Tíminn - 23.09.1994, Síða 3

Tíminn - 23.09.1994, Síða 3
Föstudagur 23. september 1994 Hnmm 3 Skattpíndir bifreibaeigendur hafa þegar greitt fyrir þœr vegabœtur sem Davíb áformar. FÍB: Skattagleöi Davíðs sætir mikilli furðu Á stjórnarfundi Félags ísl. bif- reibaeigenda í gær var harb- lega mótmælt framkomnum hugmyndum Davíbs Odds- sonar forsætisráóherra um aö auka skattlagningu á bifreiöa- eigendur meö því aö hækka bensíngjald um 3-4 krónur í tengslum viö auknar vega- framkvæmdir á næstu árum. Stjórnin fagnar hinsvegar áformum um auknar fram- kvæmdir í vegamálum. í ályktun stjórnarinnar segir m.a. aö reynsla af sköttum sé að þeir séu komnir til að vera og „því eru hugmyndir forsætis- ráöherra um aukna skatta furöulegar í ljósi þess aö þrátt fyrir kaupmáttarsamdrátt und- anliðinna ára, þá eru áætlaöar skatttekjur ríkissjóös af bifreið- um vísitölufjöldskyldunnar 10% hærri á þessu ári en þær voru á því síðasta." Stjórn FÍB bendir m.a. á að ef þessar skattahugmyndir forsæt- isráðherra nái fram að ganga muni þaö þýða 8% hækkun á útsöluverði á 92ja oktana be- sníni. Minnt er á aö tekjur ríkis- sjóðs af bifreiðum visitölufjöl- skyldunnar eru aö meðaltali um 173 þúsund krónur á hverja fjölskyldu á ári. Þá mun hluti þeirra fram- kvæmda sem forsætisráöherra hefur rætt um skila fljótlega rík- legum arði meö fækkun slysa, greiöari umferö og eldsneytis- sparnaði. Stjórn FÍB áréttar einnig aö samkvæmt lögum sé Vegasjóöi ætlað aö fjármagna vegagerð í landinu og til þess séu sjóönum markaðir ákveðnir tekjustofnar í formi bensín- gjalds og þungaskatts af díselbif- reiöum. Hinsvegar hafa for- svarsmenn ríkissjóðs ekki hikaö viö það á Iiðnum árum aö draga fé úr sjóönum til alls kyns óskyldra verkefna. Stjórn FÍB telur að þegar betur árar og verðþróun erlendis er hagstæö, þá eigi almenningur að fá að njóta þess í staö þess aö ríkisvaldiö misnoti aöstöðuna í sinni skattagleöi. En kostnaður heimilanna viö rekstur fjöl- skyldubílsins er meiri en kostn- aðurinn við matarinnkaup. Vitað er að bensínhækkun kemur strax við vasa þorra al- mennings og hefur keðjuverk- andi áhrif á aðrar skuldbindirig- ar. Sé litið á þær afleiðingar sem hækkun á útsöluveröi bensíns hefur, þá er eldsneyti um fjórð- ungur vísitölu bifreiðarinnar sem er tæpur fimmtungur af vísitölu framfærslukostnaðar. j Tímamynd CS Oson bæklingurinn í 20 þús. eintökum Þegar gengið er umhverfis bæklinginn kemur í Ijós eng- inn annar en Össur Skarp- héðinsson umhverfisráð- herra. Umhverfisráöuneytið og Hollustuvernd ríkisins hafa gefiö út þennan bæk- ling um ósonlagið og gróð- urhúsaáhrifin. Bæklingurinn er gefinn út í 20 þúsund eintökum og er ætlunin að dreifa honum í efstu bekkjum grunnskólans og einnig mun hann liggja frammi á heilsugæslustöðv- um, sjúkrahúsum og opinber- um þjónustustofnunum. Tól og tceki Pressunnar flutt í húnsnœbi Eintaks. Fribrik Fribriksson: Býst ekki við aö tapa á Pressunni Umhverfisráöuneyti fundar meö sveitarstjórnar- mönnum og fleirum: Kynnir starfsemi og SKipulag ráðuneytisins Umhverfisráöuneytið, rábherra og starfsfólk þess, mun á næst- unni funda meb forsvarsmönn- um sveitarstjórna, formönnum heilbrigbisnefnda, skipulags- nefnda, byggingarnefnda og náttúruverndanefnda, sem og starfsmönnum nefndanna. Ætlunin er að kynna fyrir þessum aðilum starfsemi og skipulag ráðu- neytisins og ræöa þá málaflokka sem varöa sveitarfélögin sérstak- lega. A fundum þessum veröur gefið yfirlit um starfsemina og upplýst hvar leita megi upplýsinga varð- andi umhverfismál og lýsa helstu áherslum í umhverfismálum á næstunni. Fundir hafa þegar verið haldnir á Vestfjörðum og Vesturlandi, en þann 26. september næstkomandi veröur fundaö á Selfossi, daginn eftir á Höfn í Hornafirði og í fram- haldi af því verða sveitarfélög ann- ars staöar á landinu heimsótt. ■ Kaffileikhúsið byrjar með „Sápu" Opnunarverk Kaffileikshúss- ins á komandi leikári verbur leikritib Sápa eftir Aubi Har- alds og verður þab frumsýnt föstudaginn 7.október næst- komandi. Alls verða sex verk sýnd fram að áramótum, en sýningar fara fram í Hlaðvarpanum. Um- hverfi leikhússins er mjög sér- stakt og fara sýningar allar fram á milli áhorfenda og þannig ku skapast náin tengsl á milli leik- ara og áhorfenda. Önnur verk sem sýnd verba til áramóta eru Alheimsleikhúsiö eftir Tennesse Williams undir leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur, Boðið í leikhús með Brynju undir leikstjórn Brynju Benediktsdóttur, Hug- leikur, Hókus Pókus og fíll í fó- kus og Skilaboð til Dimmu eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sýningar í Kaffileikhúsinu fara fram á fimmtudags-, föstudags-, og laugardagskvöldum. ■ Fribrik Friðriksson, eigandi Pressunnar, segist bjartsýnn á ab bera ekki fjárhagslegan skaða af útgáfu blaðsins, en útgáfu þess hefur verið hætt og þab sameinað Eintaki í nýju útgáfufélagi. Hann mun eiga 10% í nýja félaginu. Tvö fyrirtæki komu að útgáfu blaðsins undir það síðasta. Ann- ars vegar Birningur hf. sem sá um starfsmánnahald og hins vegar Pressan hf., sem sá um út- gáfumálin. Friðrik selur útgáfu- rétt, áhöld, tæki og annað til nýs útgáfufélags, sem yfirtekur Pressuna og Eintak. Hann segist vonast til að þeir fjármunir ásamt útistandandi viðskipta- kröfum dugi til þess aö gera reksturinn upp. Innanstokksmunir og tæki Pressunnar voru í gær flutt í húsnæði Eintaks á Vesturgötu. Nýja útgáfufélaginu, sem tekur við rekstri vikublaðanna beggja, hefur ekki verið gefiö nafn, en Friörik Fribríksson. ' hópur manna undir forystu Jó- hanns Óla Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Securitas, mun eiga um 70% hlutafjár. Aðrir eigendur eru Friörik Frið- riksson með 10%, Prentsmiðjan Oddi með 10% og Gunnar Smári Egilsson og eigendur Ein- taks verða með samtals 10%. Rætt er um að hlutafé verði 40 milljónir króna. Kristinn Albertsson, fjármála- stjóri Pressunnar, verður fram- kvæmdastjóri nýja útgáfufyrir- tækisins. Gunnar Smári Egils- son, ritstjóri Eintaks, verður annar ritstjóra nýja blaðsins. Karl Th. Birgisson, ritstjóri Pressunnar, fer alfarið yfir á tímaritið Heimsmynd, sem gef- ið er út af Friðriki Friðrikssyni. Hann haföi fyrir nokkru tekib við ritstjórn Heimsmyndar ásamt því að ritstýra Pressunni. Eftir því sem næst var komist í gær hafði nýtt hlutafélag um út- gáfuna ekki verið stofnað í gær, en nýtt blaö kemur væntanlega út tvisvar í viku til að byrja með. Hugmyndir eru uppi um útgáfu dagblaðs en það mun ekki verða fyrst um sinn. s Allt á subu innan Alþýbuflokksins vegna Cubmundar Arna: „Krabbameinið" Formabur Alþýbuflokksins ligg- ur nú undir feldi og reynir aö finna ráb vegna þeirrar gífurlegu gagnrýni sem Guömundur Árni Stefánsson félagsmálarábherra hefur fengiö á sig vegna embætt- isfærslna sinna, bæöi sem bæjar- stjóri Hafnarfjarbar og heil- brigbisrábherra. Ekki liggur fyrir hvort formaður- inn muni taka af skarið í máli varaformannsins en samkvæmt heimildum Tímans er lagt að hon- um innan flokksins aö taka málib föstum tökum. Mikill taugatitringur er innan Al- þýöuflokksins vegna málsins og eru margir flokksmenn undrandi á fálmkenndum svörum félagsmála- rábherrans og segja að málið hafi stigmagnast og náö hámarki eftir að skýrsla endurskoöendanna úr Reykjavík hafi verið birt. Flestir sem Tíminn ræddi við voru sam- mála um að mál Guðmundar Árna hafi smám saman magnast. Allt frá því að hann þábi fyrst biðlaun sem fyrrverandi bæjarstjóri Hafn- arfjarbar og til þess aö hann svar- abi skýrslu endurskoðendanna hafi svo mikið gengið á að nú sé nóg komið. Áhrifamaöur í Alþýðu- flokknum sem blaðið ræddi við í gær orbaöi þaö svo að í raun og veru ætti að vera hægt ab svara öll- um þessum ásökunum með ein- földum hætti, nema kannski rábn- ingu Björns Önundarsonar, en ráðherrann virtist vera farinn á breibist út taugum og ekki fær um að svara af yfirvegun. Annar lýsti þessu máli eins og krabbameini sem breiddist út meö miklum hraða og að for- maður flokksins yrði ab taka á málinu af festu. Af samtölum við Alþýbuflokks- menn síödegis í gær mátti rába að ummæli þeirra sjálfstæðisþing- manna, Egils Jónssonar og Björna Bjarnasonar í DV í gær, aö mál Guðmundar Árna væri komið á þaö stig að það skaöaði ríkisstjórn- ina í heild sinni, hafi verið eins og olía á eld. Ólíklegt er aö Björn Bjarnason, sem er þungavigtar- maöur í þingflokki Sjálfstæöis- flokksins, láti hafa eftir sér um- mæli af þessu tagi nema í samrábi viö forsætisráðherra. En formaöur Alþýðuflokksins ígrundar málib enn undir feldi og það er sennilega mest undir hon- um komiö hver verður pólitísk framtíö Guðmundar Árna Stefáns- sonar. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.