Tíminn - 28.12.1994, Blaðsíða 9
Miövikudagur 28. desember 1994
8ÍfNÍIf9f
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÓND . . .
Níu skotn-
ir í S-Afríku
Durban - Reuter
Þrír vopnaðir menn réðust á
mánudag inn á sveitaheimili í
héraöi sem eingöngu er byggt
Zúlú-mönnum, og skutu þar til
bana níu manns, þar af fimm
börn.
Talið er að árásin sé liður í
hernaði Inkata-hreyfingarinnar
á hendur Afríska þjóðarráðinu,
en á þessu ári einu munu um
sextán hundruð manns hafa
fallið í þeim átökum. Sl. áratug
hafa meir en tíu þúsund manns
falliö, en þrátt fyrir vonir
manna um að lát yrði á drápun-
um eftir fyrstu lýðræðislegu
kosningarnar á svæðinu sem
efnt var til í apríl sl. hefur óöld-
in haldið áfram. ■
Fann vík-
ingagull
meb málm-
leitartæki
Kaupmannahöfn - Reuter
Tilkynnt hefur verið um merk-
an fornleifafund í nánd við
Ramlöse sem er skammt frá
Friðriksborg á Sjálandi. Um er
að ræða sjóð frá víkingaöld, alls
um 450 gripi, sem flestir eru úr
gulli og silfri. Af mynt og arm-
hringum er mikið í þessum
sjóöi, sem er hinn fjórði mesti
frá víkingaöld er fundist hefur í
Danmörku.
Það var áhugamaöur um forn-
leifafræði sem fann sjóðinn með
málmleitartæki. Danska þjóð-
minjasafnið vill ekki meta þenn-
an fund til fjár. ■
Hér má sjá eina at flugfreyjunum úr vélinni á Orly tlugvelli i gœr. Hun var miour sm ems og eoniegt er, ertir a0
hafa gengiö í gegnum slíka þraut.
Reutermynd
Flugrániö:
• /
Sjalfsmorös-
árás á París?
Konur deyja
fyrr af völa-
um alnæmis
Chicago - Reuter
Alnæmi dregur konur fyrr til
dauða en karla, auk þess sem þær
eru líklegri til að fá lungnabólgu
sem er algengasta dánarorsök
þeirra sem sýkjast. Vísindamenn
segja að meiri líkur á alnæmis-
tengdri lungnabólgu meðal
kvenna heldur en karla kunni að
stafa af því aö þær hafi síður að-
gang að læknishjálp, enda sé fjár-
hagsleg afkoma þeirra bágari auk
þess sem félagslegur stuðningur
standi þeim síður til boða.
Þessar upplýsingar grundvall-
ast á rannsókn sem gerð var á
vegum Minneapolis-háskóla á
fimmtán mánaða tímabili. Rann-
sóknin tók til alnæmissjúklinga í
17 heilsugæslustöðvum víðsveg-
ar um Bandaríkin, 768 kvenna og
3.779 karla. í ljós kom að fram-
vinda sjúkdómsins er svipuð hjá
báðum kynjum eftir að þeir sýkj-
ast fyrst af alnæmisveirunni. Hjá
mörgum alnæmissýktum karl-
mönnum kemur fram bandvefs-
krabbamein sem kennt er viö
Kaposi, en það er sjaldgæft
meðal kvenna. ■
París - Reuter
Líkur benda til þess að flugræn-
ingjarnir fjórir sem voru yfirbug-
aðir um borð í Air France- þot-
unni í Marseille á mánudag hafi
skipað sjálfsmorðssveit er átti að
varpa sprengjum á Parísar-borg
eða jafnvel að brotlenda henni á
fjölförnum stað, aö því er frönsk
stjórnvöld skýrðu frá í gær. Þetta
Líkamsrækt gegn
beinþynningu
Chicago - Reuter
Rosknar konur geta unnið gegn
beinþynningu og dregið úr líkum
beinbrota með því að stunda erfiðar
líkamsæfingar tvisvar í viku, 45
mínútur í senn, samkvæmt niður-
stöðum rannsóknar sem sagt er frá í
nýútkomnu vikuriti Amerísku
læknasamtakanna. Niðurstöðurnar
sæta tíðindum þar sem hér er í
fyrsta sinn mælt með tiltekinni og
sértækri meðferð gegn brotum á
beinum í hrygglengju og mjöðm-
um kvenna sem komnar eru til ára
sinna.
Þéttni beina er ekki annað en lið-
ur í þessu vandamáli, segir Miriam
Nelson, stjórnandi rannsóknarinn-
ar sem gerð var á vegum Tufts-há-
skóla, en hún telur ástæöu til að
ætla að jafnvel sé mikilvægara að
styrkja vöðva og jafnvægi, í því
skyni að koma í veg fyrir byltur sem
hafa beinbrotin í för með sér, en að
styrkja sjálf beinin.
Þátt í þessari rannsókn, sem tók
eitt ár, tóku 39 konur á aldrinum
50-70 ára. Þeim var skipt í tvo hópa.
Annar hópurinn stundaði erfiða
líkamsþjálfun samkvæmt forsögn
en hinn breytti ekki háttum sínum
varðandi líkamlega áreynslu. I
stuttu máli varð niðurstaðan sú að
hjá þeim konum sem fóru í þjálfun
jókst bein- og vöðvamassi til muna
en hjá hinum rýrnaði hvort
tveggja.
Um helmingur allra kvenna yfir
fimmtugu fær beinþynningu og
hlutfallið hækkar í tæp 65% er þær
ná 65 ára aldri. Beinbrot sem rekja
má til beinþynningar hafa gífurleg-
an kostnað í för með sér og í Banda-
ríkjunum einum má ætla aö bein
útgjöld sem hljótast af þessu nemi
um tíu milljörðum dala á ári hverju.
Með aldrinum minnkar hvíta í
beinunum. Þau verða stökk og því
brothættari eftir því sem árunum
fjölgar. Beinþynning er margfalt al-
gengari hjá konum en körlum og
konur af kynþætti negra fá hana
síður en konur af hvítum kynþætti.
Til að vinna gegn beinþynningu
er mælt með kalkbætiefnum og
fæði sem hefur að geyma mikið af
kalki. Þá skiptir kalkupptaka líkam-
ans verulegu máli en til að tryggja
hana er nauðsynlegt að fá nóg af d-
fjörefni, sem gnótt er af í þorskalýsi.
var staðfest af farþegum sem voru
um borð í þotunni, enda liggur
fyrir að endanlegur áfangastaður
flugræningjanna var París. Þá
liggur fyrir að frönsku víkinga-
sveitarmennirnir sem réðust um
borð höfðu vitneskju um að flug-
ræningjarnir hefðu komið fyrir
dýnamiti undir farþegasætum áð-
ur en ráðist var til atlögu.
Þotan sem var af Airbus-gerð
var tekin herskildi í Algeirsborg á
aðfangadagsmorgun. Áður en
þaöan var haldið til Marseilles
höfðu flugræningjarnir drepið
þrjá farþega, en þegar víkinga-
sveitarmenn náðu þotunni á sitt
vald á mánudag drápu þeir flug-
ræningjana fjóra áður en þeir
frelsuðu 169 gísla, auk áhafnar
þotunnar. Tuttugu og fimm hlutu
minniháttar meiðsl í árásinni,
þrettán farþegar, þrír úr áhöfn og
níu víkingasveitarmenn.
Tveir hinna frelsuðu gísla telja
að auk flugræningjanna fjögurra
hafi a.m.k. tveir farþegar um borð
í þotunni verið í vitorði með
þeim, en yfirvöld vilja enn sem
komið er ekki tjá sig um þetta.
Ekki er ljóst hve margir farþeg-
anna eru farnir sína leið en
nokkrir farþegar eru enn í yfir-
heyrslum í gistihúsi einu i Mar-
seilles, enda stendur rannsóknin
enn sem hæst.
Skæðustu öfgasamtök múslima
í Alsír, sem kenna sig við vopn og
íslam, segjast hafa staðið fyrir
þessu flugráni.
í gær voru fjórir kaþólskir prest-
ar myrtir í bænum Tizi-Ousou,
nyrst í Alsír, og er taliö að þar hafi
veriö um hefndaraðgerö að ræða
af hálfu hryðjuverkasamtakanna
sem segjast hafa staðið fyrir flug-
ráninu, vegna flugræningjanna
fjögurra sem létu lífið er franska
víkingasveitin lét til skarar skríða
í gærmorgun.
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
VINNINGAR
3. 4o(5
4.:
FJÖLDI UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA
72
2.740
1.995.990
347.130
8.310
500
Helldarvinningsupphæð:
4.311.440
BIRT MED FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
<u-
L VIÐSKIPTAMANNA
iNKAOG SPARISJÓÐA
■r
.
Blindrafélagið
SAMTÖK BLINDRA OC SJÓNSKERTRA Á ÍSLANDI
Jólahappdrætti Blindrafélags-
ins, dregib 20. desember 1994.
Vinningsnúmer eru:
9850 12901 12979 14150
7813 8863 9947 1194
3477 4618 9789 8904
533 1079 1166 14878
6902 8741 8858 4311
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra, Hamrahlíð 17.
tn
Lokun 2.janúar og eindagar víxla.
Afgreiðslur banka og sparisjóða
verða lokaðar mánudaginn
2. janúar 1995.
Leiðbeiningar um eindaga
víxla um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, desember 1994
Samvinnunefnd banka og sparisjóða