Tíminn - 18.01.1995, Page 7
Miðvikudagur 18. janúar 1995
fÍMim
7
Allt komið
á fulla ferb
Stööin getur tekiö viö fleiri hestum
Starfiö á Stóðhestastöö ríkisins
er nú komið á fulla ferö. í vet-
ur veröa á vegum stöðvarinnar
3 hestar á fimmta vetur og 6
hestar á fjóröa vetur, auk
marga fola á annan og þriöja
vetur.
í fyrra voru 6 hestar á fjóröa
vetur og fimm þeirra komu til
dóms, en aðeins þrír hlutu
framhaldseinkunn. Hestarnir,
sem nú er haldið áfram meö,
eru:
Hjörvar frá Arnarstööum í
Flóa; faöir Otur frá Sauðár-
króki, móðir Hrafntinna frá
Arnarstöðum.
Hrynjandi frá Hrepphólum í
Hrunamannahreppi; faðir
Stígandi frá Sauöárkróki, móð-
ir Von frá Hrepphólum.
Sveipur frá Skáney í Reyk-
holtsdal; faðir Léttir frá Sauð-
árkróki, móðir Svala frá Skán-
ey.
Það vekur athygli að feður
þessara hesta eru allir frá Sauð-
árkróki, úr ræktun Sveins
Guðmundssonar. Mæður
Hjörvars og Hrynjanda eru
báðar dætur Hrafns frá Holts-
múla, en móðir Sveips er son-
ardóttir Blesa frá Skáney.
Folarnir, sem nú er verið að
byrja með á fjórða vetur, eru 6
sem fyrr segir. Þeir eru:
Dagur, leirljós, frá Sigríðar-
stöðum í Fljótum; faðir Asi frá
Brimnesi, móðir Nótt frá Sig-
ríðarstöðum.
Friðrik, rauður, frá Sveins-
stöðum í A.-Hún.; faðir Garð-
ur frá Litla-Garöi, móðir Blesa
frá Sveinsstöðum.
Ljúfur, ljósrauður, tvístjörn-
óttur, frá Torfunesi í Köldu-
kinn; faðir Baldur frá Bakka,
móðir Virðing frá Flugumýri.
Sproti, rauðblesóttur, frá
Hæli í Hreppum; faðir Hrafn
frá Holtsmúla, móðir Bylgja
frá Hæli.
Svipur, bleikálóttur, frá
Vindási í Hvolhreppi; faðir Ó-
feigur frá Flugumýri, móðir
Fjöður frá Hnjúki.
Ögri, brúnn, frá Sauðár-
króki; faðir Angi frá Laugar-
vatni, móðir Ösp frá Sauðár-
króki.
Aðkomuhestar eru nú 7 á
stöðinni og er stöðin tilbúin
að taka við fleiri hestum til
tamningar og þjálfunar. Þab er
vonandi að menn noti sér
það, því aðstaðan er mjög góð.
Sem fyrr er þab Eiríkur Guð-
mundsson sem er umsjónar-
maður stöðvarinnar, en með
honum er í vetur Elías Þór-
hallsson.
Gób áhrif
Stóðhestastöð ríkisins tók til
starfa 1973 og var þá til húsa á
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
Litla-Hrauni. Arib 1981 flyst
stöðin svo að Gunnarsholti og
1992 kemst hún loks í eigið
húsnæði. Búnaðarfélagi ís-
lands var falið það hlutverk að
reka stöðina fyrir hönd land-
búnaðarráðuneytisins og til
Hjörvar frá Arnarstöbum. Knapi Eiríkur Gubmundsson.
Framtíbarabstaba Stóbhestastöbvarinnar risin.
þess ætlast að starfandi væri
sérstök kynbótanefnd. Þorkell
Bjarnason hrossaræktarrábu-
nautur hefur lengst af verið í
forsvari af hálfu Búnaðarfé-
lagsins, og á engan hallað
þó sagt sé ab hann hafi átt
hvað mestan þátt í að koma
þessari starfsemi á laggirnar.
Hann hefur alla tíð boriö hag
stöðvarinnar mjög fyrir
brjósti.
Eins og áður hefur verið rak-
ib hér í HESTAMÓTUM, hefur
stöðin haft mjög mikil áhrif
varðandi uppeldi og meðferö
hrossa, auk þess að skila til
hrossaræktenda góðum
undaneldisgripum.
Stöðin hefur notið mikils
velvilja Landgræðslu ríkisins í
Gunnarsholti, en formaður
stjórnar stöðvarinnar er
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri. ■
Hafa skal þaö sem sannara reynist:
Leiörétting
í athugasemdum framkvæmda-
stjóra L.H. vegna viðtals við Jó-
hann Þorsteinsson, gleymdist
að geta þess þar sem talað er um
feil í þinggerðinni, að í gögnum
þingsins 1990 er staðfest að um-
rædd breytingartillaga var sam-
þykkt. Þessa vitneskju hafði Jó-
hann Þorsteinsson ekki. Þetta
leiðréttist hér mér. Málið út-
rætt.
Sigurður Þórhallsson
Skyldleikarækt
III
í tveimur síðustu Kynbótahornum hefur verið
rætt um skyldleikarækt í íslenskum hrossum og
nefnd þar dæmi. Skyldleikarækt hefur lengi
viðgengist á íslandi, m.a. vegna afskekktra
byggða. í Móbuharðindunum fækkaði hrossum
mjög á landinu og foreldrahópurinn var lítill.
Þab gefur augaleið að þá hefur skyldleikarækt-
un orðið mikil, af illri nauðsyn. Þá er talið að ís-
Ienski hesturinn hafi smækkað talsvert. Það
mun ekki eingöngu hafa veriö af fóðurskorti,
heldur einnig af of náinni æxlun.
Nú verður til gamans tekið dæmi af einum
hrossastofni, sem mikið kom við sögu hrossa-
ræktar framan af þessari öld, þó minna hafi
borið á honum nú í seinni tíð. Hér er átt við
Hindisvíkurhrossin. Stóðhestar af þessum
stofni fóru víða um land og voru notaðir til
undaneldis. Ættfaðir Hindisvíkurhrossa hefur
verið talinn Stjarni 118 frá Hindisvík.
Framan af voru notaðir í stóbinu folar tveggja
og þriggja vetra, en frá því um 1920 er farið aö
velja „alvöru stóbhesta". Séra Sigurður í Hindis-
vík hafbi þá oft þrjá hesta í stóðinu og voru þeir
sinn meb hverjum lit, einn brúnn, einn jarpur
og einn rauður. Þessir hestar voru frjálsir í hag-
anum meö sínar hryssur. Þeir urðu margir full-
orðnir og sköpuðu eigin línur í stóðinu. Stóð-
hestar voru ekki sóttir ab og því varð skyldleik-
inn fljótt mikill í þessu stóbi. Hindisvíkurhross-
in voru þekkt fyrir fínt sköpulag og léttleika.
Fjörið var oft mikib og hart og fylgdi því stund-
um óstýrilæti og geðofsi. Þetta voru yfirleitt
Kynbótahornib
klárgeng hross og góðir brokkarar, en þó innan
um afbragbs töltarar. Einstaka góður vekringur
leyndist innan um.
Á Vatnsnesinu var uppeldi hrossa nokkuð
hart. Hindisvíkurhrossin voru frekar í smærri
kantinum. Einnig átti sinn þátt í þessu of náinn
skyldleiki. Ekki var vinnukraftur til að sinna
þessu stóði eins og þurft hefði, þó framan af
hafi Sigurður haft góöa menn sér til aðstoðar. í
Hindisvíkurhrossunum kom fram viðkvæmni
og harka, eins og áður greinir, og nokkuð var
um hrekki í þessum stofni.
Þó ströngu úrvali sé beitt innan svo þröngs
hóps, sem stóð eins bónda hlýtur að vera, þá
lenda menn fyrr eða síöar í þeim miklu erfib-
leikum sem skyldleikaræktin veldur. Þetta kom
fram í Hindisvíkurhrossum. Þar hefði verið
æskilegt ab Ieita að blöndun út fyrir stofninn,
en reyna um leið aö varðveita bestu eiginleik-
ana.
Sá hestur, sem á síðari árum hefur verið nafn-
greindastur frá Hindisvík, er Glóblesi 700.
Hann var skyldleikaræktaður út af Stjarna 118.
Glóblesi var undan Glóa frá Hindisvík og
Styggu-Rauðku, sem var undan Glóu frá
Hindisvík, en hún var undan Stjarna 118 og
Sneglu, sem líka var undan Stjarna. Glói var
undan Vakra-Rauð undan Yngri-Stjama, sem
var undan Stjarna 118. Stóra-Rauðka frá Hindis-
.vík, sem var undan Glóa, fékk síðan vib bróbur
sínum Glóblesa 700. Þeirra dóttir er Ör frá
Hindisvík, en hennar sonur er stóðhesturinn
Hlöðver 1168, en faðir hans er dóttursonur
Glóa. ■