Tíminn - 24.08.1994, Qupperneq 6
6
rftrtr
Miövikudagur 24. ágúst 1994
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
ALDAN
fréttablaó
Hálfdán klæddur
Framkvæmdir á lokaáfanga
fjallvegarins yfir Hálfdán
standa yfir og veröur lokiö aö
setja slitlag á veginn í þessum
mánuöi. Þaö er Vegageröin
sjálf sem hefur séö um fram-
kvæmd þessa síöasta áfanga
en verkiö hefur tekiö nokkur
ár. Undanfariö hefur síöasti
spölurinn veriö réttur af og á
kafla efst í fjallinu, Bíldudals-
megin, hefur vegurinn veriö
hækkaöur frá því sem áöur var
gert ráö fyrir til aö ná honum
betur upp úr snjó. 30-40 þús.
rúmmetra af efni þurfti í veg-
inn í sumar
Á Baröaströnd er verið aö
undirbyggja 4 km vegarkafla
og verður hann klæddur slit-
lagi strax í haust. Hann mun
ná frá Brjánslækjarbryggju og
Horft til norburs af Hálfdáni þar
sem vegurínn var hœkkabur í
sumar. í fjarska má greina
Hornatær (Lœkjarskörb).
Reykhólar:
Smáibnabur
í þróun
Handverksfélagið ASSA í Reyk-
hólahreppi var stofnað 26.
apríl 1994. Félagsmenn eru 23
konur og karlar í sveitinni
sem vinna við margs konar
handverk.
Markmiö félagsins er að veita
þeim aöilum sem vinna að
handverki eöa annars konar
smáiönaöi tækifæri til aö þróa
og selja framleiðslu sína og aö
félagiö taki þátt í uppbygg-
ingu þjölþættara atvinnulífs í
héraöinu.
Handverksfélaginu var gefiö
lítið hús (söluturn) til aö nota
til sölu á handverki félags-
manna. Söluturninn er staö-
settur í Bjarkalundi og er opið
allar helgar yfir sumarið frá kl.
13.00-17.00. Fyrirtæki í sveit-
inni styrktu félagið við aö
flytja húsið vestur og lagfær-
ingar þess.
Úr sumarferb framsóknarmanna.
Crillmeistarar ab störfum. Ab
venju eru þab þingmennirnir
ásamt eiginkonum sem sjá um
grillib.
Tálknafjöröur:
Ný skobanastöb
bifreiba
Ný skoöanastöö bifreiða var
tekin í notkun í Tálknafirði í
júlí sl. Skoðunarstöðin er í
húsnæöi Slökkvistöðvarinnar
og er ætlaö aö þjóna Tálkna-
firöi og allri Vesturbyggö.
Tilkoma hennar er mikil
framför í bifreiðaskoðun á
þessu svæöi. Bíöar fá betri
skoðun og þar af leiöandi
eykst umferðaröryggið. Eng-
inn ætti að velkjast í vafa um
aö bíllinn sé í lagi eftir skoöun
í svona stöð.
Enn er óljóst hvenær og hve
oft skoðunarstöðin veröur op-
in. Lögreglan á Patreksfiröi
orðaði þaö svo aö „þeir vildu
ekki trúa ööru en aö Bifreiða-
skoöun íslands myndi meö
tilkomu stöðvarinnar veita
sambærilega þjónustu og ann-
ars staðar er veitt, með því aö
hafa stööina opna allan ársins
hring,"
Skiptar skoðanir voru um
hvar stööin skyldi vera stað-
sett. Sumir töldu að hún heföi
átt aö vera á Patreksfirði, því
þar eru flest ökutæki. Varla
telst þetta þó stórmál, þar sem
aðeins 14 km eru á milli Pat-
reksfjaröar og Tálknafjaröar
og malbikaö alla leiö.
Sumarferb Kjör-
dæmissambands
framsóknar-
manna
Sumarferö Kjördæmissam-
bands framsóknarmanna var
farin í Kverkfjöll aö þessu
sinni. Á áttunda tug manna
tóku þátt í henni og var gist í
eina nótt í og við Sigurðar-
skála í einstöku veðri, sól og
blíðu.
Aö sögn Berglindar Rósar
Guðmundsdóttur, annars
skálavaröarins í Sigurðarskála,
hefur sumarið veriö meö ein-
dæmum blítt þar um slóöir.
Þátttakendur í ferðinni
kunnu að meta góöa veðrið
og var slegið upp balli undir
berum himni á melnum viö
Sigurðarskála og drógu menn
ekki af sér þótt kartöflumjölið
vantaöi undir iljar manna.
Kristmann Jónsson á Eiðum
þandi harmonikkuna en hann
ók einmitt annarri rútunni og
Sveinn Sigurbjörnsson hinni.
Erlendir ferðamenn slógust í
dansinn og þaö eina sem
Spánverja nokkrum fannst
vanta, var að enginn Fla-
menco var dansaður. Svo
veröur e.t.v. í næstu ferö.
Aubvitab varsporib tekib í Kverk-
fjöllum og sá Kristmann jónsson
um ab halda uppi fjörinu í dans-
inum. Nokkrir erlendir ferba-
menn tóku þátt í fjörinu.
Djúpivogur:
Mikil vinna hjá
Búlandstindi
Mikil vinna hefur verið hjá
Búlandstindi hf í sumar. Aö
sögn Sigurðar Arnþórssonar
verkstjóra hafa um 80 manns
unniö í sumar hjá fyrirtækinu
og e/ hluti mannskaparins að-
komufólk. Fyrirtækiö gerir út
togarann Sunnutind og hefur
afli hans veriö þokkalegur.
Auk togarans leggja upp hjá
Búlandstindi milli 20 og 30
smábátar og hefur afli þeirra
verið góöur. Aö sögn Siguröar
eru aflabrögð betri en í fyrra.
Markabur haldinn í Bjarkalundi nú í sumar til ab sýna landbúnabar-
nefnd Alþingis hvab fólkib ífélaginu vœri ab búa til.
ut fyrir Moshlíð.
Sjomenn:
Lögskráning sjó-
manna tölvuvædd
„Sums staöar a landinu er lög-
skráningin til fyrirmyndar en
annars staöar ekki. Þetta er
auövitaö hlutur sem menn
eiga aö passa uppá. En viö er-
um nú aö gæla viö aö þetta
standi allt til bóta. Lögskrán-
ingin veröur væntanlega tölvu-
vædd um næstu áramót og viö
vonum aö þab muni hafa ein-
hver áhrif," segir Hólmgeir
Jónsson, framkvæmdarstjóri
Sjómannasambands íslands.
Þótt ætla mætti ab þab væri lið-
in tíö aö menn trassi aö láta lög-
skrá sig á skip, þá segir Helgi
Hallvarösson skipherra hjá Land-
helgisgæslunni aö þaö séu því
miður enn brotalamir í þeim
málum. En lögskráningin er m.a.
sönnun þess aö sjómaður sé í
áhöfn viðkomandi skips, auk
þess sem menn þurfa ekki að
hafa áhyggjur af tryggingamál-
um séu þeir lögskrábir.
Hólmgeir segir aö það sé fyrst
og fremst hugsunarleysi og þekk-
ingarskortur sem geri það ab
verkum aö lögskráningarmálin
eru ekki allstaðar meö viðunandi
hætti. Þótt skipstjórar beri
ábyrgð á því að sjómenn séu lög-
skráöir, þá eigi sjómenn sjálfir aö
fylgjast vel meö því hvort svo sé.
Hann segir aö þaö sé enginn fjár-
hagslegur ávinningur af því ab
láta ekki lögskrá sig, nema síður
sé. ■
Sveinsbakarí hlaut titilinn Borgarskákmeistari
1994 eftir sigur í Borgarskákmótinu sem haldib var í Rábhúsi Reykjavíkur
sl. föstudag. Alls tóku 104 keppendur þátt í mótinu og urbu fimm efstir
og jafnir meb 6 vinninga af 7 mögulegum. Þab voru: Sveinsbakarí, Ofna-
smibja Kópavogs, Fjölnir, tölvu-og tœkniþjónusta, Garbakaup hf. og Arg-
entína Steikhús. Sveinsbakarí, sem Helgi Áss Grétarson tefldi fyrir, var úr-
skurbabur sigurvegarí eftir stigaútreikning. Á myndinni sést Gubrún Ág-
ústsdóttir forseti borgarstjórnar leika fyrsta leik mótsins. Tímamynd iak
70 ára afmæli
Rípurkirkju
Frá Guttormi Óskarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Saubárkróki.
Hátíðarmessa var í Rípurkirkju í
Hegranesi sunnudaginn 21. ág-
úst. Þá var minnst 70 ára bygg-
ingarafmælis kirkjunnar.
Séra Sigurður Guðmundsson
fyrrum vígslubiskup á Hólum
prédikabi en fyrir altari þjónuöu
sr. Bolli Gústafsson vígslubiskup
og sr. Þórir Stephensen. Sr. Bolli
Gústafsson er sóknarprestur aö
Ríp en báðir prestarnir sr. Sigurö-
ur og sr. Þórir eru fyrrverandi
sóknarprestar aö Ríp. Kirkjukór
Rípurkirkju annaðist söng, org-
anisti var Rögnvaldur Valbergs-
son. Einsöngvari var Jóhann Már
Jóhannsson.
Miklar og smekklegar endur-
bætur hafa verib gerðar á kirkj-
unni og kirkjugarðinum, svo
kirkjan og umhverfi hennar er að
dómi þeirra sem heimsótt hafa
kirkjuna til fyrirmyndar.
Aö messu lokinni var kirkju-
gestum boöið til kaffiveislu í fé-
lagsheimili sveitarinnar. Formað-
ur sóknarnefndar, Leifur Þórar-
insson Keldudal, setti samkom-
una og kvaddi til veislustjóra sr.
Bolla Gústafsson. Góðar gjafir
voru afhentar til kirkjunnar í til-
efni afmælisins. Sr. Þórir Steph-
ensen og frú gáfu kirkjunni
vandaöa biblíu meb áritabri vin-
arkveöju frá þeim hjónum. Björn
Ásgrímsson og Gísli Einarsson
gáfu til kirkjunnar bókastól, fal-
legan hlut sem stendur á boröi.
Börn gömlu Rípurhjónanna, Þór-
arins Jóhannssonar og Ólafar
Guðmundsdóttur, gáfu 6 ljósa-
stikur. Sr. Þórir Stephensen flutti
fróðlegt erindi um sögu Rípur-
kirkju. í erindinu kom m.a. fram
aö sóknarnefd Rípurkirkju varö
fyrst sóknamefnda á landinu til
að kjósa konu fyrir sóknarnefnd-
arformann, sem var Jóhanna Ein-
arsdóttir í Ási. Jóhann Már söng
einsöng í samsætinu og einnig
var mikill almennur söngur og
stuttar ræður. ■
Sturla formabur
þjó&minjará5s
Menntamálaráöherra hefur skipaö
í þjóðminjaráö til fjögurra ára
samkvæmt lögum nr. 98/1994 um
breytingu á þjóðminjalögum. í
ráðinu munu sitja næstu fjögur ár
eftirtaldir aðilar: Sturla Böðvars-
son, alþm. sem veröur formaður
ráðsins, Sigurjón Pétursson, fyrrv.
borgarfulltrúi tilnefndur af Sam-
bandi ísl. sveitarfélaga, Sigríður
Siguröardóttir, safnstjóri tilnefnd
af Félagi íslenskra safnmanna,
Helgi Þorláksson, dósent, til-
nefndur af Háskóla íslands,
Ragnar Sigurðsson, framhalds-
skólakennari, tilnefndur af HÍK
og KÍ. ■ .