Tíminn - 02.07.1994, Blaðsíða 20

Tíminn - 02.07.1994, Blaðsíða 20
mmm Laugardagur 2. júlí 1994 Ve&riö í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær) • Su&urland og Suövesturmi&: Sunnan gola og þokuloft á miö- um en skýjaö aö mestu til landsins. • Faxaflói, Breiöafjör&ur, Faxaflóamiö og Breiðafjar&armi&: Vestan og síöan sunnan gola. Sums staðar dálítil súld, en annars skýjaö og úrkomulaust. • Vestfir&ir, Strandir og Nor&urland vestra, Vestfjar&ami& og Nor&vesturmiö: Suövestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi í fyrstu og skýjaö að mestu. Síöan hæg breytileg átt og sunnan gola. • Noröurland eystra, Austurland a& Clettingi, Norbausturmiö og Austurmib: Suöaustan gola eöa kaldi og léttskýjaö. • Austfir&ir, Su&austurland, Austfjar&amib og Su&austurmib: Suövestan kaldi og skýjaö meö köflum. Þokuloft á miöum. Útflutningur aukist um 14% á föstu gengi en innflutningur nœr staöiö í staö: Fiskurinn gefið 4 milljöröum meiri gjaldeyri en í fyrra Tímamynd CS Hljóp á hestamót Ragnar Tómasson, lögfræðing- ur og hestamaður, sést hér Ijúka síðasta sprettinum í þriggja daga hlaupi þegar hann kom trimmandi á landsmót hesta- manna á Hellu í gær. Ragnar hljóp í þremur áföngum frá Reykjavík að Hellu. A mánu- daginn fór hann að Skíöaskál- anum í Hveradölum, þaöan til Selfoss á miðvikudag og í gær lauk hann ferðinni með því að skokka frá Selfossi að Hellu. ■ GÓ6 byrjun Lonuveiði hófst í gær og voru 26 skip farin til veiða síðdegis. Húnaröst RE frá Reykjavík land- aði í Raufarhöfn í gærkvöldi, fyrst skipa til að landa loðnu að þessu sinni. Hákon Magnússon, skipstjóri á Húnaröst, sagði að byrjunin hefði verði góð hjá sér þótt ekki væri þar með sagt að nóg væri af loðnu á miðunum. ■ Sjávarafurðir voru fluttar út fyrir 35,8 milljaröa króna á fyrstu fimm mánuðum þessa árs, borið saman við rúmlega 29 milljarða í fyrra, sem er nær fjórðungs aukning í krón- um talið. Þegar tekið hefur verið tillit til þess að meðal- verö erlends gjaldeyris er 9,5% hærra í ár verður niðurstaðan sú ab gjaldeyrisverðmæti út- fluttra sjávarafurða hefur auk- ist um 4 milljarba króna (13%) á tímabilinu janú- ar/maí. Útflútningur á áli hefur á sama tíma aukist um þriðjung og um fimmtung á kísiljárni. Heildar- útflutningurinn er því 45,3 milljaröar á tímabilinu, sem er rúmlega 14% aukning á föstu gengi. Þar sem innflutningur hefur á sama tíma aukist sáralítið, eða tæplega 1% miðað við fast gengi, er vöruskiptajöfnuður- inn (fob/fob) nú jákvæður um 11,5 milljarða króna, eba um tvöfalt hærri upphæð en á sama tíma í fyrra. Heildarinnflutning- urinn þessa fimm mánuði er 33,8 milljarðar, þar af almennur innflutningur, annar en olía, 28,6 milljarðar. Innflutningur fólksbíla hefur enn haldib áfram ab dragast saman, og er nú um 17% minni heldur en á sama tíma í fyrra. . Innflutningur matvæla hefur aftur á móti aukist um 10% milli ára, reiknað á föstu gengi. Ekki þarf það þó endilega að þýða aukið át og drykkju lands- manna, því benda má á ab svo- kallaðan „Rússafisk", sem flutt- Hann lcetur lítiö yfir sér varöturninn á Litla-Hrauni og er ótrúiegt aö þetta skuli vera varöturn stœrsta ríkisfangeis- is á íslandi. Vinnumiölun Reykjavíkur flutt í nýtt húsnœöi: Hægt aö bæta þjónustu við atvinnulausa Nýtt húsnæði Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar og Vinnuskóla Reykjavíkur að Engjateig 11 var afhent í gær. Með nýju húsnæði verbur unnt ab bæta þjónustuna við atvinnulausa en meb auknu atvinnuleysi undanfarinna ára hefur starfsemin svo til eingöngu snúist um atvinnu- leysisskráningu. Nýja húsnæðið að Engjateigi 11 er tæpir 640 fm að stærð auk sameignar. Húsið var keypt tilbúið undir tréverk þann 2. febrúar á þessu ári. Kaupverö var 45 milljónir króna og heildarkostnaðar- áætlun fyrir frágang húsnæðis- ins er 30 milljónir. Hlutverk Vinnumiðlunar er að hafa með höndum vinnu- miðlun og atvinnuleysisskrán- ingu. Þá skal vinnumiölunin fylgjast með framvindu at- vinnumála í sveitarfélaginu og safna og dreifa upplýsingum um framboð og eftirspurn vinnuafls. Einnig á hún að að- stoða atvinnuumsækjendur við atvinnuleit og atvinnurek- endur við útvegun hæfra starfsmanna, leiðbeina um starfsval og aðstoða við at- vinnuleit fatlaðra. Á síðast- liðnu ári hafa um þrjú þúsund einstaklingar heimsótt stofn- unina í hverri viku. Þegar at- vinnuleysið var mest í vetur voru 3.606 manns skráðir at- vinnulausir í Reykjavík og hef- ur þeim fjölgað ár frá ári und- anfarin ár. Álagið hefur því verið mikið á Vinnumiðlunina (sem áður hét Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar) og við óbreytt húsnæbi ekki hægt ab sinna þjónustu við atvinnu- lausa eins og æskilegt væri. Helstu breytingarnar sem verða á þjónustunni í nýja húsnæðinu eru nýtt númera- kerfi í afgreiðslu sem mun koma í veg fyrir ab biðraðir myndist við afgreiðslubása. Umsækjendur geta þá notað tímann til að fara í upplýsinga- hornið þar sem hanga uppi auglýsingar, m.a. um laus störf og námskeið í bobi. Ráðning tveggja atvinnuráðgjafa sem taka til starfa í byrjun ágúst mun einnig auka þjónustuna til muna. Hver einstaklingur sem er að koma í fyrsta sinn til skráningar fær þá einkaviðtal við ráðgjafa þar sem farið er yf- ir umsókn hans, upplýst um réttindi og skyldur og gefin ráb varðandi störf og nám. Einnig verða þeir sem eru atvinnu- lausir í langan tíma kallaöir reglulega í viðtöl til ráðgjafa. Vinnumiðlunarþáttur stofn- unarinnar veröur einnig efld- ur. Á vegum Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar er einnig rekin atvinnudeild fatlaðra og Vinnumiðlun skólafólks. ■ ur er inn til vinnslu á íslandi, flokkar Hagstofan með öðrum matvælainnflutningi til lands- ms. „Kóngur vill sigla en byr hlýtur ab rába" Varð af Eyjaferð „Kóngur vill sigla en byr hlýt- ur að ráða." Enn sannaðist þetta gamla máltæki í gær þeg- ar þoka og súld kom í veg fyrir að flugvél Landhelgisgæslunn- ar gæti lent með Beatrix Hol- landsdrottningu og Claus prins í Vestmannaeyjum í gær, eins og fyrirhugað var. Þau lögðu af stab með fríðu föru- neyti og voru komin vel áleib- is þegar lendingarskilyrði í Eyj- um versnuðu skyndilega svo ljóst varð að lending var úti- lokuð. Var þá í skyndingu ákveðið að fara með okkar tignu gesti í útsýnisflug yfir Suðurlandi, m.a. yfir Gullfoss, Geysi og fleiri fallega staði. Fyrri hluta dagsins gekk dag- skráin samkvæmt áætlun. Far- ið var í skoðunarferö til Þing- valla og Nesjavalla og drottn- ingin plantaði trjám í Vina- skógi. I ávarpi forsætisrábherra í hádegisveröarboði í Perlunni sagði hann m.a.: „Samskipti þessara tveggja landa hafa um langa hríð verið með miklum ágætum og ísland og Holland í flestu átt samleið í mati og viðhorfum til þróunar al- þjóðamála á síöustu áratug- um". Hinni opinberu heimsókn lauk með því ab Beatrix drottning og Claus prins buðu forseta Islands ásamt fjölda gesta á tónleika og í góðgjörðir í Borgarleikhúsinu í gær. ■ BEINN SIMI AfGREIÐSLU TIMANS ER 631*631 LADA SAMARA HEraKs 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.