Tíminn - 10.06.1994, Page 22
30
Föstudagur 10. júní 1994
Unniö aö gerö staöla fyrir lífrœnan landbúnaö á Islandi:
íslenskir bændur
hafa forskot
Francis Blake, framkvœmdastjóri Soil Association.
Eftir tvö ár ættu íslenskir neyt-
endur að geta keypt lífrænar
landbúnaöarafuröir sem verða
seldar undir sérstöku vöru-
merki. Nokkrir íslenskir bænd-
ur hafa þegar tileinkað sér líf-
rænar framleiösiuaöferöir en
hingaö til hafa neytendur ekki
haft neina tryggingu fyrir því
ab vara sem er sögb lífrænt
ræktub væri þab í raun og
veru. Til ab bæta úr þessu hef-
ur Lífræna hreyfingin á ís-
landi unnib ab undirbúningi
ab gerb sérstaks vottunarkerfis
fyrir lífrænan landbúnaö og
hefur nú fengib einn fremsta
sérfræbiabila heims á þessu
svibi í Iib meb sér.
Markmiðiö er ab setja upp vott-
unarstofu sem mun hafa þaö
hlutverk að halda uppi eftirliti
með lífrænni framleiðslu og
veita þeim vottun sem uppfylla
öll sett skilyrði. Hingaö til hefur
hver sem er getaö selt afurbir
sínar sem lífrænar og því er vott-
unarkerfið brýnt hagsmunamá:
fyrir bændur í lífrænni ræktun
ekki siöur en neytendur.
Heimsþekkt ráögjafar-
fyrirtæki
Undirbúningur ab gerö kerfis-
ins hefur staöib í eitt ár og er nú
komib að því að ákveöa þá staðla
sem lífrænar afurðir verða ab
uppfylla. í því skyni hefur líf-
ræna hreyfingin á íslandi leitaö
rábgjafar hjá bresku stofnuninni
Soil Association sem er virt ráö-
gjafarfyrirtæki á svibi lífræns
landbúnabar og jafnframt
heimsþekkt vottunarstofa fyrir
lífræna framleibendur. Stablar
hennar eru meginfyrirmynd hjá
alþjóðastofnunum og sjálfstæö-
um vottunarstofum víða um
lönd.
Francis Blake, framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar, var stadd-
ur hér á landi fyrir skömmu en
stofnun hans mun veita Lífrænu
hreyfingunni á íslandi abstob
við uppsetningu kerfisins, þjálf-
un starfsmanna og öflun alþjóö-
legrar viburkenningar. Francis
Blake læröi búvísindi vib Ox-
ford-háskóla og rak eftir þab líf-
rænan búgarö í tíu ár áður en
hann hóf störf hjá Soil Associati-
on. Hann er heimskunnur fyrir
störf sín í þágu lífrænnar fram-
leibslu og hefur átt þátt í að
móta vottunarkerfi í mörgum
löndum. Auk þess situr hann í
Evrópunefnd IFOAM, alþjóba-
samtaka lífrænna landbúnabar-
hreyfinga.
Áburöargjöf helsta
vandamáliö
Verbur íslenska vottunarkerfib
ólíkt því breska? „Ég á ekki von á
ab þaö þurfi ab gera miklar
breytingar á uppsetningu kerfis-
ins en þaö veröur auðvitaö
minna í sniðum, a.m.k. til aö
byrja með. Mér skilst reyndar að
Lífræna hreyfingin á íslandi og
íslensk stjórnvöld hafi áhuga á
því aö lífræn framleibsla verbi
stór hluti af íslenskum landbún-
abi. í því samhengi er ætlunin
að nýta hið hreina umhverfi
sem hér er,og ímynd landsins
sem „hreins lands"."
Francis Blake segir að íslenskir
bændur hafi visst forskot því hér
hafi tiltölulega lítiö verið notaö
af eiturefnum enda valdi lofts-
lagib því að lítið sé um skab-
væna sjúkdóma hér á landi.
Helsta vandamálið telur hann
aftur á móti vera í sambandi við
áburð og frjósemi jarðvegsins.
„Vaxtartíminn er stuttur hér á
landi og hitastig jarðvegsins
lágt. Við slíkar aöstæbur er
naubsynlegt ab auka næringar-
gildi og frjósemi jarövegsins. í
köldu loftslagi er aftur á móti
erfitt fyrir bændur ab framleiða
allan þann áburð sjálfir sem þeir
þurfa á að halda. Þess vegna
verður áð tryggja að bændur geti
notað aökeyptan áburö og nær-
ingarefni í meira mæli en gert er
þar sem loftslag er hlýrra. Þetta
vandamál er vel hægt ab leysa
en verður samt ab öllum líkind-
um helsta breytingin í starfi
þeirra íslensku bænda sem taka
up>p lífræna framleibsluhætti.
Onnur breyting verbur í sam-
bandi vib útihús og fæðugjöf þó
að ekki sé víst ab miklar breyt-
ingar séu nauðsynlegár í því
sambandi. Starf mitt hér felst
einmitt í því aö benda á þá þætti
sem þarf aö breyta og hvernig
hægt sé að breyta þeim þannig
ab þeir uppfylli kröfur bæbi al-
þjóðlegra staðla og þess íslenska.
I heildina séð tel ég aö íslenskir
bændur þurfi ab gera minni
breytingar á framleiðslu sinni,
til að hún geti talist lífræn, en
bændur víða annars staðar."
Eftirllt mikilvægt
Eftir ab staðallinn hefur verib
útbúinn og vottunarstofunni
komiö á legg verbur eftirlit meb
framleiðslunni eitt helsta verk-
efni hennar. Sérstakir eftirlits-
menn hafa það starf aö fylgjast
með því að vara sem seld er und-
ir vörumerki sem lífræn vara,
uppfylli öll nauðsynleg skilyrði
til þess. Til ab halda uppi eftirliti
verða menn að búa yfir mikilli
þekkingu á lífrænni framleiðslu.
„Hér verbur að byrja frá grunni.
Ég tel þó að íslendingar búi yfir
nægum áhuga og sérfræðiþekk-
ingu, sem ásamt okkar aöstoð
verði til þess að hægt verði að
koma upp slíku eftirliti á tiltölu-
lega stuttum tíma. Þangað til
munu eftirlitsmenn frá Soil As-
sociation sjá um eftirlitið og
veita íslensku framleiðslunni
vottun."
Francis Blake segist gera ráð fyr-
ir ab íslenska vottunarkerfib
verði komið í gang eftir tvö ár en
þab geti jafnvel tekiö styttri
tíma. „Fyrra árib fer ab mestu
leyti í að koma kerfinu upp og
hefja þjálfun starfsmanna og
fyrst eftir það verður hægt að
leita alþjóblegrar viburkenning-
ar á kerfinu."
Krefst hugarfarsbreyt-
ingar
Venjulega er miðað við að það
taki hvern bónda tvö ár að
breyta úr hefðbundnum búskap
eða ræktun yfir í lífræna. Á þeim
tíma þarf hann að hreinsa jarð-
veginn og breyta búskaparhátt-
unum ab meira eða minna leyti.
Þessi ablögunartími veldur því
ab einhver bið verður á því að ís-
lenskir bændur fái viðurkenn-
ingu vottunarstofunnar en
Francis Blake segir ekki síöur
mikilvægt að eftirliti sé haldið
uppi á aðlögunartímanum. Þab
er bæði til þess að vottunarstof-
an geti fullvissað sig um að að-
lögunin fari fram í samræmi við
uppgefna staðla og til þess ab
bóndinn geti verið viss um að
hann sé á réttri leið alveg frá
upphafi.
„Þab hefur stundum gerst ab
bændur telji sig hafa uppfyllt öll
skilyrði þess að framleiðslan
kallist lífræn en þegar eftirlits-
menn fara á vettvang kemur í
ljós að þab hefur ekki verið stað-
ib rétt að breytingunni. Þá
standa bændurnir aftur á byrj-
unarreit og þurfa að hefja aðlög-
unartímabilið að nýju. Við segj-
um stundum að það fyrsta sem
hver bóndi þurfi að gera þegar
hann hefur ákveðið aö breyta
framleiðslu sinni sé að breyta
eigin hugarfari. Hann verður að
finna það innra með sér að þetta
sé betri framleiðsluaðferð, bæði
fyrir eigin heilsu, landið og um-
hverfib og ekki síst fyrir heil-
brigbi uppskerunnar og búpen-
ingsins. Þegar hann hefur náð
þessari hugarfarsbreytingu getur
hann farið ab huga að nauðsyn-
legum breytingum í framleiðsl-
unni."
Francis Blake segir að alltaf sé
mælt með því ab byrja á ab
breyta litlum hluta framleibsl-
unnar. Þab er meðal annars
vegna þess að fyrst eftir ab hætt
er að nota tilbúin efni dregst
framleiðslan saman um allt að
helming og því yrði það mikið
fjárhagslegt tjón fyrir bóndann
að breyta öllu landinu í einu.
Eftir því sem jarðvegurinn nær
að jafna sig og byggja upp nær-
ingarefni eykst framleiöslan aft-
ur og eftir tvö til þrjú ár nær hún
að vera um 20% - 30% lægri en
hún var meb hefðbundnum að-
ferðum. Á móti kemur að afurðir
lífrænnar framleiðslu eru oft rík-
ari af næringarefnum og inni-
halda minna vatn en afurðir
hefðbundinnar framleiðslu.
Eftirlitsmenn frá Soil Associati-
on koma væntanlega til íslands
síðar í sumar og byrja aö kanna
aðstæbur hjá íslenskum bænd-
um. Um leið verður byrjað ab
þjálfa íslenska eftirlitsmenn sem
munu fara með þeim bresku um
landið. Næsta slaef verður að ís-
lensku eftirlitsmennirnir og aör-
ir starfsmenn vottunarstofunnar
fara til Bretlands í haust til að
kynna sér starfsemina þar. ■
Skipulögð beit - landvernd
Hagkvæmasta lausnin er í/kr~
- rafgirðing
Vandað efni - fjölbreytt úrval - hagstætt verð
Gerum efnisáætlanir og tilboð
Leiðbeinum um uppsetningu
Leitið upplýsinga og fáið sendan
bækling og vörulista yfir
rafgirðingavörurnar.
Byggingavörud. á Eyri,
550 Sauðárkróki.
Sími 95-35200
Fax: 95-36024
Umboðsmenn um allt land