Tíminn - 17.12.1994, Blaðsíða 1
SIMI 631600
Brautarholti 1
STOFNAÐUR 1917
78. árgangur
Laugardagur 17. desember 1994
239. tölublaö 1994
Ingvar Helgason hefur ákveöib oð gefa ekki út sitt
árlega almanak í ár:
Gefur þurf-
andi 300
hangikjötslæri
Ingvar Helgason hf. hefur
ákveöiö aö færa Mæörastyrks-
nefnd 300 hangikjötslæri aö
gjöf, sem ætlaö er til dreifing-
ar til bágstaddra fjölskyldna í
jólamatinn. Aö sögn Guölaug-
ar Runólfsdóttur, fram-
kvæmdastjóra mæörastyrks-
nefndar, er hér um gríbarlega
gott framtak aö ræba sem Ing-
var Helgason eigi bestu þakkir
skildar fyrir.
Á undanförnum árum hefur
Ingvar Helgason hf. gefið út
dagatal í sex þúsund eintökum
sem dreift hefur verið til við-
skiptavina, en á stjórnarfundi
fyrirtækisins á dögunum var
ákveðið að gera breytingu á.
Þess í stað var ákveðið að gefa
sambærilega fjárhæð til mæðra-
styrksnefndar og voru keypt fyr-
ir hana 300 hangikjötslæri.
„Það hefur komið fram að það
eru talsvert meiri vandræði hjá
mörgum fjölskyldum í landinu í
dag en ábur og okkur fannst, að
í staö þess að gefa almanök sem
nýttust á misjafnan hátt, þá
kæmi kjötgjöfin sér betur fyrir
alla aðila. Þetta kemur sér vel
fyrir þá sem þiggja kjötib og
einnig vel fyrir bændur sem
selja þar með sínar afurðir,"
sagði Ingvar Helgason í samtali
viö Tímann.
Hvab varðar framhald þessa
framtaks segir Ingvar að ef þeir
finni fyrir almennri ánægju með
Athuga-
semd við
Kínaför
Átta alþingismenn munu
sækja Kína heim í bobi stjórn-
valda þar í landi. Athygli vek-
ur ab í þaö minnsta sex þing-
mannanna eru aö hætta þing-
störfum nú í vor, — tveir eiga
von, en aöeins veika von, um
aö ná endurkjöri.
Tíminn hefur frétt ab boðs-
ferðin hafi verib rædd í forsæt-
isnefnd þingsins og að Guðrún
Helgadóttir hafi gert athuga-
semd vib ferbalagið og talið að
ferb sem þessi nýttist hvorki
Kínverjum né íslendingum.
Sérfróður maður í utanríkis-
þjónustunni sagði að þetta væri
rétt mat hjá Guðrúnu. „Kín-
verjar vilja ekki efna til skyndi-
kynna, þeir vilja kynnast fram-
tíðarfólki á Alþingi," sagbi þessi
maöur. ■
þetta hjá viðskiptavinum sín-
um, þá komi til greina að gera
þetta á ný að ári, en þó sé enn of
snemmt ab segja til um það.
„Þab má kannski ekki gleyma
því að þrátt fyrir ab formlega sé-
um við að gefa kjötið nú, þá eru
það í raun viöskiptavinir okkar
sem eru að gefa. í stað almanaks-
ins sem þeir hefðu ella fengiö,
þá er gefið kjöt til bágstaddra
fyrir andvirbið," segir Ingvar.
Guðlaug Runólfsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri mæbrastyrks-
nefndar, var mjög ánægð með
gjöfina. „Mér finnst þetta ákaf-
lega fallega hugsað og mættu
fleiri taka til eftirbreytni. Þetta
er frábært framtak." ■
Ingvar Helgason hefur ákvebib ab gefa Mœbrastyrksnefnd 300 hangikjötslœri.
Tímamynd G S
Fá ráöherrar ekki einungis lífeyri sinn allan úr ríkissjóöi framvegis, heldur skattalœkkun þar aö auki?
Fá 260% hærri endurgreiðslu
heldur en þeir greiða í skatt
Fyrir meðalráðherrann (og
ýmsa abra „séra Jóna" í lands-
ins) þýbir „afnám tvísköttun-
ar", að hann fær skattinn sinn
lækkaöan um 260% hærri
upphæö heldur en hann
nokkurn tíma greiddi í skatta
af lífeyrissjóösiögjöldunum
sínum. Fjármálaráöherra ætl-
ar þannig aö færa sér og stétt-
arbræörum sínum vænan
„jólapakka".
Verði „tvísköttunarfrumvarp-
ið" hans samþykkt fá þeir ekki
aðeins endurgreidd öll þau ið-
gjöld sem þeir hafa borgað í líf-
eyrissjóðinn sinn, heldur 50%
hærri upphæð. Framvegis borg-
ar ríkissjóður þá allan lífeyri
ráðherra og gefur þeim síðan
góba skattalækkun aö auki sem
viðbótarmeölag. Þingmenn
verða hins vegar að láta sér
nægja að fá iögjöldin sín nokk-
urn vegin endurgreidd án með-
gjafar.
Samkvæmt greinargerð ASÍ
fengu (24) fyrrverandi ráðherrar
636.000 króna meðalgreiðslu úr
Lífeyrissjóði ráðherra í fyrra. Þar
af námu eigin iðgjaldagreiðslur
26.700 krónum (4,2%). En út á
það eiga þeir nú að fá, sam-
kvæmt frumvarpi fjármálaráð-
herra, 95.400 króna skattafrá-
drátt — sem þýðir 40.000 kr.
skattalækkun — þ.e. 13.300
hærri upphæð en iðgjöldin sem
þeir greiddu í lífeyrissjóðinn.
Fyrrverandi rábherrar eru
jafnan fyrrverandi alþingis-
menn og fá því líka lífeyri úr Líf-
eyrissjóði alþingismanna. Með-
allífeyrir til (112) fyrrverandi
þingmanna var 902 þúsund
krónur í fyrra. Þar af nam hlutur
þeirra eigin iðgjaldagreibslna
60.400 krónum. M.v. fmmvarp-
ið fær meðalþingmaðurinn
135.000 kr. skattafrádrátt. Það
færir honum 56.600 kr. skatta-
lækkun, eða litlu lægri upphæb
en nemur ibgjöldum sem hann
greiddi í lífeyrissjóðinn. Meðal-
ráðherrann fær þannig um
1.540.000 kr. lífeyri úr sjóðun-
um sínum á ári, hvar af hans
eigin iðgjaldagreiðslur nema
87.100 krónum. Út á það ætlar
fjármálaráðherra að færa hon-
um 96.500 kr. skattalækkun á
ári — þ.e. 165% hærri upphæð
heldur en greiddir skattar af ib-
gjöldunum í sjóðinn.
Lífeyrisgreiðslur SAL-sjóð-
anna (til um 12.800 sjóbfélaga)
námu um 145.000 kr. að meðal-
tali á síðasta ári (9% af lífeyri
ráðherra). Þar af námu iðgjöld
sjóðfélaga sjálfra um 25.200
krónum. SAL-félaginn fær þó
aðeins tæplega 22 þúsund króna
skattafrádrátt — sem þýðir að
skatturinn hans lækkar um
9.100 krónur á ári.
Afnám „tvísköttunar" lífeyris-
sjóðsibgjalda kostar ríkissjóð
þannig 960% meira vegna meb-
alráðherra heldur en meðal SAL-
félaga. ■
Davíö Oddsson í viötali viö
Tímann:
Ingimundur
yröi góöur
sendiherra
í viötali viö Tímann í dag kem-
ur fram aö DavíÖ Oddsson tel-
ur aö Ingimundur Sigfússon í
Heklu yröi veröugur sendiherra
í Bonn. Forsœtisráöherra segir
einnig í vitalinu aö utanríkis-
ráöherra hafi algerlega skipt
um skoöun í Evrópumálum án
þess aö nokkuö hafí í raun
breyst.
Sjá blabsíbur 8 og 9
Davíb Oddsson, forsœtisrábherra.
Tímamynd: CS