Tíminn - 10.06.1994, Síða 6
14
Föstudagur 10. júní 1994
Bœndahöllin w'ð Hagatorg.
Uppbygging samtaka
landbúnaðarins
15 búnaðar-
sambönd
I
Búnaöaþing
Búnaðarfélag
íslands
DUR
r
192 hreppa- búnaöarfélög Búgreinafélög í héruðum
12 sérbúgreina-
sambönd
Kjörmannafundir í 23 sýslum
Aðalfundur Stóttar-
sambands bænda
Framleiösluráö
landbúnaöarins
Stéttarsamband
bænda
Aö baki samtaka landbúnaöar-
ins standa um 4500 bændur, en
stærstu félagsmálasamtök
landbúnaðarins eru Búnabarfé-
lag íslands og Stéttarsamband
bænda. í síöustu sveitarstjóm-
arkosningum var einnig kosiö
um þaö meöal bænda hvort
sameina ætti þessar stofnanir.
Grunneiningar bæöi Búnaðarfé-
lags íslands og Stéttarsambands-
ins eru hreppabúnaðarfélög, tæp-
lega 200 að tölu. Bændum ber
ekki skylda til félagsaðildar að
hreppabúnaöarfélögunum, en
flestir eru þó félagar. Áhrif hvers
bónda birtast í kosningu fulltrúa
á Búnaðarþing og fulltrúa á aðal-
fund Stéttarsambandsins.
Hreppabúnaðarfélögin mynda
búnaöarsambönd, sem eru 15
talsins og hafa þau skrifstofu í
hverju umdæmi. Starf búnaðar-
sambandanna felst að mestu í
ráðgjafarþjónustu og starfa
ráðunautar, einn eða fleiri, hjá
öllum búnaöarsamböndunum.
Ráðunautarnir hafa að baki
nám á háskólastigi og veita leið-
beiningar og aðstoð t.d. í bók-
haldi, búfjárhaldi, jarðrækt,
byggingum og öðrum fram-
kvæmdum. Sumir þeirra eru sér-
hæfðir.
Búnaðarfélag íslands er frjálst fé-
lag bænda og annast meöal ann-
ars leiðbeiningarþjónustu, rekur
búreikningsstofu og tölvudeild,
sér um útgáfustarfsemi og rekur
kynbótastöðvar. Gmnneiningar
félagsins eru hreppabúnaðarfé-
lögin og búnaðarsamböndin. Á
Búnaðarþingi sitja 25 fulltrúar,
kosnir af bændum. Þaö kemur
saman árlega og er meðal annars
ráðgjafarþing um málefni sem
varða landbúnaðinn. Hjá Búnað-
arfélagi íslands starfa nú 50
manns í 40 stööugildum og
stjórnar Jónas Jónsson búnaðar-
málastjóri daglegum rekstri fé-
lagsins.
Stéttarsamband bænda er einnig
frjálst félag bænda. Stéttarsam-
bandið er hagsmunasamtök og
opinber málsvari félagsmanna
sinna. Stéttarsambandið gerir
framleiðslusamninga við hiö op-
inbera og á fulltrúa í verðlags-
nefndum. Hefur þaö aðsetur sitt í
Bændahöllinni. Starfsmenn em
nú fimm, en reksturinn er kostað-
ur af félagsgjöldum bænda, sem
em 0,5% af launalið þeirra. Árleg-
an aðalfund Stéttarsambandsins
sækja 63 fulltrúar, kosnir af 700
kjörmönnum úr hreppabúnaðar-
félögunum, auk 11 fulltrúa, kjör-
inna af búgreinasamböndunum.
Formaður Stéttarsambandsins er
Haukur Halldórsson og fram-
kvæmdastjóri er Hákon Sigur-
grímsson.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
er samstarfsvettvangur allra bú-
vömframleiðenda og þar eiga
Jónas Jónsson búnaöarmálastjóri.
Haukur Halldórsson, formabur
Stéttarsambands bænda.
sæti fulltrúar frá Stéttarsambandi,
búgreinasamböndum, afurða-
stöðvum og landbúnaðarráðu-
neyti. Bændur eiga 12 fulltrúa og
þar af em 5 frá búgreinasam-
böndum, landbúnaöarráöuneyti
skipar einn fulltrúa, sláturleyfis-
hafar einn og afurðastöðvar
mjólkuriðnaðar einn. Starfssvið
ráðsins er að annast eftirlit, áætl-
anagerö, skýrsluhald og útreikn-
inga varðandi framleiðslu, full-
virðisrétt, sölu og birgðir. Þá sér
ráðið um útreikninga og umsjón
með niðurgreiðslum, verðmiðlun
og sjóðagjöldum.
Utan þessara grunnsamtaka
landbúnaðarins em starfrækt
nefndir og sjóðir, sem annað
hvort em rekin af samtökum
landbúnaðarins eða í samvinnu
við aðra aöila. Sitja þá fulltrúar
landbúnaðarins í viðkomandi
nefndum og stjórnum sjóðanna.
Líta ný heildarsamtök bœnda dagsins Ijós um nœstu áramót?
Skiptar skoöanir
innan Stéttarsambandsins
í nýafstöðnum sveitarstjórnar-
kosningum hafa bændur kosið
um sameiningu Stéttarsam-
bands bænda og Búnabarfélags
Islands og fer talning væntan-
lega fram þann 13. júní. Starf-
rækt hefur verib undirbúnings-
nefnd skipub fulltrúum beggja
abila og hefur hún sett fram
drög ab samþykktum fyrir
væntanleg heildarsamtök.
Búnabarþing og abalfundur
Stéttarsambandsins eiga eftir
ab fjalla um þessi drög og
greiba atkvæbi um þau, og
verbur þab gert undir lok ágúst
næstkomandi. Ýmsir hafa þó
efasemdir um samþykki abal-
fundar Stéttarsambands
bænda.
Nefndina skipa þeir Haukur
Halldórsson, Þórólfur Sveinsson
og Guðmundur Stefánsson, sem
eru fulltrúar Stéttarsambandsins,
og Jón Helgason, Hermann Sig-
urjónsson bóndi í Raftholti og
Gunnar Sæmundsson frá Búnað-
arfélaginu. Þeir Haukur Halldórs-
son og Jón Helgason hafa skipt
meö sér formennsku í nefndinni.
Markmiðið með sameiningu er
að einfalda stjórnkerfi samtaka
landbúnaðarins og boðleiðir inn-
an þeirra. Með þessu eru kjara-
mál og faglega hliðin sett undir
sama hatt, en margir hafa gagn-
rýnt núverandi kerfi meb þeim
rökum aö bændur væru ekki
nógu samstíga. Þá mun nást fram
talsverð hagræðing með samein-
ingunni, þar sem aðeins veröur
ein stjórn og einn aðalfundur,
auk annarrar hagræöingar í
starfsmannahaldi og rekstri.
Meb þessum breytingum er
einnig ætlunin að styrkja samtök
bænda og gera þau hæfari til að
mæta nýjum og breyttum tím-
um, með aukinni samkeppni er-
lendis frá. Það er litiö svo á, að
samtök bænda í tveimur eining-
um séu ekki nægilega sterk og
þess í stað er ætlunin að auka
samstöðu og samtakamátt þeirra
meb sameiningu.
Fyrsti aðalfundur nýrra sam-
taka, ef til stofnunar þeirra kem-
ur, mun móta stefnu þeirra. Þó
hefur sameiningarnefnd Búnab-
arfélags íslands og Stéttarsam-
bandsins mótað drög að sam-
þykktum fyrir væntanleg heild-
arsamtök, en nákvæm útfærsla
hefur ekki farið fram. Ekki er þó
líklegt ab mikið verði hróflab vib
þeim samþykktum á aðalfundi
Stéttarsambandsins og þingi
Búnaðarfélagsins í ágúst næst-
komandi.
Þab þarf 2/3 fulltrúa á Búnaðar-
þingi og á þingi Stéttarsambands-
ins til ab ný heildarsamtök verði
að veruleika. Heyrst hafa raddir
um að máliö fái ekki þann
hljómgmnn á aðalfundi Stéttar-
sambandsins sem það þarf. Ef af
sameiningu verbur, mun fulltrú-
um á aðalfundi fækka nokkuð.
Þeir munu verða kjörnir af bún-
aðarsamböndum og búgreina-
samböndum um land allt. Ný
stjóm verbur kosin á fyrsta aðal-
•fundi nýrra samtaka og hana
munu skipa sjö menn. Það verð-
ur þó algerlega óháð búsetu eða
því hvort viðkomandi kemur frá
ákvebnu búgreinasambandi. Það
er einmitt þetta atriði sem gæti
helst orðib til þess aö tillagan félli
á abalfundi Stéttarsambandsins.
Margir fulltrúar em ekki sáttir við
að sjónarmiö landshluta og bú-
greinasambanda verbi ekki höfð
að leiðarljósi við stjórnarkjör.
Rök nefndarinnar em þau að
kjósa skuli þá menn í stjórn sem
fulltrúar aðalfundar treysti til að
fara með mál bænda, burtséð frá
búsetu og hvort þeir komi úr
ákveðnum búgreinasambönd-
um. Þeim verði falin þessi ábyrgb
og ef þeir standi sig ekki, verði
þeim skipt út.
Ekki hefur verið fundið nafn á
ný heildarsamtök bænda, en ef
sameiningin verður samþykkt af
öllum aðilum, verður í septem-
ber sett saman nokkurs konar
starfsstjórn, sem sér um áfram-
haldandi undirbúning. Gerf er
ráð fyrir að rekstur nýrra heildar-
samtaka hefjist um áramót og
fyrsti aðalfundur verði haldinn í
mars á næsta ári.