Tíminn - 31.03.1995, Page 14
14
Föstudagur 31. mars 1995
Ágúst Einarsson, Þjóövaka:
Þjóbvaki er
uppreisnarafl
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Sérstaöa framboös Þjóövaka
felst í því aö hér er um nýtt fram-
boö aö ræöa sem stefnir aö sam-
einingu félagshyggjuaflanna. Viö
viljum stefnu byggöa á trúnaöi
viö almenning, m.a. meö siöaregl-
um í stjómmálum og viöskipta-
lífi.
Þjóövaki hefur gefiö út afdrátt-
arlausa yfirlýsingu um aö viö ætl-
um ekki aö starfa í ríkisstjóm með
Sjálfstæðisflokknum. Gömlu
flokkarnir vilja halda öllu opnu,
semja sig frá loforöum sínum og
blekkja þannig í reynd kjósendur
sína.
Sjálfstæðisflokkurinn er forystu-
afl hægri aflanna og valdakerfisins
og félagshyggjufólk á ekki samleið
meö þeirri hreyfingu. Þjóövaki
tekur ekki þátt í þessu kapphlaupi
til Sjálfstæöisflokksins. Almenn-
ingur á rétt á aö vita hvemig fariö
veröur meö atkvæöi hans eftir
kosningar.
Hvert er helsta baráttumálið?
Helsta baráttumál Þjóövaka,
auk sameiningar félagshyggjuafl-
anna, er að treysta velferö í íand-
inu með markvissri stefnu í at-
vinnumálum, nákvæmri stefnu í
sjávarútvegsmálum, áherslu á
samstööu bænda og neytenda í
endurskipulagningu landbúnað-
ar, bættri framleiöni í fyrirtækja-
rekstri og breyttri tekjuskiptingu.
Jafnframt verða framlög til
menntamála aukin um 8 millj-
aröa á 8 árum og í stefnu Þjóðvaka
er nákvæm útfærsla á bættum hag
heimilanna, m.a. meö greiösluaö-
lögun og hækkun skattfrelsis-
marka hjá lágtekjufólki. Aukning
forvarna innan heilbrigöisþjón-
ustunnar er mikilvægt áhersluat-
riöi hjá Þjóðvaka.
Þjóðvaki er uppreisnarafl gegn
stöðnuðu og spilltu flokkakerfi
sem hugsar fyrst og fremst um að
tryggja hag forystumanna og sér-
hagsmuna. Það er kominn tími til
þess að fólkið sjálft fái meiri völd
til sín. ■
Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista:
Kvennalistinn er eina
stjómmálaaflib sem
berst fyrir kvenfrelsi
Hver er sérstaða þíns fram-
boðs?
Kvennalistinn er eina stjórn-
málaaflið, sem berst fyrir kven-
frelsi. Kvennalistinn er ekki aö-
eins einstakur á íslandi, heldur
er hann eina stjórnmálaafliö
sinnar tegundar í heiminum,
sem hefur fengiö fulltrúa
kjörna á þing. Þaö er vonandi
til marks um víðsýni og vitur-
leik íslenskra kjósenda.
Hvert er helsta baráttumálið?
Kvennalistinn berst fyrir
efnahagslegu, menningarlegu
og líkamlegu sjálfstæöi
kvenna. Launamál, mennta-
mál og barátta gegn ofbeldi
ggagnvart konum og börnum
hafa því forgang. Við leggjum
einnig áherslu á uppbyggingu
en stjórnvöld hafa verið áhuga-
laus um þá staöreynd, aö vax-
andi atvinnuleysi hefur bitnað
sárar á konum en körlum. Hins
vegar hafa konur sýnt frábært
framtak og tekið málin í eigin
hendur meö stofnun smáfyrir-
tækja og alls konar starfsemi.
Þetta framtak þarf að styðja og
efla. Þá telur Kvennalistinn
tímabært aö leggja góöan veg
milli Grindavíkur og Þorláks-
hafnar og opna þar með nýja
möguleika í fiskflutningum og
feröaþjónustu. Möguleikar í
ferðaþjónustu eru miklir á
Reykjanesi vegna sérstæös um-
hverfis og ekki síður vegna
góöra aðstæöna til heilsurækt-
ar.
atvinnu með tilliti til kvenna,
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýöubandalagi:
ítarleg kosningastefnuskrá
um uppbyggingu þjóbfélagsins
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Sérstaöa framboðs Alþýöu-
bandalagsins og óháðra felst í
nokkrum atriöum sérstaklega. í
fyrsta lagi þá gengur Alþýöu-
bandalagið til kosninga meö ítar-
legri kosningastefnuskrá en nokk-
ur annar flokkur hér á landi.
Kosningastefnuskráin er byggö á
grænu bókinni, Útflutningsleiöin:
Atvinna — jöfnuöur — siöbót,
sem er árangur tveggja ára mál-
efnavinnu innan flokksins. Þar
em lagöar sóknarlínur í uppbygg-
ingu atvinnulífs, menntakerfis og
velferðarkerfis, sem er knýjandi
nauðsyn ef takast á að auka at-
vinnu og hagvöxt á næstu ámm.
Þar er að finna nákvæmar tillögur
um hvemig hægt er samhliða
Rannveig Guömundsdóttir, Alþýöuflokki:
Vi5 erum neytendaflokkur
Hver er sérstaða þíns framboðs?
Alþýðuflokkurinn er óum-
deilanlega sterkt afl í íslenskum
stjórnmálum. Hann er fram-
sækinn flokkur meö nútímaleg-
ar hugmyndir, en jafnframt
með rætur og stefnu jafnaðar-
mannsins, flokkur sem í áratugi
hefur lagt höfuöáherslu á kjör
launafólks og aöbúnaö og rétt-
indi þeirra sem minna mega sín.
í ríkisstjórn hefur veriö lagður
grunnur aö umgjörö atvinnulífs
svo snúa megi viö óheillaþróun
síbustu ára. Þaö hefur tekist, en
mikilvægt verkefni bíöur úr-
lausnar, ab vinna bug á at-
vinnuleysi. Efnahagsbatinn nú
gefur vonir um nýja grósku
framundan. Stöðugleikinn,
lækkaöir vextir, frjálsara og
opnara viöskiptalíf, ásamt er-
lendum viðskiptasamningum,
hafa opnaö nýja möguleika á
sviöi nýsköpunar, ekki síst fyrir
ungt athafnafólk.
Þrátt fyrir erfiöleika og sam-
drátt, bæbi í afla og á viðskipta-
mörkuðum, hefur Alþýöuflokk-
urinn staöið fyrir miídlvægum
umbótum á sviöi húsnæðismála,
sveitarstjórnarmála, í málefnum
fatlaðra og almennt á þeim sviö-
um sem vega þungt fyrir fjöl-
skylduna í okkar þjóöfélagi.
Flokkurinn hefur sýnt aö hann
er aflvaki og stööugleikatákn.
I Reykjanesi er sterkasta gras-
rót flokksins. Þar erum við með
mestan fjölda fólks aö störfum.
Þar hefur hann sýnt að þegar Al-
þýðuflokksfólki er falin umsjá
verka, þá eru þau í góðum
höndum.
Hvert er helsta baráttumáliö?
Stærsta baráttumáliö er aö
efla atvinnulífið, því það er
brýnasta velferðarmál fjölskyld-
unnar. Ekki síst þess vegna
böröumst vib fyrir aðild að EES
og viljum nú láta á þaö reyna
hvort hagsmunum okkar yröi
best borgið með umsókn um að-
ild að ESB.
Vib viljum aö minnst einum
milljarði króna veröi árlega var-
iö í sértækar aögerðir gegn at-
vinnuleysi. Okkar markmið er
að enginn veröi verkefnalaus á
bótum. Vib leggjum líka höfuö-
áherslu á starfsmenntun og
endurmenntun, ekki síst þeirra
sem misst hafa vinnu.
Jafnframt horfum viö til fram-
tíðar meö nýsköpun og upp-
byggingu aö leiöarljósi. Mennt-
un og tæknikunnátta eru þar
lykilorð. Þess vegna viljum við
nýta grósku í efnahagslífi til aö
veita auknu fjármrgni til
menntunar á öllum skólastigum
og til þess aö efla vísindi og
rannsóknir.
Vib emm neytendaflokkur.
Okkar viöhorf í landbúnaöar-
málum, til þátttöku í alþjóöa-
samningum og til innflutnings
á matvælum beinast öll aö því
aö lækka útgjöld heimilanna,
þó þannig aö þaö verði sem
sársaukaminnst fyrir framleiö-
endurna sjálfa — bændurna.
Velferbarmálin eru þau mál
sem næst standa okkur jafnað-
armönnum og málefni fjöl-
skyldunnar veröa sett í öndvegi.
Viö höfum lagt fram tillögu aö
fjölskyldustefnu á Alþingi og
þeim málum munum við fylgja
fast eftir.
þessu aö jafna kjörin með skatt-
kerfisbreytingum og jafnframt aö
byggja inn í skattakerfið hvata til
nýsköpunar, rannsókna og sóknar
á erlenda markaöi. Enginn annar
flokkur leggur í dóm kjósenda
jafn skýra framtíðarsýn um upp-
byggingu íslenska þjóöfélagsins í
þágu allrar þjóðarinnar.
I ööm lagi þá býður Alþýöu-
bandalagiö nú fram ásamt hóp-
um óhábs félagshyggjufólks. Það
gerist í beinu framhaldi af tilraun-
um Alþýðubandalagsins til aö efla
samstööu og samvinnu félags-
hyggjufólks. I því skyni hvatti Al-
þýðubandalagiö til viöræðna milli
stjómarandstöðuflokkanna, að
Jóhönnu Siguröardóttur meðtal-
inni, en talaöi fyrir daufum eyr-
um. Hópur óháös félagshyggju-
fólks vildi ekki láta dræmar undir-
tektir annarra flokka viö samfylk-
ingartilraunum félagshyggjufólks
aftra sér frá þátttöku í stjómmál-
um en taldi Alþýðubandalagið
trúveröugast og gekk því til liðs
viö þaö. Þaö taldi einfaldlega Al-
þýöubandalagið sterkasta valkost-
inn við hægri öflin sem ráöiö hafa
feröinni undanfarin ár.
Ekki síst fyrir þennan liðsauka
kemur enn eitt sérkenni G- list-
framboöanna skýrara fram. Á list-
unum er öflug sveit fólks, sem
innan samtaka launafólks hafa
veriö í fararbroddi í baráttunni
gegn árásum hægriaflanna á lífs-
kjör, menntun og velferð þjóðar-
innar. Með framboöi sínu meö Al-
þýbubandalaginu flytja þessir full-
trúar launafólks baráttu sína inn í
sali alþingis, enda em veigamestu
ákvaröanir um lífskjör þjóöarinn-
ar teknar þar. Tvær eindregnar
bráttukonur fyrir hagsmunum
launafólks em einmitt í eldlín-
unni hér í Reykjaneskjördæmi,
Sigríöur Jóhannesdóttir sem lengi
var í forystusveit Kennarasam-
bands íslands og Kristín Á. Guö-
mundsdóttir, formaöur sjúkra-
liöafélaga íslands.
Hvert er helsta baráttumálið?
Alþýðubandalagið og óháöir
hafa gefiö út bækling með 10
stefnuáherslum sem byggöar em
á Útflutningsleiöinni. Enga eina
þeirra er hægt aö taka út úr og
segja að sé mikilvægari en aðrar.
Þessar áherslur Alþýðubandalags-
ins em á atvinnu fyrir alla, velferö
og jöfnuö, fjölskyldustefnu, nýja
og réttláta launastefhu sem feli í
sér kjarajöfnun og launajafnrétti
kynja, réttlæti í skattamálum,
sókn í menntamálum, aðgerðir
vegna greiðsluvanda í húsnæöis-
málum, siðbót í stjómsýslu og fyr-
irtækjarekstri, einföldun á stjóm-
kerfi hins opinbera, breytingar á
sjávarútvegsstefnunni þannig að
fiskurinn veröi ekki áfram einka-
eign sægreifa heldur raunvemleg
sameign þjóöarinnar, umhverfis-
vemd og afvopnun.
Rauöi þráöurinn í þessum sam-
hæföu tillögum er aö stöðva það
niöurrif sem hér hefur átt sér stab
á velferöar- og menntakerfi, aö-
stööusukk hinna betur megandi,
tilfærslu fjármuna frá almenningi
til stóreignamanna, háskalega lág-
launastefnu, atvinnuleysi og
hraövaxandi álögur á almenning
— og leiða fram þann kraft og
hæfni sem býr í íslensku þjóðinni
til aö byggja upp þjóðfélag rétt-
lætis og velmegunar.