Tíminn - 20.05.1994, Blaðsíða 14
14
Föstudagur 20. maí 1994
ítölsk
Piero Camporesi: The Magic Harvest.
Food, Folklore and Society. Translated
by |oan Krakover Hall. Polity Press 1993.
Rit Camporesis er safn ritgerða
og greina, sem eru hér þýddar
eftir þriðju gerð ritsins á ítölsku.
Höfundurinn er prófessor í
ítölskum bókmenntum við há-
skólann í Bologna.
Höfundurinn ritar um ítalska
matargerð í aldanna rás og
tengsl matargerðarinnar við
þjóðtrú og magíska siði og trú-
arbrögð. Maturinn var gefinn af
guðunum og hátíðamatur var
tengdur árstíðaskiptum, endur-
lífgim með hækkandi sól. Mat-
urinn um jól og páska var tákn-
rænn aö því leyti aö egg voru
mikill þáttur réttanna og óspart
notuð í bakstri. Eggið var frá
ómunatíð lífstákn, tákn endur-
nýjunar lífsins, og með kristn-
inni fær þetta tákn enn magn-
aðri þýðingu sem endumýjun-
artákn og lífstákn, með boðskap
þess „sem dauðann deyddi".
Lífið var ekki lengur bundið
jarðnesku lífi, eilíft líf magnaði
endumýjunar- og frjósemis-
táknin enn frekar.
í þessari bók er samankominn
mikill fróðleikur og skarpar skil-
greiningar og djúpur skilningur
á táknmáli matargerðarinnar og
viðhorfum til máltíöarinnar
sem ritúals, helgiathafnar. Þetta
viöhorf er nútímamönnum tor-
ráðin gáta, en Camporesi leysir
BÆKUR
SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON
margar gátur með þessum rit-
gerðum sínum.
Fyrsta uppskemhátíðin á Ítalíu
fyrmm var I lok júnímánaðar,
þegar taðan var hirt og komið í
hlööu. Þann dag fóm fram
töðugjöld allan daginn, milli
þess sem fólk vann að heyönn-
um. Bændur og vinnufólk borð-
aði sjö sinnum þennan dag. Tal-
an sjö var táknræn tala, heilög.
Klukkustund eftir sólampp-
komu var borðað brauð með
reyktu svínaketi, um miðjan
morgun steikt ket, steikt egg,
soðinn kjúklingur og steikt
kálfslifur; um hádegi, soöið ket,
soðinn kjúklingur og sjö steiktir
kjúklingar; um nón pönnukök-
ur, soðinn kjúklingur og spægi-
pylsa; fyrri réttur kvöldsins var
steikt ket og síðla kvölds, salat,
kaka og reykt svínslæri. Þá var
slegið upp dansi og í lokin var
steiktur kjúklingur. Þetta vom
hin ítölsku töðugjöld.
Höfundur fjallar um margvís-
legar venjur í sambandi við
matargerð og vinnu til sveita,
kemur inn á sveitaklukkuna og
tengsl gangs himintungla við
sáningu og uppskem. Kafli er
um vemdaranda heimilisins og
arinsins og magíska siði við
upphleðslu hlóðanna og upp-
hengingu pottsins ofan úr rjáfr-
inu.
Síðan lýsir höfundurinn þeim
gjörbreytingum, sem verða á
mataræði og atvinnuháttum
þegar kemur fram á 19. öld.
Bók þessi er mjög fróðleg og
veitir lesendum innsýn í horfna
heima, samanþjappað upplýs-
ingarrit um ítalska þjóðfræöi. ■
Lífrænt sjónvarp
B
i aráttumenn gegn lífi eftir
. dauðann láta nú til sín
'heyra í ýmsum fjölmiölun-
arhornum og fara mikinn: Sigur-
jón Bjömsson sálfræðingur er
með fimm dálka fyrirsögn í Dag-
blaðinu Vísi og kvartar undan
samlöndum sínum; er grein hans
öll sem neyðaróp um, hvað verði
um virðingu sína (S.B.) erlendis, ef
það fréttist þangað, aö menn hér
hyggist lifa áfram! Þorsteinn Sæ-
mundsson (sem ég blessa hvem
dag fyrir almanak hans) segir, að
aldrei hafi sannast neitt, ekki
tangur eða tetur, hvorki fyrr né
síðar. Það er hann sjálfur sem seg-
ir það. Guörún blaðamaður segir,
að maöur eigi að leggja stund á
þetta líf — gangi henni vel — og
LESENDUR
sera
Karl messar í einhverjum
kjallara rétt hjá mér um, aö best
sé aö vita ekki neitt.
Ef spurt er hvort sé betra, þekk-
ing eða fáfræöi, þarf ekki annaö
en minna á ýmsar lækningaað-
feröir á miööldum til þess að sjá
hver munurinn er, og er þó af
mörgu öðru að taka. En hvað
mundi þá um það mál sem allra
mestu skiptir: hvað við tekur,
hvar og hvernig, eftir dauðann?
Er gott að vera fáfróður um þau
mál, eða er kannski best að þykj-
ast trúa einhverju í því efni, án
þess að meina neitt með því
(hræsni)?
Það get ég sagt góðum lesanda,
að unnt er að eignast fulla vissu
um hvað við tekur; þarf ekki ann-
að en lesa bækur mínar, sem vísa
á aðrar bækur betri, og þá liggur
þetta ljóst fyrir. — Það sem stóð á
um tíma var, að margir fræði-
menn töldu ekki vera vitaö um
hraðari sambönd en ljóss og seg-
uls. En eftir að þaö fór að berast út
frá skammtaeðlisfræðinni, aö slík
hraðsambönd lægju nú bara í
hlutanna eðli, er ekkert því til fyr-
irstöðu lengur, að „færa anda-
heiminn yfir á aðrar stjörnur" og
líta á skyggnina sem einskonar
lífrænt sjónvarp úr fjarlægum
stað.
Þorsteinn Guðjónsson
tööugjöld
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON
Ljósbrá og Matthías
urðu íslandsmeistarar
íslandsmótið í paratvímenningi var haldið á Akureyri 12.-13.
maí sl. 60 pör skáðu sig til keppni og var spilaöur barómeter, 2
spil á milli para. í lok fyrri dagsins náðu Ljósbrá Baldursdóttir
og Matthías Þorvaldsson frá Reykjavík forustu og juku jafnt og
þétt vib hana seinni daginn. Þau sigruðu að lokum örugglega,
hlutu 697 stig.
í öðm sæti urðu íslandsmeist-
arar síðasta árs, Esther Jakobs-
dóttir og Sverrir Ármannsson,
Reykjavík neb 540 stig og í
þriðja sæti lentu Elín Jóhanns-
dóttir (Br.kvenna) og Kristján
Guðjónsson Br.Ak.) með 514
stig. Þau höfbu verið í toppbar-
áttunni allt mótib en misstu
annað sætiö á lokasprettinum.
Anna ívarsdóttir og Jón Bald-
ursson, Reykjavík urðu í 4. sæti
með 494 stig og Björk Jóns-
dóttir og Jón Sigurbjömsson,
Siglufiröi lentu í fimmta sæti.
Spilað var í íþróttahöllinni á
Akureyri I stómm og góöum
sal. Keppnin fór vel fram undir
styrkri stjórn Jakobs Kristins-
sonar keppnisstjóra og reikni-
meistarans Margrétar Þórðar-
dóttur. Það var sérlega til þess
teJdð hve rennsli mótsins var
hratt og lipurt, engar langar
pásur, heldur keyrt áfram á
jöfnum og góðum hraða.
Alls vom keþpendur frá 22 fé-
lögum af þeim 54 sem eru aðil-
ar að Bridgesambandi íslands.
Helgi Jóhannsson, forseti
Bridgesambands íslands, af-
henti verölaunin í mótslok.
Bragi Hauksson sýndi nokkuð
áræði í spilinu til hægri.
Afraksturinn varb hreinn topp-
ur í doblubum samningi en
vörnin varð að hafa fyrir sínu.
S/Allir
* T963
* KT7S
* C
* 9742
* DG84
* 4
* K852
+ DGT8
N
V A
S
♦ ÁK5
¥ ÁG8632
♦ 3
♦ K53
* 72
V D9
* ÁDT9764
* Á6
Eins og sjá má era fimm tíglar
einn niður í NS en það var sá
samningur sem algengast var
að spilaður væri. Bragi doblaði
hins vegar 4 hjörtu andstæð-
inganna eftir aö makker haði
teidö undir tígullitinn en mak-
ker hans, Sigríður Kristjáns-
dóttir átti út.
Út kom laufdrottning, þristur
sexa og tvistur. Noröur hélt
eblilega áfram meb litinn,
sagnhafi dúkkaði og Bragi varð
að setja ásinn. Leiftursnöggt íá
síban lítill tígull á borðinu og
makker Braga drap með kóngi
og spilaði meira laufi sem Bragi
trompaöi. Þá var spaöaslagur-
inn óumflýjanlegur síðar meir
í spilinu og spilið fór því tvo
niður. Glæsileg vöm.
Jón og Haukur sigruöu
á afmælismótinu
í kjölfarið á paramótinu var
haldiö glæsilegt afmælismót
Bridgefélags Akureyrar í tilefni
af 50 ára afmæli félagsins. 68
pör tóku þátt. Veitt vom glæsi-
leg verðlaun og tókst fram-
kvæmd mótsins hið besta.
Haukur Ingason og Jón Þor-
varöarson urðu í fysta sæti og
náðu þeir 64,8% skori eða 3266
stigum en röö næstu para varð
sem hér segir:
2. Sverrir Ármannsson-Bjöm
Theódórsson 3198
3. Aðalsteinn Jörgensen-Björn
Eysteinsson 3089
4. Guðmundur Sv. Hermanns-
son-Helgi Jóhannsson 3031
5. Jón Baldursson-Siguröur B.
Þorsteinsson 2980
6. Rúnar Magnússon-Kristján
Blöndal 2967
7. Hjálmar S. Pálsson-Sveinn S.
Þorvaldsson 2951
8. Jakob Kristinsson-Matthías
ÞorvaJdsson 2942
Alls vom veitt peningaverb-
Jaun niður í 10. sætið en heild-
arverðlaunafé var 400.000.
Hermann Lámsson sá um
keppnisstjóm en Margrét Þórð-
ardóttir var reiknimeistari.
Spil 29 úr afmælismótinu er
athyglisvert fyrir þær sakir að
alslemma vinnst á hendur AV
en eigi aö síður gaf þab ágæta
skor að komast í 5 tígla og
vinna 7.
N/Allir
Þannig gengu borðanna: sagnir á einu
Vestur Noröur Austur Subur
- pass pass 2V*
34 3¥ 54 pass
pass pass
* 5-4 í hálitum
Vissulega em punktar vesturs
12 en ljótari verða þeir varla og
eftir passið í upphafi gemr
ausmr eldd meö góðu móti sagt
slemmuna. Það em fimm
mögulegir tapslagir á hans
hendi og teikningin verður aö
vera fullkomin ef slemman á
að vinnast. En draumablindur
kom upp (martröð?) og vestur
geröi sér eldd vonir um neitt
nema 0-ið þegar hann var bú-
inn ab leggja upp eftir tígulút-
spil. En hann var ekki sá eini
sem átti bágt því margir AV-
spilara reyndust hafa látið sér
nægja þrjá eöa fjóra tígla.
Þátmr NS I þessu spili er líka
stór. Yfirleitt nota pör tvo í há-
lit sem veikt og 6-lit eða Tart-
an. í þessu tilfelli lofaði sögnin
hins vegar 9 spilum í hálitum
og 11-15 punkmm. Ef opnað er
1. sagnstiginu gemr norður do-
blað og þá gæti eftirleikurinn
reynst aubveldari.
Ónefndur Akureyringur var
illa sviðinn í spili no 22. Hann
fylgdi líldndafræöinni auk
nokkurrar áhættu og spilaöi
vandab en smndum em laun
heimsins vanþalddæti.
A/AV
* ÁDGT4
V D98
* D86
* ÁG
* D8
V T962
* 4
* T98643
KG94
G854
KG87
K
♦ 7653
¥ ÁKD73
♦ 2
* DG5
A 98753
* 8
♦ ÁT
* DT983
N
V A
S
* K
V GT4
* K9752
* K762
* 62
* ÁK7532
* G43
* 53
Vestur Norhur Austur Su&ur
- - 2 grönd* pass
3*** 3* pass 4V
pass pass pass
* hálitir/lágliUr
** leitandi, ekki krafa
Hinn eðlilegi samningur náð-
ist í NS og nú hafði suöur þær
upplýsingar að austur ætti 9-10
spil í láglitunum. Útspilið var
tígulás, sexa, tvistur og gosi og
meiri tígull sem vesmr drap
með kóngi. Þá var tígli spilað í
þriðja sinn og vestur fékk
stungu. Nú sldpti vesmr yfir í
lauf sem suöur drap með ás I
borði og spilaði hjartadrotm-
ingunni. Þegar vestur fylgdi
eldd lit gat suður talið upp 12
spil af 13 spilum ausmrs en
spaðastaban var þó eldd ljós.
Ausmr átti mögulega einn
spaða og ef austur átti kónginn
blankan var hægt að ímynda
sér að hann opnaöi frekar á
einum tígli. Þannig að suður
tók trompin í botn í von um
vitlaust niburkast en vestur
svaf eldd á veröinum og fór
niður á eitt lauf og tvo spaba.
Síðan kom lítill spaði í þriggja
spila endastöðu. Eftir rafmagn-
aða bið bað suður um drottn-
inguna og ausmr lagði niður
þrjá síöustu slagina og spilið
fór þrjá niður sem gaf AV að
sjálfsögbu mjög góba skor.
Fúlt?
Sumarbridge aö
hefjast
Sumarbridge 1994 hefst nk.
sunnudag, 22. maí, ld. 19.30.
Umsjónarmaður veröur Ólafur
Lámsson og verður spilatími
rýmri en veriö hefur. Spilað
verður á eftirtöldum tímum:
Mánudögum Jd. 19-23
Þriðjud. ld. 14-18 og 19-23
Miðvikudögum Jd. 17-23
Fimmtud.. Jd. 16.30-20-30 og
19-23
Föstudögum Id. 19-23
Sunnud.kl. 14-18 og 19-23
Keppnisgjald er kr. 500 og
spilað er í Sigtúni 9. Keppt er
um bronsstig og verður veitmr
bikar til stigahæsta spilarans í
sumarlok.