Tíminn - 24.08.1994, Side 8
8
Mi&vikudagur 24. ágúst 1994
Gleymda þjób-
in í Rúanda
Ab sögn talsmanns Batwa, sem eru af stofni
pýgmea, beindust fjöldamorö Hútúa ekki síö-
ur aö þeim en Tútsum
Uwiragiye: horföum á fólk skoriö í stykki.
il er miðafrísk sögn á þessa
leið:
Einhverntíma í fyrndinni birtist
sköpunarguðinn þremur frum-
verum eða frummönnum (í trú-
arbragðafræðilegum skilningi
síðarnefnda orðsins, ekki forn-
leifafræðilegum). Fékk hann
hverjum þeirra um sig krukku
fulla af mjólk og bað þá gæta ílát-
anna og innihalds þeirra fyrir sig
þar til hann kæmi aftur. Frum-
menn þessir hétu Gatútsi, Ga-
hútú og Gatwa.
Gubinn fór síðan sína leið og
kom aftur til þremenningana
þegar honum hentaði, að sækja
mjólkina. Þeim hafði farnast
varöveisla hennar misjafnlega. í
krukkuna hjá Gatútsi vantaði
ekki dropa. Gahútú hafbi hellt
niður úr sinni krukku, annað-
hvort af klaufaskap eða illgirni. Á
Gatwa hafði sótt svengd og
þorsti, svo að hann hafði drukkið
alla þá mjólk er honum var trúað
fyrir.
Úrskurður gubs
Guðinn hét Gatútsi velgengni,
auði og völdum, sem og afkom-
endum hans. Gahútú dæmdi
skaparinn til þrældóms og niðja
hans einnig. Við Gatwa sagbi
gubinn: Héðan í frá skalt þú ekki
teljast til manna og ekki afkom-
endur þínir heldur.
Gatútsi varð forfabir Tútsa, Ga-
hútú Hútúa og Gatwa Twa eða
Batwa, þriðju og minnst þekktu
þjóðarinnar í Rúanda og Búr-
úndi. Fólk þetta, sem gjarnan er
nefnt pýgmear og var stundum
fyrr á tíð kallað dvergnegrar, er á
dreif víðar um Mið-Afríku, eink-
um á regnskógasvæðinu. Pýgme-
ar eru einkar lágir vexti, sam-
kvæmt einni heimild yfirleitt
undir 150 sm., í ljósara lagi af
Afríkumönnum að vera og gul-
leitir á hörund. Þeir búa yfirleitt
inni í skógum. Um forsögu þeirra
er deilt, en sumra ætlan er að þeir
hafi verið frumbyggjar stórra
svæba í Mið-Afríku, einkum
regnskógasvæöisins þar, áður en
bantúmenn, sem nú eru þorri
íbúa þar, hafi sest að á því svæði,
sem e.t.v. hefur gerst á fyrsta ár-
þúsundinu e.Kr.
Rúanda hefur verib mjög í frétt-
um undanfarið og margt verið
sagt af tveimur þjóbanna þar,
Hútúum og Tútsum. Minna hef-
ur heyrst af Batwa, og hefur svo
löngum veriö. Að sögn tals-
manns Batwa í Rúanda, Charles
Uwiragiye, sem er á ferð í Evrópu
til að vekja athygli þar á högum
síns fólks, hefur það síður en svo
farið varhluta af fjöldamorðun-
um þar syðra síðustu mánuði.
Hann telur að Hútúar hafi drep-
ið um 65% Rúanda-Batwa frá því
að þeir hófu fjöldamorðin 6. apr-
íl s.l. En hversu margt fólk þar sé
um ab ræba kvebst hann ekki
vita.
Enn afkastameiri en
haldib var?
Ab sögn Uwiragiye var fastur
vani rúandskra yfirvalda ab gefa
upp að Batwa væru aðeins 1%
landsmanna, sem myndi þýða ab
þeir hefðu verið um 80.000 fyrir
fjöldamorðin. „En við í ÁPB
(hagsmunasamtökum Batwa)
álítum ab þeir hafi verið 10-12
sinnum fleiri."
Þetta byggist á manntali sem
stofnun ein í Lundúnum, World
Rain Forest Movement (Regn-
skógahreyfing heimsins), lét
gera. Séu tölur þessar nálægt
staðreyndum og hafi fjöldamorð-
in komið svo mjög nibur á Batwa
sem Uwiragiye telur, gæti verib
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
að um hálf milljón Batwa hafi
verib drepin frá því í aprílbyrjun.
Það þýbir ab þjóbamorðingjarnir
í Rúanda hafa verið jafnvel enn
eða miklu afkastameiri en hingab
til hefur yfirleitt verið talib. En
Uwiragiye viðurkennir að tala
hans um fjölda myrtra Batwa sé
mikið til byggð á ágiskunum.
Að sögn hans hafa Batwa frá
fornu fari sætt misrétti og fyrir-
litningu af hálfu Tútsa og Hútúa
jafnt. „Við erum fátækastir af öll-
um og útilokaðir frá svo að segja
öllu í rúandska samfélaginu, og
þó erum við hinir upprunalegu
íbúar landsins," hefur danska
blabið Information eftir honum.
Bæbi Hútúar og Tútsar hefðu
haft fyrir vana að skeyta
skapi sínu á Batwa.
Tútsar hefðu þó að vísu verið
heldur vinsamlegri við Batwa en
Hútúar. Tútsum þætti gaman að
söngvum og dansi Batwa, hefbu
oft ráðið þá til sín til þeirra hluta
og borgað þeim fyrir, yfirleitt í
fríöu. Hútúar hefðu af þeim
ástæbum hatað Batwa þeim mun
meira og þegar þeir fyrrnefndu
hófust handa við fjöldamorðin í
apríl hafi þau komib jafnt niður á
Batwa og Tútsum.
Hútúar með hunda
Sjálfur flýði Uwiragiye þá frá Ki-
gali, höfubborg Rúanda, meb um
40 öbrum Batwa. Hópurinn fólst
í skógum, þar eb hvarvetna á veg-
um höfðu Hútúar sett upp hindr-
anir. Allsstabar voru á vakki
flokkar vopnaðra Hútúa með
hunda í leit að flýjandi Tútsum
og Batwa.
„Við leyndumst á bak við runna
og bananajurtir og sáum með
eigin augum að fólk var handtek-
ib, skorið í stykki, konum nauðg-
ab og líkamspörtunum dreift á
jörðina. Maður faldi sig í gróbrin-
um, horfði á það sem gerðist og
átti ekki á öðru von en að röðin
kæmi ab manni sjálfum á næstu
mínútum."
Um hríð földu Uwiragiye og
fleiri flóttamenn sig í yfirgefnu
húsi, sem var í víglínunni milli
hútúska hersins og uppreisnar-
manna í RPF. Um síðir héldu
Hútúar undan og RPF- liðar
leyfðu flóttahópnum að halda til
flóttamannabúða í Byumba,
norðan til í Rúanda.
Pýgmear eru meöal þess fólks,
sem stundum er skilgreint sem
fjórði eða fimmti heimurinn.
Sameiginlegt flestu því fólki er að
þab er af fámennum þjóðum og
þjóðastofnum, sem búið hafa frá
ævaforneskju í löndum sínum og
meirihlutaþjóöir landanna hafa
lengi þrengt ab og gera enn. Af
þeim má nefna auk pýgmea kho-
isana (búskmenn og hottintotta)
í sunnanverðri Afríku, fámenna
indíánaættbálka og -þjóðflokka
bæbi í Norður- og Suður-Amer-
íku, Aínúa í Japan, frumbyggja
Ástralíu og sama (lappa) ■
Bréffrá Dóru Stefánsdóttur á Crœnhöföaeyjum
Óöur til vatnsins
Um daginn þegar ég kom út úr
húsi datt eitthvað lítiö og blautt
ofan á hausinn á mér. Eg hélt
fyrst ab kannski hefði fugl pissað
og varb litib upp. Og í fyrsta sinn
í nærri fimm mánuði fann ég ör-
fína regndropa sáldrast ofan á
andlit mitt. 1 nokkur andartök
stóð ég þarna og fann lífsmátt
regnsins síast í gegn um húbina.
Og svo var þab búið. Stéttin fyrir
utan húsib náöi ekki einu sinni
að verba blaut, hvað þá ab nóg
hefði rignt til að vökva eitt lítið
blóm. Samt erum við núna um
miðbik þess tímabils sem í gamla
daga hét regntíminn hér á eyjun-
um.
Afar takmarkab regn þýðir ab
erfitt er ab útvega hinum tæp-
lega 400 þúsund íbúum þessara
eyja nægjanlegt vatn. í sumar-
hitunum aukast þessir erfibleik-
ar. Að vetri til er yfirleitt nóg
vatn á flestum eyjanna. Við hér í
Mindelo erum vel sett meb
hreinsunarstöð sem vinnur vatn
úr sjó. Á mörgum hinna eyjanna
eru vatnsból og það er aöeins í
höfuöborginni Praia sem vatns-
skortur er viðlobandi allt árið.
Þar er þó búib ab finna vatnsból
núna nýlega og menn sjá fram á
lausn vandans, ab minnsta kosti
í einhverja áratugi. Allir reyna að
gleyma því hvað þessi lausn
kostar, nýja vatnib verbur alveg
skelfilega dýrt hver lítrinn.
Almenningur á landsbyggbinni
verður sjálfur að útvega sér sitt
vatn. Sumir eru vel settir og búa
við brunna. Aðrir þurfa að ganga
langar leiðir og bera vatn heim
eða reiba þab á ösnum. Þau eru
ekki há í loftinu börnin þegar
þau eru send ab sækja vatn í
brúsa undan sápulegi, matarolíu
eba öbru því sem til er ab dreifa.
Mæður þeirra bera stórar tunnur
á höfði sér fullar af vatni og hér
má einnig sjá karlmenn bera
vatn. Á meginlandi Afríku
myndi margur karlmaðurinn lík-
lega fyrr deyja úr þorsta en að
láta sjást til sín við vatnsburð.
Við sem búum í borgum og
þorpum erum betur sett. Hér í
Mindelo er vikulega dælt vatni í
húsin í bænum frá fjarveitu.
Flest allir hafa tanka uppi á þaki
eða í bakgörðum og í þá rennur
vatnið. Þab er svo notað þar til
nýtt vatn kemur vikuna á eftir.
Ég er svo heppinn að hafa stóran
og góðan tank, tvö og hálft tonn
og dugar það mér vel á fjórðu
viku ef til vatnsskorts kemur.
Enda er ég ein í heimili og kaupi
erlent drykkjarvatn á flöskum.
Aðrir eru ekki eins vel settir. Vin-
kona mín og maður hennar hafa
abeins hálfs annars tonns tank
og veröa iöulega vatnslaus ef þau
gæta sín ekki.
Þeir sem ekki eru tengdir veit-
unni fá til sín vatnsflutningabíla
öðru hverju. Þetta eru stórir
tankbílar, taka yfirleitt fimm
tonn. Þeir eru ekki ósvipaðir
vatnsbílunum sem stundum
vökvubu malargötur í Reykjavík
þegar ég var að alast upp. Vatnið
úr bílunum er mun dýrara en
þab frá fjarveitunni og ekki eins
hreint. Búið er að dæla því upp í
bílana og aftur úr þeim í tank-
ana. í gamla daga var þetta oft
gert vib skelfilegar abstæður.
Vinnufélagi minn sagði mér að
hann hefði eitt sinn séð dælt úr
bíl í tunnur í bakgarði kofaþyrp-
ingar. Þegar allar tunnur voru
orbnar fullar hljóp bílstjórinn út
og dró slönguna til sín, í gegn
um bakgarðinn fullan af hænsn-
um, geitum og öðmm kvikfén-
abi. Endinn á slöngunni dróst
upp úr skítnum en var þrátt fyrir
það dýft beint í næstu tunnu í
næstu kofaþyrpingu og haldið
áfram ab dæla. Ekki furða þó nið-
urgangur og aðrar magapestir
væru hér algengar. Um tíma var
niðurgangur lang algengasta or-
sök ungbarnadauða. Með áróbri
um hreinlæti, vatni frá fjarveitu
og auknu ungbarnaeftirliti hefur
tekist að nær útrýma þessari dán-
arorsök.
Ekki þarf mikið út af að bera til
ab vatnsskortur geri vart við sig
hér á eyjunum. Fyrir nokkru
komu hingað þrjú herskip frá
Spáni, Portúgal og Brasilíu. Dát-
arnir vom þyrstir og þurftu oft
að fara í bað. Afleiðingin var að
ekki var í nokkra daga hægt ab fá
vatn í önnur skip og báta. Þegar
ég var hérna 1988 bilaði vatns-
hreinsunarstöðin og þá skapaðist
skelfilegt ástand. Menn reyna
eftir mætti að búa sig undir slíka
tíma með því ab eiga vatn til
nota í neyö. Tunnu í kjallaran-
um eða brúsa uppi á lofti.
Eðli málsins samkvæmt ættu
allir líka að spara vatn. Þab er þó
allur gangur á því, sérstaklega
veitist foreldrum oft erfitt að
standa á bremsunni varbandi
vatnsnotkun barna sinna.
Stundum gerast líka slys eins og
hjá manni sem ég þekkti er rotta
drekkti sér í vatnstanki hans.
Hann átti ekki annars úrkosta en
að tæma tankiiín út á götu,
hreinsa hann og fylla svo að
nýju. Sjálf gerðist ég sek um mik-
ið vatnsbruðl í byrjun. Ég gat
ómögulega lært á alia þá krana
sem ég þurfti ab skrúfa fyrst frá
og svo fyrir þegar vatnið kom frá
fjarveitinu. Þetta var sérstaklega
erfitt þar eð vatnið kemur í húsið
mitt ab nóttu til. Viku eftir viku
vaknaði ég klukkan fjögur eða
fimm á þriðjudagsmorgni við að
ég heyrði vatn renna. Hentist þá
fram úr bælinu og skrúfabi fyrir.
Oft var ég þá búin að missa fleiri
tugi lítra niður á jörð. Á endan-
um réöi ég til mín pípara sem
kom fyrir ótal lokum í kerfinu og
fullvissar hann mig um að í
framtíðinni þurfi ég ekkert ab
óttast. Ennþá standast orb hans
en ekki sef ég ennþá vært abfar-
arnætur þriöjudaga og vakna oft
með andköfum um fimmleytiö
við að mér heyrist renna vatn.
Hversu gömul sem ég verð
skal ég aldrei framar bölva rign-
ingu ............■