Tíminn - 29.03.1994, Qupperneq 6

Tíminn - 29.03.1994, Qupperneq 6
 Þriðjudagur 29. mars 1994 Þú og ég, vib erum svo, yfirmáta ástfangin... Dóttirin fékk aubvitab ab vera meb. Trúlofun í beinni á FM: Me6 hringana álofti Fyrsta pariö sem trúlofaðist í beinni útsendingu í trúlofunar- leik útvarpsstöðvarinnar FM og Tímans hélt upp á daginn með miklum stæl síðastliðinn föstu- dag. Þaö voru þau Ásta Eðvalds- dóttir og Ólafur Ásgrímsson sem voru fyrst til aö heitbindast á þennan eftirminnilega hátt. Valdís Gunnarsdóttir, dagskrár- gerðarmaður á FM, sér um að velja þann sem fær aö biöja sinnar heittelskuðu í beinni út- sendingu á FM alla föstudaga í mars og apríl (nema föstudag- inn langa). Ásta og Ólafur fengu aö sjálfsögðu veglegar gjafir í til- efni dagsins, m.a. blómvönd frá blómabúðinni Dögg, hringa frá Gulli og silfri og fataúttektir frá verslununum 4 You, Ég og þú og Blu di Blu. Til að kvöldið gæti heppnast sem best fékk Ásta ókeypis förðun með snyrti- vörum frá Elisabet Arden og hárgreiðslu hjá Stúdíói Hall- gerðar. Þau borðuðu kvöldverö á veitingastaðnum Lækjar- brekku og eftir hann var þeim ekið á Flughótelið í Keflavík með leigubíl frá BSR. Ekki var þó allt búið enn, því daginn eftir beið þeirra bíll frá bílaleigu Ævars í Keflavík til að þau gætu variö hádeginu í Bláa lóninu. Ljósmyndari Tímans fylgdist með Ástu og Ólafi á föstudegin- um og h.ér sjáum við brot af því sem þau upplifðu þennan dag. * I hárgreibslu hjá Stúdíói Hallgerbar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.