Tíminn - 12.04.1994, Blaðsíða 2
2
Þriöjudagur 12. apríl 1994
Tíminn
spyr...
Tíminn spyr: Veröa sjávarút-
vegsmálin afgreidd á þessu
þingi?
Salome Þorkelsdóttin
Sjávarúvegsmálin eru náttúru-
lega langstærstu málin en ég
get ekkert um þa& sagt á þessu
stigi málsins hvort þau verði af-
greidd á þessu þingi. Málib er
ennþá í nefnd og ég bíð með að
gefa út yfirlýsingar um af-
greiðslu málsins fyrr en ég sé
hvemig þaö kemur frá nefnd-
inni.
Jóhann Ársælsson:
í þeim skilningi að sjávarút-
vegsmál , ríkisstjómarinnar
verði lögð fyrir þá segi ég nei.
Hins vegar trúi ég því ekki að
þingmenn fari heim af þingi án
þess að breyta einhverju í lög-
unum um stjóm fiskveiöa. Aö
minnsta kosti verður aö tryggja
að breyting verði þar sem kom-
iö verði tll móts við sjómenn.
Eftir bráðabirgðalögin þá er
ekki verjandi að fara heim af
þingi án þess að standa að ein-
hverju leyti við það sem ríkis-
stjómin lofaði þar. Lögin um
stjóm fiskveiða em svo gölluð
hvað varðar litlu bátana og
verði þeim ekki breytt þá er ver-
iö að leggja atvinnu fjölda
manns um land allt í rúst.
Þannig að ég trúi ekki öðm en
einhver lög um stjómun fisk-
veiöa nái fram að ganga þótt
vitað sé að stóra málið nær ekki
fram að ganga.
Anna Ólafsdóttir Bjömsson:
Ég get ekki séð aö samkomulag
milli stjómarsinna innan sjáv-
arútvegsnefndar sé í sjónmáli.
Ef sameiginlegt frumvarp
stjómarsinna lægi fyrir, þá væri
það fróðleg lesning. Það er þó
rétt að geta þess að líklegasta
málið til aö ná meirihluta í
nefndinni er smábátamálið en
þaö er samt alls ekki sjálfgefið.
Rjúpur nœrrí fjóröungi fœrrí á boröum síöustu jól en áriö áöur samkvœmt Viöhorfskönnun:
Um 75 þús. rjúpur étnar
um og í kringum jólin
Um 17,5% landsmanna
15—75 ára borbuðu rjúpur á
tímabilinu október- -janúar
samkvæmt niðurstöbum
könnunar sem Viðhorf gerbi
fyrir Skotvís.
Þetta var fækkun úr tæplega
21% í samsvarandi könnun ár-
ið áöur. Langsamlega flestir
höfðu aðeins einu sinni borð-
að rjúpur á tímabilinu. Flestir
(46%) borðuðu tvær rjúpur og
fimmti hver borðaði fleiri en
tvær. Út frá niðurstööum
könnunarinnar reiknast Við-
horfsmönnum til að heildar-
neysla rjúpna á tímabilinu
hafi verið um 75.000 rjúpur.
Það er um fjórðungi minna en
árið áður þegar sambærilegar
tölur sýndu 100.000 rjúpur.
í þessum tölum er þó miðað
við að landsmenn yngri en 15
ára og eldri en 75 ára borði
minna af rjúpum en aðrir, eins
og gögn þykja gefa til kynna.
Væri neysla þessara aldurs-
hópa hin sama og þeirra
15—75 ára breyttust tölurnar í
96.000 rjúpur borðaðar síð-
ustu jól og 125.000 rjúpur árið
á undan.
í þessari könnun var einni
spurningu bætt við; hve oft
menn hefðu borðað rjúpur á
tímabilinu. Um 70% sögðust
aðeins hafa borðað rjúpur
einu sinni, 29% tvisvar sinn-
um og aöeins 1% oftar en það.
Stytting síðasta rjúpnaveiði-
tíma um fjórar vikur þykir
valda erfiðleikum við túlkun
þessara gagna. Þótt neyslan nú
hafi verið minni en árið áður
sé munurinn ekki marktækur
og því sé ekki hægt að álykta
aö rjúpnaveiöi hafi verið
minni nú, þótt rjúpnaveiði-
tíminn hafi verið styttur.
Sé ráð fyrir því gert að rjúpna-
neysla endurspegli rjúpna-
veiði og meðalfjöldi veiddra
rjúpna á veiðidag reiknabur út
(69 daga 1992 og 39 daga
1993) reynist meðalveiöi hafa
aukist úr 1.800 rjúpum á dag
fyrra árið í 2.460 rjúpur á dag á
síðasta veiðitímabili. Þar sem
ekki liggi fyrir hvort sókn
veiðimanna hafi aukist milli
ára sé þó vafasamt að leggja
mikib út af þessum útreikn-
ingum.
-HEI
í>:' x..'
|f|
Nýi leikskólinn á Hvolsvelli.
Tímamynd SBS
Getspakur forsœtisrábherra:
Davíö meö
besta „tippiö"
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra bar sigurorð af Áma Mat-
hiesen, þingmanni sjálfstæbis-
manna á Reykjanesi, í úrslitum
í getraimum vikunnar á Bylgj-
unni.
í úrslitakeppninni sem fram
fór um sl. helgi spáði forsætis-
ráðherra rétt fyrir úrslitum í ell-
efu leikjum en Ámi hafði tíu
rétta. Fyrir vikib telst Davíð
vera tippari leiktímabilsins vet-
urinn 1993 - 1994 á Bylgjunni
og fær m.a. að launum utan-
landsferö fyrir tvo.
-grh
Leikskóli
tekinn í
notkun
Nýr leikskóli var tekinn í notk-
un á Hvolsvelli á dögunum.
Hann er um 300 fermetrar að
flatarmáli og var byggingar-
kostnaður imi 30 milljónir
króna.
Að sögn ísólfs Gylfa Pálmason-
ar sveitarstjóra tekur byggingin
mestallt framkvæmdafé Hvols-
hrepps fyrir þetta og síðasta ár og
er því nokkurt átak fyrir sveitar-
sjóð. Byggingakostnaöur et um
110 þúsund á fermetra sem er
eðlilegt miðað við sambærilegar
byggingar.
Leikskólinn tekur við 80 böm-
um, miðað við hálfs dags vistun.
í dag em 59 börn á leikskólanum
í 70 plássum og ekki mun líba á
löngu þangað til hann verður
fullskipaður, því íbúafjölgun á
Hvolsvelli hefur veriö mikil að
undanförnu og langt umfram
landsmeðaltal.
-SBS, Selfossi
Leiörétting
í viðtali viö Steingrím Her-
mannsson um helgina misritaö-
ist nafn samtakanna sem stóöu
að ráðstefnu meb fyrrverandi
forsetum og forsætisráðhemim í
Seol á dögunum. Þau heita „Fe-
deration of World Peace".
-ÓB
Formannsskipti í SUF
Samband ungra framsóknar-
manna hélt þing um síðustu
helgi. Þingið var haldiö í Nes-
búb á Nesjavöllum. Þab hófst
á föstudag og lauk á laugar-
dag.
Einar Kristján Jónsson, fráfar-
andi formabur SUF, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs. Tveir fram-
bjóðendur gáfu kost á sér í emb-
ætti formanns SUF, þeir Guðjón
Ólafur Jónsson og G. Valdimar
Valdemarsson. Guðjón Ólafur
sigraði í kosningu, en þess má
geta að hann er bróðir fráfarandi
formanns.
Á föstudagskvöldiö vom um-
ræður um atvinnumál en sér-
stakir gestir kvöldsins vom Guð-
mundur Bjamason ritari flokks-
ins, Finnur Ingólfsson gjaldkeri
og Guðni Ágústsson þingmaður.
Ab lokinni formannskosningu
var kosið í stjóm og skipa eftir-
taldir hana: Guðjón Ólafur Jóns-
son formaður, Finnur Þór Birgis-
son Rvk, Þorlákur Traustason
Rvk, Þórhildur Hallgrímsdóttir
Rvk, Páll Magnússon Reykjanes,
Birta Jóhannesdóttir Reykjanes,
Hákon Hákonarson Reykjanes,
Ingibjörg Davíðsdóttir Vestur-
land, Hafdís Sturlaugsdóttir
Vestfirðir, Gunnar Bragi Sveins-
son Norðurland vestra, Stefán
Erlingsson Noröurland eystra,
Aðalsteinn Ingólfsson Austur-
land og Jón Ingi Jónsson frá Suð-
urlandi. -ÓB
Gubjón Ólafur jónsson, nýkjörínn formabur SUF.
Mynd Skúli Skúlason