Tíminn - 29.03.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.03.1994, Blaðsíða 9
Þri&judagur 29. mars 1994 aiT r 11 mmmm 9 Danska stjórnin einkavœbir Kaupmannahafnarflugveilina: Danska stjórnin ætlar að selja hlut úr Kastrup Kaupmannahöfn, Reuter Danska samgönguráðuneytiö tilkyxmti í gær aö ríkið ætlaði að selja fjórðung af fyrirtækinu Flugvellir Kaupmannahafnar fyrir upphæð sem svarar sjö milljöröum íslenskra króna. Flugvellir Kaupmannahafnar (Köbenhavn's Lufthavn A/S) eiga og reka alþjóðaflugvöllinn Kastrup og flugvöllinn Tuna sem er á milli Kaupmannahafn- ar og Hróarskeldu. Kastrup er sjöundi stærsti flug- völlur Evrópu. Um hann fara nærri tíu milljónir farþega ár- lega og 42 flugfélög sinna áætl- unarflugi frá flugvellinum. Flugvellir Kaupmannahafnar skiluðu rúmlega tveggja millj- arða króna hagnaði á síðasta ári og búist er við svipubum gróöa á þessu ári. Opinber skráning hlutabréfa fyrirtækisins byrjar ekki fyrr en 11. apríl næstkomandi. Stjóm sósíal-demókrata hefur nú hafið mikla einkavæðingar- herferð með fullu samþykki stærstu stjómarandstöðuflokk- anna. í síöustu viku vom 48.3% hlutabréfa símafyrirtækisins Tele Danmark sett á sölu en það er viðamesta einkavæðing í danskri sögu. Fyrirtækið hefur aö undanfömu verib rekið með miklum hagnaði og verðmæti hlutabréfanna sem selja á er tal- ið nema sem svarar 200 millj- örðum íslenskra króna. Frönsk stjórnvöid leggja til hliöar frumvarp um sérstaklega lág laun fyrir vinnu ungs fólks: Balladur gefur eftir í átökum viö franska námsmenn Keuier Blóöugur mánu- dagur í Jóhann- esarborg Til blóöugra átaka kom í jóhannesarborg ígær í kjölfar göngu Zulu- manna í gegnum miöborgina. Aö minnsta kosti 18 manns voru drepnir í átökunum og formœlandi lögreglunnar sagöi aö tala lát- inna vceri líklega í kringum 25. Zulumennirnir vildu meö göngunni lýsa stuöningi viö kröfu leiö- toga síns, Goodwill Zwelithinis konungs, um aö fá aö stofna full- valda ríki í Natalhéraöi. latinn París, Reuter Frönsk stjómvöld tilkynntu í gær að hætt hefbi verið við að leggja fram fmmvarp til laga um að atvinnurekendum yröi heim- ilt að greiða sérstaklega lág laun fyrir vinnu fólks undir 25 ára aldri. Samkvæmt frumvarpinu mætti ráða ungt fólk til starfa um skamman tíma á gmndvelli þessa að um starfsþjálfun væri að ræða. Unga fólkið þyrfti að vera yngra en 25 ára og þiggja laun sem væm lægri en lág- markslaun á frönskum vinnu- markaði. Balladur tilkynnti forsvarsfólki námsmanna í gær að hann ætl- aði að leggja fyrirætlanir sínar um sérstök lágmarkslaun í salt. Formælandi ríkisstjórnarinnar sagði að forsætisráðherrann hefði óskað eftir því við Vinnu- málaskrifstofu ríkisins aö hún kannaði aðrar leiðir til að auka möguleika ungs fólks á að fá vinnu. Undanfamar vikur hafa mörg hundmð þúsund námsmenn gengið fylktu liði um stræti borga landsins til að mótmæla fmmvarpinu. í framhaldi af því kom hvaö eftir annaö til átaka námsmanna og lögreglu. Formælendur námsmanna segjast ekki ánægðir fyn- en hætt hefúr verið við með öllu að setja námsmenn í sérstakan launabás. Virtasti leiðtogi Maóría á Nýja- Sjálandi, Dane Whina Cooper, er látin 98 ára að aldri. Hún baröist alla ævi fyrir réttindum fmmbyggja landsins og fyrir því að stjómvöld létu af hendi land sem Bretar tóku af Maóríum á nýlendutímanum. Dane Whina starfaði með 14 forsætisráöherrum Nýja-Sjá- lands ab auknum réttindum fmmbyggja. Maóríar áttu í blóðugum styrj- öldum við Breta um og eftir miöja nítjándu öldina og fækk- aði þeim þá mikið. Þeim hefur orbið vemlega ágengt í réttinda- baráttu sinni undanfarin ár og tekiö er tillit til mngu þeirra og menningar í skólum, útvarpi og sjónvarpi. Vinnings laugard (s)( 3« !»iur 26. mars 1994 | pf») (11) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA : 1. 5af 5 1 2.021.912 2. 4af5® tf 3 117.188 ■ 3. 4af5 92 6.591 4. 3af5 2.780 509 Heildarvinningsupphæð þessaviku: 4.394.868 kr. M . ÆSm ! upplýsingar:sImsvari91 -681511 lukkul!na991002 Þátttaka meb drœmara móti í ítölsku þingkosning- unum: Kannanir benda til þess aö hrein úrslit fáist í kosningunum Róm, Reuter Mikil spenna er ríkjandi á Ítalíu vegna þingkosninganna í gær og á sunnudag. Kosningamar em taldar þær mikilvægustu frá 1948. Samkvæmt upplýsingum inn- anríkisráðuneytisins höfðu tæp- lega 70% kjósenda greitt atkvæöi klukkan 13.00 í gær. Á sama tíma í kosningunum 1992 höfðu rúm- lega 78 af hundraði atkvæða- bærra ítala neytt kosningaréttar síns. Kosningamar nú em taldar marka endalok þeirrar spillingar sem hefur riðið húsum í ítalskri pólitík á liðnum áramgum. Stór hluti þeirra sem nú tekur sæti á þingi hefur lítið komið nálægt landsmálapólitík fram til þessa. Kosningamar núna em afleið- ing hneykslis sem kallað hefur verib Tangetopoli-skandallinn og varð fyrst opinbert fyrir tveimur ámm. Þá kom í ljós aö kristilegir demókratar og sósíal demókratar höfðu misnotað stjómarsetu sína með ótrúlegiun hætti. Stjómmálaskýrendur lýsm því sem ráni um hábjartan dag og sá rændi var ríkiskassinn. Þrenna Man.Utd úr sögunni Aston Villa kom nokkuð á óvart á sunnudaginn þegar liðib bar sigur úr býtum á stjömu prýddu liði Manc- hester United í úrslitaleik deildar- bikarkeppninnar, 3-1, á Wembley. Með þessu er ljóst að Man. Utd get- ur ekki unnið þrennuna svoköllubu sem svo margir höfðu búist vib en ekkert enskt félagslib hefur náð þeim árangri, þ.e. að sigra á sama keppnistímabilinu í deildarkeppn- inni, deildarbikamum og bikar- keppninni. Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri Man. Utd, sagði eftir leikinn að það væri harla ólíklegt ab nbkkurt lið gæti náb þrennunni. Ósigurinn á sunnudaginn kórón- aði lélegt tímabil Man. Utd sem hófst 5. mars þegar libib tapaði á heimavelli fýrir Chelsea. Síöan þá hefur liðið tapað níu mikilvægum stigum í deildinni og fjórum sinn- um hafa leikmenn liðsins þurft að líta rauða spjaldið hjá dómurunum. Markvörðurinn Peter Schmeichel lék ekki með á sunnudaginn vegna þessa og Eric Cantona fékk nýlega 5 leikja bann vegna tveggja rauðra spjalda. Þá var Úkraínumaburinn Andrei Kanchelskis rekinn út af á lokamínútunum á sunnudaginn fyrir að verja með höndum á mark- línunni og var það í fyrsta skipti á hans keppnisferli. Kanchelskis, Can- tona og Roy Keane missa allir af leiknum gegn Oldham í undanúr- slitum bikarkeppninnar á Wembley um aðra helgi. Ferguson viöurkenndi eftir leikinn að hafa gert mistök í vali á byrjunar- liði. „Ég hefði átt ab hafa t.d. Bryan Robson, Brian McClair, Lee Sharpe og Dion Dublin í liðinu en það yom þeir sem komu liöinu á Wembley." Sigur Aston Villa var sá fyrsti í stór- keppni síban þeir sigmðu á þeim vettvangi í Evrópukeppni bikarhafa 1982. Sigurinn á sunnudaginn var fjórði titill Aston Villa í deildarbik- amum og hafa þeir nú oftast allra liða unnið þennan titil ásamt Li- verpool og Forest. Man. Utd byrjaði leikinn betur en Mark Bosnich sá við öllu í marki Villa. Daniel Atkinson nábi svo for- ystunni fyrir Villa á 15. mínútu og eftir það var leikurinn nánast í höndum þeirra. Dean Saunders jók muninn á 75. mínútu en Mark Hug- hes klóraði í bakkann fyrir Man. Utd á 82. mínútu en Saunders var aftur á ferðinni á lokamínútunni úr víti og tryggði Villa sanngjaman sigm, 3-1.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.