Tíminn - 30.12.1994, Blaðsíða 3
Föstudagur 30. desember 1994
3
Hér er vaskur mabur, Árni Ólafsson, aö hlaba bálköstinn á Arnarneshœb í
Garbabœ.
Brennur um áramót
Árni Benediktsson,
stjórnarform. Vinnu-
málasambandsins:
Kvíðvænlegt
framundan
„Það sem er helst framund-
an er verulegur kvíði yfir stöð-
unni. Það er alveg ljóst að þeir
samningar sem gerðir voru við
hjúkrunarfræðinga sl. vor
koma til með að hafa mjög
víbtæk áhrif á alla kjarasamn-
inga," segir Árni Benediktsson
stjórnarformaöur Vinnumála-
sambands samvinnufélaga.
Hann segir að þá verði
menn komnir i þá stöbu sem
einkennist af fallandi gengi og
verðbólgu. Árni segir að verði
afar slæm staða að byrja kosn-
ingaár til Alþingis á þennan
hátt. Hann segir að það ein-
kenni ennfremur stöðu kjara-
mála á nýju ári að mjög marg-
ir verða þá með lausa samn-
inga, auk þess sem sjómenn
séu ab afla sér verkfallsheim-
ilda. Þannig að fyllsta ástæða
er til að óttast að það kunni að
koma til átaka á vinnumark-
aöi.
„Ég er ekki í neinum vafa
um það að kosningar til Al-
þingis hafa áhrif á þetta. Hins-
vegar held ég að flestir ábyrgir
menn meðal aðila vinnumark-
aðarins vilji leggja mikið á sig
til þess að verðbólgan fari ekki
af stað á nýjan leik og ég vona
ab menn vinni þannig úr mál-
unum."
Árni segist að mörgu leyti
vera bjartsýnn á nýja árið.
Meðal annars er mun bjartara
yfir öllu efnahagsumhverfi
Vesturlanda sem muni koma
íslendingum til góða.
Eiríkur Jónsson,
formaöur KÍ:
Ávallt bjart-
sýnn
„Kjarabaráttan er framund-
an," segir Eiríkur Jónsson, for-
mabur Kennarasambands ís-
lands. Hann segist hafa þab
sem lífsmottó ab vera bjart-
sýnn, „enda hefst ekkert öðru-
vísi."
„Það bendir allt til þess að
það verði hörð barátta og þá
ekki bara hjá okkur heldur al-
mennt séð."
Eiríkur segir að kennarar
muni taka ákvörðun um það
strax í upphafi nýs árs hvort
menn ætla að fara í aðgerðir
eða ekki. Hann segist ekkert
geta sagt til um það hvort
kosningabaráttan fyrir næstu
alþingiskosningar muni hafa
einhver áhrif á framvinduna í
kjaramálunum, enda sé bar-
áttan fyrir bættum kjörum al-
veg óháð þeim slag sem fram-
undan er hjá þeim sem ætla
sér á þing. Þar fyrir utan sé það
tilviljun ab þetta tvennt beri
upp á svipuðum tíma.
Ögmundur Jónasson,
formabur BSRB:
Efst á baugi
ab bæta
kjorm
Ögmundur Jónasson, for-
maður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, segir ab í upp-
hafi nýárs muni einstök félög
leggja fram kröfur sínar um að
launafólk fái að njóta efna-
hagsbatans meb bættum kjör-
um.
Hann segir að heildarsam-
tökin muni væntanlega sjá
um þau mál er lúta að stjórn-
völdum, skattamál o.fl., en
hinsvegar sé samningsréttur-
inn hjá hverju einstöku aðild-
arfélagi. Þetta muni þó skýrast
frekar á sameiginlegum fundi
sem haldinn verður um mán-
aðamótin janúar-febrúar nk.
Formaður BSRB segir of
snemmt að segja nokkuð til
um það hvort til átaka muni
koma á vinnumarkaðnum á
næsta ári. Hann segir að það
muni ráðast mikið af þeim
viðbrögðum sem viðsemjend-
ur launafólks sýna við rétt-
mætum kröfum þeirra um að
fá að njóta hlutdeildar í batn-
andi efnahag.
„Ég er alltaf bjartsýnn," seg-
ir formaður BSRB aðspurður
um væntingar á nýju ári.
Hann segir ab það muni ekki
skemma fyrir þótt stjórnmála-
menn sýni á sér betri vangann
í kosningabaráttunni til al-
þingis. Hinsvegar geti þab haft
áhrif á stjórnarmyndun eftir
kosningar ef kjarasamningar
hafa ekki tekist fyrir þann
tíma.
Benedikt Davíösson,
forseti ASÍ:
Árar betur en
búist var viö
„Það eru lausir samningar og
spádómar og tölulegar upplýs-
ingar um betri afkomu. Það
væri því rangt að vera ekki
bjartsýnn við þessar aðstæöur,
hvernig sem tekst nú að ná því
í höfn," segir Benedikt Davíðs-
son, forseti ASÍ.
Hann segir að það sé alltaf
ástæða til ab óttast átök á
vinnumarkaði og ýmislegt
sem bendir til þess ab svo
kunni að verða. Hinsvegar séu
átök á vinnumarkaði aldrei
neitt fagnabarefni.
Forseti ASÍ segir að staða
efnahagsmála sé allt önnur
um þessar mundir en gert var
ráð fyrir að hún yrði í árlok
1994 þegar núgildandi kjara-
samningur var gerður.
„Það eru því breyttar for-
sendur og við verðum auðvit-
að að ætla að það fólk, sem
lagt hefur á sig fórnir til að ná
þessari betri stöðu, að það fái
þá notið ábatans."
Benedikt segir mjög líklegt
ab það muni hafa einhver
áhrif að samningaviðræður
um nýjan kjarasamning skuli
skarast við upphaf kosninga-
baráttunnar til aiþingis. Hann
segir að það vilji oft brenna
við í kosningabaráttu að þá
séu í gangi ýmis yfirboð og
kannski líka meiri væntingar
hjá launafólki en ella.
■
Að minnsta kosti tólf áramóta-
brennur verba í Reykjavík og á
Seltjamarnesi á gamlárskvöld. í
Kópavogi verða tvær brennur, ein
í Garbabæ, tvær í Hafnarfirði og
þrjár í Mosfellsbæ, en í Keflavík,
Njarðvíkum og Höfnum verða alls
sex brennur. Þá verða tvær ára-
mótabrennur á Akureyri.
Nákvæmar upplýsingar um þab
hvenær á að bera eld að bálköst-
um þeim sem risið hafa eru ekki
tiltækar. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Reykjavík veröúr
kveikt í brennum þar, í Mosfells-
bæ og á Seltjarnarnesi á milli kl.
19 og 21, en í nágrannabyggbun-
um eru tímasetningar öllu ná-
kvæmari og þar er hvergi kveikt
fyrr en kl. 20 og ekki síöar en kl.
21.
Þaö nýmæli er nú tekið upp í
brennumálum Reykvíkinga ab
einkafyrirtæki efnir aö þessu sinni
til sérstakrar brennu á gamlárs-
kvöld. Það er Hagkaup sem nú er í
óöa önn að hlaða mikinn köst á
Geirsnefi, en í tengslum við
brennuna verður blysför, flug-
eldasýning og loks skemmtidagsr-
ká með þjóðlegu ívafi.
Reykjavík
Aðrar brennur í Reykjavík eru
sem hér segir: Á opnu svæði sunn-
an Teigahverfis, á Ártúnsholti, á
Brennuhóli, sunnan Fylkisvallar,
fyrir neðan Fella- og Hólakirkju, í
Vatnsmýrinni, við Laugarásveg,
norðarlega, fyrir neöan Fossvogs-
kirkjugarð, við Skildinganes, upp
af Leirubakka í Breiðholti og við
Ægisíöuna.
Seltjarnarnes
Ein brenna verður á Seltjarnar-
nesi, á Valhúsahæðinni, svo sem
verið hefur í áratugi.
Mosfellsbær
Brennurnar þrjár í Mosfellsbæ
veröa sunnan Teigahverfis, viö
Hafravatnsveg í landi Akra og
inni í Mosfellsdil, á móts við
Lund.
Kópavogur
Abalbrennan verður í Kópa-
vogsdal, vestan við íþróttahús
Breiöabliks. Kveikt veröur í henni
kl. 20.30. í Leirdal, vestan Stuðlas-
els, verður einnig brenna.
Hafnarfjörður
í Kaplakrika veröur brenna á
vegum FH en Haukar standa fyrir
brennu við Kaldárselsveg, á móts
við kirkjugaröinn.
Garðabær og Álftanes
Garöabæjarbrennan verður fyr-
ir sunnan Arnarnesveg en brenna
á Áltanesi verður á móts við Sjáv-
argötu.
Akureyri
Brennan á Bárufellsklöppum er
hefðbundiö atriöi hjá Akureyring-
um á gamlárskvöld en önnur
brenna verbur vestan við Möl og
sand. Kveikt veröur í báðum þess-
um brennum kl. 20.
EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ XtÚty /fíufá) Hitaveita Reykjavíkur
SÆLGÆTISGERÐIN GÓA HF.
fjf ■IVU Félag
Reykjavíkur- IID íslenskra
borg Mjólkursamsalan simamanna