Tíminn - 18.08.1994, Side 12
12
tKHIÍat* LANDBÚNAÐUR
Fimmtudagur 18. ágúst 1994
Fimmtudagur 18. ágúst 1994
WhHfam LANDBÚNAÐUR
13
Hlunnindabúskapur er ab nýju vaxandi samhliba hefbbundnum búskap:
Nýting hlunninda ofarlega í
huga bænda í kjölfar samdráttar
inda á jöröum, sem nýtt voru
talsvert á árum áöur, en á síö-
ustu áratugum ekki veriö nýtt
af ýmsum ástæöum. Sem dæmi
má nefna aö sala á æöardún til
útlanda viröist vera aö glæö-
ast, eftirspurn eftir timbri úr
rekaviö er á uppleiö, útflutn-
ingur á sölvum er hafin og
framleiösla á afuröum úr
fjallagrösum er á næsta leiti,
svo eitthvaö sé nefnt.
Árni Snæbjörnsson, hlunninda-
ráöunautur Búnaöarfélags ís-
lands, hefur fingurinn á púlsin-
um í þessum málaflokki. „Það
má segja að upp á síðkastið hafi
almenningur hér á landi veriö
meira spenntur fyrir þeim nátt-
úrulegu afuröum sem til verða
þegar hlunnindi jarba eru nýtt
og það má segja aö þær hafi ekki
veriö í tísku ábur. Nú er margt af
þessu orðiö viburkennd holl-
ustuvara og almenningur er
mun opnari fyrir því."
Almennt talaö um hlunninda-
búskap segir Árni að, aö undan-
förnu hafi þrengt að á flestum
sviöum og þá sé um aö gera aö
reyna aö nýta sem flestar smug-
ur. „Þaö er sem betur fer þannig
að landiö býður upp á ýmislegt
sem nýta má enn betur. Sumt er
tímabært, eins og fjallagrösin og
sölin og margt fleira, en annað
veröur kannski að bíða síns
tíma." Árni segist að sjálfsögðu
finna fyrir miklum áhuga bænda
í þessum málum, en á hitt ber að
líta að það að framleiöa þessar
vörur og skapa þeim markað tek-
ur talsverðan tíma og menn
verða að sýna þolinmæði. Um sé
að ræða þrotlausa vinnu.
Það er ljóst að stuðningur og
aðstoð við hlunnindabúskap er
mikilvægur og Búnaðarfélag ís-
lands hefur mikinn skilning á
því, þar sem þær greinar sem um
ræbir geta verið bændum mikill
stuðningur.
Eftirspurn eftir
æðardún ab
glæbast?
Eftirspum eftir æbardún er nú
hugsanlega að glæðast, eftir tals-
verða lægö undanfarin ár. Ab
sögn Árna Snæbjörnssonar,
hlunnindarábunauts Búnbarfé-
lags íslands, fá bændur greiddar
um 25 þúsund krónur fyrir kg.
Þegar best lét, um 1990, fengu
bændur greiddar um 43 þúsund
krónur fyrir kg. „Síðan 1991 hef-
ur eftirspurnin verið minni og
verðið lækkað, en nú virbist eft-
irspurnin vera að glæðast og
æðardúnn viröist sejast vel
núna. Mest er flutt út, en einnig
hefur mikið farið á innanlands-
markað upp á síðkastið," segir
Árni Snæbjörnsson.
Þýskaland er elsti og traustasti
markaðurinn fyrir æðardún, en á
tímabili fór mikib magn til Jap-
ans og þá hefur Taiwan verið að
koma inn í myndina. Alls hefur
útflutningur á æðardún numið
um þrjú þúsund kg. á ári, en erf-
itt er að gera sér grein fyrir því
hversu mikið hefur farið á inn-
anlandsmarkað.
Æðardúnninn er að mestu leyti
riótaður í sængur og kodda og þá
er einhver hluti notabur í kulda-
fatnað.
Æðardúnstekjan er mikil og
góð búbót fyrir bændur, sem sjá
má á því að þegar best lét var
fluttur út dúnn sem nemur um
140 milljónum króna. Undanfar-
in þrjú ár hefur verðmætið að
sama skapi minnkað með lækk-
andi veröi.
Unnib að því ab
hefja selskinnib til
vegs og virbingar
Undanfarin ár hefur verið að
rofa til hvað varðar nýtingu á
selskinnum. í samvinnu nokk-
urra innlendra aöila er unnið að
þessu verkefni, auk þess sem dá-
lítib hefur verið flutt út af sel-
skinnum undanfarið. Árni Snæ-
björnsson segir að unnib sé ab
því hægt og bítandi að skapa sel-
skinninu þann sess sem það
hafði áöur, en fyrir um 15 árum
fengust góð verð fyrir skinnin er-
lendis og mikib var flutt út.
Selveiðar og nýting skinnanna
voru áöur fyrr mikil hlunnindi
fyrir bændur, en upp úr 1980
eyðilögöust markaðir erlendis,
vegna áróburs svokallaðra nátt-
úruverndarsinna, gegn selveið-
um. Þetta var talsvert áfall því
áður en svo fór, var eitt þurrkab
kópskinn jafn verðmætt og inn-
legg af einum dilk. Allt þar til
fyrir nokkrum árum, hefur ekk-
ert verið flutt út, en á undan-
förnum árum hefur verið unnib í
því að hefja selskinn til vegs og
virðingar á ný. Hér á landi eru í
gangi verkefni hjá Eggerti feld-
skera og fleiri innlendum abilum
í samvinnu samtaka selabænda
og er farið að nota verulegt
magn af selskinnum fyrir innan-
landsmarkað. í framhaldi af
þessu hefur dálítið verið flutt út
af selskinnum og einmitt fyrir
skömmu fór sending til Dan-
merkur. „Þetta er svona rétt að
byrja og það er dálítib þungt fyr-
ir fæti með útflutninginn, en
þetta er allt í áttina," sagði Árni
Snæbjömsson.
Bændurnir fá nú um tvö þús-
und krónur fyrir skinniö af
landselskópum og útselskópum,
en Hringormanefnd greibir auk
þess verðlaun fyrir útsel.
Fjallagrös flutt út
í verulegu magni
Fjallagrös hafa lengi verið nýtt
af bændum til eigin neyslu og til
sölu á innanlandsmarkabi. Eins
og kemur fram annars staðar í
blaðinu hyggjast forráðamenn
íslenskra fjallagrasa hf. setja á
markaðinn afurðir úr fjallagrös-
um á markaðinn á næsta ári. Þá
hefur abili á Homafirði, Heimir
Þór Gíslason, flutt út fjallagrös í
verulegum mæli um nokkurt
skeið og hefur það gengib vel.
Samkvæmt heimildum Tímans
hefur hann flutt út magn, sem
nemur nokkrum tonnum á ári.
Heimir hefúr bæbi aflað fjalla-
grasanna sjálfur og selt fyrir abra
aðila.
„Þab er alveg ljóst ab í þessu
sambandi eru menn að átta sig á
vannýttum-möguleikum, sem
gætu skapað bændum einhverjar
tekjur af sölu innanlands og
jafnvel á erlenda markaöi," segir
Árni Snæbjörnsson.
Aukinn áhugi á
hráefni úr rekavið
Rekaviöur er einn þáttur
hlunnindabúskapar og fyrr á
öldum skipti hann verulegu máli
um afkomu manna. Þab er alveg
ljóst að talsverður rekaviður
berst enn á strandir á sumum
stöbum á landinu og það eru
enn margir sem sjá sér hag í ab
l.liða hann og vinna í hágæða-
timbur og með hækkandi timb-
urverði hlýtur þab að vera fýsi-
legur kostur, en um talsvert
magn er ab ræba. Smiðir og fleiri
aðilar hafa sýnt aukinn áhuga á
að kaupa þab hágæðatimbur sem
unnið er úr rekavið. Nú er í
gangi talsvert átak í þessum mál-
um og hefur verið stofnab hluta-
félag sem hefur nýtingu á reka-
við á sinni stefnuskrá. Þetta er
gert undir forystu Péturs Guö-
mundssonar í Ófeigsfirði.
Félagið hefur keypt stórvirka og
fullkomna sögunarsamstæðu,
sem þegar hefur hafib starfssemi
sína á Ströndum. Þegar er fariö
ab vinna timbur í samstæðunni
og sá árangur sem þegar hefur
náðst lofar mjög góðu. Vélin er
mjög afkastamikil og býður upp
á fjölbreytta kosti í úrvinnslu. í
kjölfarið hafa abrir bændur farib
að huga að eða þegar hafið
aukna nýtingu á þessu hráefni,
sem rekaviður er.
Samstæban er færanleg og er
gert ráð fyrir að farið verði með
vélina á milli staða og bændum
boðiö upp á úrvinnslu á rekavið.
í framhaldi af aukinni nýtingu
rekavibar í hágæðatimbur er í bí-
gerð ab koma upp einhvers kon-
ar skráningarmiðstöð, þar sem
bændur geti látið skrá þab magn
sem þeir hafa af fullunnu timbri,
þaðan sem hægt væri að miöla
upplýsingum til kaupenda.
Útflutningur
á sölvum
Hafinn hefur veriö útflutningur
á söbmm til Bandaríkjanna.
Söl eru ein af þeim hlunnind-
um sem hafa fylgt landinu alla
tíð og hafa verið nýtt hér á
landi, en þó hefur nýtingin í
gegnum tíðina farið minnkandi.
Undanfarib hefur þó eftirspurn
eftir sölvum farið vaxandi á inn-
anlandsmarkaði og hefur hann
tekið við mest öllu magni sem í
boði hefur verið. í fyrra tókst
einnig að koma á útflutningi fyr-
ir all þokkalegt verb. Þab hefur
þó alltaf veriö markaöur fyrir söl
erlendis og þá sérstaklega í V-
Evrópu, Bandaríkjunum og SA-
Asíu, en hins vegar hefur verið
erfitt að keppa við þau verb sem
þar ríkja. Þaö eru aballega tveir
bændur sem stunda þennan út-
flutning og eru sölin seld til
Bandaríkjanna. „Þó að heima-
markaðurinn sé góður, þá er
hann ekki endalaus og nú eru
fleiri bændur ab koma inn í
verkun á sölvum og þá er nauð-
synlegt aö finna og skapa .mark-
aði erlendis- fyrir þau.-Ab feng-'
Landselskópur.
í kjölfar samdráttar í hefð-
bundnum landbúnaði aö und-
anförnu hafa bændur í aukn-
um mæli reynt að Ieita á ný
mið. Einn þáttur í þeirri við-
leitni er aukin nýting hlunn-
inni reynslu af útflutningnum
hingað til er ekki sjáanlegt ann-
að en ab hann geti haldið
áfram," sagði Árni Snæbjörns-
son. Sölin eru flutt út þurrkuð,
verkub, hreinsuð og pökkuð í
stórar pakkningar. Þeim er síðan
pakkað í neytendapakkningar í
Bandaríkjunum, en Árni segir
það hljóta að vera framtíðin að
fullvinna þau hér heima og
pakka í neytendapakkningar. ■
Æbardúnstekja virbist vera ab glœbast.
A LAUGARDAG
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt
að skoða virkjanir Landsvirkjunar.
Laugardaginn 20. ágúst kl. 13-17
verða eftirtaldar stöðvar til sýnis:
• Ljósafossstöð og
Steingrímsstöð við Sog.
• Blöndustöð.
c
LANDSVIRKJUN
•a'
Meö þessum nyja Lada
Sport færðu kærkomið
tækifæri til aó eignast
kraftmikinn og góðan bíl
sem hefur alla burði ávið
margfalt dýrari jeppa.
Bíllinn er þægilegur í
akstri, með rúmgóðu
farangursrými og í alla
staði mun betur útbúinn
en áður.
Líttu á Lada Sport áður en
þú heldur lengra.
Það borgar sig...
... í beinhörðum peningum
LADA
SPORT
Öflugriog
betur útbúinn
Stærra og aðgengilegra
farangursrými
Ný og kraftmeiri 1700 cc vél
Betri sæti • meö ullaráklæði
Ný og breytt innrétting
Léttara stýri
Aúkaounapuf a rnýnd: alfelgur og toppqrina
jfMb*”-*i***''
fS?%
^öp^p.t6b,t^tf.~ \