Tíminn - 10.06.1994, Síða 19

Tíminn - 10.06.1994, Síða 19
Föstudagur 10. júní 1994 27 Hús Mjólkursamsölunnar viö Bitruháls. Aöalfundi Mjólkursamsölunpar var frestaö vegna ágreinings um eignarhald, en nú hefur veriö skoriö úr um þaö: Mjólkursamsalan í eigu bænda í vor var aðalfundi Mjólkur- samsölunnar frestað, þar sem sumum þótti ekki nægilega skýrt hverjir eiga Mjólkursam- söluna og er nú unniö að því að greiða úr því máli. Að sögn Magnúsar Sigurðssonar, stjórn- arformanns Mjólkursamsöl- unnar, telja fulltrúar Kaupfélags Borgfirðinga að fyrirtækið muni vera eign mjólkursamlaganna á samsölusvæðinu, þvert á álit lögfræðings og nefndar á veg- um landbúnaðarráðuneytis, sem telja fyrirtækiö eign bænda. Að því hefur verið unnið á undanförnum árum að breyta samþykktum Mjólkursamsöl- unnar, sem kveða á um eignar- hald fyrirtækisins, og í kjölfar þess kom upp ágreiningur. „Frá því ég kom aö fyrirtækinu hefur mér ekki fundist það nægilega skýrt hverjir ættu fyrirtækið í raun, hvort þaö væru mjólkur- búin eða bændurnir sjálfir," segir Magnús Sigurösson. Rannsókn- ir á rjúpna- stofn- inum Að frumkvæði umhverfisráðu- neytisins hefur verið ákveðið að hefja viðamiklar rannsóknir á rjúpnastofninum og mun Náttúrufræðistofnun íslands annast þessar rannsóknir. Ákveðiö hefur veriö að veita um 4 milljónum króna til verk- efnisins á þessu ári, en gert er ráð fyrir aö rannsóknin taki yfir þrjú ár. Rannsóknin miöar fyrst í stað að því að afla vitneskju um stærð og ástand stofnsins, en miklar umræður hafa verið um þetta mál að undanförnu og ráðuneytið verið harölega gagnrýnt fyrir aögeröir sínar, en síðasta rjúpnaveiðitímabil var stytt um einn mánuð. Auglýst var eftir vísindamanni til starfans meö sérþekkingu á fuglarannsóknum til að vinna að þessu verkefni og er gert ráð fyrir aö niðurstöðurnar verði lagöar til grundvallar ákvörðun um veiðar úr rjúpnastofninum og veiöitíma. Þegar samþykktum var breytt á þann veg að skýrt var kveðið á um það að fyrirtækið væri eign bænda, mótmæltu stjórnendur Kaupfélags Borgfirðinga, sem töldu að það væri eign mjólkur- samlaganna á svæðinu, en ekki bænda. „Aö okkar mati var þetta dálítið „harkaleg afstaða, að bændurnir, sem að okkar mati höfðu byggt upp mjólkur- búið í Borgarfirði og verið þátt- takendur í uppbyggingu Mjólk- ursamsölunnar, ættu ekki neitt. Af þeim sökum létum- við gera úttekt á þessu máli." Til þess var fenginn lögfræð- ingur, Eiríkur Tómasson hrl., og gerði hann viðamikla úttekt á eignarhaldi samsölunnar, fór í heimildir allt frá aödraganda stofnunar og fór yfir fundar- gerðir í hartnær 60 ár. Hann komst aö þeirri niðurstöðu að fyrirtækið væri sölusamtök í eigu mjólkurframleiðenda, þ.e.a.s. bænda. Á svipuðum tíma starfaði nefnd á vegum landbúnaðarráðuneytisins, sem vann að athugun á eignarhaldi á mjólkurbúum yfirleitt og meðaí annars Mjólkursamsöl- unnar. Sú nefnd komst að sömu niðurstöðu og Eiríkur Tómas- son. „Við tókum þessar niður- stöður gildar og gengum frá samþykktum í samræmi við þessar niðurstöður, til aö leggja fyrir aðalfund, en þar sem ein- dregin ósk kom frá Kaupfélagi Borgfirðinga um að leita eftir samkomulagi í máli þessu og ljúka ekki aðalfundi í vor, þá urðum við viö þeirri ósk," segir Magnús að lokum. úr W glasfiber h \A Með öllum búnaði Verð' 6 metrakr. 24.450.- 7 metrakr. 26.670.- 8 metrakr. 28.820.- SNARI TRANAVOC11 SÍMI682850 FAX 682856 < Z < u. < ec < Z \A S 1 KAYAK Odýr sjó- og vatnakayak Lengd 420 cm., breidd 65 cm, þyngd 19 kg., burðargeta 100 kg. KANÓ Léttir oq sterkir Lengd 4,97, breidd 84 cm, þyngd 38 kg., burðargeta 280 kg. KANÓ- OG KAYAK-VINIR Uppl. í síma 10184 FAXNÚMERIÐ ER 16270 RÆNDUR! KUSA er nýr íslenskur hreinsilögur í fljótandi formi fyrir mjólkurkerfi. KUSA er alíslenskt hreinsiefni. KUSA er mjög öflugurtil þrifa í mjólkurkerfum. All- ar sápur KUSU eru umhverfisvænar. KUSA fæst hjá Mjólkurbúi Flóamanna og í verksmiðju okkar. VELJUM ÍSLENSKT VERKSMIÐJAN SAMUR VFSTURVÖR 11 A, KOPAVOGI SIMI 42090

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.