Tíminn - 29.03.1995, Síða 3

Tíminn - 29.03.1995, Síða 3
Mibvikudagur 29. mars 1995 3 Deiltumráðn- ingu borgarritara Borgarráb fjallabi í gær um til- lögu borgarstjóra, aö Helga Jónsdóttir yrbi ráðin í stöðu borgarritara. Sjálfstæöismenn gagnrýndu málsmeðferö með bókunum og tillögugerö þar sem þeir lögöu til aö fram kæmu leiðréttar til- lögur borgarstjóra að nýju skipuriti fyrir yfirstjórn borgar- innar, en villur hafi komið fram í því plaggi sem lagt var fram á síðasta fundi. R- listinn vísaði þessu frá, þar sem veriö væri að ráða borgarritara samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi. Þá vildu sjálfstæðismenn að kannað yrði áður en Helga yrði ráðin hvort hún ætlaði að eiga heimili í Kópavogi og greiða þar skatta sína. í frávísunartillögu R-list- ans segir: Reykjavíkurlistinn mun kanna þegar og ef Helga Jónsdóttir verður ráðin borgar- ritari hvort hún ætlar sér að búa í Reykjavík. Hins vegar er rétt að benda á að engin búsetuskylda hvílir á embættismönnum borgarinnar og aldrei sú krafa verið gerð." ■ Ríkisendurskobun: Vekur athygli aö fjáraukalaga- frumvarpi var ekki breytt: „Greiðsluafkoma sýnd verri en hún var í raun" „Þaö vekur athygli að frumvarp- inu (um fjáraukalög) var ekki breytt mibað vib upplýsingar um væntanlegar tekjur ríkissjóðs, sem lágu fyrir um miöjan desember. Þá var fjárlaganefnd upplýst um ab tekjur ríkissjóös gætu orðið 109 milljaröar króna, eba 5 millj- aröar króna umfram áætlun fjár- laga. Þannig var greiðsluafkoma ríkissjóðs sýnd verri en hún í raun var á þeim tíma sem fjáraukalögin vom samþykkt", segir Ríkisendur- skoðun m.a. um framkvæmd fjár- laga 1994. En í raun námu tekjur ársins 109,6 milljöröum króna en út- gjöld 117 milljöröum. Rekstraraf- koman var því neikvæö um 7,4 milljaröa. Innheimtar tekjur vom 2,8 milljörðum króna hærri en áætlun í október gerði ráð fyrir en gjöld aftur á móti 2,8 milljörðum lægri en fjárheimildir ársins. „Frá- vikin eru umtalsverö þegar haft er í huga aö áætlanir voru hækkaðar og fjárheimildir auknar í árslok 1994 þegar upplýsingar um raun- verulega greibsluafkomu lágu fyr- ir í öllum helstu atriðum". ■ Tekjuskattar einstaklinga og bílaskattur hœkkabi um 3,8 milljarba í fyrra: Tekjuskattur hækkabi ura fjórðung milli 1993 og '94 „Má segja að bætt afkoma ríkis- sjóbs á árinu 1994 mibab vib undanfarin ár skýrist einkum af meiri tekjum en síbur því ab dregib hafi úr heildarútgjöld- um", segir Ríkisendurskoöun m.a. í skýrslu um framkvæmd fjárlaga 1994. Breytingarnar megi einkum rekja til hækkun- ar skattstofna samfara efna- hagsbata. í samanburöi áranna 1993 og 1994 kemur m.a. fram að tekju- skattur einstaklinga hækkaði um fjórðung (rúmlega 24%) eða 3,1 milljarð króna, þar af um 900 m.kr. umfram fjárlög. Bifreiða- skattar hækkuðu um 20% eða rúmlega 650 milljónir milli ára. Skattar af framleiöslu og innflutn- ingi hækkubu tæp 19%, eða 1.650 m.kr. og viröisaukaskattur um 420 milljónir. . * - Yfirmenn sinntu flugfreyjustörfum í innanlandsfluginu líka. Leifur Magnússon, yfirmabur flugrekstrarsvibs, var flugþjónn á leibinni frá Akureyri í gær. Cubrún jónsdóttir farþegi sagbi hann hafa veitt þjónustu sem stœbist samanburb vib þab sem ábur var. Á myndinni eru Kristján Harbarson flugstjóri, Cubrún og Leifur. Tímamynd GS Þriggja daga verkfall flugfreyja er skollib á og stendur fram á mib- nœtti á fimmtudagskvöld. Margrét Hauksdóttir hjá Flugleibum: „Verkfallið hef- ur afar nei^væb áhrif fyrir Island" „Bókanir í flugferbir hjá okkur hafa mikib verib ab breytast síbustu daga og fólk er aubvitab áhyggjufullt. Reynt hefur verib ab útvega fólki flug meb öbrum flugfélögum sem hægt er og þab hefur gengib sæmilega. Abrir hafa hætt vib eba breytt fyrri áætlunum, ætla til dæmis ab dveljast lengur á vibkomustab en fyrirhugab var," sagbi Margrét Hauksdóttir hjá upp- lýsingadeild Flugleiða í samtali vib Tímann í gærdag. Helstu yfirmenn Flugleiða gengu í gær í störf flugfreyja fé- lagsins sem nú eru í þriggja daga verkfalli sem stendur fram á miðnætti fimmtudags. Sam- kvæmt áætlunum var flogiö til Luxemborgar, Kaupmannahafn- ar, Amsterdam og Glasgow í gær. Sameinað áætlunarflug frá Orlando og New York féll hins- vegar niður í gær þar sem ekki náðust samningar við flugfélag- ið Tower Air sem áður hafði ætl- að að leigja flugvél til þessa verk- efnis. Var síðdegis í gær leitað nýrrar leiguflugvélar til að Flug- leiðir gætu sinnt flugi sínu á Norður-Atlantshafsleiðinni með viðunandi hætti. í innanlandsflugi Flugleiða varð nokkur röskun, en ekki meiri en við mátti búast. Flogið var til allra helstu áætlunar- staða. Hvað varðar flug til íslands til og frá Bandaríkjunum, það er hið svokallaða Norður-Atlants- hafsflug, segir Margrét aö í þess- ari viku hafi allnokkrir hópar bandarískra ferðamanna ætlað að hafa þriggja til fjögurra daga viðdvöl hér. Þeir hópar hafi hinsvegar hætt við og þannig missi Flugleiðir viskipti og eins hin ört vaxandi ferbþjónusta landans. „Það fólk sem verður fyrir óþægindum af verkfallinu kemur sjálfsagt ekki til íslands í bráð. Þannig hefur þetta afar neikvæð áhrif í alla stabi. Þetta spyrst út og smitar út frá sér til lengri tíma," sagði Margrét Hauksdóttir. ■ Aukin útgjöld ríkisins vegna samnings vib kennara munu ab öllum líkindum auka halla ríkissjóbs. Launaútgjöld hcekka um 19% á samningstímanum. Fjármálarábherra: Engir peningar til í ríkissjóbi Fribrik Sophusson fjármála- rábherra segir ab þab séu í sjálfu sér engir peningar til í ríkissjóbi til ab mæta þeim kostnabi sem ríkib tekur á sig meb því ab samþykkja mibl- unartillögu ríkissáttasemjara til lausnar kennaradeilunni. Hann segir ab þótt hægt verbi ab mæta þessum útgjaldaauka ab hluta til þá sé vibbúib ab þab sem á vantar muni koma fram sem aukinn halli á ríkis- sjóbi. Rábherra gerir hinsvegar ráð fyrir ab tekjur ríkissjóðs verbi eitthvað hærri í ár en áætlað hefur verib vegna batnandi efnahagsástands og muni vega eitthvað upp í fyrirsjáaanlegt gat. Hann segir að útgjaldaauki ríkissjóðs vegna samningsins við kennara muni hljóða upp á nokkur hundruð millóna króna í ár, hækka nokkuð á næsta ári og árið 1997 verður útgjalda- aukinn um 1400 milljónir króna sem veröur fyrsta heila ár- ib sem samningurinn verbur í gildi. Fjármálaráöherra sagðist í gær vona ab hægt yrbi að hefja kennslu sem allra fyrst, enda engin afsökun fyrir einn eða neinn ab aflýsa ekki verkfallinu þar sem kjarasamningurinn liggur fyrir í abalatriðum. Hann telur jafnframt að þab verði erf- itt að nota þennan samning til samanburöar við aðrar stéttir. Af þeim sökum telur ráðherra sig ekki sjá þaö í fljótu bragði hvemig samningurinn getur haft áhrif á gerð annarra samn- inga sem ríkið á eftir ab gera. Fribrik segir að samkvæmt kjarasamningi ríkisins við kenn- arafélögin, sem giidir til ársloka á næsta ári, sé veriö aö fjölga kennslustundum og kennslu- dögum, styrkja og efla skóla- starfið. Hann segir að ýmislegt í því sé aukin og ný vinna sem kennarar leggi á sig samfara skipulagsbreytingum og lækkun kennsluskyldu. Af þeim sökum sé ekki hægt ab líta á heildarút- gjöld ríkisins vegna samnings- ins sem hreina launahækkun til kennara. Hann segir að beinar launahækkanir til samræmis við það sem abrir hafa fengið séu í samningnum um 7%. Af- gangurinn, eba 12% sé vegna skipulagsbreytinga. Þar er ann- arsvegar um ab ræða aukna vinnu og hinsvegar endurmat á störfum kennara sem í sumum tilvikum kemur fram í minni kennsluskyldu. Hann segir enga launung á því ab ef samningurinn auki á halla ríkissjóðs muni þab lenda á komandi kynslóðum ab greiða þann reikning. Hinsvegar verð- ur að taka tillit til þess ab verk- fall kennara hafði stabið yfir í tæpar sex vikur og sé farið að skaða skólagöngu komandi kynslóða. Hann segir að ríkis- stjórnin hafi staðiö frammi fyrir þessu vandamáli og í því ljósi hefbi það verið erfitt fyrir fjár- málaráðherra að hafna miðlun- artillögu ríkissáttasemjara. Auk þess sem skaðinn hefði orðiö mun meiri eftir því sem verk- fallið hefði dregist á langinn. Hann neitar því hinsvegar ab verkfallib hafi verið farið ab skaba Sjálfstæbisflokkinn og vís- ar í því sambandi til síbustu skobanakannana sem sýna vax- andi fylgi vib flokkinn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.