Tíminn - 28.12.1994, Side 8

Tíminn - 28.12.1994, Side 8
8 mmr_r._ m%mmu Mibvikudagur 28. desember 1994 Hér má sjá verkfrœbiprófessorana Einar B. Pálsson, Þorbjörn Karlsson, Þorstein Helgason og Valdimar K. jónsson. Deildarforseti verkfrcebideildar, dr. júlíus Sólnes próf., forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, Kristín Fribgeirsdóttir styrkþegi og háskólarektor dr. Sveinbjörn Björnsson prófessor. Minningarsjóöur Þor- valds Finnbogasonar Styrkþegi ab þessu sinni var Kristín Fribgeirsdóttir vélaverkfrœbinemi. Fyrir jól var ab venju úhlutað í Háskóla íslands úr minningar- sjóði Þorvalds Finnbogasonar. Þorvaldur var bróðir forseta ís- lands, Vigdísar Finnbogadótt- ur, en fórst í hörmulegu slysi fyrir fjörutíu árum, rétt um tvítugt. Foreldrar hans, Sigríð- ur Eiríksdóttir hjúkrunarkona og Finnbogi Rútur Þorvalds- son, prófessor í verkfræði, stofnuðu sjóðinn á 21 árs af- mælisdegi sonar síns, 21. des- ember 1952. Er tilgangur sjóðs- ins að styrkja stúdenta til náms við verkfræðideild Há- skóla íslands eba til fram- haldsnáms í verkfræbi vib annan háskóla að loknu prófi hér heima. Styrkþegi að þessu sinni er Kristín Friðgeirsdóttir, nemandi á fjórba ári vélaverk- fræbi við H.í. Hefur styrkþegi undanfarin ár yfirleitt veriö sá nemandi á fjórða ári í verk- fræbi sem náð hefur bestum heildarárangri í námi, sam- kvæmt upplýsingum frá verk- fræðideild. Deildarforseti verkfræði- deildar, dr. Júlíus Sólnes próf., sagbi þetta eina elstu viður- kenningu á íslandi fyrir skín- andi árangur í verkfræðigrein- um. Finnbogi Rútur prófessor hefbi sem ungur verkfræðing- ur í seinni heimstyrjöldinni fengiö það verkefni að skipu- leggja nám í verkfræðigrein- um vib H.Í., þegar átökin á meginlandinu höfðu lokað öllum hefðbundnum leiðum íslendinga til verkfræðináms. Kennslan hófst svo árib 1940 í byggingar-, véla- og rafmagns- verkfræbi og varb Finnbogi Rútur fyrsti prófessor greinar- innar. Þessa verðlaunaveit- ingu sagði Júlíus einnig kær- komna fyrir verkfræðideild að hóa saman velunnurum deild- arinnar, en svokallað öldunga- ráð verkfræbideildar hittist mánaðarlega til þess að ræða leiðir til ab efla tækniþekkingu á íslandi. í „senatinu" væru sumir reyndustu og þekktustu Einar B. Pálsson verkfrœbiprófessor á tali vib forseta íslands, Vigdísi Finn- bogadóttur. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir rcebir vib jónas Elíasson prófessor. Valdimar K. jónsson verkfrœbipró- fessor var ánœgbur meb styrkþeg- ann. einstaklingar landsins í verk- fræðingastétt. „Senatið" skipa nú Steingrímur Hermannson, Geir Arnar Gunnlaugsson, Jó- hann Már Maríusson, Jónas Frímannsson, Guðmundur Þórarinssson og Sverrir Nor- land. Verkfræöin, eins og aðrar greinar í Háskólanum, liði fyr- ir fjárskort, en nú væru rót- tækar tillögur nefndar undir forustu dr. Gunnars G. Schram, prófessors í lagadeild, senn að sjá dagsins ljós og tækju þeir einnig á þessum vanda. M. a. hefur verið rætt um að skipta háskólanum upp í fjórar sjálfstæðar einingar eða „skóla" í tækni- og raun- vísindagreinum, heilbrigðis- greinum, félagsvísindum og hinum gömlu heimspeki- deildargreinum. Með slíkum sjálfstæðum og öflugum „skól- um", sem til samans mynd- uðu H.Í., ættu fjárveitingar til stofnunarinnar að nýtast bet- ur og tækifæri til eigin fjár- mögnunar að skapast. Björn Kristinsson prófessorog kona hans Gubrún Hallgrímsdóttir matvæiafræbingur. Mann- lífs spegill GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.