Tíminn - 28.12.1994, Síða 2

Tíminn - 28.12.1994, Síða 2
2 Mi&vikudagur 28. desember 1994 Tíminn spyr,.. Tekst a& afgrei&a fylgifrumvörp fjárlaga fyrir áramót? Bryndís Schram segir aö sér líöi eins og ómaga eftir aö sjónvarpiö greindi frá dagpeninga- greiöslum til hennar, — mál hennar heitt í umrœöunni og bar meöal annars á góma í stól- rceöu hjá séra Pálma Matthíassyni — Dagpeningaumrœöan í algleymingi: Frúr ráðherra fá greitt sam- kvæmt 3 ára gömlum reglum Omagi Í9 i FRÉTTUM ...“Ur,Cm,ral!C ■ ' kvöld þá up kosta feröa man Sj^SEVS r Kfinglan sem framfyrir uv/.. Si™'69lloo# Síait mið- \>cir. Finnur Ingólfsson, forma&ur þingflokks Framsóknar- flokksins. „Ég tel aö það geti tekist með þingfundum í dag (þriðjudag), miðvikudag og fimmtudag. Það er mögulegt að ljúka þessari vinnu á fimmtudagskvöld, en þá er ég einungis aö tala um fylgifrumvarp fjárlaganna, þ.e.a.s. lánsfjárlög, skattafrum- vörpin og ráðstafanir í ríkisfjár- málum." Kristín Ástgeirsdóttir, for- ma&ur þingflokks Kvenna- lista. „Það er býsna óljóst á þessari stundu. í lánsfjárlögunum, skattalögunum og lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum er ýmislegt sem við viljum fella niður eða breyta. Þessi mál voru algerlega órædd fyrir jól, en ég vona svo sannarlega aö það takist að afgreiða þau. Framundan er mikið verk að vinna og við þurfum að koma okkur í undirbúning kosninga- baráttu." Jóhann Ársælsson, Alþý&u- bandalagi. „Ef við erum aö tala um fylgi- frumvörp fjárlaga ein og sér met ég það þannig að það tak- ist. Þetta er ekki það mikið sem eftir er. Viö erum að tala um þrjú frumvörp, lánsfjárlög, skattalagafrumvarpiö og band- orminn. Ég held að það takist að afgreiða þessi mál fyrir helg- ina, þó að ég treysti mér ekki til þess að segja nákvæmlega upp á stund eða dagpart hvenær það verður." Bréf Bryndísar Schram, utanríkis- ráðherrafrúar, sem Morgunblaðið birti á aðfangadag hefur vakið mikla athygli. í bréfi sínu, sem ber yfirskriftina Ómagi? ræðir Bryndís um dagpeningagreiðslur sem hún hefur notið reglum sam- kvæmt, og greinir frá þeirri vinnu sem því fylgir að vera utanríkis- ráðherrafrú. Málið er greinilega heitt og bar mjög á góma í jóla- boðum landsmanna. Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bú- staðasókn, kom að þessu máli í hátíðaræðu sinni á jóladag. Sr. Pálmi, — öfund eða pólitík? „Ég talaði um að fólk væri of fúst til að fella dóma. Mér finnst oft á tíðum að fólk sé allt of fljótt að dæma í ýmsum málum, en þá spyr enginn hvort fólk hafi gert eitthvað sér til ágætis. Það viröist ekki hljóma með. Þessu kann ým- islegt að ráða, til dæmis pólitík eða þá öfundin, sem er undirrót margs ills, eða þá einhver önnur aflokuö viðhorf," sagði séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bú- staðaprestakalli, í samtali við Tímann í gær. Bryndís: Líöur eins og ómaga Bryndís segir í grein sinni að eftir þá umfjöllun sem hún og hennar persóna hafa fengið í fréttum sjónvarps varöandi dag- peningagreiðslur líði sér eins og ómaga, eins og hún væri baggi á þjóðfélaginu. Hún segist ekki vilja vera ölmusukona og vilji hún þvf gera hreint fyrir sínum dyrum. Segir Bryndís að á árinu sem er að líða hafi hún haldið 37 gestaboð í nafni utanríkisráðu- neytisins, þar af 16 í sínu eigin húsi. Hún hafi samið og flutt ræð- ur á mörgum tungumálum og lagt sig fram um að sinna skyld- um sínum af alúð og með gleði. Reiknast Bryndísi til að sam- kvæmt töxtum stéttarfélags síns sem verktaki og miðað við sama stundafjölda og þeir sem með henni hafi unnið, matreiðslu- og framreiðslufólki, þá ætti hún inni ógreidd laun hjá ríkinu að upp- hæð 370 þúsund krónur. Auk þess gæti hún krafið ríkið um leigu- gjöld fyrir afnot af stofu sinni og reiknar útleiguna á 10 þúsund krónur, eða 160 þúsund alls. Bryndís er staðráðin í að leggja fram reikning að upphæð 530 þúsund krónur til ráöuneytisins. „Þegar skuld mín við þjóðina kr. 321.161 frá árinu 1994 er dregin frá þeirri upphæð, kemur á dag- inn að ég skulda þjóðinni ekki neitt. En þjóðin hins vegar skuld- ar mér. Svo er bara að vita, hvort hún er reiðubúin að greiða þá skuld," segir Bryndís og bendir á að hún hafi „verið starfandi hjá utanríkisráðuneytinu í sex ár." Bréfi sínu lýkur hún á þeim orð- um að hún muni ekki taka að sér frekari skyldustörf fyrir ráðuneyt- ið þá fáu mánuði sem eiginmaður hennar á ef til vill eftir að starfa sem utanríkisráðherra. Ráöuneytisstjóri: Makinn óhjákvæmi- lega stór hluti af starfinu Róbert Trausti Árnason, ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, sagðist hafa lesið bréfið í gær, þriðjudag. „Eg hef ekkert um málið að segja, ekki orð, ekki einu sinni al- mennt séð," sagði Róbert Trausti og vildi ekki svara því hvort ráðu- neytinu hefði borist reikningur frá Bryndísi. Hann sagði þó: „Strangt til tekið er hún ekki starfsmaöur. En hún er eiginkona ráðherra sem stöðu sinnar vegna verður náttúrlega að gera fjöl- margt sem kannski er ekki strangt til tekið skilgreint skýrt í erindis- bréfi til hans. En makinn verður engu að síður óhjákvæmilega stór hluti af starfinu, nema menn vilji og aö mönnum takist að skilja al- gerlega að einkalíf og opinbert líf. Það má sjá úti í hinum stóra heimi að þessu er meö ýmsu móti háttað," sagði Róbert Trausti. Forsætisráöherrafrú: Tók ekki dagpeninga Frú Ástríður Thorarensen, eig- inkona Davíðs Oddssonar forsæt- isráöherra, kvaðst vilja sem minnst um þetta mál tala. Fram hefur komið í fréttum Ríkisút- varpsins að hún hefur ekki þegið dagpeningagreiðslur á ferðalög- um með eiginmanni sínum, sem henni þó ber réttur til að fá sam- kvæmt reglum þar að lútandi. „Þetta haföi spurst út, en ég hef ekki viljað ræða þetta. Fréttastofa útvarps bar þaö undir mig hvort þetta væri rétt og ég sagði þeim, sannleikanum samkvæmt, að það væri rétt, en að öðru leyti vildi ég ekki ræða þetta mál og mun ekki gera," sagði Ástríður. Ráðherrafrú Sighvat- ar: Tek ekkert ófrjálsri hendi „Þessu er háttað eins og reglur gera ráð fyrir. Þetta er ekki neitt sem ég er að taka ófrjálsri hendi," sagði Björk Melax, eiginkona Sig- hvatar Björgvinssonar, heilbrigð- is-, iðnaðar- og viöskiptaráðherra. „Ég hef mína skoöun á því hvort það sé eðlilegt að greiða dagpeninga auk alls útlagös kostnaður. En ég er ekki tilbúin að láta skoðun mína í ljós," sagði Björk. Ríkisendurskoöun: Greiöa ætti fyrir út- lagöan kostnaö Reglur um dagpeningagreiðslur er að finna í reglugerð um dag- peninga nr. 39 frá 3. febrúar 1992. Þar segir í 10. grein: „Ráðherra og forseta hæstarétt- ar skulu greiddir fullir dagpening- ar. Auk þess skal þeim greiddur ferða- og gistikostnaður, risnu- kostnaður og símtöl. Séu makar ráðherra með í för fá þeir auk far- gjalds og gistingar greiddar 50% af dagpeningum ráðherra." „Við höfum margoft lýst okkar skoðun á dagpeningakerfinu í heild," sagði Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi í gær. „Það er mín skoðun að það komist aldrei neinn bragur á þetta fyrr en farið verður að greiða fyrir útlagöan kostnað," sagði Sigurður. Alþýöuflokkurinn á Suöurlandi: Framboðs- mál óljós Ekkert er enn fast í hendi var&- andi framboðsmál Alþý&u- flokksins á Su&urlandi. Aö sögn Sigur&ar Tómasar Björgvinsson- ar, framkvæmdastjóra flokks- ins, er unni& a& undirbúningi mála, en listi liggur enn ekki fyrir. „Við erum enn ekkert fallnir á tíma hvað varðar Suðurland," sagði SigurðurTómas. Hann sagði í því sambandi að til dæmis yrði ekki gengið frá lista flokksins fyrr en í janúarlok á næsta ári. Arni Gunnarsson, fyrrum al- þingismaður og núverandi fram- kvæmdastjóri Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði, skipaði efsta sætið á lista krata í alþingiskosn- ingunum 1991. Hann þvertekur fyrir framboð aftur nú og segist hafa að undanförnu neitað mörg- um pólitískum biðlum. -SBS, Selfossi dteg' utuY - ERTU EKUl kOAH/V/V IE/VGRA ?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.