Tíminn - 30.12.1994, Síða 7

Tíminn - 30.12.1994, Síða 7
Föstudagur 30. desember 1994 f?fiwýnfnt 'SÍVWI 7 Iþrótta- annáll 1994 Gubrún Arnardóttir, Ármanni, setti mörg glœsileg íslandsmet í sprett- hlaupum á árinu. Tímamynd Pjetur jANÚAR Sigurbjörn Bárðarson, hesta- maöur, er kjörinn íþróttamaöur ársins 1993. Sjónvarpsmál frá HM í hand- knattleik er mikiö hitamál og ís- lendingar eiga á hættu aö missa keppnina. • Vilhjálmur Þór Sigurjónsson, 19 ára lyftingamaöur, er dæmdur í 18 mánaöa keppnisbann vegna misnotkunar lyfja í íþróttum. Magnús Scheving vinnur ís- landsmeistaratitilinn í þolfimi þriöja áriö í röö. Karlalandsliö íslands í hand- bolta kemst ekki í úrslitakeppnina í Portúgal. Til þess þurfti 27 marka sigur á Finnum, en leikur- inn vannst meö 5 marka mun. Kristján Arason ákveöur aö þjálfa þýska handknattleiksfélag- iö Bayer Dormagen. Samningur- inn er til tveggja ára. FEBRÚAR Knattspyrnugoöiö Diego Mar- adona kemst í sviösljósið eftir að hann skýtur úr loftriffli á frétta- menn. ingibergur Jón Sigurðsson sigr- ar í 82. Skjaldarglímu Ármanns. Þorsteinn Páll Hængsson verð- ur íslandsmeistari í einliöaleik karla í badminton og Elsa Nielsen í kvennaflokki. Sigríöur Anna Guöjónsdóttir, HSK, setur íslandsmet í þrístökki innanhúss, stekkur 12.4Sm. Ólympíuleikarnir í Lillehamm- er settir 12. febrúar í 16 stiga frosti. Sigrún Huld Hrafnsdóttir setur fjögur heimsmet á alþjóðlegu móti fatlaöra. Kristinn Björnsson og Haukur Arnórsson keppa ekki í risasvigi í Lillehammer vegna misskilnings um lágmarksárangur. Víkingsstúlkur vinna bikar- keppnina í handbolta eftir 19-18 sigur á ÍBV. Bonnie Blair vinnur gull í skautahlaupi á Ólympíuleikun- um, þriöju leikana í röö. Arnór Guöjohnsen sló í gegn meb Örebro í sœnsku knattspyrnunni og var valinn besti leikmabur deildarinnar. Tímamynd Pjetur Rússar hlutu 11 gull í Lille- hammer, flest allra liða. Magnús Scheving veröur Evr- ópumeistari í þolfimi, sigrar meö yfirburðum. MARS FH-ingar tryggja sér sigur í bik- arkeppni karla í handbolta eftir 30-23 sigur á KA. Ásmundur ísak Jónsson og Anna Marcos urðu íslandsmeist- arar í karate. Haukar verða deildarmeistarar í handknattleik karla. Pétur Guömundsson, kúluvarp- ari, nær í bronsið á Evrópumeist- aramótinu innanhúss í frjálsum. Þróttur R. veröur bikarmeistari í blaki karla, en ÍS í kvennaflokki. ísland ver titilinn á NM heyrn- arlausra í handknattleik. Guðmundur E. Stephensen sigrar í einliöaleik karla á íslands- mótinu í borötennis aðeins 11 ára og verður um leið yngsti íþrótta- maöur landsins, sem verður ís- landsmeistari í meistaraflokki. Aöalbjörg Björgvinsdóttir sigrar í einliðaleik kvenna. APRÍL Mikil umræða er um yfirbyggö íþróttamannvirki og þá helst í tengslum viö HM í handbolta. Vernharö Þorleifsson krækir í tvo titla á NM í júdó og Sigurður Bergmann í einn. Víkingsstúlkur vinna íslandstit- ilinn í handbolta eftir fjóra leiki við Stjörnuna. Njarðvíkingar tryggja sér ís- landsmeistaratitilinn í karlaflokki í körfu eftir 5 magnaða leiki viö Grindavík. Keflvíkingar vinna íslandstitil- inn í kvennakörfu og voru þaö KR-stúlkur er lágu fyrir þeim í fimm leikjum. Magnús Scheving vinnur silfur á HM í þolfimi í Japan. Island vinnur Bandaríkin í vináttuleik í knattspyrnu, ytra, 1-2. David Robinson geröi 71 stig fyrir San Antonio í 112-97 sigri liðsins á LA Clippers í NBA-deild- inni. MAÍ Einar Þór Einarsson, sprett- hlaupari úr Ármanni, fellur á lyfjaprófi, sem tekið er fyrir EM innanhúss, og er dæmdur í fjög- urra ára keppnisbann. Skarphéöinn Orri Björnsson úr KR verður glímukóngur íslands 1994. Geir Sveinsson og Júlíus Jónas- son veröa Evrópumeistarar í handbolta með hinu spænska liði sínu, Alzira. ísland spilar æfingaleik viö Brasilíumenn í knattspyrnu ytra og leikurinn tapast 3-0. Ekki hefur veriö sýnd ein mínúta frá þessum leik í sjónvarpi hérlendis! KR-ingar tryggja sér titilinn í Reykjavíkurmótinu í fótbolta eftir 5-0 sigur á Fram. Valsmenn sigra á íslandsmót- inu í handknattleik karla eftir fjórar viöureignir viö Hauka. Þetta var 17. meistaratitill Valsara í karlaflokki. ísiand vinnur Bólivíumenn 1-0 í æfingaleik á Laugardalsvelli. Sigurganga íslenska kvenna- landsliðsins í fótbolta hefst fyrir alvöru með 3-0 sigri á Grikkjum í Laugardalnum. ]ÚNÍ Svíar veröa Evrópumeistarar í handknattleik karla eftir 34-21 sigur á Rússum. Guðrún Arnardóttir og Sigríður Anna Guöjónsdóttir setja íslands- met í 200m hlaupi og þrístökki á Reykjavíkurleikunum í frjálsum. Þjóöverjar sigra Bólivíu 1-0 í opnunarleik HM í knattspyrnu. Houston tryggir sér meistaratit- ilinn í NBA-körfuboltanum eftir sjöundu viöureign sína viö New York Knicks. JÚLÍ Maradona fellur á iyfjaprófi á HM. Eydís Konráðsdóttir setur tvö íslandsmet á sundmeistaramóti íslands. Brasilíumenn sigra ítali í víta- keppni á HM í fótbolta. Svíar vinna Búlgara í leik um þriðja sætið. HSK sigrar meö yfirburðum í heildarstigakeppninni á 21. Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni. Stefanía Stefánsdóttir veröur ís- landsmeistari í einliðaleik kvenna í tennis og Einar Sigurgeirsson vinnur hjá köriunum. Sumarliöi Árnason gerir 5 mörk fyrir ÍBV í 6-1 sigri liðsins á Þór í 1. deildarkeppninni í knatt- spyrnu. Guðmundur Karlsson, í sleggju- kasti, og Guðrún Arnardóttir, í 200m hlaupi, setja íslandsmet á Meistaramótinu í frjálsum. Sigurpáll Geir Sveinsson og Karen Sævarsdóttir tryggja sér tit- ilinn á íslandsmótinu í golfi á Ak- ureyri. ÁGÚST Pétur Guðmundsson, kúluvarp- ari, hafnar í 7. sæti á EM í frjálsum eftir að hafa unnið undankeppn- ina. Pétur Gubmundsson nábi 3. sœt- inu í kúluvarpi á EM innanhúss í frjálsum íþróttum í París. Tímamynd CS Þekktur 17 ára eistneskur/ rússneskur fimleikamaöur, Ruslan Outchinnkov að nafni, sækist eftir íslenskum ríkisborgara- rétti. Breiöablik vinnur bikarkeppn- ina í fótbolta kvenna eftir 1-0 sig- ur á KR. KR-ingar vinna hinsvegar bikar- inn í karlaflokki og er þetta fyrsti stóri titillinn hjá félaginu í 27 ár. Sumir kaila Guðjón Þóröarson, þjálfara KR, „töframann".! Jón Arnar Magnússon, UMSS, bætir glæsilega 10 ára gamalt met í langstökki þegar hann stekkur 8 m slétta á bikarmóti FRÍ. SEPTEMBER Svíar vinna íslendinga í undan- keppni Evrópukeppninnar, 0-1, á Laugardalsvelli. Lambi var fórnað Eyjólfi Sverr- issyni til lukku hjá Besiktas í Tyrk- landi, þegar leikmenn liösins voru kynntir fyrir áhangendum sínum. Skagamenn eru íslandsmeistar- ar þriöja áriö í röö í fótbolta kvenna, en Breiöabiik í kvenna- flokki. íslenska kvennalandsliöiö í knattspyrnu kemst áfram í 8-liða úrslit EM eftir 1-0 sigur á Hollandi á útivelli. OKTÓBER ísland er úr leik í EM kvenna- knattspyrnu eftir tvö töp gegn Englandi. Tyrkir mala íslendinga í undan- riöli EM í knattspyrnu, 5-0, í Tyrk- landi. ÍR-ingar stöðva sigurgöngu Njarðvíkinga í úrvalsdeildinni í körfubolta. NÓVEMBER Svíar vinna auöveldan sigur á íslendingum á Alþjóða Reykjavík- urmótinu í handbolta, 27-19. Sigrún Huld Hrafnsdóttir setur heimsmet í 50m bringusundi á HM fatlaðra í sundi og vinnur auk þess önnur gullverölaun. Eiöur Smári Guðjohnsen, efni- legasti leikmaður íslandsmótsins í fótbolta, semur við PSV Eindho- ven í Hollandi til tveggja ára og veröur um leið yngsti atvinnu- maður íslands í knattspyrnu, 16 ára. Breytingar á Laugardalshöll vegna HM í handbolta hefjast. Kostnaöur er áætlaður 125 millj- ónir. Meö framkvæmdunum komast um 5000 manns fyrir í Höllinni, 900 fleiri en áður. Arnór Guðjohnsen, Örebro, er útnefndur besti leikmaöur sænsku úrvalsdeildarinnar af leik- mönnum deildarinnar. Sviss vinnur ísland 1-0 í undan- keppni EM í knattspyrnu. Þetta er þriðji tapleikur Islendinga í keppninni í jafnmörgum leikjum. FH og Haukar komast bæöi áfram í 8- liöa úrslit EM félagsliða í handbolta. Magnús Bess og Margrét Sigurð- ardóttir hampa Islandstitlinum í vaxtarrækt. íslendingar vinna til sjö gull- verðlauna á Opna skandinavíska mótinu í júdó hér á landi. Jóhannes R. Jóhannesson vinn- ur til silfurverölauna á HM áhuga- manna í snóker. DESEMBER Boso Skaramuca, króatískur landslibsþjálfari islands í tennis, stingur af eftir þátttöku kvennalandsliösins á EM í Portúgal. Lára Hrund Bjargardóttir veröur NM- meistari í 200m bringusundi unglinga. Bjarki Sigurðsson, Víkingi, leik- ur meb heimsliöinu í handbolta og skorar eitt mark gegn Egypt- um. ísland er í 39. sæti af 180 knatt- spyrnuþjóbum, samkvæmt styrk- leikaskrá FIFA. íslenska kvennalandslibib í knattspyrnu stób sig frábœrlega í Evrópu- keppninni. Á myndinni er Ásthildur Helgadóttir í baráttu vib hollenskan leikmann. Tímamynd Gs

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.