Tíminn - 22.03.1995, Blaðsíða 9
Mibvikudagur 22. mars 1995
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLOND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Hungursneyö
vofir yfir Rú-
anda
Lundúnum - Reuter
Hungursneyö vofir yfir allt að
þremur milljónum flóttamanna
frá Rúanda þar sem þeir hafast
við í búðum í Zaír, Tanzaníu og
Búrúndí. Matarskortur er þegar
farinn að gera vart við sig og er
óttast að hann kunni að hleypa
af stað nýrri öldu ofbeldis í
landamærahéruðum.
Mikillar reiði verður nú vart
meöal flóttamanna vegna þess
að matarskammtur þeirra hefur
verið minnkaður, en þá ráðstöf-
un telja margir þeirra tilraun til
að neyða flóttafólk til að hörfa
aftur heim í átthaga sína í Rú-
anda.
Flóttafólkið óttast mjög að-
komuna heima fyrir og telur sig
ganga þar út í opinn dauðann.
A þessu ári telja Sameinuðu
þjóðirnar sig þarfnast 385 millj-
óna bandaríkjadala til að
standa straum af aðstoð við
flóttamenn frá Rúanda í ár, en
hingað til hefur verið heitið
155 milljónum í þann sjóð.
Togstreita er milli alþjóðlegra
hjálparstofnana og Evrópusam-
bandsins um hjálparstarfið og
talsmaður einnar þeirra tekur
svo til orða að ESB eigi sök á því
að ekki hafi tekist að marka
ákveðna stefnu um að leysa
vandamál flóttafólksins frá Rú-
anda til frambúðar.
Af hálfu ESB hefur komið
fram að sambandið sé reiðubú-
ið að breyta stefnu sinni aö því
tilskildu að komið verði á rétt-
arkerfi sem geri flóttamönnun-
um kleift að snúa aftur til heim-
kynna sinna án þess að þurfa að
óttast um líf sitt. ■
Tilrœbib í Tókýó:
Öfgasinnab trúfélag
liggur undir grun
Tókýó - Reuter
Vitnisburðir þrjátíu sjónarvotta
að því að taugagasi var komið fyr-
ir í neðanjarðarbrautunum í
Tókýó í fyrradag, með þeim af-
leiðingum að átta manns biðu
bana og aðrir fimm þúsund urðu
fyrir eitrun, eru helstu vísbend-
ingar í einhverjum óhugnanleg-
ustu hryðjuverkum á síðari árum.
Líkur benda til þess að málið
tengist svipuðum atburði sem
varð í fyrra, en þar kom sama gas-
tegund við sögu.
A.m.k. ein ábending hefur
komið fram af hálfu eins sjónar-
vottanna um mann á fertugsaldri
sem nú liggur á sjúkrahúsi vegna
eitrunar. Sjónarvotturinn kveðst
hafa horft á manninn, sem er á
fertugsaldri, sparka brúsa, sem
vafinn var í dagblað, út um dyrn-
ar á einum brautarvagninum er
hann stóð við á einni þeirri sex-
tán stöðva þar sem gasinu var
komið fyrir.
Kýódó-fréttastofan segir aö vit-
að sé um tvö tilvik en ekki eitt þar
sem hermdarverk með taugagasi
voru unnin í fyrra. Samkvæmt
þessari fregn varð fyrri atburður-
inn í Matsumoto í júní. Þar létu
átta manns lífið og 200 urðu fyrir
eitrun, en mánuði síðar fundu eit-
urefnafræðingar á vegum lögregl-
unnar leifar af sarín- gasi í húsi
Breyttir timar Nakin kona situr fyrir á stofu í
Taipei. Konan á myndinni er nemandi ffyrsta listaskólanum í Tcevan þar
sem módelin sitja nakin fyrir.
Reuter
Kínverskt markaðsátak fyrir
sérvörur í líkbransanum
Beijing - Reuter
Á fyrstu kaupstefnu sem efnt er
til í Kína og ætluð er þeim sem hafa
atvinnu af því að búa um jarðnesk-
ar leifar manna og koma þeim í
gröfina, er að finna gífurlegt úrval
af líkvögnum, legsteinum, smyrsl-
um og kistum. Meira að segja er þar
að finna líkkistu sem seljendur
segja að megi nota oftar en einu
sinni.
Einhver flottasta líkkistan á sýn-
ingunni er úr stáli og gleri, enda
slagar verðið í 250 þúsund krónur
íslenskar, en kistan er þeim kosti
búin að viðstaddir geta virt fyrir sér
látna ástvini allt þar til þeir hverfa
af yfirborði jarðar.
Framlag kínverska menntamála-
ráöuneytisins til kaupstefnunnar er
myndband þar sem sýnt er í smáat-
riðum hvernig eigi aö fara að því aö
smyrja lík með nýrri aðferð sem tal-
in er mjög fullkomin. Sýnt er
hvernig á að tæma æöakerfið og
dæla í það ilmandi rotvarnarefnum
sem eiga að tryggja að hinar jarð-
nesku leifar verði ekki tímans tönn
að bráö.
Á hugföngnum sýningargestum
má skilja að væntingar til árangurs
af kaupstefnunni séu verulegar. Út-
fararstjóri frá Innri-Mongólíu taldi
sig hafa mikið gagn af því að horfa
á smurningarmyndbandið þar sem
nýjungar væru stundum Iengi að
berast í heimahaga hans.
Bandarískur fulltrúi fyrirtækis
sem sérhæfir sig í dýrum varningi
handa þeim sem vilja veita sér ofur-
lítinn munað þótt síöustu forvöð
séu, var himinlifandi þar sem hann
hampaði gullhúðuðu duftkeri á
næstum sextíu þúsund krónur ís-
lenskar og benti á þá óhrekjanlegu
staðreynd að bálfarir í Kína á einu
ári væru fleiri en allar útfarir í
Bandaríkjunum og því væru mark-
aðshorfur mjög blómlegar. ■
Framboð til
Alþingis
Framboðslistum vegna kosninga til Alþingis
8. apríl 1995 í Vestfjarðakjördæmi ber að
skila til formanns yfirkjörstjórnar að Hafnar-
götu 41, Bolungarvík, eigi síðar en kl. 12 á
hádegi föstudaginn 24. mars 1995.
Gæta skal þess um öll umboð að tilgreina
skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu
hans, stöðu og heimili.
Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing
allra þeirra sem á listanum eru, að þeir hafi
leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðs-
lista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um
stuðning við listann frá kjósendum í kjör-
dæminu og skal fjöldi meðmælenda vera að
lágmarki 100 og að hámarki 150.
Yfirkjörstjórnin í Vestfjarðakjördæmi.
Björgvin Bjarnason, formaður
Ágúst H. Pétursson
Birkir H. Friðbertsson
Björn Teitsson
Jens Kristmannsson
einu í litlu þorpi við rætur fjalls-
ins Fuji. í húsi þessu var bækistöð
Aum Shinri Kyo, trúfélags með
um 10 þúsund áhangendur.
Leynd hvílir yfir starfsemi þessa
trúfélags sem talið er öfgasinnað.
Lögreglan hefur enn ekki viljab
tjá sig um grunsemdir japanskra
fjölmiðla um að trúfélag þetta eigi
sök á taugagastilræðinu í Tókýó
nú, en Akira Gukushima sem er
prófessor í glæpasálfræði við Sop-
hia-háskóla segir líkur benda til
þess að hópur með sameiginlegan
pólitískan eða trúarlegan grund-
völl standi að baki þessu tilræði.
Aftaka í
Oklahoma
McAlaster, Oklahoma - Reuter
32ja ára gamall morbingi,
Thomas Grasso, var tekinn af
lífi í ríkisfangelsinu í Oklahoma
á sunnudagskvöld. Dauðadóm-
ur var kveðinn upp yfir honum
árið 1992, en hann réö 87 ára
gamlalli ekkju bana í Tulsa á
aðfangadagskvöld 1990.
Aftakan átti að fara fram í
október 1993, en henni var
frestað eftir að Mario Cuomo,
þáverandi borgarstjóri í New
York og mikill andstæðingur
dauðarefsinga, höfðaði mál og
krafbist þess að fanginn yrði
framseldur til New York og lát-
inn afplána þar þyngstu refs-
ingu fyrir morð sem er ævilangt
fangelsi.
Thomas Grasso vildi ekki
áfrýja líflátsdómnum og kvaðst
fremur vilja deyja en dúsa í
fangelsi það sem hann ætti eftir
ólifað. ■
íslensk
bleikia’95
Ráðstefna
í Bœndahöllinni við Hagatorg
fimmtudaginn 30. mars nh.
frá kl. 8.30 til 18.00
Bændasamtök íslands í samvinnu við Bændaskólinn á
Hólum, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og
Veiðimálastofnun standa fýrir ráðstefnu um málefni
bleikjueldis á íslandi.
Á ráðstefnunni munu ýmsir frumherjar og
framleiðendur í greininni flytja erindi, auk
vísindamanna sem munu kynna helstu niðurstöður
rannsókna sinna. Farið verður yfir þróun greinarinnar
og framtíðarhorfur m.t.t. fyrirgreiðslna banka og
fjármagnsstofnana, bleikjufóðurs, úrvinnslu og
vöruþróunar, markaðsmála og útflutnings.
Verð:
Þátttökugjald er kr. 2.500.
(Ráðstefnugögn og hádegisverður innifalinn).
Sérstök vildarkjör fyrir þá,
sem vilja gista á Hótel Sögu:
Gisting með morgunverði frá kr. 2.600 pr. mann
í eins manns herbergi. Ath! Gistingu þarf að panta
með góðum fyrirvara og geta þess um leið að um
ráðstefnuna „fslensk bleikja ’95“ sé að ræða.
Ráðstefnan er öllutn opin!
Skráning þátttakenda er þegar hafin í símum
56 30 300,-56 30 338 og 56 30 308
ISLENSKUR
LANDBÚNAÐUR