Tíminn - 25.05.1994, Side 5

Tíminn - 25.05.1994, Side 5
Mi&vikudagur 25. maí1994 5 Magnús H. Gíslason: Fyrr og nú Síðla sumars 1958 bárust mér tilmæli um það frá þáver- andi ritstjóra Tímans, Þór- ami Þórarinssyni, að gerast laus- ráðinn starfsmaður við blaðiö um ótiltekið skeið. Væri mér einkum ætlað aö annast þing- fréttaskrif fyrir blaðið, en rit- stjórar dagblaðanna lögöu þá ríka áherslu á að þingfréttir væm sem ítarlegastar, enda vom þær mikið lesnar og menn lém sig störf Alþingis miklu skipta. Svo stóð á að eg gat orðið við þessari ósk Þórarins ritstjóra og sá um þingfréttir fyrir blaðið í tvo vemr. Löngu síðar annaðist eg svo, einnig í tvo vemr, þing- fréttaritun fyrir Þjóðviljann. Mér fannst þetta skemmtilegt starf, þó að það væri stundum nokkuð erfitt, þegar þingfundir stóðu langt fram á kvöld og þá var eftir að ganga frá fréttunum í blað morgundagsins. Á þessum ámm sátu þingmenn fundi ákaflega vel. Eg hygg að þeir hafi talið það blátt áfram sjálfsagða skyldu sína. Eg minn- ist þess ekki að afgreiðsla mála hafi tafist vegna fjarvem þing- manna. Hiö sama gilti um ráð- herrana. Það var óalgeng sjón að sjá auðan ráðherrastól og gilti þá einu hvort verib var að ræða mál, sem snerti þeirra ráðuneyti eða ekki. Þannig var þetta nú í þá daga, en nú býr Gaukur ekki lengur á Stöng. Mér hefur smndum oröið hugs- að til þessara tíma, þegar eg hef VETTVANGUR fylgst með sjónvarpi Sýnar frá þingfundum. Að vísu segir skjár- inn manni sjaldnast mikið, því þar sést að öllum jafnaði aðeins sá, sem er í ræðustól hverju sinni, og svo forsetinn og þeir, sem honum sitja næstir. Þá sjaldan maður sér til þingbekkja, em þeir oft æði þunnskipaðir. Og ekki tekur betra vib, gefist sýn til ráðherrastólanna. Smnd- um sést einn og einn ráðherra í sæti sínu, smndum enginn. Skyldu þetta vera óþægilegir stólar? Forseti má standa í enda- lausu stímabraki við að hóa þeim „hæstvirtu" inn í þingsal- inn, þegar þingmenn þurfa að ræða viö þá eða varpa að þeim spumingum. Með þessu hlálega háttalagi er þinginu sýnd lítils- virðing af þeim sem síst skyldi, sem aftur leiðir til þess, að virð- ing þjóðarinnar fyrir löggjafar- samkomunni fer þvenandi. En þab skyldi nú aldrei vera, að skýringarinnar á þessu upp- lausnarástandi sé aö leita í við- horfi þeirra til þingstarfanna, sem valist hafa til forystu á þjóð- arskúmnni nú um skeið? Fyrir allnokkm las eg í tímariti einu viðtal við einn af þessum fyrir- „Og hvaða höfðingi skyldi það nú vera, sem hér er verið að vitna í? Jú, það er nú hvorki meira né minna en sjálf- ur forsœtisráðherra ís- lenska lýðveldisins og formaður Sjálfstœðis- flokksins." mönnum. Þar segir hann m.a.: „Mér ofbauð hversu illa tími ráðherranna nýtist meðan þing- ið situr, þeir em látnir hanga yf- ir ræðum, sem í raun koma þeim ekkert viö og búið er að flytja mörgum sinnum af nýjum og nýjum þingmönnum. Þess utan em þessi ræðuhöld móðgun við þingskrifarana og sóun á papp- ír." Ja, hvort ekki er. Hvemig er hægt að ætlast til þess að ráð- herrar séu að leggja sig niður við að hlusta á óbreytta þingmenn, eins og þeir hafi ekki annaö þarf- ara að sýsla? Hvað skyldi ráð- herrum svo sem koma þab vib hvað þingmenn em að þvæla? Þeir em bara til trafala. Fundið er að því aö þingmenn Sjálfstæðis- flokksins séu með fyrirvara í hin- um og þessum málum, „það er einhver lenska þama". Auðvitað nær þetta engri átt. Skilur þetta liö ekki að þegar eg hef talað þá hef eg talaö og þar meö er málið útrætt? Og þab er „út af fyrir sig óeölilegt" að verið sé aö leggja fjárlagafrumvarp fyrir þingflokk- ana „á mörgum fundum" til að tryggja því stuðning. Auðvitað. Þingmenn veröa ab venja sig af þeim ósið að vera að skipta sér af fj árlagafrumvörpum. Og hvaða höfðingi skyldi það nú vera, sem hér er verib að vitna í? Jú, það er nú hvorki meira né minna en sjálfur for- sætisráðherra íslenska lýðveldis- ins og formaður Sjálfstæðis- flokksins. Hér er sá heiðursmað- ur að lýsa viðhorfum sínum til löggjafarsamkomu þjóðarinnar og þeirra starfa, sem þar eru unn- in. Eg er smeykur um að fyrri for- mönnum Sjálfstæðisflokksins, eins og Jóni Þorlákssyni, Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni og Geir Hallgrímssyni, þætti þau ekki ýkja geðfelld. Höfundur er fyrrum blabamabur. Haraldur Guönason: Af lyklum og lagabobi Dauflegt væri hjá okkur landsbyggðarlýbnum í fá- sinni daganna, ef bærust ekki til okkar öðru hverju menn- ingarstraumar frá okkar kæra höf- uðstab. „Þeir vita það fyrir sunn- an," segjum við. Mjög urðum við hissa þegar lyk- ilmaður borgarstjómar stóð upp úr stól sínum og bauð lykilmanni nr. 2 að gera svo vel. En líkast til er Ámi meiri sjarmör pólitískt en Markús Öm. Og margir eiga sjón- varpsskermi að þakka frama sinn. Fljótt kom í ljós aö Árni er ekki bara lykilmaður í borgarstjóm, hann er líka lyklamaður. Það sást best þá er hann settist við veg- brún meö lyklakippu sína og lét ekki vomepjuna á sig fá, en kynnti sína 20 lykla. Ámi þekkir sjálfsagt sögu Sigurbjöms Sveins- sonar um Lyklana. Eyvindur plat- aöi Jón gamla með því að hrista lyklakippu sína framan í hann. Þetta var að sögn góð uppákoma, sem Gunnari og Geir hefbi varla „Ennþá halda þeir fyrir sunnan að þjóðarsálin vilji sjá þingmenn sína í eldhúsinu." VETTVANGUR hugkvæmst. Ennþá halda þeir fyrir sunnan að þjóðarsálin vilji sjá þingmenn sína í eldhúsinu. Þykir ekki nóg að útvarpa gömlum og nýjum frösum þingmanna, þá dugar ekki minna en sjónvarp. Eins og vib höfum ekki oft séö au&a stóla á Alþingi og nokkra syfjaða þing- menn. Nú fengum vib þó ab „berja augum" heimspólitíkusana tvo, Jón Baldvin og Olaf Ragnar. Jón kominn frá Torgi hins him- neska fribar, búinn aö stofna sendiráð í kommúnistaríkinu. En nú þagði Jón, en hafði þó áður lýst foragt sinni á einhverri gam- alli Púmu í tiltækum fjölmiðlum. Stigu nú hinir óbreyttu kratar í stólinn, konan sem langaöi lif- andis ósköp að verða ráðherra og Heydalaklerkur prédikaöi. Ólafur Ragnar, fyrrum baráttufé- lagi Jóns Baldvins á „rauðu ljósi" þegar þeir félagar ætlubu að sam- eina krataflokka sína, notaði vemlegan hluta ræðutímans til að kynna nýja bók allaballa. Þeir em duglegir að búa til nýjar bækur um „nýjaileiðir", þegar sú fyrri er gleymd. Ólafur mun nú úrkula vonar um samfylkinguna rauðu. Biðlar Ólafur nú til Jóhönnu og gerir því jafnvel skóna að hún hætti að stybja sína eigin ríkis- stjórn. Og vilji kratar „ganga í jafnabarmannakór með okkur", þá væri slíkt til umræðu „hvenær sem er". Þá yrði líklega sungið: „Ó blessuð stund..." Fréttir hafa borist frá hinu háa Alþingi um að þar hafi menn lagt nótt við dag við afgreiðslu hinna .. tr ''M |Hfl :í Jón Baldvin Ólafur Ragnar L mk Össur Markús Örn ýmsu þjóðþrifamála, svo minnir á næturvökur á vertíðum í Eyjum áður fyrr. Nú má lesa í merku heilsufræðiriti, að Alþingi sé leib- inlegur vinnustaður. I danska þinginu sé svo leiöinlegt, aö þing- menn sofni oft undir löngum og innihaldslausum ræbuhöldum, andrúmsloft sé þvingað og þing- menn taki sig of hátíðlega. Eitt næturverk þingmanna okkar hefur verið, ab sögn fjölmiðla, að reyna ab ná einhverri niðurstöðu um villidýrin okkar. Þetta var hið erfiðasta mál og riðluðust fylking- ar. Meðal annars var hart deilt um hvort skjóta skyldi gæsir tíu dög- um fyrr eða seinna. Virðist þó óinnvígðum að ekki væri stórt mál hvort þeim, sem hafa yndi af að drepa fugla, leyfist að stimda sitt eftirlæti tíu dögum lengur eöa skemur. Fræðingur, sem hefur ab atvinnu að telja dýr lagar, vill hafa frelsi til að eyða dýrum lofts án þess að þurfa að rýna í ritúal frá Össuri. Þá sé óásættanlegt (!) að skotveiöi- menn víki fyrir túristum, sem væru að álpast upp á heiðar á haustin, eða bændum ab smala rollum sínum. Höfundur er fyrrum bókavörbur. Fá úrrœöi í atvinnumálum í Vestur-Evrópu í bráö — 7. grein Ekki undir framtíöina búin Atvinnuleysi vex enn í Vest- ur- Evrópu. Bið virðist á, að það verði tekið föstum tök- um. Umræður um þaö virðast á gömlum hliðargötum. Þannig sagöi í helstu forsíðugrein Inter- national Herald Tribune 10. mars 1994: „Forystumenn í evrópskum stjórnmálum, vibskiptum og verkalýösmálum em sammála um, að atvinnuleysi sé nú meira en nokkm sinni áður. Án atvinnu í Vestur-Evrópu em nálega 18 milljónir manna, um 11% vinnu- aflans, og fjölgar þeim enn... Bú- ist er við, að 1994 fari tala þeirra upp í 20 milljónir, og muni fjórð- ungur þeirra verða á aldrinum 18- 25 ára. Svo sýnist sem vandamál tiltölulega mikils atvinnuleysis verbi Vestur-Evrópu á höndum til loka áratugarins." „Formaöur CNPF, samtaka franskra atvinnurekenda, hefur látið svo um mælt: „Evrópa er aumlega á sig komin. Við eyðum um efni fram. Viö höfum glataö tæknilegum yfirburbum okkar. Við emm ekki undir framtíðina búnir né alþjóölega samkeppni." — Sárast og þversagnakenndast er, að efnahagslegur vöxtur í Vestur-Evrópu mun í sjálfu sér ekki draga úr atvinnuvandanum, svo aö heitið geti. Hagfræðingar em yfirleitt sammála um, ab 2,5% árlegan hagvöxt þurfi til að at- vinnuleysi vaxi ekki enn, meðan mannafli á vinnumarkaði vex um 0,5% á ári. David O'Sullivan, að- VIÐSKIPTI stoðarmabur Padraigans Flynn, framkvæmdastjómarmanns EB með umsjón meö atvinnumálum, segir: „Jafnvel þótt aftur kæmi til 3-4% árlegs hagvaxtar, en það væri að björtusm vonum, byðist vinna ekki þeim sem nú em at- vinnulausir." „Aðalframkvæmdastjóri Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, Jean-Claude Paye, viburkennir a& vandinn varöi að miklu leyti inn- vibi atvinnulífsins. Ab sögn Payes hafa Evrópubúar í 20 ár verið aö auka félagslegar tryggingar án þess að taka tillit til gmndvallar- breytinga í heimsbúskapnum. Sakir þessa hefur atvinnuleysi í Vestur-Evrópu þotið upp frá hag- sveiflu til hagsveiflu, kaupgjald og tryggingargjöld af því hafa vaxið, en úr samkeppnishæfni vesttu--evrópsks ibnaðar jafnt og þétt dregið." „í viðræðum við hálfan þriðja mg háttsettra embættismanna, framkvæmdastjóra stórfyTirtækja og forystumenn verkalýðsfélaga, hemr dökk mynd verib upp dreg- in. Ab þeir segja, hemr Vesmr- Evrópa ósennilega tíma eða pólit- ískan vilja til að umbreyta félags- legum og stjórnmálalegum hátt- um sínum, til að einkageiri hennar geti keppt á alþjóblegum mörkuðum og þannig skapað eins mikla atvinnu og þarf til aö hemja atvinnuleysið. Með öðmm orðum, nálega allir em þeir sam- mála um að æskilegt sé að skera niður opinbert eftirlit, skatta og launatengdan kostnað, sem uppi bera niðurreyrðar félagslegar tryggingar í Vestur-Evrópu, en fá- ir þeirra búast við aö til þess komi í bráð. Af fræðilegum lausnum er nóg, allt frá nýlegri hvítbók Jacques Delors, formanns framkvæmda- stjómar EB, en í henni em sett fram áform um fjárfestingu í inn- vibum atvinnulífsins til sköpunar atvinnu, til seiðkennds söngls Johns Major, forsætisrábherra Bretlands, um niðurfellingu opin- berra reglna um vinnumarkað. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.