Tíminn - 23.03.1994, Blaðsíða 5
Mibvikudagur 23. mars 1994
sifminiw
5
Valdimar Guöjónsson:
Stofnum félag
Hvað er heilbrigðis-
tækni? spyr sjálfsagt
einhver. Heilbrigðis-
tækni er sú tækni sem tengist
líf- og læknisfræði. Hún er
bæði fræðileg og verkleg og
tengist því sem á ensku er kall-
að „biomedical engineering".
Hún nær yfir allt ferliö hvem-
ig mæli- og meðferðartæki eða
hugbúnaður verður til, allt frá
rannsóknum til notanda. Hún
fjallar um aðferöafræði, örygg-
ismál, gæðakröfur, skipulag og
fleira. Víða erlendis er heil-
brigðistækni orðin sérstök at-
vinnugrein og umfangsmikill
iðnaður.
Undirbúningsnefnd hefur
starfað frá því fyrir áramót við
að móta starfsreglur og skil-
greina starfsvettvang félags-
ins. í þessari nefnd starfa
tæknimenn af spítölum, sölu-
maður lækningatækja og Stoð-
tækjasmiður. Hugmyndin er
sú að þama verði mjög breiður
hópur með mismunandi .
menntun og mismunandi
áhugasvið, sem em þó öll
tengd heilbrigöismálum á ein-
hvem hátt. Þama geta þessir
hópar í fyrsta sinn á íslandi
miðlað þekkingu sín á milli.
Stoðtækjasmiðurinn gæti til
dæmis leitað til tæknimanna á
spítölum með vandamál, t.d.
varðandi mælingar og/eða
greiningar, fengið ráðlegging-
ar og öfugt. Læknar gætu leit-
að til iðnaðarfyrirtækja með
hugmyndir sem þeir hafa að
tækjum og þannig gæti sam-
starfið nýst öllum aðilum.
Háskólastofnanir og fyrirtæki
„Ástœðan fyrir því að
nauðsynlegt er að stofna
sérstakt félag um heil-
brigðistœkni er ört vax-
andi áhugi fyrir þessum
málum. Með því að
miðla upplýsingum og
koma á samböndum
manna á milli gcetu þró-
un, rannsóknir og þekk-
ing aukist á þessu sviði."
VETTVANGUB
stunda rannsóknir og þróun
þar sem samstarf lækna og
tæknimanna leiðir til betri
lækningaaðferða og tækja-
smíði. Fyrirtæki stunda iðnað-
arframleiðslu og viðskipti á
gmndvelli rannsóknanna.
Fjárfestingar sjúkrahúsa í
tæknibúnaði og tækniþjón-
ustu geta sparað rekstrarkostn-
að» til aö mynda meö skilvirk-
ari greiningu og þar með
lækningu sjúkdóma. Einnig
geta fæðst þar hugmyndir að
nýrri notkun tækjanna og að
nýjum tækjum. Læknisfræðin
er orðin þannig að læknir
kemst ekki langt án hjálpar-
tækja og ekki em horfur á öðm
en að í framtíðinni verði kröf-
umar enn meiri. Þannig em
skólar, fyrirtæki og notendur
háðir hver öðmm og geta
Ómar Smári Ármannsson:
um heilbrigðistækni!
styrkt starfsemi sína með sam-
vinnu.
Ástæðan fyrir því að nauð-
synlegt er að stofna sérstakt fé-
lag um heilbrigðistækni er ört
vaxandi áhugi fyrir þessum
málum. Með því að miðla
upplýsingum og koma á sam-
böndum manna á milli gætu
þróun, rannsóknir og þekking
aukist á þessu sviði. Þannig
gæti iðnaðarfyrirtækjum fjölg-
að, matvælaframleiðsla orðið
betri, gjaldeyrir sparast, störf-
um fjölgað og síðast en ekki
síst læknisþjónusta batnað. Fé-
lagiö gæti náð markmiðum
sínum með ráðstefnum, fé-
lagsfundum, vinnuhópum,
fræðslufundum, leshringjum,
fréttabréfaútgáfu og fleiru.
íslendingar byggja afkomu
sína að miklu leyti á matvæla-
framleiðslu. Landbúnaður og
sjósókn hafa verið stunduð
hér alla tíð og sífellt eru að
bætast viö nýjar hugmyndir í
þessum geira. Að hafa vald á
þeirri tækni sem tengist þess-
ari framleiðslu eða að vera í
fararbroddi, gæti skipt okkur
miklu máli. Hér em tilrauna-
stöðvar og rannsóknarstofur
sem nýta sér það nýjasta í
tækniheiminum. Þar er þekk-
ing á sviði heilbrigðistækninn-
ar. Sú þekking gæti gert vinn-
una skilvirkari og jafnvel skil-
að okkur söluvöm. Líf- og
læknisfræðilegar stofnanir em
í samstarfi við erlenda aðila
sem hafa ábyggilega áhuga á
að kaupa sér lausn sinna
vandamála.
Á íslandi em skólar sem
mennta fólk í tækni- og heil-
brigðisfögum og hingaö flykk-
ist fólk aftur eftir nám erlendis
á hinum ýmsu sviðum. Hér er
því gott umhverfi fyrir rann-
sóknir og þróun. Hér er gott
heilbrigðiskerfi og myndarleg-
ar heilbrigðisstofnanir. Þar er
að finna ýmiss konar tækni-
búnað. Hér hefur um áramga
skeið verið viðhald á lækn-
inga- og rannsóknarbúnaði og
er mikil þekking tengd því.
Síðustu ár hafa íslensk fyrir-
tæki litið dagsins Ijós, sem
hafa það að markmiði að lifa á
framleiðslu heilbrigðistækni-
legra vara fyrir einstaklinga og
sjúkrastofnanir.
Hverjir gæm haft áhuga á
svona framtaki? Sviðið er
breitt og erfitt að segja hverjir
eiga þangað erindi og hverjir
ekki. Tæknimenntað fólk með
áhuga á líf- eða læknisfræði
eða fólk úr heilbrigðiskerfinu
með tækniáhuga er líklegt.
Starfsfólk tæknideilda og ann-
arra tæknivæddra deilda á
sjúkrahúsum, fyrirtækjum eða
einstaklingar sem tengjast
beint eða óbeint iðnaðarfram-
leiðslu og viðskiptum á heil-
brigðistæknisviðinu.
Stofnfundur verður haldinn í
Gerðubergi fösmdaginn 25.
mars klukkan 15.00. Á dagskrá
verða auk stofnunar félagsins
nokkrir stuttir fyrirlestrar.
Viktor Magnússon, rafeinda-
tæknir á Landspítalanum,
mun tala um „Nýja tækni í
heilbrigðisþjónustu", Kristinn
Sigvaldason, svæfingalæknir á
Borgarspítalanum, mun tala
um „Þarfir notanda fyrir
tækniþjónustu", Þórður
Helgason, verkfræðingur á
Landspítalanum, mun tala um
„Nýsköpun í heilbrigðis-
tækni" og Erla Rafnsdóttir,
markaðsstjóri hjá Össuri hf.,
mun tala um markaðssetn-
ingu.
Undirbúningsnefndin setti
upp lista yfir þá einstaklinga
og þau fyrirtæki sem hún taldi
að hefðu áhuga á málinu og
sendi þeim bréf með fundar-
boði. Þar sem sá listi er engan
veginn tæmandi, kynnum við
þessi mál hér. Allir, sem áhuga
hafa á tæknimálum sem tengj-
ast á einhvem hátt heilbrigðis-
sviði, em velkomnir meðan
húsrými leyfir. Aðgangur er
ókeypis.
Höfundur er stoötækjasmiöur og starf-
ar hjá Össuri hf.
Mikil eða lítil löggæsla
ITímanum föstudaginn 18.
mars sl. birtist grein eftir Krist-
in Snæland undir fyrirsögn-
inni „Lítil löggæsla". Hann finn-
ur m.a. „að linkind og lítilli eða
slakri löggæslu varðandi hin
minni brot í umferðinni", og seg-
ir „að ef þau líðist sé líklegt að þau
ýti undir hin meiri og hættulegri.
Gagnvart öllum þessum smábrot-
um, sem eftir atvikum geta verið
afar alvarleg og afdrifarík, þyrfti
að snúast. Ekki með sektum eða
dómum, heldur með því að
stöðva viökomandi og áminna".
Kristinn segir að til þess þurfi lög-
reglufólk að vera bæði á merktum
og ómerktum farartækjum. Þá
finnst honum umferðareftirlit
lögreglunnar vera og lítið og vek-
ur athygli á því að samdráttur
hafi orðiö varöandi vegalöggæsl-
una svokölluöu.
Hægt er að taka undir margt hjá
Kristni. En hann og abrir mega
ekki gleyma því að afbrot er fyrst
og fremst þeim um að kenna, sem
þab fremur. Aðrir þættir hafa þar
vissulega áhrif, svosem mögu-
leiki, tækifæri og aðstaöa. Þar
skipta og viöhorf, skilningur og
vilji miklu máli. Ef árangúr á að
nást, þarf aö vinna með alla þessa
þætti og löggæslan gerir það
ásamt mörgu öbru. Hennar er
m.a. að gera sitt til þess aö sjá til
þess aö samfélagið megi vera’með
þeim hætti ab sem flestir geti við
unað. Það er ekki létt verk, en
hún reynir þaö þó af fremsta
megni eftir því sem hún hefur
möguleika og abstööu til á hverj-
um tíma. Ekki má þó gleyma að
„Lögreglan er skömmuð
jafnt fyrir það sem hún
gerir og það sem hún á
að hafa gert, fyrir það
sem hún á að gera en
hefur ekki gert, hefði bet-
urgerteða hefði betur
látið ógert, allt eftir því
hver hlut á að máli."
beina athyglinni ákveðið að
þeim, sem ekki fara aö settum
reglum eða sýna af sér ámælis-
verða háttsemi.
Lögreglan gengur eðlilega út frá
því að hún kemur aldrei til með
aö geta haft afskipti af öllum
þeim sem brjóta af sér í umferð-
inni. Hún hlýtur því aö forgangsr-
..i' •: '
_
VETTVANGUR
aða verkefnum sínum eftir mikil-
vægi og áherslum frá einum tíma
til annars. Á undanfömum ámm
hefur lögreglan í Reykjavík t.d. ár-
lega þurft að sekta, áminna eba
hafa önnur afskipti af a.m.k. tutt-
ugu þúsund ökumönnum eða
öörum vegfarendum. Fjöldinn er
að vísu allnokkru meiri, en ná-
kvæm tala liggur ekki fyrir vegna
þess að afskipti lögreglumanna af
hinum minni brotum eru yfirleitt
ekki skráb sérstaklega. Tiltal eða
létt áminning er venjulega látin
nægja í þeim tilvikum. Þá sinna
lögreglumenn árlega u.þ.b.
40.000 öðrum útköllum og rita
um 32.000 skýrslur, auk þeinar
miklu vinnu, sem fylgir fram-
haldsrannsókn og eftirfylgju
hinna ýmsu mála.
Lögreglan er skömmuð jafnt fyr-
ir þab sem hún gerir og þab sem
hún á að hafa gert, fyrir þaö sem
hún á að gera en hefur ekki gert,
hefði betur gert eða hefði betur
látib ógert, allt eftir því hver hlut
á ab máli. Þá er hún jafnt skömm-
uð fyrir ab vera of virk og af-
skiptasöm í starfi og að sinna ekki
nægilega vel hinum smærri mál-
um. En eins og gefur að skilja í
jafnmargslungnu starfi og lög-
reglumannsstarfið er verður aldr-
ei hægt að gera öllum alltaf til
hæfis. Slík' er fullkomnunin ekki
orðin enn. Þangað til kemur hún
til með aö sæta gagnrýni frá þeim
sem telja sig vita betur eða hafa
abra skoðun á einstökum málefn-
um löggæslunnar. Lögreglan hef-
ur þó síst á móti sanngjamri og
málefnalegri umfjöllun um störf
sín.
Ástæða er til að taka undir þá
kröfu Kristins að lögreglan eigi að
starfa af fullum krafti. Og þab em
fáir honum meira sammála um
að efla beri löggæsluna í landinu
en lögreglumennimir sjálfir.
Höfundur er abstobaryfirlögregluþjónn
í Reykjavík.