Tíminn - 12.04.1994, Side 4

Tíminn - 12.04.1994, Side 4
4 Þri&judagur 12. april 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmi&ja Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Mána&aráskrift 1400 kr. m/vsk. Ver& í lausasölu 125 kr. m/vsk. Fátt kemur á óvart í seinni tíb „Það kemur fátt á óvart nú í seinni tíð," sagði Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra í sjónvarpsvið- tali um helgina og var þá að ræða samskiptin inn- an ríkisstjórnarinnar og síðustu atburði í svoköll- uðu þyrlukaupamáli. Ummæli þessi eru lýsandi um það ástand sem ríkir nú í stjórnarsamstarfinu. Því má líkja við ástandið hjá hjónum sem skilin eru að borði og sæng, en eiga eftir að ganga form- lega frá skilnaðinum. Það gildir einu hvar borið er niður. í hverju stór- málinu af öðru eru stjórnarflokkarnir og einstakir ráðherrar ósammála. Þyrlukaupamálið bætist nú í hóp þeirra stórmála sem ágreiningi valda í stjóm- arsamstarfinu. Samskiptin við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli heyra undir utanríkisráðuneytið, eins og alþjóð er kunnugt. Málefni Landhelgisgæslu íslands heyra undir dómsmálaráðuneytið. Þarna þarf að sjálf- sögðu að vera samráð á milli og sem mest upplýs- ingastreymi. Það er forkastanlegt að láta svo alvar- legt mái, sem hér um ræðir, líða fyrir þann stirð- leika sem eý í samstarfi stjórnarflokkanna. Með breyttum horfum í alþjóðamálum hafa komið upp ný viðhorf varðandi umsvif varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. Þar á meðal hafa komið upp umræður um að íslendingar tækju þátt í rekstri björgunarsveitarinnar með einhverjum hætti. Þessar viðræður eru mjög skammt á veg komnar og hefur lítið heyrst um þær. Það kemur því mjög á óvart að utanríkisráðherra telji nú efni til að fresta ákvörðun um þyrlukaup sem heimild hefur verið til svo árum skipti. Björgunarsveit varnarliðsins hefur unnið mjög gott starf að björgunarmálum hér á landi. Hins vegar er sveitin rekin á hernaðarlegum grundvelli, en ekki borgaralegum. Þetta er grundvallaratriði, sem hlýtur að verða til meðferðar í viðræðum við varnarliðið. Eiga íslendingar að taka að sér hinn hernaðarlega þátt, eða á að leggja hann niður? Ná- kvæmlega ekkert er upplýst um þennan þátt máls- ins. Öll meðferð þessa máls af hálfu utanríkisráðherra er með eindæmum. Hann upplýsir nú á síðustu stundu að utanríkisráöuneytið sé með nýtt tilboð um þyrlukaup frá Bandaríkjamönnum sem sé í at- hugun, því að það sé svo ótrúlega gott að reyna verði á trúverðugleika þess. Dómsmálaráðherra hefur ekki verið skýrt frá þessu tilboði, þótt á hans vegum sé verið að vinna að þyrlukaupamálinu. Meðferðin á þessu máli er löngu orðin til skamm- ar fyrir stjórnvöld. Það er löngu kominn tími til að björgunarsveit Landhelgisgæslunnar fái nýtt tæki til afnota. Viðræður við varnarliðið um málið hljóta óhjákvæmilega að taka nokkurn tíma, og þær hljóta ab haldast í hendur vib frekari viðræð- ur um starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Það er því engin ástæða til þess að láta þyrlukaupa- málið hanga í lausu lofti vegna þeirra viðræðna, fyrst nú er komin niburstaða um þau tilboð, sem fyrir liggja, frá þeirri nefnd sem dómsmálaráð- herra hefur skipað í málið. Það er mál ab þessum leik linni. Tuttugu lykla þarf til aö opna eftir D-listann Vib borgarstjórnarkosning- arnar síðustu gengu framsókn- armenn fram undir kjörorð- inu „xB — lykill að betri borg". Garri minnist þess að Sigrún Magnúsdóttir borgar- fulltrúi gekk milli manna fyrir utan stórmarkaði og afhenti vegfarendum bækling og fag- urgrænan lykil á framsóknar- lyklakippu — táknrænan lykil að betri borg. Þessi orðaleikur dugði fram- sóknarmönnum raunar ekki til að komast í valdastóla í borginni, þó Sigrún hafi að mörgu leyti reynst kjósendum lykill að betri borg þrátt fyrir það. Sannleikurinn er nefni- lega sá að Sigrúnu hefur, að öðrum borgarfulltrúum ólöst- uðum, tekist sérlega vel upp í aðhaldshlutverki sínu í stjóm- arandstöðunni og trúlega stungið á fleiri spillingarkýl- um I stjóm borgarinnar en áð- ur hefur þekkst á einu og sama kjörtímabilinu. Nægir að minna á framgöngu hennar í málefnúm Hitaveitunnar, ekki síst hvernig hún dró fram skipulags- og ábyrgðarleysið varðandi Perluævintýrið. Alltaf jafn frumlegir En það vekur athygli að Sjálf- stæðisflokkurinn, sem svo lengi hefur stýrt Reykjavík, ákvebur nú af alkunnu hug- myndaflugi sínu að keyra sína kosningabaráttu á slagorði Framsóknar úr síðustu kosn- ingum um lykil að betri borg. Lykillinn, sem Sigrún var með á sínum tíma, átti að opna borgina fyrir almenningi og gera hana betri. Við fyrstu sýn virðist Sjálfstæðisflokkurinn einmitt telja að það þurfi lykla til að opna borgina og gera Sigrún útdeilir lykli ab betrí borg voríb hana betri. Ekki var annað hægt að skilja á forsvarsmönn- um Sjálfstæðisflokksins, sem boðubu til blaðamannahindar í gær um tuttugu lykla, sem ganga eiga aö öllum þeim lás- GARRI um sem lokað hafa á framfarir og framþróun í borginni á kjörtímabilinu. Einn lykillinn á aö opna leikskólann fyrir fleiri börnum, annar að ganga ab grunnskólanum, þriðji á að opna fyrir aðstoð við bama- fólk o.s.frv. o.s.frv. Þessi mikla lyklakippa, sem Sjálfstæöisflokkurinn er búinn aö kynna, bendir eindregið til þess að flokkurinn hafi nú, eins og svo margir aðrir, gert sér grein fyrir að í borginni standi fólki fáar dyr opnar og að mikið verk Sé fyrirliggjandi við að opna kerfið upp á nýtt og hleypa um það ferskum vindum. 1990. Ónota&ur lykill Sigrún Magnúsdóttir benti raunar á þetta, þegar hún dreifði lyklinum að betri borg fyrir utan stórmarkaði voriö 1990. Nú er Sjálfstæðisflokkur- inn búinn að átta sig á þessu og þó ab framsóknarlyklakipp- an fylgi ekki lengur með, er lykillinn svipaður. Skilabob Sjálfstæðisflokksins eru því ótvíræð: Það þarf minnst 20 lykla til að opna borgina eftir setu okkar í valdastólum. Skýr- ara dæmi um sjálfsgagnrýni eru vandfundin, því það er Sjálfstæðisflokkurinn sem hef- ur verið í hlutverki fangavarð- arins með öll lyklavöldin í borginni. En hann hefur neit- að að opna einar einustu dyr. En nú er komið tækifæri til að opna og það væri bamaskapur að afhenda fangaverðinum lyklavöldin í fjögur ár í viðbót. Lykillinn að betri borg veröur því miöur ekki notaður meðan hann er á lyklahring Sjálfstæð- isflokksins. Garri Reynsla nýrrar kynslóðar Eitt af gömlu máltækjunum segir að tímamir breytist og mennirnir með. Eg hygg að þetta séu orð að sönnu, eins og svo margt sem dregið er saman í knappt form í íslenskum málsháttum. Tímarnir á ís- landi hafa breyst. Sumt er til batnaðar, annaö til hins verra. Hinir ungu Ungt fólk í dag stendur frammi fyrir öömm vemleika heldur en fyrir svo sem þremur áratugum, þótt ekki sé farið lengra aftur í tímann. Það hef- ur alist upp við aðrar aðstæður en foreldrarnir, möguleikar til skólagöngu, ferðalaga og til- breytingar í daglegu lífi hafa verið miklir og hafa aukist á þessu árabili, en meö því er ekki allt fengiö. Unga kynslóð- in í dag stendur frammi fyrir alvarlegum málum. Atvinnumöguleikar í fortíb og framtíb Ég var einn af þeim, sem vom að útskrifast úr skóla fyrir um þremur áratugum. Það nám var ekki langt. Hins vegar man ég þab að við skólasystkinin höfðum ekki neinar áhyggjur af því hvort vib fengjum at- vinnu þegar námi lyki. í þeim efnum var margt í bobi og mátti fremur velja úr en hitt. Þetta er ef til vill mesti mun- urinn. Sú alvarlega staða blasir við námsmönnum í dag ab það er ekki sjálfgefið, síður en svo, að fólk, sem kemur jafnvel úr háskólanámi, fái atvinnu við sitt hæfi. Þetta er alvarleg staðreynd fyrir unga fólkið, en þetta er ekki síöur alvarlegt umhugsunarefni fyrir þá sem eldri em. Á víbavangi Lífsreynslan Sú kynslóð, sem nú er að alast upp, hefur fengib ýmis tæki- færi á lífsleiðinni. Umheimur- inn er þessu fólki ekki fram- andi. Ég heyrði það eftir manni, sem hafði verið farar- stjóri í kynnisferðum til út- landa um árabil og hafði farið meb tvær kynslóðir, ab þar væri mikill munur á. Sú eldri hefði hellt sér í drykkju á flug- vellinum eins og kálfar sem hleypt er út á vorin, týnt öll- um sínum skilríkjum og verið eins og fiskar á þurrn landi í flugstöövum erlendis, en það fólk sem nú fer kunni á allt, bjargi sér í tungumálum og stjómi drykkju sinni á allt annan veg heldur en þeir eldri. Þetta er meðal annars fyrir það að utanlandsferðir em ekki nýjabmm lengur, jafnvel þótt menn séu ungir aö ámm. Framtíöin Þessar staðreyndir geta haft mikil áhrif á viðhorf nýrrar kynslóðar. Ef ekki tekst að halda atvinnu í landinu, þann- ig að ungt fólk geti séð sér far- borða, er hætt við að framsæk- iö fólk meb góða menntun leiti fyrir sér erlendis í vaxandi mæli. Landamæri falla í raun, og þrátt fyrir slæmt atvinnu- ástand víða, em möguleikar fyrir harðsækið, menntaö og duglegt fólk á vinnumarkaöi erlendis. Það ætti að vera for- gangsverkefni stjórnmála- manna og stjórnenda fyrir- tækja og verkalýðshreyfingar að hugleiða með hverjum hætti framtíðin verður, hvort við höldum blómanum af okk- ar unga fólki í landinu. Hættu- merkin em allt of mörg nú þegar. Umheimurinn er þessu fólki ekki eins framandi og áö- ur var, og því er enn meiri hætta á atgervisflótta, ef ekki tekst að skipa efnahagsmálum hér á þann hátt ab irngt og menntað fólk eigi möguleika. Þetta er sú alvarlega staðreynd, sem vib blasir nú í Iok tuttug- ustu aldarinnar. Jón Kr.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.