Tíminn - 31.03.1995, Qupperneq 6

Tíminn - 31.03.1995, Qupperneq 6
6 Föstudagur 31. mars 1995 Jón Ingi Einarsson, skólastjóri Laugalœkjarskóla, og formaöur Skólastjórafélags íslands: Óánægja kennara hef- ur áhrif á nemendurna Sex vikna verkfall kennara skapar mörg og flókin vandamál. Aögerðarleysi í 29 kennsludaga veröur ekki bætt upp í skyndingu meö stórfelldri ítroðslu af hálfu kennara. Kennsla er ekki fag sem unnið verður í akkoröi og því eru takmörk sett hvað nemendur geta innbyrt af þekkingu á stutt- um tíma. Tíminn ræddi viö Jón Inga Einarsson, skólastjóra Laugalækjarskóla, en hann er formaöur Skólastjórafélags ís- lands, um skóla landsins, sem standa frammi fyrir miklum vanda. Jón Ingi segir kennara sár- óánægöa með samningana. Hann óttast að titringurinn inn- an kennarastéttarinnar kunni að bitna á kennslunni og hafa áhrif til nemendanna. Hrikalegar afleiöing- ar „Vægast sagt veröa afleiöingar verkfalls kennara hrikalegar fyrir skólastarfið. Afleiðingar þess munu teygjast yfir á næstu skóla- ár. Það gera ekki allir sér grein fyrir því hvað það þýðir að þarna hafa tapast skólatímar í hálfan annan mánuð og þó að farið sé af stað núna þá tekur það sinn tíma að koma öllu í rétt horf og freista þess ab bæta upp sem tap- ast hefur nibur," sagði Jón Ingi Einarsson, formaður Skólastjóra- félags íslands, þegar Tíminn ræddi við hann um áhrif kenn- araverkfallsins á grunnskólana. Verkfallsréttur kenn- ara Heyrst hafa raddir þess efnis að kennarar ættu ekki að hafa verk- fallsrétt, né heldur ýmsar stéttir abrar. Jón Ingi segir ab vissulega væri það gott ef kennarar hefðu þau kjör að þeir þyrftu ekki að standa í launadeilum. Svo væri hins veg- ar ekki. Og enda þótt launadeilu nú viröist lokið, þá sé ljóst að önnur gæti komið upp síðar, svo margir lausir hnútar séu á öllum málefnum kennara og skóla. „Þab er nú svo að verkföll eru verkföll og þau skaða ævinlega einhvern. I skólastarfinu eru verkföllin sérstaklega slæm. Kennarar eru sáróánægðir með samningana og það veldur titr- ingi innan þeirra raða. Þaö er hætt við ab kennarar sem koma af kennarastofunni eftir heitar umræður kunni ab bera með sér óánægju sína og þannig hafa áhrif á nemendurna," sagði Jón Ingi. Einblínt á framhalds- skólann Jón Ingi segir ab vibhorfin í grunnskólum og framhaldsskól- um séu ekki hin sömu að loknu verkfallinu. Allir keppist núna um ab ræða það hvernig bjarga megi kennslunni í framhalds- skólunum. í grunnskólunum líti stjórnvöld á það hvernig bjarga megi kennslunni á lengri tíma. Hættan sé sú að því yngri sem nemendurnir eru þá verði þeir meira útundan, en vissulega sé skabinn ekkert minni í þeim bekkjardeildum ef grannt sé skobað. jón Ingi Einarsson segir aö nemendur 7 0. bekkjar muni aö mestu leyti ná upp því sem tapaöist í verkfallinu. En 9. bekkir grunnskólans séu skildir eftir og vandamálum fleytt út íframtíöina. Hvar voru börnin í verkfallinu? En hvar voru börnin í 6 vikna kennaraverkfalli? „Ja, það er nú góð spurning. Það hefur náttúrlega komib greinilega fram ab menn hafa ekki áttað sig vel á því hvar þau voru og hvernig þau eyddu tím- anum. Ég hef ekkert svar vib því. ✓ ^ Ahrif kennaradeilunnar á nemendur voru mikil aö sögn Hjálmars Arnasonar skólameistara — jafnvel góöir nemendur hafa misst trúna á námiö: L j óst að margir munu hverfa frá námi sínu Kvöldiö fyrir fyrsta kennslu- dag ab afloknu kennaraverk- falli óttabist Hjálmar Árna- son, skólameistari við Fjöl- brautaskóla Suburnesja, ab ekki nema helmingur nem- endanna mundu láta sjá sig. Þab er aubvitað biturt fyrir skólameistara og kennara ab sjá á bak nemendum, sem nánast gefa frat í skólakerfiö. Margir munu ekki skila sér aftur „Hér hefur verib afar gott at- vinnuástand, landburður af fiski, og aubvelt fyrir ung- mennin að ná sér í vinnu. Eg hef undanfarib verib mikið á feröinni í fyrirtækjum hér sybra og iðulega hitt þar fyrir nem- endur mína í vinnu. Margir þeirra draga þá einföldu álykt- un að önnin sé hvort eb er ónýt, og hætta námi. Önnur nota þetta sem kærkomna af- sökun til ab hverfa frá námi," sagöi Hjálmar í viðtali vib Tím- ann í fyrradag. Hjálmar er for- maður Skólameistarafélags ís- lands. Vandræbaástand á heimilum í verkfall- inu „Það er alveg ljóst ab óbein áhrif og beinn skaði af verkfall- inu er illmælanlegur. Þetta kemur fram í ákveönu vonleysi sem ég verb var viö meöal nemenda, jafnvel duglegir og samviskusamir nemendur sem voru staðráðnir í að standa sig vel og voru fullir metnaöar í námi eru nú búnir ab týna þessum metnaði og sjá engan tilgang meö náminu. Margir foreldrar hafa hringt í mig og lýst áhyggjum sínum. Yfirleitt eru þetta foreldrar nemenda sem ekki hafa fengið vinnu. Það hefur víða verið vandræbaástand á heimilun- um. Krakkarnir héngu yfir víd- eói fram á rauöa morgna, lágu síðan í bælinu í reiðileysi og til- gangsleysi. Börnin hafa verið orðin langleið á þessu ástandi án þess að viöurkenna það og án þess ab skynja það sjálf. Ég veit að þetta ástand hefur kost- að átök á mjög mörgum heim- ilum. Þessara áhrifa mun gæta lengi og tekur langan tíma að vinna þetta upp aftur. Það kem- ur fram síðar sem félagslegt vandamál," sagöi Hjálmar Árnason. Ljós í myrkri menntamála En Hjálmar segist sjá ljósa punkta í myrkrinu. Hann segir að kjaradeilan hafi um sumt snúist um menntastefnuna í landinu. „Menntastefnan hefur birst í því að framlög til menntamála eru skorin niður. Og þab er það sem mér finnst ab kennarar hafa ekki síður verið ab kalla eftir. Ab fara til dæmis aö ráb- um OECD að viö aukum fram- Hjálmar Árnason, skólameistari og formaöur Skólameistarafélags íslands: „Þaö hefur víöa veriö vandræöaástand á heimilunum. Krakkarnir héngu yfir vídeói fram á rauöa morgna, lágu síöan íbœlinu í reiöileysi og til- gangsleysi..." lög til menntamála til þess að fjárfesta í menntun þannig ab atvinnulíf okkar og efnahagslíf breytist. Annab ljós er þab að fólk hef- ur fariö svolítiö ab ræða þab til hvers skólinn er. Þá kemur fljótlega í ljós aö ríkisvaldið ætlar ab kasta grunnskólanum yfir til sveitarfélaganna án þess ab hafa hugsað dæmib til enda. Einsetinn grunnskóli felur þaö í sér ab þar eiga nemendur ab vera frá morgni og fram eftir degi í þessu hefðbundna námi. En líka ab sinna uppeldisþátt- um, félagslegum þáttum, og ööru sem kallast að hafa ofan af fyrir börnunum á þroskandi hátt. En þetta er mjög ómótaö

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.