Tíminn - 28.02.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.02.1995, Blaðsíða 9
Þri&judagur 28. febrúar 1995 Qfíminn 9 Um hvaö snýst Vestur-Noröurlandasamstarfiö? Er það komið til að vera? Hve mörg eru Noröurlönd- in? Hver eru Vestur-Noröur- löndin? Hvaö er Vest-nor- ræna þingmannaráöiö? Um Erlend Patursson í Kirkjubæ, Færeyjum er sagt: „Þaö má til sanns vegar færa, aö hann hafi veriö eins konar guöfaöir þessarar samvinnu því hann mun fyrstur manna hafa sett fram hug- myndir um skipulagt sam- starf þjóöþinganna þriggja. Hann náöi því blessaöur aö vera þátttakandi á stofn- fundinum og vera þannig meö í aö stofna ráöiö á Grænlandi 1985, en honum entist ekki aldur til aö sitja fleiri fundi." Alþingis- mennirnir Árni Johnsen, Jón Helgason og Steingrím- urj. Sigfússon ræöa máliö, en þeir hafa veriö fulltrúar flokka sinna í þessu vest- norræna samstarfi. Ég hefséð mismunandi talningu á fjölda Norðurlandanna, t.d. í íslensku alfrœðibókinni og í námsbók, sem heitir Evrópa - álfan okkar: Hver eru Norður- löndin? Árni: „Það má gera greinar- mun á þegar er talað um nor- ræna samvinnu, þá er talað um ísland, Noreg, Svíþjóð, Finnland, Álandseyjar og Dan- mörku, en Færeyjar og Græn- land koma þar með. Svo geta menn aðeins gert mun á jarð- fræðilegri stöðu því að Græn- land tilheyrir Ameríku á þann hátt, en í skilgreiningu nor- ræns samstarfs eru Norður- löndin þau lönd sem eru í Norðurlandaráði, eða alls átta talsins." Hver þessara landa teljast til Vestur-Norðurlandanna? Árni: „Vestur-Norðurlöndin em ísland, Færeyjar og Græn- land. Hins vegar er nokkuð ljóst, að nú mun Norður-Nor- egur bætast viö og það verði því talað um Vest-norræna svæðið. í þau níu ár sem þessi vest-norræna samvinna hefur verið við lýði, hafa þessi þrjú eyríki starfað þannig saman að það er kosið til stjórnar þeirra, Vest-norræna þingmanna- ráðsins, árlega á öllum þjóð- þingunum. Það er ekki kosið í samræmi við valdahlutfall heldur einn fulltrúi frá hverj- um flokki í hverju landi. Hér á íslandi em fimm fulltrúar í ís- lensku nefndinni, en svo er samstarfsráðherra Norður- landanna I hverju landi tengiliður Vest-norræna þing- mannaráðsins og Norður- landaráðs eða ráðherranefnd- ar Norðurlandaráðs." Jón: „Síðustu árin hefur verið tekinn upp sá háttur að tillög- ur hafa verið lagðar fram í þingsályktunarformi hér fyrir Alþingi og afgreiddar sem á- lyktanir Alþingis og þar með fengið aukið vægi í okkar stjórnkerfi. En okkur hefur oft fundist að árangurinn væri of lítill, þetta væm aðeins frómar óskir. Þó má benda á mun meiri árangur og má taka samgöngumálin sem dæmi um það, s.s. flugsamgöngurn- ar við Grænland. Fyrir tveim- ur árum vom haldnar ráb- stefnur í öllum löndunum, fyrir atbeina þingmannaráðs- ins. Á Egilsstöðum var haldin kvennaráðstefna, í Færeyjum ráðstefna um málefni unga fólksins og á Grænlandi var fjallað um sjávarútveginn. Eins má benda á fiskveiðirétt- indi Færeyinga hér við land. Við höfum reynt að stuðla að því að tekið sé tillit til erfiðrar stöðu þeirra síðustu árin." Steingrímur: í fyrstu voru miklar vonir bundnar við þetta samstarf og hugur í mönnum að brjóta upp alla vest-norræna samvinnu á ní- unda áratugnum. Það gerðist mjög margt á fyrstu árunum og maður sá aukin samskipti á ýmsum sviðum. Það var auð- vitað ekki bara Vest-norræna þingmannaráðinu að þakka heldur mörgu öðru sem var samtímis í gangi, s.s. aukin samvinna stjórnvalda í ferða- málum og fleiru slíku. Mér finnst að þá hafi jafnvel verið meiri væntingar og meiri stemmning en nú, þegar þetta er komið í fastari skorður. Sam- skiptin hafa auk- ist og viðskipti, ferðalög og sam- vinna af ýmsum toga, en auðvit- að spyrja menn sig líka þeirra spurninga, hvort þetta sé rétta formið á samvinnu þjóð- þinganna, skili nægilegum ár- angri og sé tím- ans og pening- anna virði." Árni: „í þessu starfi er enginn f járhagslegur grundvöllur sem er bakhjarl, nema að ferða- yón Helqason. og fundakostn- aður er greiddur af viðkom- andi þjóðþingum en ti! fram- kvæmda eru engir tekjustofn- ar. Tillögurnar eru hins vegar oft mál sem varða beinlínis og nánast eingöngu þessi lönd, s.s. samgöngumál, fiskveiöi- mál, lögsögur, póstburðar- gjöld o. fl." Steingrímur: „Það sem er dálítið óvenjulegt við þetta samstarf er, ab tvær þjóðirnar eru mjög skyldar og líkar um margt og aðstæðurnar tiltölu- lega svipaðar, en svo er þriðja þjóðin mjög fjarskyld menn- ingarlega og upprunalega séb en býr engu að síður við mjög svipaðar náttúrufarslegar að- stæður og skilyrði og er háð sjávarfangi og öllu sem því fylgir. Þetta setur auðvitaö sinn svip á þessi samskipti og þó ab þau fari fram á dönsku eða skandinavísku finnur maður óneitanlega stundum þennan mun." Jón: „Já, þótt þeir séu ólíkir okkur bæði að uppruna og menningu, höfum vib átt töluverð samskipti og stutt við þá á sviði landbúnaðar. Bún- aðarfélag íslands er búið að hafa þar áratuga samstarf og fyrsti „umboðsmaður" Græn- lendinga þar var Gísli Krist- Árni johnsen. Steingrímur j. Sigfússon. jánsson, sem lengi var ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys. Þetta byggist m.a. á því að Græn- lendingar komu hingað og var útveguð vinna hjá bændum í eitt ár og það hefúr haldist al- veg til þessa dags. Sumir þeirra stunduðu síöan nám við íslenska bændaskóla. Þeirra þekking á landbúnabi byggist því mikið á því sem þeir hafa aflab sér hér, enda er fjárstofn þeirra héban upprunninn og þeir hafa fengib fóður héban í erfiðum árum o.s.frv." Er von á breyttum áherslum í kjölfar breytinga á norrcenu samstarfi almennt eða hvemig sjáið þið framtíð þessa sam- starfs? * Arni: „Með aukinni Evrópu- samvinnu hafa ýmsir talið að norrænt samstarf muni fjara smám saman út, en á nýaf- stöðnum fundi forsætisráð- herra Norðurlanda var ákveb- ið að halda áfram samstarfinu með miklum styrk. Svíar hafa lagt til í sínum fjárlögum að skera framlagið niður um 20% og það er aubvitað mikið fé, en með aukinni hagræðingu og breyttum áherslum tala menn þó um að reyna að halda á- fram öflugu starfi. Þá má geta Vest-norræna fjárfestingar- sjóðsins, sem er á vegum Norðurlandaráðs og hefur veitt lán til uppbyggingar, fjárfestingar og atvinnusköp- unar í þessum þremur löndum - ekki síst hér á íslandi." Jón: „Við, sem höfum starfað á þessum vettvangi, erum sammála um, að íbúar þessa landssvæðis þurfi ab vinna saman til að gæta hagsmuna þeirra sem þetta svæði byggja., enda er Grænland, ísland og Færeyjar og hafsvæðið þar í kring, allstór hluti af yfirborði jarðar. Ég vildi að íslendingar leggðu sig enn meir fram í þessu því að ég tel ab þab vib- horf aukist að verðmæti þessa stóra svæðis sem þessi lönd eru á og við byggjum, sé svo mikils virði að sameiginlegt átak okkar þurfi til ab varð- veita það og hagnýta sem best. ([Hugsanlegt ab sleppa:] Ég er nýkominn frá Kína og eftir að hafa séb alla mengunina þar og yfirþyrmandi mannfjölda, styrkist ég enn frekar í þeirri vissu, að varðveisla náttúr- unnar á þessu svæði okkar hljóti að vera forgangsverk- efni. Ekki má heldur gleyma verðmæti menningar- og mannlífsins, en mér finnst viðhorf síðustu ára hafi um of miöast við hagvöxt og fram- leiðni. Mér finnst við íslend- ingar vera svo ríkir að eiga þetta land og við veröum að gera allt sem í okkar valdi stendur til ab varðveita það. Mikilvægur þáttur í því er gott samstarf við þessa nágranna okkar við að vinna að því að halda þessu ríkidæmi okkar ó- skertu í framtíðinni.)" Steingrímur: „Við erum að ræða um framtíðina og við höfum sett okkur það mark- mið aö fara rækilega í gegnum þau mál á tíunda ársfundi rábsins, sem verður vonandi á Grænlandi í vor. Ég held ab þar þurfi að taka nokkra hluti til endurskoðunar. Það hefur margt breyst og það kemur til greina að víkka þetta samstarf og taka fleiri meb, norðlæg strandhérub Noregs, hugsan- lega skosku eyjarnar og jafnvel Nýfundnaland, þannig ab þetta yrði breiðara' samstarf eyríkja og strandhéraða við Atlantshaf. Ég sé hins vegar fyrir mér að vib þyrftum samt sem áður að halda uppi a.m.k. einhverjum vettvangi fyrir samskipti þessarra þriggja þjóða." JÓn: „Ef þátttaka Norður-Nor- egs í þessu samstarfi hefði orð- ið að veruleika fyrir þremur árum síðan þegar þab var mjög til umræðu, má velta fyr- ir sér hvort það hefði ekki minnkab eða jafnvel komib í veg fyrir ýmsa erfiðleika í sam- skiptum landanna nú upp á síðkastið." Steingrímur: „Maður á mjög margar og góðar minn- ingar frá þessum fundum og heimsóknum til landanna. Þab er alltaf töluverð endur- nýjun í hópnum þannig að ég er ab verba einn af allra elstu mönnum þarna, og núna upp á síbkastið oft sá eini sem var til staðar á stofnfundinum þannig að mabur man tímana tvenna í þessu tilliti. En það er líka gott ab hreyfing sé til stað- ar og menn kynnist. Það var mjög gaman á fyrstu ársfund- unum, sem voru haldnir til skiptis í löndunum þremur og í raun eru mér minnisstæðast- ir fyrstu fundirnir á Grænlandi og í Færeyjum. Öllum var mjög í mun að taka vel á móti rábinu og gera þetta myndar- lega og glæsilega. Það vom herlegar veislur og mikil gleði á báðum stöðum og í Færeyj- um var dansað í stokkastof- unni á Kirkjubæ og allt var það mjög eftirminnilegt. En svo hefur maður líka kynnst ýms- um skemmtilegum persónu- leikum í gegnum þetta, em mér er minnisstæðastur og kannski kærastur Erlendur heitinn Paturson á Kirkjubæ í Færeyjum. Þab má til sanns vegar færa, að hann hafi verið eins konar guðfaðir þessarar samvinnu því hann mun fyrstur manna hafa sett fram hugmyndir um skipulagt sam- starf þjóðþinganna þriggja. Hann náði því blessaður að vera þátttakandi á stofnfund- inum og vera þannig meb í að( stofna ráðið á Grænlandi 1985, en honum entist ekki aldur til að sitja fleiri fundi." Stefán Böðvarsson (höf. stundar nám í hagnýtri fjölmiðlun við H.í)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.