Tíminn - 23.09.1994, Síða 6
6
Matthías H. Gubmundsson,
framkvœmdastjóri Ágætis,
og Abalsteinn Gubmunds-
son, tager- og gœbastjóri,
meb lífrœnt rœktab grœn-
meti úr Mýrdalnum.
Lífrœnt rœktaba
grœnmetijb úr
Mýrdalnum:
í stórmarkabi fyrir helgi
Lífrænt ræktab grænmeti, merkt
meb merki vottunarstofunnar
Soil Association, verbur senni-
lega komib í hiliur stórmarkaba
fyrir helgina.
Matthías H. Gubmundsson,
framkvæmdastjóri Ágætis, segir
markabssetningu grænmetisins
ganga nokkub vel, en rólega fyrir
sig. „Kaupmenn þurfa aö hafa sér-
stakt pláss fyrir lífrænt ræktaða
grænmetiö þar sem hægt er að
merkja það á áberandi hátt. Ég
býst við að stórmarkaðirnir verði
fyrstir til að taka grænmetið í sölu,
og það verði komið í hillur þeirra
núna fyrir helgi." Matthías segir
að lífræna grænmetið veröi á svip-
uöu verði og annaö grænmeti til
aö byrja með, en til lengri tíma lit-
ið verði að koma í ljós hvað neyt-
endur séu tilbúnir að borga fyrir
það. Hann segir að merki Soil As-
sociation verði kynnt í auglýsing-
um og auk þess verði það áberandi
í verslunum sem selja grænmetið,
þannig að það ætti ekki að vefjast Lífrænt ræktaða grænmetið, sem
fyrir fólki að þekkja lífræna græn- Ágæti hefur til sölu, er allt ræktað
metið frá öðru. í Mýrdalnum.
Hvernig væri ab spara
einkabílinn og nota al
menningsfarartæki
þess í staö?
Skilabob
Kríunnar
Föstudagur 23. september 1994
Námsgagnastofnun gefur út bók um lífríkib á landi,
prýdda fjölda fallegra Ijósmynda.
Þorvaldur Örn Arnason:
„Svona bók er
tuttugu ára gam-
all draumur"
Út er komin á vegum Náms-
gagnastofnunar bókin Líf-
ríkib á landi. Bókin, sem er
vöndub og prýdd fjölda lit-
mynda, er einkum ætlub 11-
12 ára nemendum í náttúru-
fræbi.
Þorvaldur Örn Árnason, einn
höfunda bókarinnar, segir að
það sé búinn að vera 20 ára
draumur að gefa út bók með
þessu námsefni.
„Það eru tuttugu ár síðan
gerb var í menntamálaráöu-
neytinu áætlun urri ab gefa út
námsefni, sem mebal annars
þetta námsefni væri hluti af.
Þaö átti aö vera flokkur um líf-
ríkiö á íslandi: eitt um lífríkið
á landi, eitt um lífríkið í vatni
og eitt um lífríkið í sjó. Það
voru gefnar út bráðabirgðaút-
gáfur um lífríkið í vatni og í
sjó. Þessi bók komst aldrei al-
mennilega á legg og önnur
verkefni látin ganga fyrir. En
nú er hún komin út, eftir að
hafa verið í vinnslu í fimm
ár," segir Þorvaldur Örn.
Bókin fjallar um íslenskar
plöntur, fugla, villt spendýr og
skordýr. Inn í efniö fléttast svo
ljóð og ýmis þjóðlegur fróð-
leikur. Þótt bókin sé gefin út
sem námsbók fyrir ákveðinn
aldurshóp, þá geymir hún
upplýsingar sem allir aldurs-
hópar geta haft bæði gagn og
gaman af. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Námsgagnastofnun,
hefur bókin selst mjög vel eftir
að hún kom út.
Höfundar bókarinnar eru þau
Edda Eiríksdóttir, Jenný Karls-
dóttir, Þórey Ketilsdóttir og
Þorvaldur Örn Árnason.
I. Jarðarbúar, einkum þó fræðimenn,
fylgdust með óvenjulegum atburðum á
Júpíter nú í júlí síðastliðnum. Þá rigndi
fjöllum á þessari stærstu reikistjörnu sól-
kerfisins. Tuttugu og eitt brot úr hala-
stjörnunni Shoemaker-Levy 9 lentu í
firnaþykkum lofthjúpi plánetunnar. Meg-
inefni hennar eru vetni og helíum í loft-
kenndu eða fljótandi formi (að slepptum
litlum kjarna úr föstu efni). Árekstramir
voru fyrirsjáanlegir og náðust margvísleg-
UM-
HVERFI
Ari Trausti
Guömundsson
jarbeblisfræbingur
ar myndir af atburbinum, auk þess sem
mælitæki beindust að Júpíter, bæbi á
jörðu nibri og úti í geimnum.
II. Árekstur Shoemaker-Levy 9- brot-
anna framkölluðu ofsalega sprengiblossa
þegar þau þutu á 200.000 km hraöa á
klukkustund inn í þéttan lofthjúpinn.
Brotin hitnuðu örskjótt og sprungu á
a.m.k. 50 km dýpi í efstu loftlögum plán-
etunnar. Orkan í hverri sprengingunni á
fætur annarri samsvaraði orku mörg þús-
und kjarnasprengja og þeyttust efni úr
lofthjúp Júpíters hátt upp, m.a. brenni-
steinssambönd. Þeirra hafa menn leitað
lengi til að skýra sumar af marglitum
röndum Júpíters. Reyndar eru aöeins vís-
bendingar um að brennisteinn sé meðal
efnanna í sprengistrókunum, því mestöll
rannsóknarvinnan er rétt um það bil aö
hefjast og margir mánuðir líða þar til
helstu niðurstöður verða ljósar. Ýmislegt
er á huldu, meira að segja eöli brotanna
tuttugu og eins. Eitt og annað bendir til að
þau hafi verið úr bergi, en ekki hala-
stjörnuefni.
III. Halastjörnur eru úr ís, sem inni-
heldur vatn, koldíoxíb og fleira, en auk
þess úr grjótmolum og ryki. Þær eru eins
konar ógnarstórir, skítugir snjóboltar. At-
huganir á árekstursstööunum
á Júpíter sýna aö þar losnaði hvorki
kolefni né súrefni, eins og viö má búast
þegar halastjörnubrot gufar upp. Stór
klettur eða fjall, sem fellur ofan í hít Júpít-
ers, þeytir upp efnum úr lofthjúpi plánet-
unnar, en sekkur sjálft djúpt niöur áður en
þaö sundrast. Væntanlega tekst fræði-
mönnunum ab ráða fram úr þessu. Þeir
þurfa einnig að útskýra af hverju blettirn-
ir, sem urðu til í skýjamekki Júpíters við
árekstrana, eru jafn dökkir og raun ber
vitni, hvort þrýstibylgjur, sem mynduöust
í iofthjúpnum við árekstrana, geti sagt
eitthvab um innvibi plánetunnar og hvort
vindakerfi lofthjúpsins hafi raskast. Auk
alls þessa getur vel verið ab minni brot
rekist á Júpíter í kjölfar þeirra stóru.
IV. Sjónarspilið á Júpíter hefur óhjá-
kvæmilega vakið upp spurningar um
árekstur risaloftsteins eða halastjörnu á
jörðu. Gífurlegar flóðöldur, sprengihögg
líkt og risahendi sópaði jörðu, þykkur ryk-
hjúpur til fjölda ára og margt fleira kynni
að gjörbylta lífríki og lífsskilyröum á jörö-
inni, þótt aðeins eitt af stóru brotunum úr
Shoemaker-Levy 9 hefði rekist á okkar
plánetu í staö Júpíters. Og slíkt hefur gerst
í jarðsögunni. Um það vitna loftsteinagíg-
ar og menjar í jarðlögum. Brautir a.m.k.
2000 stórra fyrirbæra skera braut jarðar
um sólu, öll hættuleg ef af árekstri yröi.
Árið 1989 þaut nærri eins kílómetra lang-
ur loftsteinn framhjá jörðu í aðeins
725.000 km fjarlægð (um tvöföld fjarlægð
tunglsins). Ekki er víst að öflug kjarna-
sprengja dygði til að beina flikkjum sem
þessu af árekstursleið. Unnið er að því að
kortleggja brautir sem flestra hættulegra
„himnasendinga". ■