Tíminn - 06.09.1994, Page 10

Tíminn - 06.09.1994, Page 10
io ISmwim j 80 ára: Asgeir Bjamason fyrrverandi alþingismabur, Ásgarbi Fyrir ne&an túnib í Ásgarbi er —- óþarfur, því þau tóku mér allstór stapi, sem talinn er bú- staður huldufólks. Þab er göm- ul þjó&trú að ganga á Ásgarðs- stapa eftir vissum settum regl- um gefi óskum bornum upp á stapanum byr til farsældar. Hvað sem þessari þjóðtrú líð- ur, hefur starfsferill afmælis- barnsins verið farsæll og má með sanni segja að hann hafi verið óskabarn sinnar sveitar. En farsæl lífsganga hefur verið erilsöm, því að á hans herðar hafa lagst ótrúlega margvísleg skyldustörf. Auk þess ab vera stórbóndi, póst- og símstöðv- arstjóri, hreppstjóri, sýslu- nefndarmaður og í fram- kvæmdanefndum fyrir flestar framkvæmdir í héraöinu, var Ásgeir þingmaður Dalamanna 1949-1959 og þingmaður Vesturlands frá 1959-1978. Á löngum þingferli sínum gegndi hann ótal trúnaðar- störfum, var m.a. forseti Sam- einaðs þings um tíma, í Norð- urlandaráði, í stjórn Búnaðar- bankans, í Rannsóknaráði, svo ekki séu nefnd þau fjölmörgu störf sem hann innti af hendi fyrir bændasamtökin. Af þessari upptalningu, sem hvergi er tæmandi, gæti ókunnugur gert sér í hugar- lund að Ásgeir hafi sóst eftir völdum, en svo er ekki. Hann ARNAÐ HEILLA er einfaldlega yfirburðamaður og þess vegna þótti mönnum sem málum væri ekki vel fyrir komið nema Ásgeir stæði í stafni. Maður á borð við hann er stór af sjálfum sér og verk- um sínum. Sjálfur er hann lít- illátur og hógvær, en það sem gerir hann jafn töfrandi og raun ber vitni er yfirvegun hans, rósemi og kímnin sem aldrei er langt undan. Hann er öfundsverbur, ekki fyrir þab að hafa safnað auöi sem mölur og ryð fær grandað, heldur fyrir þab sem meira er og gulli betra, góban orðstír. Frá því ég man fyrst eftir að hafa lagt eyrun við stjórn- málaumræðu hef ég ávallt heyrt talað um afmælisbarnið með sérstakri virðingu og hlýju. Það eru ekki mörg ár síðan ég kynntist honum per- sónulega. Það var ekki fyrr en í kosningabaráttu fyrir tæpum fjórum árum. Þá bankaði ég fyrst upp á í Ásgarbi, satt að segja örlítið kvíðin; hvernig skyldi þessi reyndi heiðurs- maður taka á móti konu sunn- an af Skaga, sem var að stíga sín fyrstu spor sem frambjóð- andi til Alþingis. Kvíðinn var opnum örmum, hjonin í As- garði. Kvöldstundin hjá þeim var ljósasti punkturinn í kosn- ingabaráttunni. Þá og oft síð- an hef ég þegið veislu í Ásgarði og þegið um leið holl ráð af vitrum vörum húsbænda og fróðleik frá libinni tíð. Ásgeir var vel undir lífsbaráttuna bú- inn, sprottinn úr jarðvegi sem er í jafnvægi við lífið og tilver- una. Hann fékk hagnýta menntun hérlendis og erlend- is, sem nýttist honum vel. Ásgeir er fæddur í Ásgarði, Hvammssveit í Dalasýslu, 6. sept. 1914. Foreldrar hans voru Bjarni Jensson hrepp- stjóri, fæddur árið 1865, dáinn árið 1942, og Salbjörg Jónea Ásgeirsdóttir ljósmóðir, fædd 1871, dáin 1931. Með fyrri konu sinni, Emmu Benediktsdóttur, átti Ásgeir tvo syni: Bjarna, bónda í Ás- garði, hann er kvæntur Ásdísi Erlu Ólafsdóttur; og Benedikt, prófessor í félagsvísindum, hann vinnur hjá utanríkis- ráðuneytinu. Ásgeir missti Emmu þegar drengirnir voru barnungir. í yfir 40 ár hafa þau Ásgeir og Ingibjörg Sigurðardóttir verið gift. Þau eru samhent og þarf ekki ab hafa auðugt ímyndun- arafl til að sjá að án hennar hefði afmælisbarnið ekki tekið að sér þau fjölmörgu störf sem hann sinnti. Í Ásgarð hafa margir átt erindi. Þótt Ásgeir hafi fyrir nokkuö löngu dregið sig út úr skarkala stjórnmál- anna, er mjög gestkvæmt á hans heimili. Það er eitthvað sérstaklega gott sem fylgir bændahöfðingjanum Ásgeiri. Maður hefur þab jafnvel á til- finningunni, þegar gengið er út úr húsinu í Ásgarði, að gest- um fylgi farsæll byr, eins og þjóðtrúin segir um stapann góba í túninu í Ásgarði. Kæri Ásgeir. Með þakklátum huga sendi ég þér og fjöl- skyldu þinni innilegar ham- ingjuóskir í tilefni dagsins. Megi guð og gæfan fylgja ykk- *ur um ókomin ár. íngibjörg Pálmadóttir Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, fyrrverandi forseti Sameinaðs Alþingis og formaður Búnað- arfélags íslands, er áttræður í Björn Einarsson Björn Einarsson fæddist í Óspaksstaðaseli 28. desember 1918. Hann lést á Borgarspítal- anum þann 27. ágúst s.l. og hafði þá átt við vanheilsu aö stríba hin síbustu misseri æv- innar. Foreldrar hans voru hjónin Pálína Björnsdóttir og Einar Elíesersson frá Óspaks- staðaseli. Þar voru þau að hluta til alin upp og þar bjuggu þau líka sína stuttu búskapartíö. Systkinin voru sjö: Þuríður, hún dó 1932, 15 ára gömul; Björn, Halla Inga, Jónas, Ingi- mar, Ingibjörg og Ingvar; þau tvö síðastnefndu dóu í frum- bernsku. Björn kvæntist Gertrud Einarsson 21. janúar 1950. Hún kom frá Þýskalandi vorið 1949. Þeim varð ekki barna auðið. Þeirra heimili hef- ur alla tíð verið í Reykjavík. Björn var í vinnumennsku í Hrútafirði á sínum yngri árum, en byrjaði hjá Vegagerð ríkis- ins 1940 og vann þar það sem eftir var starfsævinnar. Vann hann á jarðýtum víða um land, en síðustu árin vann hann í Áhaldahúsi Vegagerðarinnar í Borgartúni í Reykjavík. Minningar okkar um Bjössa frænda eru mjög ánægjulegar. Þab var tilhlökkunarefni hjá okkur systkinunum, þegar von var á Bjössa og Trúll í heim- sókn til Borðeyrar. Þau voru þá að koma í heimsókn til ætt- ingjanna á Borðeyri, Einars afa og Siggu Ellu systur hans, og gistu þá ævinlega hjá okkur. Það var gaman að fá þau norð- ur, því Bjössi var svo iðinn við að spjalla við okkur krakkana og ennþá duglegri við ab stríða okkur á sinn góölátlega hátt. Og hvab er skemmtilegra ab áliti barna en frændi sem t MINNING nennir að atast í þeim. Svo komu þau hjónin ævinlega með eitthvert góðgæti, ávexti og sælgæti, úr Reykjavíkinni, sem við sveitakrakkarnir höfð- um jafnvel ékki smakkað fyrr. Eins var alltaf gaman að koma til Bjössa og Trúll í stóra húsiö þeirra í Laugalæknum, en þangaö vorum við oft boðin ef við vorum á ferðinni í Reykja- vík. Og veitingarnar, sem þau buðu uppá, þær voru ekki af verri endanum, bæði góbar og rausnarlegar. Eftir vel úti látið matarboð rölti Bjössi svo með okkur systkinin í ísbúðina hin- um megin við götuna og bauð öllum upp á ís. Við í spariföt- unum, því að sjálfsögðu vorum við í sparifötunum í Reykjavík- urferðum. Þótti okkur mikið til þessa koma. Vib þökkum Bjössa frænda fyrir vinsemdina og glettnina og vottum Trúll samúð okkar. Systumar frá Borðeyri Við systkinin ólumst upp á af- skekktum bæ, Óspaksstaðaseli, fremsta býli við Hrútafjarðará, hjá foreldrum okkar og föbur- ömmu. Bróðir minn fór strax ab vinna sem barn að aldri. Man ég hann fara með heybandslest af engjum heima í Óspaks- staðaseli og vissi ég að slíkt hið sama gerbi hann á næsta bæ vegna vinnuskipta. Vel má vera að bróður mínum hafi tæplega tekist að jafna þá ná- grannahjálpsemi sem við nut- um, en víst er að viljann átti hann nógan. Innan við fermingu flutti hann úr kaupstað á tveimur reibingshestum slátur og ann- að sem meb þurfti. Farið var fetiö, því myrkt var orðið þar sem leiðin lá fram bakkana austan megin Hrútafjarðarár. Hann lagði af mörkum mikið starf sem barn og unglingur til hjálpar heimilinu, sem kom okkur systkinunum til góba sem yngri vorum. Glaösinna og smáhrekkjóttur við mig, Jonna bróður, sem fylgdi hon- um til kinda eða með hross í haga. Vorið 1935 flytjumst viö öll frá Óspaksstaðaseli. Bjössi er þá á sautjánda ári. Hann skilur al- eiguna eftir frammi á dalnum, veturgamla gimbur, stóra og gula á lagðinn. Hann vistast hjá móðursystur okkar Guð- rúnu og manni hennar Gub- birni, sem bjuggu þá á Kol- beinsá í Bæjarhreppi. Síðan fór hann til systkinanna Guðrún- ar, Jóns og Guölaugar, sem þá bjuggu að Bæ og síðan á Valda- steinsstöðum. Árib 1940 verða þáttaskil í ævi Bjössa. Hann ræðst í vinnu til Vegageröar ríkisins og var vegagerðarmaður í rúmlega 50 ár. Dagur var ab kveldi kom- inn, þegar hann kvaddi vinnu- félagana í Áhaldahúsi Vega- gerðarinnar í Borgartúni. Vorið 1940 eða litlu síðar er hann farinn norbur á Stóra- Vatnsskarð í fjölmennan vinnuflokk, er Jóhann Hjör- leifsson stjórnaði. Hef ég það fyrir satt ab fyrstu jarðýtunni, sem Vegagerðin keypti og not- ub var við vegalagninguna, hafi Bjössi stjórnab fyrir norö- an. Mestur hluti starfsins um langa ævi var á ýtum Vegagerö- arinnar, mismunandi aö stærb og útbúnaði. Heyrnarhlífar voru í fyrstu óþekktar. Varla hefur miðstöb til upphitunar verið í fyrstu ýtunni. Þessi tæki endastungust og hjuggu á mis- jöfnu landi. Ekkert fjaðraði til að draga úr ójöfnunum. Bjössi vann víða hjá Vegagerðinni við að ýta upp vegum, á Norður- landi, Hellisheiði, en síðasta stórverkib sem hann vann við, var vegur yfir Skeiðarársand. Eitt sinn vann hann að vegi á vestanverbu Vatnsnesinu. Verk- stjóri hans var Friðrik Hansson, Saubárkróki. Hann er þekktur meðal annars fyrir ljóðagerð. Eitt sumarkveld um helgi biður Friðrik Bjössa að aka sér á jepp- anum hans út aö Hindisvík, því sig langi til að hitta að máli sr. Sigurð Norland. Jú, þaö var vel- komið. Fyrir ofan túngarð stoppar Bjössi bílinn og býst til að bíða eftir verkstjóra sínum. Sennilegt er að Friðrik hafi skil- ið verkstjóratitilinn eftir í sæti sínu, en skáldið Friðrik gengur heim tröðina að Hindisvík. Sól- in er að síga í hafið. Húnafló- inn glitrar mismunandi sterk- um litum. Bjössi syngur með sinni viðfelldnu dimmu röddu kvæði skáldsins, sem nýverið var genginn til stofu í Hindis- vík: Ætti ég hörpu hljómaþýða, hreitia, mjúka gígjustrengi, til þín myndu lög mín líða, leita þín er einn éggengi.... Prestinum, sem einnig lágu Ijóð á tungu, og Friðriki hafði orðið skrafdrjúgt, með veig í glösum, skáldum samboðin. Við sólris nýs dags snúa þeir fé- lagar heim í hin hvítu tjöld, sem stóðu í beinni röð og snéru öll dyrum til sömu áttar. Þetta sumar var eiginkona Björns, Gertrud Einarsson, ráðskona í vegavinnuflokknum. Nú skal litib til baka til vors- ins 1949. Þá kom hópur af þýsku æskufólki hingað til ís-. ' “ í 1 • V.'J/cjbk 3 íújpeb'uiórW Þribjudagur 6. september 1994 dag. Ég heyrði Ásgeirs fyrst getið fyrir kosningarnar til Al- þingis árið 1949. Framsóknar- flokkurinn hafði þá fengið hann í framboð í heimahéraði gegn þáverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni. Var því ljóst að kosningaúrslit yrðu tvísýn, en þeir, sem best þekktu til, sögðu ab Ásgeir væri sá eini sem fellt gæti Þor- stein. Niðurstaðan varð líka sú og sýnir það traustið, sem Dalamenn báru til unga bónd- ans í Ásgarði. Hann hafði þá tekið þar við búi af föbur sín- um, bændahöfðingjanum þjóðkunna Bjarna Jenssyni í Ásgarði, eftir að hafa aflab sér búfræðimenntunar innan lands og utan. Það hefur verið mikið, sem Ásgeir lagði á sig fyrir sýslunga sína og Framsóknarflokkinn, þegar hann tók að sér að gegna þingmennsku. Það var mikil röskun á starfi bóndans að verða að hverfa frá búi marga mánuði á ári, þegar vetrarferðir heim voru oft erf- iðar og ekki fljótfarnar á veg- um og farartækjum þess tíma. Þingfararkaup var þá abeins greitt fyrir þingtímann, þó að margvísleg erindi, fundir og ferðalög væru nauðsynleg annan tíma, og varð það þá að bitna að fullu á fjölskyldu og búrekstri. En að sjálfsögðu voru Ásgeiri falin fjölmörg önnur trúnaðar- störf, bæði í heimahéraði og að heiman. Hann var kosinn fulltrúi Dalamanna á Búnaðar- þing árið 1950 og einnig full- trúi á aðalfund Stéttarsam- bands bænda, en á þeim vett- lands til að vinna við landbún- aðarstörf. Vorib var síðbúið. Fannir í byggð um Jónsmessu. En hin bjarta vornótt var fólk- inu framandi, en fögur. í hópnum voru systkini, Gertrud og Georg. Gertrud réðist að Silfrastöbum í Skagafirði. Bjössi vann þá við akstur á vörubíl, sem hann átti að jöfnu á móti öðrum manni. Hann sá meðal annars um aðdrætti til vinnu- flokksins á Stóra-Vatnsskarði. Þar kynnast þau Gertrud og Björn og hún flyst til Reykja- víkur síðla árs 1949. Þau ganga í hjónaband 21. janúar 1950. Þeim varð ekki barna auðið. Þau hefja búskap á Rauðarár- stíg 5 og búa þröngt. Þar kom að nokkrir vinnufélaganna hjá Vegagerðinni bindast samtök- um og byggja raðhús við Laugalækinn. Þau Gertrud og Bjössi eru í þeim hópi. Þar eiga þau heimili meginhluta síns búskapar. Síðasta áratuginn eða svo áttu þau heimili á Klepps- vegi 120. Gertrud vann alltaf utan heimilis, lengst af hjá Kirkjusandi hf. í fiskvinnslunni og ávann sér viðurkenningar í starfsgreininni. Hún hélt heimili af miklum myndarskap. Oft þurfti Gertrud ab búa Bjössa að heim- an til lengri tíma og stundum án nokkurs fyrirvara, t.d. þegar hann þurfti í stórhríðarveðrum ab fara til hjálpar fólki sem sat fast í bílum sínum í byggð, en þó fremur á heiöum uppi. Gertrud vissi á stundinni hvað bóndi hennar þurfti í að klæð- ast og hvað af mat og aukafatn- aði. Það mun engum dyljast, sem til þekkja, að Gertrud ann- aðist bróður minn frábærlega vel. Af alhug skal það nú þakk- að hér með. Við þessi þáttaskil vottum við Stella þér samúð í sorg þinni, Gertrud. í vitund okkar geym- um við minningu um dreng- skaparmann. .....Jónas Einarsson ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.