Tíminn - 20.07.1994, Qupperneq 9
Mi&vikudagur 20. júlí 1994
<SÍí1tiÆÍi&1i£iul£ö.
W yv>W f fyW
9
Alþjóöabankinn
breytir um stefnu
í lánamálum
Washington, Reuter
Alþjóöabankinn tilkynnti í gær
aö veriö væri aö vinna aö
grundvallarstefnubreytingu í
útlánastefnu bankans. Formæl-
andi bankans sagöi að til end-
urskoðunar væru almennir
viðskiptahættir bankans og
áherslur í lánveitingum til þró-
unarmála.
Bankinn hefur látiö semja sér-
staka skýrslu um málið í tilefni
50 ára afmælis bankans. í
henni er fjallað um árin fram
yfir aldamót og hvernig fjár-
munir bankans komi til meö
aö nýtast sem best í þriöja
heims löndum og fyrrverandi
kommúnistaríkjum.
Breytingarnar munu meðal
annars beina áherslunum aö
umhverfisvernd, eflingu einka-
geirans og fjárfestingu í fólki
allt frá fjölskylduáætlanagerð
til menntunar. Verulega verður
dregiö úr lánum til stórfram-
kvæmda og mannvirkjagerðar.
Króatía nálg-
ast Evrópu-
sambandið
Milljonir syrgja hinn mikla leiötoga
í gœr var ekiö meö jaröneskar leifar Kim ll-sung, hins mikla leiötoga Noröur-Kóreu, eftir breiöstrœtum Pyongy-
angborgar. Milljónir Noröur-Kóreubúa hafa veriö frávita af sorg vegna fráfalls leiötogans.
Tilkynnt hefur veriö aö Kim ll-sung hafi látist úr hjartaslag. Enn sem komiö er bendir fátt til annars en aö Kim
Jong-il, 52ja ára sonur hins látna leiötoga, erfi leiötogahlutverk fööur síns.
Brussel, Reuter
Nikica Valentic, forsætisráð-
herra Króatíu, segir að land sitt
hafi færst nær Evrópusamband-
inu eftir viðræður hans við full-
trúa framkvæmdastjórnar sam-
bandsins í Brussel í gær.
„Við erum fullkomlega sáttir
við viðræðurnar í dag. Það er
ljóst að við erum komnir skrefi
nær Evrópusambandinu," sagði
forsætisráðherrann við frétta-
menn eftir fundinn í gær.
Króötum er mikið í mun að
auka samskipti sín við ESB og þá
sérstaklega að fá aðild að
PHARE, aðstoðaráætlun sam-
bandsins. Evrópuþingið hefur
hingab til lagst gegn aðild Kró-
ata vegna stöðu mannréttinda í
Króatíu.
Berlusconi gefur eftir
Róm, Reuter
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, lét í gær undan
þrýstingi þingmanna Norður-
bandalagsins og flokks nýfasista,
og afturkallaöi tilskipun sem átti
Metár í kauDhöll-
inni í
Sto
aupj
kkn
ólmi
að takmarka gæsluvarðhaldsúr-
skurði.
Tilskipunin haföi valdið miklu
fjaðrafoki á Ítalíu og var jafnvel
búist við stjórnarslitum af völd-
um hennar. Fréttaskýrendur
telja að forsætisráðherrann hafi
misreiknað sig herfilega þegar
hann gaf hana út.
Samkvæmt tilskipuninni átti
ekki að vera hægt að halda fólki í
gæsluvarbhaldi sem væri grunað
um spillingu eða mútuþægni.
Roberto Maroni, innanríkisráð-
herra, hafði hótað að segja af sér
ef ekki yrði fallið frá útgáfu til-
skipunarinnar. Berlusconi hefur
haldið fram að gæsluvarðhald af
fyrgreindum ástæðum sé ekkert
annaö en brot gegn helgustu
réttindum hvers manns.
Formælandi ríkisstjórnarinnar
tilkynnti í gær að ríkisstjórnin
myndi koma saman til fundar í
gærkvöldi og undirbúa laga-
frumvarp um beitingu gæslu-
varbhalds. Lagafrumvarp býður
upp á umræbur á þingi og mögu-
legar breytingar í meöförum
þingsins. ■
Viðskiptin í Stokkhólmskaup-
höllinni hafa í ár slegið ölj fyrri
met. Þau eru þegar orðin jafn
mikil og viðskiptin allt síðasta
ár sem þó var metár.
Frá áramótum hafa hlutabréf
að verðmæti 299 milljarða
sænskra króna gengib kaupum
og sölum í kauphöllinni en allt
árið í fyrra var þessi upphæð
285 milljarðar.
Viðskipti banka og sjóba með
hlutabréf og verðbréf nema um
helmingi þeirra vibskipta sem
fram fara á sænskum verðbréfa-
markaði. Ástæban fyrir því er að
nú mega þessir aðilar eiga hluta-
bréf á lager. Þar með er komin
skýring á hinni miklu aukningu
á bréfaviðskiptum í Svíþjóð.
Vatíkanið gagn-
rýnir konu fyrir
að fæða barn
Styrkirnir nið-
ur; verðið upp
Volkswagen
samþykkir
kauphækkan-
ir iónverka-
manna
Wolfsburg, Reuter
Volkswagenfyrirtækið, stærsti
bílaframleiöandi Evrópu, féllst í
gær á aö hækka laun verka-
manna í verksmiðjum fyrirtæk-
isins um eitt prósent og þar að
auki fá þeir 40.000 kr. ein-
greiðslu.
Fyrr á þessu ári var vinnufyrir-
komulagi hjá rúmlega 100.000
iðnverkamönnum Volkswagen-
verksmiðjanna breytt með rótt-
tækum hætti. í stað fimm daga
37 stunda vinnuviku skila þeir
nú 28 tíma vinnu á fjórum dög-
um í viku.
Samkomulagiö sem viðkom-
andi verkalýösfélag gerði við
stjórn fyrirtækisins gildir til
loka júlí á næsta ári. ■
Norskar skipaútgerðir reikna
með að þurfa í framtíðinni að
punga út töluvert meira fé fyr-
ir ný skip en þeir hafa þurft
hingaö til. Þetta kemur fram í
norska dagblaðinu Dagens
Næringsliv í gær.
Væntanlega verðhækkun
rekja útgerðirnar til ákvörðun-
ar hóps ríkja innan OECD um
að hætta öllum niðurgreiðsl-
um og ríkisstyrkjum til skipa-
smíðaiðnfyrirtækja.
Formælendur útgerðafyrir-
tækjanna fullyrða að á endan-
um verði það hinn almenni
neytandi sem borgi. Reikniað-
ferðin er einföld. Við þab að
hætt verði að styrkja smíði
vöruflutningaskipa eins og
annarra skipa hækka þau í
verði. Útgerðirnar munu
reyna að mæta þessum kostn-
aðarauka meb hærri farm-
gjöldum.
Farmgjaldahækkunin mun
ekki gerast öll á sama tíma og
verbur breytileg eftir tegund
farmsins.
Didrik Schnitler, framr
kvæmdastjóri skipasmíða-
stöðvarinnar í Kvaerner, segir í
viðtali við Aftenposten í gær
ab nú verði góðum skipa-
smíðastöövum launað. Þær
þurfi ekki lengur að sjá á eftir
verkefnum til landa þar sem
ríkið niðurgreiði skipasmíðar.
Norska ríkið kemur til meb
að spara sem svarar 10-15
milljöröum íslenskra króna.
Róm, Reuter
Vatíkanið kom í gær á fram-
færi gagnrýni á 62 ára konu
sem eignaðist son á mánudag-
inn var. Konan sem er ítölsk
heitir Rosanna Della Corte.
Ekki er vitað til að kona, jafn-
gömul eða eldri, hafi nokkurn
tíma komið barni í heiminn.
Vatíkanið heldur því fram að
þungun konunnar, sem var
komið í kring með hjálp nýj-
ustu tækni og vísinda, stríði
gegn vilja gubs.
Eftir að læknirinn, sem að-
stoðaði Dellu Cortes við ab
verða ófrísk, varði geröir sínar
opinberlega birtist grein í
L'Osservatore, dagblaði Vatík-
ansins, þar sem því var haldiö
fram ab ákvörðun konunnar
um að eignast barn á þessum
aldri væri siðferðilega ámælis-
verð.
„Þessi aðferb hennar til að
fullnægja þrá sinni er í hróp-
andi mótsögn við fyrirætlan
gubs," segir í leiðara blaðsins.
Höfundur leiðarans er Gino
Concettin abalsiðfræðingur
Vatíkansins. Vitað er að sjón-
armið hans og Jóhannesar Páls
páfa eru í flestu þau sömu.
■
Genf verður absetur Alþjóba-
vibskiptastofnunarinnar
Genf, Reuter
Nærri fullvíst er talið aö Genf
verbi aðsetur Alþjóbaviðskipta-
stofnunarinnar, WTO, sem kem-
ur til með að leysa Alþjóölegu
tolla- og viöskiptastofnunina,
GATT, af hólmi.
Eftir fund hinna 123 fulltrúa að-
ildarríkja WTO um málið í gær
lýsti Andras Szepesi, fulltrúi Ung-
verjalands, því yfir við frétta-
menn að yfirgnæfandi meirihluti
fulltrúanna vildi frekar aö stofn-
unin yrði í Genf en Bonn. Þessar
tvær borgir hafa bitist um hnoss-
ið að undanförnu. ■