Tíminn - 03.09.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 3. september 1994
W Pr y#
7.
Kokkunum í Crillinu á Sögu, Karli Davíbssyni og Karli Ásgeirssyni, sýndist nýja íslenska kjötbókin hin áhugaverö-
asta. Tímamynd C.S.
íslenska kjötbókin, ný handbók fyrir kjötkaupendur komin út:
Grunnurinn að
staölaöri úrvinnslu
á öllu kjöti
„Eg vona að bókin geri viö-
skipti meö kjöt bæbi einfald-
ari og markvissari", sagöi
Guðjón Þorkelsson, annar
tveggja höfunda nýrrar hand-
bókar fyrir kjötkaupendur
sem heitir einfaldlega ís-
lenska kjötbókin. Bókin hefur
ab geyma margs konar upp-
lýsingar um allar helstu kjöt-
tegundir sem framleiddar eru
á Islandi. Sérstakur kafli, meb
miklum fjölda mynda, fjallar
um hverja kjöttegund, allt frá
gæðaflokkun heilla skrokka í
sláturhúsi til algengustu kjöt-
hluta í smásöluverslun. Mark-
aðsnefnd landbúnaðarins átti
frumkvæbi að útgáfu bókar-
innar, sem á sér fyrirmyndir í
öörum löndum.
Talsmenn útgefenda, Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins,
segja að með kjötbókinni sé í
fyrsta sinn lagöur grunnur að
staðlaðri úrvinnslu á öllu ís-
lensku kjöti, allt frá sláturhúsi
til neytenda, í þeim tilgangi að
auka fræðslu og skapa vibmið
fyrir markvissari viðskipti meb
íslenskt kjöt.
Með bókinni er m.a. reynt ab
koma fastari skipan á nafngiftir
ákveðinna hluta kjötskrokksins,
meöal annars með myndum og
lýsingum á öllum helstu vörum
úr hráu kjöti sem í boði eru hér
á landi (t.d. klumpur, innlæri,
hryggsneiðar, lundir, mínútu-
steikur, nautagúllas og svo
framvegis). Staðsetningu á
skrokk og úrvinnslu er lýst og
hver vörutegund hefur fengib
sitt tilvísunarnúmer sem hlýtur
t.d. að auðvelda öll pöntunar-
viðskipti. Meb bókinni er einn-
ig lagður grunnur að stöðlun á
samsetningu hakks, hamborg-
ara og vinnslukjöts. í henni er
einnig að finna töflur meb upp-
lýsingum um efnasamsetningu
(hlutfall próteins, fitu, steinefna
og vatns m.a.), nýtingu (t.d.
hlutfall beina úr mismunandi
stykkjum), þyngd og hlutfall af-
urða (slög geta t.d. verið allt frá
10% dilkaskrokks og upp í 18%
af feitustu dilkunum, en þar á
móti minnkar hlutfall beina
talsvert). Þessar töflur byggja á
verkefnum sem unnin hafa ver-
ið á fæðudeild RALA á undan-
förnum árum.
Svo dæmi sé tekið af lambs-
skrokk, þá kemur í ljós að eftir
úrbeiningu verða eftir um
64—65% af beinlausu og fitu-
snyrtu kjöti auks 3—6% af
vinnsluefni. En fituafskurður og
bein eru 32—33%, eða tæplega
þribjungurinn af skrokknum.
í þessari nýju bók er þannig
margan fróðleik að finna; fyrir
framleiðendur kjötsins, þá sem
slátra gripunum, kjötvinnslu-
fólkið, þá sem selja kjötið og þá
sem kaupa þaö. Til að byrja með
verður bókin eingöngu til sölu
hjá Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins og kostar þar 3.000
kr. án vsk. og þá væntanlega
3.420 kr. með vsk.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum ab ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntab starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla:
Engjaborg v/Reyrengi, s. 879130
Funaborg v/Funafold, s. 879160
Hagaborg v/Fornhaga, s. 10268
Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860
Staðarborg v/Mosgerbi, s. 30345
Sæborg v/Starhaga, s. 623664
Vesturborg v/Hagamel, s. 22438
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810
í 50% starf f.h.:
Barónsborg v/Njálsgötu, s. 10196
Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290
í 50% starf e.h.:
Brákarborg v/Brákarsund, s. 34748
Brekkuborg v/Hlíðarhús, s. 679380
Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860
Seijaborg v/Tungusel, s. 76680
Sæborg v/Starhaga, s. 623664
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810
i
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Fréttir í vikulok
Tveir menn létust í flugslysi
Tveir menn úr Reykjavík létu lífið í hörmulegu flugslysi við
Borgarnes sl. sunnudag. Þá hrapaði eins hreyfils Cessna vél
þeirra á malarrif um 100 metra frá landi. Að sögn sjónarvotta
virðist sem flugmaðurinn hafi verið ab klífa mjög hratt upp
þegar vélin missti skyndilega afl og hrapabi niður. Fjöldi
manns varð vitni að slysinu og dreif að lögreglu, sjálfboðaliða
og björgunarsveitarmenn innan nokkurra mínútna. Mennirn-
ir voru látnir þegar að var komið.
Flest kynferbisafbrot á 8 ára telpum
eöa yngri
Félagsmálstofnun fékk til meðferðar 40 kynferðisafbrotamál
gegn 50 börnum í fyrra. Þar voru 36 stúlkur og 14 drengir.
Brotin voru langflest gegn 5-8 ára telpum eða 20 talsins. Að-
eins 7 þessara mála voru kærð til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Lobdýrabændur auglýsa eftir fjár-
festum
Allt stefnir í lokun hjá tæpum helmingi viðskiptavina Fóður-
stöðvar Suðurlands vegna skulda. Bankar neita að lána hærri
afurðalán en skinnaverö er mun hærra nú en það var og hafa
Ioödýrabændur auglýst eftir fjárfestum til að brúa bilið. Sumir
loðdýrabændur ganga svo langt að segja að dýr þeirra drepist ef
bankarnir muni ekki hækka lánin.
Tap í sjávarútvegi eykst
Úrvinnsla Þjóðhagsstofunar á ársreikningum bendir til þess
ab sjávarútvegurinn tapi æ meir á meöan aðrir atvinnuvegir
standi í stað eða auki hag sinn. Eigin fjárhlutfall sjávarútvegar-
ins fór niður í 16,8 % sl. ár miðað viö 20,7 árið áður.
Málefni fatlabra flutt frá ríki til
sveitarfélaga
I áfanga skýrslu samrábsnefndar um sameiningu seitarfélaga til
félagsmálaráðherra er lagt til að málefni fatlaðara verði flutt frá
ríki til sveitarfélags á næstu 4 árum ásamt rekstri grunnskólans.
Samhliða verði sveitarfélögunum tryggðir nýir tekjustofnar.
Foreldrar skólabarna vilja ekki
lengja skólaárib
Foreldrar telja ekki rétt að lengja skólaárið í 10 mánuði að
óbreyttum forsendum. Þeir telja einsetinn skóla vera forgangs-
verkefni og mótnæla því að fellt sé úr lögum ákvæði um há-
markfjölda í bekkjardeildum.
Makalausir sækja til Félagsmála-
stofnunar
Alls 1520 einhleypir karlmenn nutu abstoðar Félagsmálstofn-
unar í fyrra. Þetta er um um 10% allra einhleypra karlmanna í
Reykjavík undir 15 ára aldri. Um 80% af málum sem berast inn
á borð Félagsmálastofnunar eru vegna „makalausra" en fólk í
sambúð er með 20% hlutdeild. Þetta kemur fram í skýrslu Fé-
lagsmálastofnunar.
Aukin þjónustugjöld í heilbrigbis-
kerfinu
Búist er við aukinni greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðis-
kerfinu. Hlutur sjúklinga í rekstri hefur vaxið ár frá ári og er nú
16,4%. Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra segir að þetta hlut-
fall muni enn hækka, þótt ekki sé sýnt að það verði á næsta ári.
Hvalfjaröargöngin verba gerö
Jarðgöngin fyrirhuguðu undir Hvalfjörö verða ab veruleika og
er búið að opna tilboð í verkið. Göngin verba 5,8 km löng og
munu stytta leiðina til Akureyrar um 60 km. Vonast er til ab
göngin verði tilbúin á tveimur árum. Niðurstaða um tilbobin
mun liggja fyrir 20. september. Nokkrir ferðaþjónustuaðilar í
Hvalfirði eru mjög óhressir með þessa niðurstöðu og telja að
ferðaþjónusta að vetrarlagi leggist aö mestu leyti niður.
Utför Eiríks skipherra
Útför Eiríks Kristóferssonar, fyrrverandi skipherra Landhelgis-
gæslunnar, var gerð frá Hallgrímskirkju sl. þriðjudag. Mikiö
fjölmenni var við athöfnina. Eiríkur var einn af máttarstólpum
íslendinga í útfærslu landhelginnar í 12 mílur.