Tíminn - 03.09.1994, Side 12

Tíminn - 03.09.1994, Side 12
12 W'.ti.t'.l.V Laugardagur 3. september 1994 JONA RUNA á mannlegum nótum: Dapurleiki Aö gefnum tilefnum get- um við flest af og til fundiö fyrir einhvers konar gleöileysi. Þegar þannig árar innra meö okkur, er ágætt fyrir okkur aö finna leið út úr depuröinni með því aö gera eitthvað sem grípur huga okkar og sál föstum tökum og gefur okkur um leið góöar til- finningar og heppilegar hugs- anir. Þegar viö erum máttlítil og leiö, er jafnframt viturlegt að gefa líf jákvæöum sam- skiptum viö þá, sem eru upp- örvandi og glaöir. Hverskyns vonbrigði í aö- stæöum okkar og samskiptum viö aðra eru vitanlega verk- efni sem við þurfum að vinna úr og leysa af kostgæfni, ef mögulegt er. Viö eigum ekki aö láta þau draga okkur niður í hyldýpi örvæntingar og ótta viö þaö líf, sem við erum þrátt fyrir allt knúin til aö lifa. Þaö er hægt með þó nokkurri fyr- irhöfn að temja sér gleöi og yl hiö innra, ef við viljum það og þráum slíka líðan af ein- lægni. Ekkert í innra lífi okkar er í raun svo snúiö og flókiö, aö það sé ekki hægt aö takast á viö það meö til þess gerðum aðgerðum, ef viö viljum og kjósum þaö í raun og veru. Okát tímabundin afstaöa okk- ar til tilveru okkar og annarra er ekki líkleg til þess að draga dilk vandræða á eftir sér, ef viö þjálfum okkur í aö bregð- ast rétt viö henni. Þaö er auð- vitað eðlilegt aö heilbrigðir geta orðið vondaufir um tíma og þá sérstaklega ef þeir sjá t.d. öll sín markmið fara fyrir lítið eöa lenda t.d. í höfnun- um eöa veröa fyrir einhvers konar missi. Öll sammannleg reynsla er margþætt og tengist jafnt sorg sem gleði. Eftir því sem við höfum meiri þekkingu á innra eðli okkar, því mun meiri líkur eru á aö við getum unniö á dapurleikanum. Við eigum aö ákveða aö temja okkur gleöi og þakklæti viö sem flestar aöstæður og forð- ast eftir bestu getu að láta tímabundin vandræöi gera okkur óvíg og leið. Dapurleiki er ekki óyfirstíg- anlegt ástand. Þess vegna er mikilvægt aö viö eflum í mæöunni nánast eingöngu tiltrú á betri og réttmætari líð- an. Bjartsýni borgar sig í viö- kvæmum aðstæðum og þá ekki síst þeim, sem okkur þykja ekki gleðiörvandi um tíma. Viö eigum, ef viö vilj- um, aö geta stjórnað afstöðu okkar til alls þess sem hendir okkur. Þess vegna er ekkert óeölilegt við þaö, þó við ein- setjum okkur fremur að velja það, að bregðast viö örðug- leikum með tiltrú á tilgang þeirra, fremur en aö láta þá of lengi gera okkur angurvær og hljóð. Við getum líka, ef við viljum, breytt afstöðu okkar til þess, sem við fáum ekki breytt og gerir okkur vondauf og döpur, með því t.d. að vera uppörv- andi og jákvæð gagnvart sjálf- um okkur og öðrum, hverjar svo sem aðstæður okkar eru. Breytum því dapurleika og lumbru í gleði og bjartsýni. Þannig afstaða auðveldar okk- ur að njóta þess, sem er það dýrmætasta sem við eigum, og það er lífið sjálft, þrátt fyr- ir að við gleymum því stund- um. IW KROSSGATAN NR. 32 Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á leikskólann Hlíðarborg v/Eskihlíö. Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 20096. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 1 7, sími 27277. Leikskólar Reykjavíkurborgar Staba abstoðarleikskólastjóra vib leikskólann Stabarborg v/Mosgerbi er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar gefur Sæunn Karlsdóttir leikskóla- stjóri í síma 30345. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. LAUSN A GATU NR. 31 ■ 5 V 'c~ L A f • ; // A rSF C 2- ->\R\E\Y\rt\l\Rk* r\ Ö r-±HÚ K K\A — 'I NÍ'' 1 cST'' WlV l-K A N^á'o i & / Rw Q L U F A ; ~0 K sws N Æ R Æ ð' / R ‘0 s A-- 'o KZrF A u T A N u' AJ J K R ’o ■Jjaí-:- JKA F A L 1 Jr N A Gr N '/ P A V Wb R AJ 1 N° G 1 y'u B AU L 1 T.: £ l lj2í£ A fTér-G A N G / T.O»iíÖ V1 Æ NJ A I d / N N.GCl R u^u N 0 1 NÍ'o L T V & Sé‘K‘- AJL A -8 AJ-S V N JrR 'A F - V 1 r ro-s j-s P K iCN DJj K 1 A? /4T 'A NiA A W-A 5 V AJ-G A U L A :ií:' £RS L JN c F 'D! 5 1 dJ"0 5 K R A ■& 1 R^r'O A-J / £ IA\T T - " '0 F - 'A T u L A U T F 'A N 1 R A-*P UJ T\Æ N U M F- K 1 L L 1 R

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.