Tíminn - 03.09.1994, Page 11

Tíminn - 03.09.1994, Page 11
Laugardagur 3. september 1994 11 svo mörg heilsársstörf, en fjöldi manna hefur tíma- bundna vinnu við skógrækt og byggja afkomu sína á þessu meö öðrum hlutum. Mér finnst mjög jákvætt ab menn taki fé aftur eftir niður- skurðinn og hafi það sem hluta af sínu ársstarfi og skóginn sem annan hluta. Þetta er víða þekkt í bændaskógrækt. Þegar tímar líða, pá er þetta banki bœndanna. I stað þess aö fara í banka og biðja um víxil, er farið í skóginn og þar eiga menn góða innistceðu sem gríþa má til." ■ Veistu hvenær fyrst var hreyft hucjmyndinni að Hér- absskógaaætlun? „Já, þab veit ég. Hún kom fyrst fram í erindi sem ég flutti á 50 ára afmæli Skógræktarfé- lags Austurlands og kallaði: Héraðsskógur, draumur eða veruleiki. Núna finnst mér æv- intýri líkast hve þetta hefur komist fljótt á framkvæmda- stig. Það má segja að draumur- inn rættist miklu fyrr en ég bjóst við. Riðuniðurskurðurinn á árunum 1988-90 átti trúlega sinn þátt í að fjármagn fékkst frá ríkinu." — Hvað eigum við að gera við lágvaxna birkikjarrið okkar? „Birkiskógurinn íslenski hefur mikilvægu hlutverki ab gegna. Þar er líka áherslubreyting í okkar starfi. Hugtakið land- græðsluskógar er komið til ab vera, þar sem við notum skóg til að endurheimta landgæði. Við erum líka komnir í þá að- stöbu, vegna breytinga sem orðið hafa í búskap, að þar sem ekki var hægt að upprífa fermetra lands fyrir svo sem tuttugu árum undir skóg, þar standa menn nú í biðröðum og bjóba hundruð eða þúsund- ir hektara undir þessa ræktun. Það leiðir til þess ab við erum ekki lengur að rækta skóga í skóginum, nema hvað birki- skógurinn er notaður sem skjól fyrir jólatrjáaræktun. Að öðru leyti gengur þetta út á að búa til meira skóglendi en nú er til í landinu, fremur en að breyta núverandi skóglendi í ööruvísi skóg. Þetta er mikil breyting. En hvað þetta lágvaxna kjarr snertir, þá er það nú svo að eft- ir ellefu hundruð ára beit þá er búið að raska svo mörgu. Þab hefur haft áhrif á erfðir og hvaða einstaklingar hafa þraukað og spjarab sig. En það er enginn kominn til með að segja ab ekki geti vaxib hávax- inn skógur þar sem nú er kjarr. Við getum tekið til dæmis kjarrlendi hér á Úthéraði. Með því ab rækta og þróa fram af- burba einstaklinga munum við sýna fram á að íslenska birkib getur myndað væna skóga." ■ Hvab um þá kenningu ab birkib hafi blandast fjall- drapa vib æxlun? „Það er sannað nú þegar með rannsóknum ab birki og fjall- drapi, sem eru náskyldar teg- undir, geta myndað bastarða sem við nefnum skógviöarbróð- ur. Hreint birki er mjög góð beitarplanta, en fjalldrapinn bíst mjög lítið. Því hefur sauð- féb á þessum 1000 árum tekið hvern einasta teinung af birki sem upp hefur komib, meðan fjalldrapinn hefur fengið að vera í friði. Þessi mengun, ef það má orða það svo, hefur haft stöðugt meiri áhrif og eftir því sem tegundirnar blandast meira, þá verða þessir bastarðar siðri til beitar og komast því upp. Þannig er meirihlutinn af skógunum okkar í dag." ■ Hvar finnum vib hreinasta birkib á íslandi? „Það finnast falleg birkitré mjög víða. Nú gerir tæknin okkur kleift að þróa fram af- burða einstaklinga. Þab er hin svokallaða vefjaræktartækni. Þar er nú verið að vinna að mjög spennandi rannsóknum. Við getum sem sé tekiö afburða einstakling og búið til annan nákvæmlega eins. Ef við tökum nógu marga svona einstak- linga, þ.e. hávaxin og bein tré, þá fáum við nógu mikinn erfðabreytileika til þess að fræ- in gefi af sér efnilegan skóg. Þannig getum við ræktað ís- lenskan birkiskóg, sem er allt annar en sá skógur sem vib sjá- um í dag." ■ Hvaba hugmyndir eru uppi um nýtingu á þeim aukaafurbum sem skógurinn gefur, og hverjar eru þær afurbir? „Þær eru fjölmargar. Það má nefna sveppi og ber. Gróðurfar verður fljótt langtum meira og fjölbreyttara þar sem skógur vex upp, og það gefur mögu- leika á góbri beit. Skógurinn er vinsælt útivistarsvæði, það ger- ir skjólið og fjölbreytnin í gróð- ur- og dýralífi. Það má líta á þetta sem afurð. Innan skógar- ins er auðveldara að rækta ým- islegt sem illa gengur ab pota upp á bersvæbi. Strax þegar grisjun hefst, fellur til mikið af kurli og það hafa verið uppi ýmsar hugmyndir um nýtingu á því. Nýlega barst mér skýrsla frá dönskum sérfræðingi í því sem mætti e.t.v. kalla flísamálum eða kyndistöðvarmálum. Hann var hér sl. sumar og gerði athuganir á því hvað við gætum gert við það sem fellur til við grisjun á ungskóginum. í þessari skýrslu telur hann að við höfum allar forsendur til að setja á laggirnar kyndi- stöðvar fyrir litla byggða- kjarna, eins og er t.d. á Hall- ormsstað. Með flís úr skógin- um sé hægt að hita upp sund- laug, íþróttahús og önnur hús á staðnum. Tæknin er til, þetta er ákveðinn stofnkostnabur, en ætti ekki að veröa dýrari kynding en sú sem við notum í dag. Kurlið er þá smækkað í þab sem við köllum flís, sem er sett í síló og síðan er sjálf- virkur snigill sem flytur efnið í brennarann. Eftir 20-30 ár fer óhemjumikið að falla til af slíku efni í þeim skógum sem Héraðsskógar eru nú að gróðursetja. Við gaetum þá farið að keþþa við Rarik þess vegna. Það hefur orðið gífurleg þróun einmitt í þessum mál- um. Viðarofnar hafa verið I notkun í árhundruð, en til- raunir, sem gerðar hafa veriö á síðustu áratugum, hafa gefið okkur kynditæki sem aö sínu leyti eru eins góð og t.d. þau sem brenna olíu. Orkukreppan, sem skall yfir hinn vestræna heim um 1974, ýtti mjög undir þessa þróun." Þá hlýtur ab vera tímabært að fá að vita frekari deili á viðmæl- anda okkar, og við spyrjum skógræktarstjóra um ætt og uppruna, nám, störf og fjöl- skyldu. „Ég á ættir að rekja hingað austur, þó ég sé fæddur og upp- alinn á suðvesturhorninu. Amma mín í föðurætt var Ing- unn Stefánsdóttir frá Glúms- stöðum í Fljótsdal og afi minn í móðurætt var líka Austfirbing- ur, Einar E. Sæmundsen fyrrv. skógarvörður. Faðir minn er Loftur Einarsson, sonur Einars Jónssonar alþingismanns frá Geldingalæk. Móðir mín heitir Guðrún, dóttir Einars E. Sæ- mundsen. Amma mín í móður- ætt, Guðrún Guðmundsdóttir, kom úr Skagafirði, þannig að ég á víða ættir að rekja. Þetta er frændrækið fólk og ég get ferðast víða um landið og notið gestrisni frændfólks. Ég er fæddur í Reykjavík, en við fluttum í Kópavoginn þegar ég var fimm ára. Síöan tók við þessi heföbundna skólaganga. Eftir menntaskóla fór ég til Danmerkur og var þar eitt ár við vinnu í skógi. Síðan tók við háskólanám í Noregi. Ég lauk því 1974 og kom þá heim og kom þá mjög fljótlega hingað austur og hóf starf sem aðstoð- arskógarvöröur hjá Sigurbi Blöndal á Hallormsstað. Síðan tók ég við skógarvarðarembætt- inu þar 1978 og við núverandi starfi 1990. Kona mín heitir Berit John- sen. Hún er norsk og við kynntumst þegar ég var í námi úti í Noregi. Hún er uppeldis- fræðingur og hefur starfað hér í mörg ár hjá Fræðsluskrifstofu Austurlands. Hún starfar nú tímabundið við sérkennslu- deild Óslóarháskóla. Við eigum fjögur börn: tvo drengi, sem heita Loftur Þór og Árni Berúlf- ur, og tvær stúlkur, sem heita Andra Björk og Sólrún Kari. Eldri sonurinn hefur nýlega lokiö stúdentsprófi. Hann er nú staddur í Frakklandi og er að velta því fyrir sér hvort hann eigi að fara í skógræktar- nám þar, þannig að þetta er líklega eitthvað í genunum. Enda er ég á vissan hátt með elstu skógræktarmönnum á ís- landi, því að afi minn, Einar Sæmundsen, var í hópi fyrstu íslendinganna sem fóru í skóg- ræktarnám árið 1905. Síðan er móðurbróðir minn, Einar Sæ- mundsen yngri, sem var skóg- arvörður á Vöglum og Suðvest- urlandi. Ég er þá þriðji ættliður skógfræbinga, þó það sé ekki í beinan karllegg. Uppeldið segir þarna til sín. Eg liföi og hrærb- ist í umræbum um skógrækt, og þegar ég var í skóla var þetta sumarvinnan. Maður vann hjá frænda í skógræktinni, eins og það hét, og þab kom ekkert annað til greina en leggja þetta fyrir sig." — Ertu bjartsýnn á framtíðina hvað skógrcektina snertir? „Já, ég er bjartsýnn. Það eru margir í skógræktarnámi og það sýnir aukinn áhuga og grósku í greininni. En þó ég haldi að framtíðin sé björt, þá er verkefnið að klæða landið svo tröllaukið að jafnvel þó við höfum nú aukið plöntufram- leiðsluna á síðustu tíu árum úr einni og hálfri milljón plantna á ári í sex milljónir, þá tekur það okkur yfir sextíu ár að tvö- falda skóglendi landsins. Nú er eitt prósent af flatarmáli ís- lands skógi vaxib og þá yrðu tvö prósent eða um 2000 ferkm skógi vaxin eftir sextíu ár." Sigrún Björgvinsdóttir, Egilsstöðum „Allt þetta skal ég gefa þér, ef..." Skógrœktarstjóri sýnir skógrœktarfrömuöum frá Noröurlöndum dýrb Hallorms- stabarskógar. Skólaostur kg/stk R U M L E G A 150/- ■ # w LÆKKUN! 592 kr. VERÐ NU: kílóið. VERÐ AÐUR: ÞU SPARAR: ■ kílóið. 105 kr. á hvert kíló. OSTA OG SMIÖRSALANSE

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.