Tíminn - 06.09.1994, Side 7
isaniajqa. ,o luysD-Jio
Þribjudagur 6. september 1994
Nú er mótavertíðin á enda
hjá hestamönnum þetta
áriö. Oft vill svo verða á
landsmótsári að önnur mót falla
í skugga þess. Aðsókn að héraðs-
mótum var léleg í ár, ef Kaldár-
melar eru undanskildir. íslands-
mótið í hestaíþróttum, sem
fram fór í Kópavogi, hefði mátt
fá mun meiri aðsókn. Það mót
fór vel fram og var Hestamanna-
félaginu Gusti til sóma. Aðsókn
að mótunum leiðir hugann að
því hvort ekki þurfi að taka
mótahaldið til endurskoðunar.
Reyndar hefur þab oft borið í
orð innan Landssambandsins
án þess ab það leiddi til nokkurr-
ar niðurstöðu.
Til að koma þessu máli í um-
ræðu, set ég hér fram hugmynd-
ir að breyttu fyrirkomulagi.
Breytingin varðar ekki dagskrá
mótanna, heldur heildarskipu-
lag fyrir landið.
Landinu skipt
í 6 svæbi
Gert er ráð fyrir því að landinu
sé skipt í 6 svæði. Á hverju svæði
sé aðstaða fyrir stórmót (eins og
síðsumarsmótin hafa verið köll-
uð). Svæðin verða þessi: 1. Vest-
urland-Vestfirðir meb móts-
svæði á Kaldármelum. 2. Norð-
urland vestra með mótssvæði á
Vindheimamelum. 3. Noröur-
land eystra með mótssvæði á
Melgerðismelum. 4. Austurland
með mótssvæði á Stekkhólma.
5. Suðurland með mótssvæði á
Gaddstaðaflötum. 6. Reykjavík
og Reykjanes með mótssvæði í
Víðidal.
Árlega yrðu haldin mót á þess-
um svæðum og félögin fengju
rétt til þátttöku eftir úrtöku í
heimafélagi. Ákveðinn yrði há-
marksfjöldi þátttakenda í hverri
grein. Kappreiðar yrðu á öllum
mótunum og væru þær opnar
og með álitlegum peningaverð-
launum. Þannig gætu menn tek-
ið þátt í kappreiðum margar
helgar sumarsins. Athuga þyrfti
að fá fyrirtæki til að standa und-
ir verðlaunum og koma jafn-
framt á veðbanka.
Kynbótahross kæmu fram á
þessum mótum og hefðu þau
verið forskoðuð áður og þá full
byggingardæmd, en endanlegur
hæfileikadómur yrði á mótinu.
Mótin hefjist fyrr
Þessi mót gætu hafist snemma
vors og yrði þá byrjað á móti á
svæði 6, Reykjavík og Reykjanes.
Þetta yrði fyrsta stórmót hvers
sumars og því yrði samfara stór
kynbótasýning, einkum hvað
stóðhesta varðar. Þetta mót yrbi
haldið fyrstu helgi í júní. Næsta
mót yrði á svæði 5, Suburland,
og yrði haldið aðra helgi í júní.
Þriðja mótib yrði á svæði 1,
Vesturland-Vestfirðir, þriðju
helgi í júní. Fjórða mótið yrði á
svæði 2, Norðurland vestra,
fyrstu helgi í júlí. Fimmta mótið
yrbi á svæbi 3, Norðurland
eystra, aðra helgi í júlí og síðasta
mótib yrði á svæði 4, Austur-
land, þriðju helgi í júlí. Úrtaka
félaganna þyrfti að sjálfsögðu að
fara fram fyrir hvert mót. ís-
landsmótið í hestaíþróttum færi
svo fram að þessari mótalotu
lokinni síðustu helgi í júlí. Á-
gústmánuð væri svo hægt að
nota í íþróttamót og frjáls fé-
lagamót. Mótanefnd LH myndi
ekki raða öðrum mótum niður
og félögunum því frjálst hvenær
þau héldu sín félagsmót. Hér-
aðssýningar myndu halda sinni
stöðu, en vera þó samferða stór-
mótunum eftir því sem hægt
yrði.
Hvab meb
landsmót?
■Auövitab eF hægt að hugsa sér
íjljvjti*, t i * *
7
■
:: :
■
Breytt skipulag
í mótamálum
abra niðurröðun mótanna, en
með þessu fyrirkomulagi er gert
ráð fyrir að fjórðungsmótin féllu
niður. Landsmótin yrðu svo
haldin fjórða hvert ár til skiptis
á Suður- og Norðurlandi. Að
mótinu á Norðurlandi myndu
standa svæði 1, 2 og 3, en að
mótinu á Suðurlandi svæbi 4, 5
og 6. Landsmótin yrbu haldin
um sömu helgi og verið hefur og
yrði þá að hnika stórmótum til
Höfub
6,5 og’lœgra:
-Mjög gróft og hlutfallslega stórt höfuð.
-Mjög slæm eyrnastaða og illa gerð eyru.
-Mikið frávik frá beinni neflínu.
-Mikill ófríðleiki.
Einkunnin 6,5 eða lægra er gefin ef einn
ofantalinna galla lýta höfuðiö í afar ríkum
mæli en fátt prýðir. Einnig gæti einkunn á
þessu bili komið til þótt gallarnir séu ekki í
afar ríkum mæli hver og einn, séu þeir
fleiri en einn og fátt prýði, sjá einnig
upptalningu við einkunn 7,0.
7.0:
-Ófrítt svipljótt höfuð.
-Þungt (holdugt) höfuð.
-Djúpir, þykkir kjálkar.
-Smá augu sem sitja djúpt.
-Slæm eyrnastaða.
-Nokkurt frá vik frá beinni neflínu.
-Mjög stutt munnvik.
Sambærilegar reglur gilda um einn galla eða
fleiri og lýst var hér ab ofan (einkunn 6,5
eða lægra).
7.5;
-Þokkalegt gallalítið höfuð, hvergi gott.
-Góbir þættir í höfuðgerðinni geta vegið upp
nokkur lýti.
8.0:
-Myndarlegt höfuð, svipmikið, má vera
nokkuð gróft eba hlutfallslega stórt ef það
er að öðru leyti gallalítið.
-Svipgott höfuð, gallalítið.
-Mjög frítt höfuð, en með einhvern galla
í talsverðum mæli.
8.5:
-Mjög myndarlegt, svipmikið höfuð.
-Frítt, fínlegt höfuð.
9.0:
-Frítt og fínlegt, gallalaust höfuð.
9,5-10:
-Mjög frítt og fínlegt höfuð: Eyrun þunn og
fínleg, hæfilega lokuð og vel sett. Stórt, opið
og næmt auga og falleg augnaumgjörb.
Húðin þunn og fínhærð. Kjálkarnir þunnir
og hæfilega grunnir og góð gleidd á milli
þeirra. Neflína bein og nasir flenntar.
HEJTA-
MOT
lýARI
ARNORS-
SON
það árið eba ef til vill að fella
þau niður í þeim landshluta sem
landsmótib yrði hverju sinni.
Hér er um róttækar breytingar
að ræða og settar fram til þess að
koma málinu í almenna um-
ræðu. Þetta er líka sett fram til
ab byggja upp stærri heildir, sem
gæti leitt til sameininga á félög-
um, sem myndu þá starfa deild-
skipt.
Þátturinn „Hestamót" er opinn
fyrir skoðanaskiptum um þessi
mál. ■
KYNBÓTAHORNIÐ
Hvab er
á bakvib
tölurnar?
Þegar hross koma í dóm, velta
menn oft fyrir sér hvað sé á bak-
við þær tölur sem hrossin fá,
hvort heldur er fyrir sköpulag
eða hæfileika. Árið 1992 kom út
bókin Kynbótadómar og sýning-
ar, sem Búnaðarfélag Islands -
hrossaræktin gaf út. Þar er fjallað
um framkvæmd kynbótadóma
og sýninga, auk þess sem stigun-
arkvarði einstaklingsdóma er
birtur, en hann hefur hlotið
endanlegt samþykki Hrossarækt-
arnefndar Búnaðarfélags íslands.
Þátturinn hefur fengið leyfi höf-
undar bókarinnar, Kristins
Hugasonar, til að birta valda
kafla úr henni.
Bókin skiptist í þrjá meginkafla:
I. Framkvæmd kynbótadóma og
sýninga.
II. Stigunarkvarði einstaklings-
dóma.
III. Einkunnir og verðlaunastig.
Hvab er dæmt?
Þeir eiginleikar, sem dæmdir em
í byggingardómi, em: Höfuð,
Háls, herðar og bógar, Bak og
lend, Samræmi, Fótagerð, Rétt-
leiki og Hófar. Eiginleikar í hæfi-
leikadómi em: Tölt, Brokk,
Skeið, Stökk, Vilji, Geðslag og
Fegurð í reið.
Það er naubsynlegt fyrir alla þá,
sem fást við ræktun, að eignast
þessa bók. Þátturinn „Hestamót"
mun framvegis verða með þátt
sem nefnist Kynbótahornið. í
Kynbótahorninu munu birtast í
næstu blöbum stigunarkvarðar
hinna ýmsu eiginleika.
í þessum þætti verður f jallað um
stigunarkvarba fyrir höfuð. ■