Tíminn - 18.08.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 18.08.1994, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 18. ágúst 1994 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM SunnCemka FRÉTTABLAÐIÐ SELFOSSI Nýja fangelsis- byggingin á Litla- Hrauni á undan áætlun „Verkiö gengur vel og viö er- um aöeins á undan áætlun," segir Sæmundur Skúli Gísla- son byggingameistari, einn verktaka viö nýja fangelsiö á Litla-Hrauni. Veriö er aö steypa upp þriöju og efstu hæö hússins þessa dagana og byrjaö á aö klæöa neöri hæöirnar aö utan. Viö húsiö veröur einn hár turn sem mun ná vel upp fyrir þriöju hæöina. Sæmundur og félagar hans, Valgarö Stefánsson, Runólfur Þór Jónsson, Magnús Gíslason og Þrösur Stefánsson, eiga aö skila húsinu nánast fullbúnu af sér í júní á næsta ári. Allir eru þeir úr Hvarageröi. Milli 12 og 15 manns hafa aö jafnaöi unniö viö verkiö í sumar og kvaöst Sæmundur eiga von á aö svipaöur fjöldi yröi viö vinnu í vetur. Meöal starfsmanna eru tveir fangar af Litla Hrauni. Rangárþing: Töbugjalda- hátíbin um næstu helgi Tööugjaldahátíöin í Rangár- þingi hefst meö veglegri sæl- keraveislu sem bændur bjóða til aö Laugalandi í Holtum nk. föstudag, á morgun, 19. ágúst. Hátíðin mun síðan standa linnulaust laugardag og sunnudag og er frítt inn á mótssvæöiö á Gaddstaðaflöt- um. Meöal rétta í sælkeraveisl- unni veröa Reykjagaröspaté, skyrterta úr Ásahreppi meö Versalachampagne sósu, ran- gæskir hrekkjusvínabógar og Húnakotsfrauö. Eftir borðhald leika KK-sextett, Ellý Vi 1- hjálms og Raggi Bjarna fyrir dansi. Á laugardeginum og sunnu- deginum veröur fjölbreytt dagskrá á Gaddstaðaflötum við Hellu á Laugalandi, golf- vellinum Strönd, flugvellinum á Hellu og víöar. Meðal atriða má nefna hesta- sýningar, flugsýningar, fall- hlífastökk, rafmagnsgiröinga- stökk, kraftakeppni, Heklu- göngu, grillveislu og dansleik með Pláhnetunni og harm- onikkuball. Börn og fullorönir geta komist á hestbak, opiö hús veröur í Gunnarsholti og á nokkrum sveitabæjum. Há- tíöin hefst með því aö dráttar- vélalest mætir á svæöið. Á Hellu verður fjölbreyttur handsverks- og grænmetis- markaöur og margt aö skoöa, meðal annars píramídi sem Egill Sigurðsson á Berustööum vinnur þessa dagana að áö reisa. Að sögn Birgis Þóröarsonar á Heiöi á Rangárvöllum, eins forsvarsmanna Tööugjald- anna, hefur undirbúningur gengiö vel og aðeins er eftir að tryggja velvild veöurguö- anna. Naut ræbst á mann í Berjanesi „Ég er svona að jafna mig núna á þessu, en hann hefur laskað mig eitthvað. Ég var heppinn að ekki fór verr, það er ómögulegt að segja hvað ég hef átt langt eftir," segir Jón Guðmundsson, bóndi í Berja- nesi, en fyrir nokkru varð hann fyrir þeirri óskemmti- legu lífsreynslu aö tveggja vetra boli á bænum réöst á hann, haföi hann undir, og ýtti honum á undan sér eftir túni a.m.k. 10 metra. Þaö varö Jóni til happs aö hann náði tvívegis í átökun- um taki á miðsnesi bola sem reyndi hvað eftir annað aö hnoöa manninn niöur og stanga í brjóstkassa hans. Jón var aö ná í kýrnar þegar bolinn, sem hefur verið alveg meinlaus og gæfur fram að þessu, réöst allt í einu á hann. Að sögn Jóns er líklegt aö boli hafi ekki kannast við hann, þar sem ekki er algengt að hann sæki kýrnar á bænum. Bolinn stangaði Jón niöur en Jón náöi taki á miðsnesinu sem er aumasti blettur nauts- ins. Meö því gat hann varnað nautinu aö troða ofan á brjóstkassanum og eins því aö nautið næöi að ganga yfir hann en skepnan er yfir 200 kg þung. Nautiö ýtti Jóni þá um 10 metra veg á undan sér en féll þá vegna mishæðar og Jón missti takið. Síðan réðst hannn aftur á Jón og af enn meiri vonsku og þegar kona Jóns kom á vettvang var hann oröinn aðframkominn. „Þegar konan mín kom þá hlýddi hann bara eins og kálfur," segir Jón. „Þaö ætti enginn að hafa skepnur sem þessar laus- ar úti, þab er a.m.k. nauðsyn- Iegt aö hafa hring í þeim." Eftir óhappiö, sem var 30. júní sl., var Jón alveg óvinnu- fær en þaö er fyrst núna sem hann er að jafna sig almenni- lega. fyrir skömmu vakti óskipta at- hygli viöstaddra. Aðstæður voru líka hinar sérkennileg- ustu, veöur var gott en þær stöllur, Amí, Jonna, Helga og Sigurdís voru kappklæddar í lopapeysum. Og það sem meira var, þær sátu á ísstólum og drukku rauövín. „Með þessari uppákomu vilj- um við einfaldlega lífga upp á torgið," sagði Sigurdís. „Viö stóöum einnig fyrir gjörningi í fyrra og vonandi verður þetta árlegt. Quðurnesja Q^UxxS Mynd: íþróttasvœöib eins og þaö mun líta út skv. teikningum. Sandgeröi: Nýttog glæsilegt íþróttasvæöi í undir- búningi Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Sandgerði viö upp- byggingu íþróttasvæöis. Aö framkvæmdunum standa Sandgeröisbær ásamt íþrótta- félaginu Reyni í Sandgerði. Aö sögn Sigurbar Vals Ás- bjarnarsonar, bæjarstjóra í Sandgeröi, er hér um að ræöa stóran og góöan knattspyrnu- völl sem veröur 120x120 metrar í ummál, auk eins minni knattspyrnuvallar sem ætlaður er yngra fólkinu og verður hann 60x60 metrar í ummál. Upphækkanir veröa í kring- um völlinn þannig aö hann ætti að verða mjög skjólgóður. Einnig verður lögð hlaupa- braut í kringum stærri völlinn og munu Sangeröingar því fá framtíöaríþróttasvæöi, auk þess sem æfingasvæði knatt- spyrnufélagsins Reynis mun batna verulega. ísgjörningur á Raöhústorgi ísgjörningur á Rábhústorgi Elsti íbúi Suöurnesja látinn Elsti íbúi Suöurnesja, Erlendsína Helgadóttir, lést 2. ágúst sl. á Garö- vangi. Er- 1 e n d s í n a heföi oröiö 105 ára 8. ág- úst sl. Erlendsína var fædd í Litlabæ á Vatns- leysuströnd og bjó lengst af í Vatnsleysustrandarhrepp, síö- ustu þrjú árin hjá dóttur sinni, Lovísu Magnúsdóttur, og manni hennar, Guömundi Björgvinssyni. Hún var jafn- framt heiöursborgari Vatns- leysustrandarhrepps. Bœjarstjórinn í Kópavogi, Siguröur Geirdal, lengst til hœgri, afhendir hér fulltrúum Sunnuhlíbarsamtakanna, Páli Bjarnason (t.v.) og Ásgeiri jó- hannessyni, viöurkenningu fyrir umhverfi fjölbýlishúsanna viö Kópavogs- braut la og Ib. Tímamynd JAK Kópavogur: Snyrtimennska og útlit garða verðlaunuð Lionsklúbburinn Muninn, Lionsklúbbur Kópavogs, Lions- klúbburinn Ýr, Rotaryklúbbur Kópavogs og umhverfisráö Kópavogs afhentu í gær viður- kenningar fyrir fallega garöa og umhverfi stofnana og fleira. Eigendur garða aö Holtagerði 58, Þingholtsbraut 61, Daltúni 27, Vogatungu 19 og Hlíðar- hjalla 37 fengu allir viðurkenn- ingu fyrir garða sína. Þá veitti umhverfisráð Kópavogs fulltrú- um Sunnuhlíðarsamtakanna viðurkenningur fyrir umhverfi fjölbýlishúsa að Kópavogsbraut la og lb og Geir G. Gunn- laugssyni bónda fyrir bætt um- hverfi bújarðarinnar Lundar viö Nýbýlaveg. ■ Hólahátíöin var núna 14. ágúst Frá Guttormi Óskarssyni, fréttaritara á Saubárkróki. Hólahátíðin, sem að venju er haldin um miðjan ágúst, var haldin sunnudaginn 14. ágúst í dómkirkjunni á Hólum. Séra Sigurður Guðmundsson, fyrrv. vígslubiskup, prédikaði, en sr. Sigurður var fyrsti vígslu- biskupinn sem sat að Hólum og átti hann mikinn þátt í þeirri ákvörðun ab biskupsembættið var flutt til Hóla. Kirkjukór Gler- árkirkju annaöist söng viö Guös- þjónustuna og organisti kórsins er Jóhann Baldursson. Sviss- neskur kór, Kammerkór Winter- hur, söng einnig í kirkjunni við altarisgöngu og ab Guösþjón- ustu lokinni söng Kammerkór- inn ýmis skemmtileg lög inni í Bændaskólanum, meöan hátíö- argestir sátu að kaffiboði. Kl. 16.30 hófst hátíðarsam- koma í kirkjunni, Sigurbjörn Einarsson biskup flutti erindi um lif og starf séra Friöriks Frib- rikssonar — frábært erindi um frábæran mann — sem kirkju- gestir fylgdust með af mikilli at- hugli. Á hátíðarsamkomunni söng kór Glerárkirkju enn undir stjórn Jóhanns Baldurssonar sálma eftir séra Friðrik sem hann hafði ýmist þýtt eöa frumsamib. Lokaorö flutti svo Bolli Gúst- afsson vígslubiskup og flutti þakkir öllum þeim sem lagt höföu fram krafta sína í máli og tónum og gert þennan fagra sumardag á Hólastað ógleyman- legan. Síðan risu allir úr sætum og sungu sálminn Gefðu að móöur- málið mitt. ■ Samkeppni um hönnun minjagripa „Handverk - reynsluverkefni" beitir sér fyrir samkeppni um hönnun á minjagripum og smærri nytjahlutum úr íslensku hráefni, að því er segir í frétta- tilkynningu. Þar segir einnig að veitt verði 11 verðlaun, hver ab upphæö allt að 100 þúsund krónur. Frestur til ab skila til- lögum í keppnina er til 4. nóv- ember nk. Þátttakendur geta verið ein- staklingar og hópar, en hug- myndum má ýmist skila sem tilbúnum hlutum eða teikning- um ásamt sýnishorni af því hrá- efni sem ætlunin er aö nota, en skilyrði fyrir þátttöku er að hrá- efnið sé að mestum hluta ís- lenskt. Keppnin skiptist í fimm hluta, eftir uppruna hráefnis, og verða veitt tvenn verölaun í hverjum flokki, ein fyrir minjagrip og önnur fyrir nytjahlut, en þar aö auki veröa veitt sérstök verb- laun fyrir þjóðlegasta hlutinn eöa hugmyndina. Áherzla verður lögö á aö aö- stoöa verðlaunahafa meö aö koma hugmyndum sínum í framleibslu. Smáverkefnasjóöur landbúnað- arins, Þjóöhátíbarnefnd, Skóg- rækt ríkisins, Skinnaiönaöur og Landgræöslusjóöur hafa lagt fram fé til verðlaunaveitingar, en formaður dómnefndar er Eyjólfur Pálsson. Handverk er til húsa að Laufásvegi 2 og eru nánari upplýsingar um keppn- ina fáanlegar þar. ■ V t * ♦

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.