Tíminn - 04.06.1994, Side 15
Laugardagur 4. júní 1994
15
Varði doktorsrit-
gerb í Skotlandi
Þann 9. maí s.l. varöi Arnar
Bjamason doktorsritgerð sína
við viðskiptadeild Edinborgar-
háskóla (University of Edin-
burgh) í Skotlandi. Heiti ritgerð-
arinnar á frummálinu er: „Ex-
port or Die. The Icelandic Fis-
hing Industry: the Nature and
Behaviour of its Export Sector".
Ritgerðin, sem skiptist í 9 kafla,
er m.a. byggð á viðtölum er tek-
in vom við framkvæmdastjóra
60 fyrirtækja sem flytja út sjáv-
arafurðir frá íslandi.
í ritgerðinni er lýst þeim breyt-
ingum sem átt hafa sér stað í
„strúktúr" útflutningsgeira ís-
lenska sjávarútvegsins á undan-
fömum ámm, tilgreindir nokkr-
ir helstu þættir er stuðluðu að
þessum breytingum, og varpað
er ljósi á núverandi „strúktúr"
útflutningsgeirans. Þá er gerö
grein fyrir mismunandi ein-
Dr. Arnar Bjarnason.
kennum þeirra fyrirtækja er
flytja út sjávarafurðir frá íslandi,
og hegðun þeirra í útflutningi
(export behaviour). Niðurstöður
leiða í ljós að útflutningshegðun
fyrirtækja, sem flytja út sjávaraf-
urðir frá íslandi, einkennist af
mismunandi þáttum, svo sem
eöli þeirrar vöm sem fyrirtækin
flytja út, uppbyggingu og skipu-
lagi útflutnings fyrirtækjanna,
landfræðilegri legu þeirra, og
þeim efnahags- og umhverfis-
legu skilyrbum sem sjávarútveg-
ur á íslandi býr vib.
Amar Bjarnason er fæddur að
Þykkvabæ í Landbroti, Vestur-
Skaftafellssýslu, árið 1958. Hann
lauk cand. oecon.-prófi í hag-
fræöi frá viðskiptadeild Háskóla
íslands árið 1985, M.B.A.-prófi
frá Aston Business School, Uni-
versity of Aston, í Birmingham í
Englandi áriö 1987, og nú Ph.D,-
prófi frá University of Edin-
burgh, Skotlandi, 1994. Dóttir
Amars er Inga Rán, og sambýlis-
kona Ástríður Vigdís Vigfúsdótt-
ir hjúkmnarfræðingur. ■
Finndis Finnbogadóttir
Fædd 23. september 1909
Dáin 28. maí 1994
Hún Finndís amma er dáin.
Okkur systumar langar til að
minnast hennar í fáeinum orð-
um.
Það er svo margt sem rifjast
upp á svona stundu. Á hverju
vori hlakkaði okkur til ab kom-
ast í sveitina til ömmu og afa.
Við minnumst hennar í litla
búrinu, sem okkur fannst þá svo
stórt, að vera ab hnoða eða
móta deig til baksturs. Við feng-
um stundum ab taka þátt í
bakstrinum, þó aðallega í
kleinubakstrinum. Svo gaf
amma okkur allskonar kmkkur
og áhöld, hveiti og krydd til aö
hafa í búinu okkar, sem var í
t MINNING
gömlu fjárhúsimum og/eða bak
við húsið.
Amma og afi sýndu okkur
krökkunum alltaf svo mikla þol-
irimæði og mikinn skilning í
leikjum okkar. Amma átti yndis-
legan garð þar sem hún ræktabi
allskonar plöntur. Þar fengum
vib einnig að leika okkur. Þab er
svo margs aö minnast úr sveit-
inni hjá ömmu og afa, en erfitt
ab koma því öllu á blað.
Núna síðustu árin vom sam-
vemstundimar ekki eins margar
og viö hefðum kosiö. Við hitt-
um ömmu síðasta sumar og þeg-
ar hún kvaddi okkur, þá var sem
hún vissi að við myndum ekki
hittast aftur, þannig talaði hún
og þannig kvaddi hún okkur. Þá
á þeirri stundu trúöum viö ekki
að þetta væm okkar síðustu
samvemstundir.
Okkur langar að þakka fyrir all-
ar þær ánægjulegu stundir sem
við áttum saman. Blessuð sé
minning hennar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín verí vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Kvebja,
Magna og Oddný
DAGBÓK
avmvmvffl
Lauqardaqur
Í2
janúar
22. daqur ársins - 343 dagar eftir.
3. vlka
Sólris kl. 10.37
sólariag kl. 16.15
Dagurínn lengist
um 6 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, kl.
13 og félagsvist kl. 14 í Risinu
sunnudag. Dansað í Goðheim-
um kl. 20.
Mánudag: Opið hús í Risinu kl.
13-17. Frjáls spilamennska.
Farin verður kvöldferð 9. júní
frá Risinu kl. 18 og ekinn Blá-
fjallahringur. Upplýsingar á
skrifstofunni, s. 28812.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verbur félagsvist og
dansað að Fannborg 2 (Félags-
heimili Kópavogs), í kvöld,
laugardag, kl. 20.30. Húsið öll-
um opið.
Vilhjáimur Einarsson.
60 ára afmæli
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
meistari á Egilsstöðum, verður
sextugur á morgun, sunnudag-
inn 5. júní.
íþróttakappinn, sem er að
verða þetta fullorðinn, tekur á
móti vinum og kunningjum í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal
á milli kl. 3 og 6 á afmælisdag-
inn. Nánar tiltekib á þribju hæð
Lottóhússins.
Messur í Breiöabóls-
staöarprestakalli
Hvammstangahöfn: Útiguðs-
þjónusta kl. 10 árdegis á sunnu-
dag við höfnina. Sjómenn lesa
ritningarvers og gubspjall og
leiða bæn. Kirkjukór Hvamms-
tanga leiðir aimennan söng
undir stjóm Helga S. Ólafssonar
organista. Ef veður hamla helgi-
haldi utan dyra, veröur guðs-
þjónustugjörbin flutt inn í aðal-
sal Meleyrarskemmunnar
(dymar gegnt kríuvarpinu).
Mætum vel og minnumst
þanníg sjávarfangs og lífsbjarg-
ar af miðunum. Kristján Bjöms-
son.
Vesturhópshólakirkja: Ferm-
ingarmessa kl. 14 sunnudag
(altarisganga). Prestur er sr.
Kristján Björnsson. Fermdur
verður Jón Rafnar Benjamíns-
son, Þorfinnsstöðum II.
Þjóðhátíðarfundur í Norræna
húsinu
í Danmörku ríkir sú hefð að
koma saman 5. júní á þjóðhá-
tíðardegi Dana, „Gmndlovs-
dagen", og hlýöa á fyrirlestur,
taka þátt í umræðum og syngja.
Norræna húsið ætlar nú að taka
þátt í þessum sið og býður því
til fundar á þjóbhátíðardaginn
sunnudaginn 5. júní kl. 16.
Boðið hefur verib Kjeld Kramp,
námstjóra frá danska kennslu-
málarábuneytinu, til þess ab
halda fyTirlestur um sambandið
milli gildistöku stjórnarskrár-
innar, Gmndtvigs og lýöháskól-
anna. Allir velkomnir.
Kitta sýnir aö Lauga-
vegi 31
Mánudaginn 6. júní opnar
Kitta (Kristrún P. Malmquist)
sölusýningu ab Laugavegi 31 A,
Steikhúsi Harbar. Á sýningunni
verða 16 nýleg myndverk, bæði
olíumálverk og myndir unnar
meb blandabri tækni. Opnun-
artímar haldast í hendur við
Steikhús Harbar, þ.e. frá kl.
11.30- 22 alla daga. Á föstu-
dags- og laugardagskvöldum er
þó opið lengur, eða til kl. 23.30.
Sýningin stendur til 30. júní.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólarnir Múlaborg og Ösp auglýsa eftir
leikskólakennurum, þroskaþjálfum og öðru upp-
eldis/kennslumenntuðu fólki. Starfsemi leikskól-
anna miðast við að koma til móts við þarfir fatl-
aðra og ófatlaðra barna í sameiginlegu leik-
skólaumhverfi. Unnið er í teymisvinnu. Stöðurn-
ar eru lausar strax eða með haustinu.
Upplýsingar vegna Múlaborgar gefur leikskóla-
stjóri í síma 685154 og vegna Aspar gefur leik-
skólastjóri í síma 76989.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, Sími 27277
F.h. stofnana og fyrirtækja Reykjavlkurborgar, er óskað eftir tilboðum I
HVÍTAN PAPPÍR 80 gr I stæröinni A4. Æskilegt er að pakkning sé 500
blöð I pakka.
Aætluð heildarkauo eru 12.000 pakkar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 21. júni 1994, kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskaö eftir tilboöum I
viöbygglngu viö leikskólann Brákarborg.
Um er aö ræða 125,6 m2 viöbyggingu ásamt tengingu við eldra hús.
Útboðiö nær til jarövinnu, uppbyggingu viöbyggingar, fullnaöarfrágangs
ásamt breytingum vegna tengingar við eldra hús.
Útboðsgögn verða afhent á skrífstofú vom, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 28. júní 1994, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum I gerö mal-
bikaðra göngustlga viö Sæbraut og I Fossvogi.
Verkið nefnist: Göngustlgar viö Sæbraut og I Fossvogl.
Helstu magntölur eru:
Malbikaðir stigar u.þ.b. 5.300 m2
Grjótfyllingar u.þ.b. 4.400 m3
Grasþökur u.þ.b. 10.000 m2
Uppsetning girðingar u.þ.b. 800 m
Lokaskiladagur verksins er 1. október 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu voni, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, frá
og með þriðjudeginum 7. júní n.k., gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuö á sama stað þriöjudaginn 14. júnl 1994, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800