Tíminn - 15.06.1994, Blaðsíða 10
10
Mi&vikudagur 15. júní 1994
Kerruaksturinn um landiö:
Komið til Reykjavíkur í dag
Dr. dieter kolb,
tannlæknir frá Saar-
briicken, og félagar
hans á þýsku léttikerrunni
stefna ab því aö koma til
Reykjavíkur í kvöld. í fyrri-
nótt var áö í Brú í Hrútafiröi
og í Borgarnesi í nótt. Síðan
er á áætluninni að heimsækja
Skagamenn í dag og síöan
fara meö Akraborginni til
Reykjavíkur. Þá tekur viö
hringur á Reykjanesinu og
síöan tekin stefnan á Hellu,
þar sem landsmót íslenskra
hestamanna byrjar 28. júní
nk. Dieter er reiöubúinn aö
leggja kerru sína og hesta
fram til hátíðahaldanna 17.
júní, ef þess er óskað.
Að sögn Dieters hefur feröin
tekist frábærlega vel. íslensku
hestarnir hafa staðið sig meö
prýöi. Tveir hestar eru fyrir
kerrunni hvert sinn og fara
svona 30 km á tveimur tím-
um. Þá er skipt yfir og tveir
óþreyttir hestar teknir úr
hestakerru, sem húsbíll þeirra
féiaga dregur, og aörir 30 km
lagöir aö baki. Síöan er þriöja
óþreytta teymið spennt fyrir
og þannig eru farnir um 90
km á dag.
Aksturinn hefur vakiö mikla
athygli hvar sem hann hefur
farið um. Hestamenn hafa
riöiö meö og aörir sest í kerr-
una. Sjónvarpið og fjölmiölar
hafa skýrt frá ferðinni og allir
vinir Dieters um allt land
hafa samfagnað honum og
aöstoðaö.
Meö í för var þýskur járn-
ingameistari og hefur hann
sýnt list sína á leiöinni. Hún
felst m.a. í því aö skeifurnar
eru hitaðar og sleginn oddur
upp á hófinn aö framan.
HESTAR
CUÐLAUGUR TRVGGVI KARLSSON
íslenskir bílstjórar hafa verið
sérlega tillitssamir, þegar þeir
uppgötva þetta merkilega far-
artæki og sumir hafa snúið
við og tekið myndir af ferða-
löngunum. Dieter hefur nú
útvegað tveimur aðilum
svona kerrur, en öll smíöi á
þeim er sérstaklega vönduö,
enda aldahefð fyrir svona
akstri í Þýskalan-di áöur en
bíllinn tók völdin á vegun-
um. Dieter segist hafa séð
svona kerrur á gömlum ís-
lenskum myndum, þannig
aö greinilega hafa íslendingar
notfært sér þetta farartæki
hér áöur fyrr.
Hann segir íslensku hestana
sérdeilis vel fallna fyrir kerru-
„íslenskur feröaiönaöur á eftir aö
uppgötva þennan skemmtilega
feröa- og útsýnismáta," segir dr. Di-
eter Kolb, enda er þetta í algjörum
stíl viö hreina ímynd landsins og
þcer náttúruafuröir, sem íslendingar
leggja svo mikla áherslu á í útflutn-
ingi sínum á matvœlum.
Ljósm. M.S.
akstur vegna skynsemi þeirra,
næmi og öryggi. Hann hafði
8 daga til þess aö temja hest-
ana sex fyrir kerrurnar áður
en lagt var af stað og ekkert
vandamál hefur komið upp.
Heima í Þýskalandi hefur Di-
eter margsigrað vana þýska
hesta á mótum í kerruakstri
með „íslendingunum", auk
þess sem hann fer í langferðir
um Þýskaland á þennan hátt.
Dieter á margar tegundir
kerra, m.a. biskupskerru sem
er nær tvö hundruð ára göm-
ul. í þeirri kerru keyrir hann
m.a. brúðhjón til kirkju
Tveir hestar fara auöveldlega 30
km á dag meö kerruna, sem getur
tekiö fimm farþega auk ökumanns.
Séu tvö önnur teymi meö í ferö, er
auöveldlega hœgt aö leggja 90 km
aö baki á dag.
heima í Saarbrucken. Hann
segir aö þaö sé aðeins tíma-
spursmál hvenær íslendingar'
taki þessa kerru í þjónustu
ferðamennsku sinnar, vegna
þess hversu skemmtileg til-
breyting þetta sé fyrir ferða-
menn. Þeir komi til hreinasta
lands í Evrópu, boröi nátt-
úruafuröir í kjöti, fiski og
grænmeti og hví þá ekki að
bjóöa þeim hreina skemmti-
reisu á kerru með íslenskum
hestum fyrir, enda þurfi enga
æfingu fyrir þá ferð. Fólk
þurfi ekki að vera hestamenn,
heldur bara stíga uppí kerr-
una og njóta feröarinnar og
útiverunnar. í öllum löndum
þar sem ferðamennska er
stunduö, er boðið uppá
svona akstur bæöi í borgum
og til sveita og þykir sérstök
skemmtun. ■
Biskupskerran stásslega er notuö í Þýskalandi m.a. til þess aö flytja brúöhjón til giftingar.