinn bíll ársins 1994 fyrir skömmu. Þar fékk Ford Mondeo góöa ein- kunn fyrir hönnun, frágang, verö og ríkulegan búnaö. Mondeo var í stuttum reynslu- akstri hjá Tímamðnnum í síö- ustu viku. Bílnum var ekiö tæp- lega 300 km, en þat naut undir- ritaöur dyggrar aöstoöar Jóhann- esar Geirs Sigurgeirssonar, alþingismanns Framsóknar- flokksins í Noröurlandskjördæmi eystra. Jóhannes Geir tilheyrir þeim helmingi þjóðarinnar sem er með bíladellu. Til þess aö hafa meira gaman og gagn af reynslu- akstrinum höfum við ákveöiö aö bjóða forföllnum bílaáhuga- mönnum að taka í gripina og meta kosti og galla aö akstri loknum. Jóhannes Geir ríöur hér á vaðið, en það er von okkar aö lesendur taki þessari nýbreytni vel. Sú útgáfa af Mondeo, sem viö ókum til reynslu, var sjálf- skiptur, 5 dyra hlaöbakur meö 2.0 1, 4 strokka bensínvél. Vélin skilar 100 kW eöa 136 ha. Togib er 180 N við 4000 sn./mín. Sjálf- skiptingin er fjögurra þrepa með yfirgír og stillingu fyrir skiptingu á viö misháan snúningshraöa. Veröiö er rúmlega 2 m.kr., þar af kostar sjálfskiptingin tæpar 100 þúsund krónur. Ríkulega búinn í Evrópusambandslöndunum eru ABS-bremsur og loftpúði í stýri staöalbúnaöur í Mondeoin- um. Hér á landi er því hvom tveggja sleppt, en hægt aö fá loft- púöa og hemlalæsivöm sem aukabúnaö. Bíllinn er sömuleiöis ekki meö dagljósabúnaöi hér á landi, sem getur bæöi veriö kost- ur og galli, en fyrir vikiö veröur hann ódýrari. Engu aö síöur er staðalbúnaöurinn ríkulegur. Huröir em samlæstar, útispeglar og rúðuvindur rafknúin og bíll- inn búinn vökva- og veltistýri. Þaö er ekki einasta hægt að stilla stýrishallann, heldur einnig fjar- lægð stýrishjólsins frá öku- manni. Þetta er kostur, mann- fólkiö er ekki allt eins í laginu og þaö getur komiö sér vel fyrir handleggjastutta að geta dregið stýrishjólib nær sér, en þurfa ekki að kreppa fætur meö því að færa sætisstólinn fram. Af öömm skemmtilegum staö- albúnaöi má nefna upphitaöa framrúöu, þjófavamarkerfi, öfl- ug hljómflutningstæki og inni- byggða hátalara. Þaö vantar hins vegar upphitun í sætisstólana að framan, en maöur saknar þess eftir að hafa vanið sig á það. Reyndar benda nýjar rannsóknir erlendis frá til þess að þessi bún- aður geti valdið krabbameini í endaþarmi og ef þaö er rétt, er betra aö vera án haris. Hljóðlátur og góbir hemlar Þegar sest er upp í bílinn og ekið af staö, kemur tvennt á óvart Ford Mondeo hlaöbakur er óneitanlega glœsilegur vagn. Rúmgóður og þægilegur Umsögn Jóhannesar Geirs: „Væri fljótur á honum norður" Jóhannes Geir Sigurgeirsson er mikill áhuga- maöur um bíla. Hann er bóndi úr Eyjafirðin- um og situr jafnframt á þingi fyrir Framsóknar- flokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra. Jóhann- es fór stutta ökuferö á Ford Mondeoinum í Reykjavík og nágrenni. „Það er dálítiö erfitt að ætla sér ab gagnrýna bíl sem bílablaöamenn í Evrópu hafa kosið bíl árs- ins," sagöi Jóhannes Geir ab afloknum reynslu- akstri. Fyrsta atriöi, sem hann nefndi, var góöar jóhannes bremsur, en hann gagnrýndi Mondeoinn fyrir sérkennaleysi í útliti. Þegar hann lagöi bílnum fyrir framan Alþing- ishúsiö þekktu þingveröimir ekki gripinn á fjárbragöinu og spuröu hvort þetta væri Mitsubishi. Jóhannes benti á aö öömm framleiö- endum, eins og t.d. Volvo, BMW og Volkswagen (Golf III), hefði tekist að halda svipmóti bílanna þrátt fýrir nýjar kynslóðir. Hann hældi bílnum fyrir gott rými, en fannst hann dálítiö seinn upp með sjálfskiptingunni. Jóhannes Geir sagöi að áöur en þessi bíll var kynntur heföi Ford ekki veriö á listanum yfir þá bíla sem hann gæti hugsað sér aö kaupa, en Mondeoinn hefði breytt viö- horfinu. Jóhannes fann aö því að frágangur rofa fyrir stillingu á miðstöö væri losaralegur, en hældi frammistöðu hans í akstri á vegum úti. „Ég ætti kannski ekki aö segja þaö opinberlega, en ég býst vib aö ég gæti veriö nokkuð fljótur noröur á honum þessum," sagöi þing- maöurinn að lokum. -ÁG. ar útbúnaöur skipt sköpum. Þessa þætti gefst að sjálfsögöu ekki færi á aö prófa hér, en ör- yggi ökumanns og farþega var ein af ástæöum þess aö bíllinn hlaut titilinn Bíll ársins í Evrópu 1994. Gó&ur fer&abíll me& mikið rými Mondeo nýtur sín einna best sem feröabíll. Rými fyrir farþega og farangur er fimagott og í akstri liggur bíllinn mjög vel, sem reyndar er eölilegt fyrir bíl af þessari stærö. Plássiö afturí er óvenju mikið, en þegar búiö er að leggja niöur sætisbak era tæp- lega 2 metrar frá gafli fram aö framsætisstólunum. Drifiö er á hjólunum aö framan, en ein- hvemveginn situr enn fast í manni ab stórir fólksbílar eigi að vera meö afturdrifi. Samkvæmt upplýsingum frá umboðinu er Mondeo jafnvel væntanlegur meö fjórhjóladrifi með haustinu, en sú útgáfa hljómar spennandi, sér í lagi ef hagstæöir samningar nást um verðið. Bíllinn er meö sjálfstæða gormafjööran á öllum hjólum, sem er mátulega stíf og kemur í heildina vel út. Á þeim tveimur dögum, sem bílnum var ekiö til reynslu, gafst ekki tækifæri til strax á fyrstu kílómetranum. Annars vegar ákaflega skemmti- Iegur hemlunarbúnaður og hins vegar góö hljóöeinangran, bæöi frá vegi og vindgnauöi. Mondeo- inn er búinn diskahemlum að framan og skálum aö aftan, meö heföbundnu hjálparátaki frá vél. Hemlamir era reyndar þaö góöir ab okkur Jóhannesi Geir flaug fyrst í hug aö bíllinn væri meö hemlalæsivöm, en sannreynd- um síöar aö svo væri ekki. Þessi bíll var hannaður nýr frá granni og tekið mið af því að hafa hann sem öraggastan. Hemlar leika ávallt stórt hlutverk viö að afstýra slysum. Veröi slysi hins vegar ekki afstýrt, geta ör- yggislásar í huröum og sérstyrk- ingar á húsi, öryggisbelti og ann- AC 1200 flýtur meb yfir 300 kg og kostar 1380 þús.kr. meö skatti. þess aö aka á almennilegum mal- arvegi, vegna þess aö þeir vora allir meira og minna undir klaka og snjó. Hann reyndist hins veg- ar stööugur á vegi í hálku, og í akstri á vegum úti fannst mjög lítiö fyrir ferbinni, jafnvel þó ek- iö væri greitt. Þetta skyldu Mon- deoeigendur hafa í huga, þegar þeir keyra í gegnum fyrram lög- sagnaramdæmi Jóns ísberg á Blönduósi og í umdæmi Selfoss- lögreglunnar. Vel heppnaöur Eyöslan var ekki mæld, en hún er uppgefin frá framleiöanda sem tæplega 71 á hundraöið í stööug- um akstri á 90 km/klst. og 8,4 1 á hundraðiö á 120 km/klst. Þaö er ekki ólíklegt að eitthvað megi bæta viö þessar tölur til þess aö fá fram raunveralega eybslu við venjuleg skilyrði. Eyöslan hækk- ar a.m.k. veralega á þessum 1300 kg bíl í akstri innanbæjar aö vetri til. í heildina tekið er þetta ríkulega búinn og vel heppnaöur bíll, sem hefur þegar aukiö hróöur Ford í Evrópu. Hvemig bíllinn eldist er- ekkert hægt ab segja um, en þeir sem vilja þægilegan, rúmgóban en þó lipran bíl, sem kemur ekki of mikið viö pyngjuna, ættu að skoöa hann vel. -ÁG Svif- nökkvar Bílasalan Bílanes í Keflavík hóf fyrir skömmu innflutning á svifnökkvum frá Scat Hovercraft í Bandaríkjunum. Tvær tegundir era í boði, nökkvi AC 960 meö 182 kg burðargetu (52 ha.) og AC 1200 meö 318 kg burðargetu (64 ha.). Hámarkshraði beggja svif- nökkva er 80 km/klst. Verðið er í hærra lagi, eöa 940 þúsund kr. fyrir minni nökkvann og 1380 þúsund kr. fyrir þann stærri. Veröin era meö vaski. -ÁG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.