Tíminn - 17.12.1994, Blaðsíða 12

Tíminn - 17.12.1994, Blaðsíða 12
12 '-ffdr4r rfr íV-ff iTi'fi' HnfSigMÍffiBFKu Laugardagur 17. desember 1994 Laugardagur 17. desember 1994 'Sf TWTVWW 13 ORÐSENDING TIL TÉKKAREIKNINGSEIGENDA OG VIÐTAKENDA TÉKKA Um næstu áramót falla öll Bankakort úr gildi Eins og fram kom í kynningu á Debetkortum fyrr á þessu ári var ákveðið að tékkaábyrgð Bankakorta félli úr gildi um þessi áramót. Jafnframt verður ekki hægt að nota Bankakort í Hraðbönkum frá sama tíma. Debetkortin taka við hlutverki Bankakortanna um áramótin og verða þau framvegis hin nýju tékkaábyrgðarkort og hraðbankakort. Þetta á einnig við um viðskiptavini íslandsbanka, þó hann hafi ekki gefið út Bankakort áður. Nauðsynlegt er að framvísa Debetkorti við greiðslu með tékka til að tékkaábyrgð banka og sparisjóða gildi. Tékkaábyrgðin gildir um tékka sem eru að fjárhæð 10.000 kr. eða lægri. Nú þegar hefur stór hluti tékkareikningseigenda, eða um 85 þúsund einstaklingar, fengið Debetkort. Sölu- og þjónustuaðilar hér á landi, sem taka við Debetkortum, eru um 2.500. Mundu að hafa Debetkortið ávallt meðferðis þegar þú greiðir með tékka. debet kort FJÖGUK KORT I EINU BUNAÐARBANKI ÍSLANDS ÍSLANDSBANKI L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna n SPARISJÓÐIRNIR Símanúmerib er 631631 Faxnúmerib er 16270 rinitfuÍA nied J ehci nliftetui) / oa ^\arcune((u i /^ÍAÍuóuin (fjiftijii loris Örsögur Friöriks Þórs: Út er komin hjá Máli og menningu bók með því friðsæla nafni Vor í dal, örsögur Friðriks Þörs Friðrikssonar, skráðar af Árna Óskarssyni og myndskreyttar af Guðmundi Thoroddsen. Flestar eru þess- ar sögur örstuttar og margar bráð- skemmtilegar. Dæmi úr bókinni: „Þegar við gerðum Skytturnar þurftum við mikið á aðstoð lögreglunnar að halda. Meðal annars fengum við lánaða búninga á átta lögregluþjóna. Þeir voru notaðir í senum sem teknar voru eftir að skyggja tók í september 1986. Lögreglu- liðið samanstóð af leikmönnum úr knattspyrnuliöinu Árvakri. Eitt kvöldið tók þeim að leiðast og fengu að hlýja sér við langbar í Duushúsi. Eitthvað virðist veitingamanninum hafa þótt það óþægi- legt að sjá átta lögreglumenn þjórandi í röð við barinn því aö hann hringdi um- svifalaust upp á lögreglustöð og klagaði þessa drykkfelldu ríkisstarfsmenn." Og sagan um boxhanskana: „Sem kunnugt er hafa hnefaleikar ver- ið bannaðir á Islandi í marga áratugi. Á æskuárum mínum bar það til einhverju sinni aö bróðir Jóns Eiríkssonar vinar míns sem var í siglingum færði honum boxhanska að gjöf. Þetta vakti að von- um mikla hrifningu í Vogunum. Var boxað á þann hátt að menn fengu einn boxhanska og síöan giltu almennar hnefaleikareglur nema aðeins var slegið með annarri hendinni. Jonni þótti af- burða boxari. Við sömu götu og hann bjuggu tvíburabræðurnir Haukur og Hörður sem nú eru þekktir myndlistar- menn. Þeir voru á þessum árum frum- kvöölar í júdó og þorðu fáir að etja við þá kappi. Það bar til einhverju sinni í dumbungsveðri að Haukur vildi endi- lega boxa við Jón. Jón var tregur til en lét þó loks til leiðast. Boxa þeir um hríð þar til Jón kemur bylmingshöggi á Hauk svo að hann rotast. Hörður var þá á gangi með móður sinni í Austurstræti og rotaðist einnig á sama andartaki." Og loks ein um þá frægu bíómynd, Hringveginn: „Á frumsýningu á mynd minni Hringnum mætti Sigríður Bjarnadóttir frá Vogi, þá á níræðisaldri. Eftir að myndinni Iauk gekk hún til mín og þakkaði mér fyrir að hafa gefið sér tæki- færi til þess aö ferðast um Austfirði en þangað hafði hún aldrei komið." \ Alfabakka 16,109 Reykjavík, sími 5671700 RAÐGREIÐSLUR TIL 24 MÁNAÐA RAÐGREIÐSLUR VISA hafa reynst afar örugg og vinsæl leiö til greiðsludreifingar vegna kaupa á dýrari munum, svo sem húsbúnaði, heimilistækjum, innréttingum og jafnvel bifreiðum. Með RAÐGREIÐSLUM VISA getur þú jafnað út greiðslubyrði þinni á þægilegan og ódýran hátt á allt að 24 mánuði eftir því sem þú hefur þörf fyrir og söluaðili samþykkir. ^ INNKA UPA TR YGGING og framlengdur ábyrgðartími búnaðar og tækja. Láttu RAÐGREIÐSLUR VISA létta þér róðurinn... ...OG ÓSKIN RÆTIST!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.