Tíminn - 23.09.1994, Qupperneq 4

Tíminn - 23.09.1994, Qupperneq 4
4 fiSnlTlwfHlulniiH WWfVWwT Föstudagur 23. september 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmiöja Frjálsrar fjölmiölunar hf. Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb ílausasölu 125 kr. m/vsk. Skammtaðar heimsfréttir Frétt um að íslensk kona hefði sloppið lifandi úr skot- árás í Líberíu kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Um nokkurt skeið hafa engar fregnir verið fluttar um átök í því landi, eða það linnulausa borgarastríð sem þar er háð. Það er aðeins þegar einum harðstjóranum tekst að yfirvinna annan eða herdeildir gera blóðugar uppreisn- ir og mannfall verður óvenjumikið, að heimspressan tekur við sér og Sendir fréttamannalið á vettvang. Þá er haldið uppi linnulausum fréttaflutningi um skeið og síðan er allt liðið flutt á einhvern annan stað þar sem „heimsfréttirnar" verða til. Það þarf einhver sérstök atvik, eins og að íslendingur komist í hann krappan, til að styrjaldarástand þyki fréttnæmt. í öðrum löndum hefur enginn áhuga á hvort íslensk kona sleppur eða ekki í hernaðarárás. Ekki fremur en íslenskir fjölmiðlar eru ekkert að taka það fram af hvaða þjóðerni gæsluliðar, sem voru samferða konunni og voru felldir, voru. Svona er fréttaflutningur afstæður. Menn halda sig vera að fylgjast með hvað fram fer í veröldinni með því að láta ekki daglegt fréttaflóð fram hjá sér fara, en var- ast ekki ab oft er það nánast tilviljunum háð hvað kemst til skila af öllum þeim atburðum sem eiga sér stað samtímis. Viðureign Bandaríkjamanna við harðstjórana á Haítí er mjög spennandi þessa dagana. Um daginn voru þab flóttamenn frá Kúbu og ástandið þar sem föngubu at- hyglina. Einu sinni var það E1 Salvador, sem nú er gleymt og grafið undir fréttaflaumi, þá Níkaragva og Panama eða Kólombía og svona má lengi telja. Einstök Balkanlönd eru mikið fréttaefni um skeib. Sómalía fyllti alla fréttatíma í fyrra. Hvað skyldu marg- ir vita hvernig ástatt er þar núna, hvort landiö er enn hersetið eða hver ræður þar ríkjum? Rúanda og Búrúndí og þeir hörmungaratburðir, sem þar eiga sér stað, fylltu fréttatíma fyrir skemmstu. Nú eru fréttamenn farnir þaðan með sjónvarpsmyndavélar sínar til ab búa til heimsfréttir annars staðar. Langvarandi borgarastyrjöld og hrannvíg í Súdan hafa nær aldrei komist inn á landakort fréttamanna og blób- ugir bardagar í Subur-Afríku eru ekki fréttaefni í öbrum heimshornum eftir forsetaskiptin fyrr á árinu. í Afganistan er barist af meiri heift en nokkru sinni fyrr, og borgir og bæir nánast rústir einar. En utan landamæranna hefur varla nokkur sála áhuga á hvað þar fer fram, eftir að þáverandi heimsveldi drógu sig út úr stríðinu. Það er heldur einföld heimsmynd, sem haldiö er að fréttaneytendum, og auðvelt er að færa rök að því að hún sé bæði rétt og röng. Hún er röng að því leyti að þegar einblínt er um of á einstakt óheillasvæbi, gefst ekki ráðrúm né tími til að fylgjast með fréttnæmum at- burðum á öðrum stöðum. Það er eins og svokallaðar heimsfréttir eigi sér aðeins stað á takmörkuðu svæði hverju sinni. En þessi brenglaða heimsmynd er rétt að því marki að ár og síð er veriö að berjast víða um heim. Styrjaldir geisa innan ríkja og milli þeirra. Réttindi þjóðabrota og mannréttindi yfirleitt eru fótum trobin og lýbræbi og mannhelgi heyrir til undantekninga meðal þjóðanna. Af fréttaflaumnum, hvaba dóm sem annars er á hann lagður, má þó öllum vera ljóst ab friður og frelsi er ekki sjálfgefið og að lýðréttindi eru ekki fengin í eitt skipti fyrir öll. Deilumál verða aldrei leyst, svo viðhlítandi sé, nema meb samningum. Sáub þib hvernig ég tók'ann? Garra létti stórlega þegar hann sá Alþýbublaðið sitt í gær, vegna þess að þar kom í ljós að Smugu- deilan er nú í góðum höndum og óþarfi að hafa áhyggjur af því ab það mál leysist ekki farsæl- lega. Alþýðublaðið birti hálf- síðumynd af ástsælum leiðtoga sínum, Jóni Baldvini, á forsíðu, ásamt tilvitnun í hann þar sem hann segir: „Við Kozyrev ákváb- um að leysa Smugudeiluna með samningum!" Þá er það á-kve-b- ið, sögðu þeir Kasper, Jesper og Jónatan í Kardemommubænum og eitthvab svipaö hefur það trúlega hljómað hjá þeim utan- ríkisráðherrum og stórmennum Jóni Baldvini, utanríkisráðherra íslenska heimsveldisins, og Andrei Kozyrev, utanríkisráð- herra rússneska stórveldisins, þegar þeir hittust í Tromsö á dögunum á fundi Barentsráðs- ins. Jón II Sung Garri er eiginlega sammála þeim tón og þeirri virðingu, sem einkennir umfjöllun Al- þýðublaðsins um Jón Baldvin. Einhvern veginn skín það svo í gegn, að Jón er hin ástsæli leiö- togi blaðsins — einskonar Kim II Sung þess. Og hvernig er líka hægt annaö en dást að manni, sem leysir stórkostleg, flókin al- þjóðleg deilumál með því ein- faldlega að skjóta á fundi meb öðrum helstu stórmennum samtímans og afgreiða hlutina. Það eina, sem heldur dregur úr gleðinni, er ab slíkur alþjóbleg- ur samningamaður og einhver mesti stjórnmálamaður í Evr- ópu frá stríðslokum skuli sitja uppi með slíka smáþjób kot- unga, sem ekkert kann eba get- ur — og kann síst allra ab meta þá gubsgjöf sem stjórnmála- maður á borð við Jón Baldvin er. Hvað ætli það séu margir ís- lenskir stjórnmálamenn, sem geta komið fram í Alþýðublað- inu, barið sér á brjóst og sagt: „Við Kozyrev ákváðum ab leysa Smugudeiluna meb samning- um"? Þeir væru varla heldur mjög margir, erlendir stjórn- málamenn sem gætu gefib slík- GARRI ar yfirlýsingar í Alþýðublöð heimsins, a.m.k. ekki í Noregi þar sem engir almennilegir samningamenn finnast, eins og Jón Baldvin hefur raunar bent á áður í öbru samhengi — þegar hann talaði um að hann myndi geta náð miklu betri sjávarút- vegssamningi vib ESB en norsku pólitíkusarnir og embættis- mennirnir. Mikilmenni hjá kot- ungaþjóð Víst er það rétt að Jón Baldvin er trúlega allt of mikilfenglegur stjórnmálamaður fyrir kotunga- þjóðina hér uppi á íslandi, og spurning hvort íslendingar munu færa heimsbyggöinni Jón Baldvin að gjöf. Við gefum hvort sem er aldrei neinum neitt, hvorki í þróunaraðstoö né annað, og stórþjóðir heims og þjóðabandalög ýmis myndu ef- laust fagna því að fá þennan mikilhæfa stjórnmála- og samn- ingamann í sínar raðir. Það er hins vegar fullkomin sóun að halda honum hér meðal kot- unganna, sem snúa öllu upp í andhverfu sína, eins og sést best á viðbrögðum manna við yfir- lýsingunni á forsíðu Alþýðu- blabsins. í stab þess að falla í stafi yfir Jóni „dipló", þegar hann segir „Við Kozyrev ákváb- um að leysa Smugudeiluna með samningum!" og ákveður það í hvelli að leysa Smugudeiluna, brosir kotungaþjóðin út í annað og muldrar eitthvab um Jón sterka í Skuggasveini: „Sáuð þið hvernig ég tók 'ann, drengir?" Garri Klyfjar bundnar á einn... Ég er ekki einn um það ab hlýða undrandi á fréttir af ástandinu í Alþýðuflokknum. Ég hef hitt margt fólk að máli undanfarna daga og því er það öllu sameig- inlegt að það hefur máls á mál- efnum Alþýðuflokksins og segir að nú gusti aldeilis um Jón Bald- vin. Svo hristir þab höfuðið undrandi yfir framhaldinu. Ferill rábningarmálanna í Al- þýðuflokknum er orðinn langur og skrautlegur. Þetta er áreiðan- lega farið að valda flokksforust- unni áhyggjum, ofan á abrar hremmingar. Fyrir mér horfa þessi mál þannig, ab vegna þess að ferill Guðmundar Árna er glannalegastur þá á að fórna honum, til þess að annað falli í skuggann. Þessi abför hlýtur að vera skipulögð innan flokksins. Óstarfhæfur flokkur Við framsóknarmenn höfum haft þann háttinn á, að útkljá okkar mál innan flokksins. Mér finnst sú tilhdgsun dálítið ab- súrd í okkar flokki, ef aðstoðar- mabur rábherra flokksins hefði gengist fyrir því í flokksfélagi sínu að fá ályktun samþykkta varðandi annan ráðherra flokksins á borð við þá sem frjálslyndir jafnaðarmenn sam- þykktu. Það er dagljóst að flokkur þar sem svona er komið er algjör- lega óstarfhæfur í stjórn lands- ins. Allir kraftar flokksmanna, Á víbavangi þingmanna og flokksforustunn- ar fara í umræður og bollalegg- ingar um klofning og nýjar uppákomur. Hræsni sjálfstæbis- manna Sjálfstæðisflokkurinn ber síðan fulla ábyrö á öllu saman, og er hræsni þeirra mjög athyglis- verb. Forsætisráðherra og menntamálaráðherra þess flokks sitja uppi með dæma- lausa embættaveitingu þar sem maður, sem rekinn hafði verið frá störfum vegna samstarfsörð- ugleika vib starfsfólk og yfir- menn, var ráðinn aftur sem framkvæmdastjóri sömu stofn- unar. Nú lítur út fyrir ab það eigi að hengja allar syndir á Guðmund Árna, og sjálfstæðismenn halda varla vatni fyrir hneykslun og hinir krataráðherrarnir ætla að þvo hendur sínar líkt og Pílatus forðum. Klyfjar á „einn asna" Allur þessi atgangur minnir mig á þegar ég var í Samvinnu- skólanum í gamla daga. Þá var farin námsferö til Akureyrar. Ýmsir duttu í þab í þeirri ferð, en einn var verri en hinir. Þegar heim kom hugðist skólastjórinn reka hann, og man ég eftir að við skólasystkinin vorum hugsi yfir málinu. Ég hygg að ein- hverjir. hafi ljóstrað því upp við skólastjórann að það kynnu að finnast fleiri sem væru ekki al- saklausir. Séra Guðmundur Sveinsson, sá vitri skólamaður, hugsaði ráð sitt, kallaði síðan nemendur saman og sagði það ekki duga ab binda allar klyfj- arnar á einn asna og senda hann út í eyöimörkina. Mér sýnist að nú eigi að binda allar klyfjar embættaveitinga og umdeildra stjórnarathafna á Guðmund Árna og senda hann út í eyðimörkina. Það á að draga athyglina frá öbru sem kynni ab vera í pokahorninu, ef nánar er skoðað. fón Kr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.