Tíminn - 08.04.1995, Síða 5

Tíminn - 08.04.1995, Síða 5
5 WMmww Laugardagur 8. apríl 1995 Tímamynd GS Ogurstund Jón Kristjánsson skrifar Kosningaaldurinn er 18 ár og nú ganga þús- undir fólks á þeim aldri að kjörborðinu í fyrsta sinn. Flokkamir hafa allar kiær úti til þess að ná til þessa hóps. Nú í vikunni sat ég sameiginlegan fund frambjóðenda á Austurlandi í Menntaskólan- um á Egilsstöðum þar sem fulltrúar flokk- anna kynntu stefnu sína og svömðu fyrir- spumum fundarmanna. Fundurinn fór vel fram og okkur frambjóðendum var ekki hleypt mikið í orðaskak eða vífilengjur. Hann var málefnalegur í hæsta máta, og málefnin sem hæst bar vom atvinnumál, menntamál og samskiptin við umheiminn. Ólík veröld Það er að mörgu leyti ólíkur heimur sem blasir við ungu fólki sem kemur út úr skóla nú, en var fyrir einum eða tveim áratugum. Þar ber hæst að atvinnuástand er nú með allt öðrum hætti en var. Það er mjög áberandi í viðræðum mínum við ungt fólk og kjósend- ur, sem em að kjósa í fyrsta sinn, að viðmæl- endur mínir vilja alvöm umfjöllun um pólit- ík og taka hana alvarlega. Þetta unga fólk kynnir sér stefnuskrár flokkanna og ætlast til þess að farið sé eftir þeim. Á þessu fólki brenn- ur hvort það fær atvinnu, með hverjum hætti verbur búið að menntun í landinu, og með hverjum hættí þab getur komið sér upp þaki yfir höfuðið. Ég held að slagorð og hvers kon- ar auglýsingamennska sé mjög ofmetin þeg- ar ungt fólk á í hlut. Bíóauglýsingar Sjálfetæð- isflokksins þar sem reynt er að slá keilur á kostnab andstæðinganna virðast ekki hafa fallið í góðan jarðveg, en vissulega em þær ætlaöar ungu fólki. Á áðumefndum fundi var áberandi ab fýr- irspumir vom efhislegar og svarendur vom ekíd látnir komast upp með múður eða útúr- snúninga. Fyrirspumunum var fylgt eftir og ungt fólk vill svör. Markmiö sem vekur athygli Ég finn að markmið Framsóknarflokksins um 12.000 störf til aldamóta hefur vakið mikla athygli. Talan ein vex fólki í augum, en þama sést í hnotskum sá mikli vandi í at- vinnumálum sem við er að etja. Um 6000 manns em án atvinnu í landinu í dag, og um 1500 manns bætast inn á vinnumarkaöinn á ári hverju. Ég hef orðið var við það, og það er vissulega áhyggjuefni, að ýmsir stuðnings- menn stjómarflokkanna reyna að gera lítíð úr þessu takmarki og segja að útilokaö sé ab uppfylla það. Þetta þýðir það eitt ab sá hinn sami hefur sætt sig við það ab atvinnuleysið sé um 5% til frambúðar, og mannfjöldi sem svarar til íbúatölu í stómm kaupstað sé að staðaldri án atvinnu. Ungt fólk spyr hins veg- ar hvemig þetta markmiö verði uppfyllt og sleppir manni ekki án þess að gefa skýringar. Fyrst þarf aö viöurkenna vandann Það er ekki auðvelt verk- efni ab skapa þessi 12.000 störf. Hins vegar er fyrsta skilyrðið ab ráðast aö þessu verkefni í fullri alvöm og viðurkenna vandann. í öðm lagi að búa svo um hnútana í opin- berum sjóðum og stofnunum, sem eiga að þjóna atvinnulífinu og nýsköpun í landinu, ab þær séu ekki lokaðar fyrir fólki með nýjar hugmyndir og fólki sem hefur kjark til þess að stofna fyrirtæki um þær. í þriðja lagi þarf að styðja innlendan landbúnab í sinni mark- aðsstarfsemi og í fjórba lagi og ekki síst ab efla fullvinnsluna í sjávarútvegi. Þar em afar mikl- ir möguleikar, ef rétt er á haldið. í fimmta lagi þarf að efla mjög menntun og markaðsstarf- semi og afþreyingu í feröamannaibnaði. Þar em störf sem tækniþróun leysir aldrei af hendi. Ferðamannaþjónustan er þess eðlis. Ögurstund Mér finnst að viö íslendingar séum nú á ögurstund í atvinnumálum og það ríði á hvaba hugarfar nær yfirhöndinni. Mér ógnar þab hugarfar að segja að vegna þess ab at- vinnuleysið varð ekki 25%, vegna þess að 30 þúsund manns urðu ekki atvinnulausir, þá sé góður og mikill árangur að 6000 manns séu atvinnulausir og nú ríki stöðugleiki sem verð- ur að varðveita. Þessi hugsunarháttur leiðir til þess að þeirra ungu kjósenda, sem em að kjósa í fýrsta sinn, bíöur tvenns konar þjóðfé- lag. Þjóðfélag hinna atvinnulausu og hinna sem njóta þeirra miklu tækifæra sem nútíma samfélag hefur upp á að bjóða. Ég sætti mig ekki við þennan hugsunarhátt og mun berj- ast gegn honum af öllu afli. Markaössetning Eg hef nú verið á stöðugum ferðalögum ------------- um Austurland um mán- aðarskeið. Ég hef komið á fjölmarga vinnustaði og hitt marga að máli eins og gengur í kosningabar- áttu. Alls staðar em at- vinnumálin mál mál- anna og fólk veltir fyrir Menn °9 málefni sér möguleikum í þeim '_________ efnum. Á Austurlandi sem annarstabar em fjöl- mörg smærri fyrirtæki, en þab em einmitt þau sem veita drjúga atvinnu. Þegar ég skrifa þessi orð er ég að koma úr heimsókn í lítið fyrirtæki í matvælaiðnaði. Þar er unnin og pökkub gæðavara úr fiski og kjötí. Vandamál þessa fýrirtækis er markaðssetning. Þetta til- færða dæmi á við í fjölmörgum tilfellum í stórum og smáum fýrirtækjum. Viö íslendingar þurfum á þvi aö halda að eiga greiðan markaðsaðgang sem víðast. Hins vegar þurfa smærri fyrirtæki oft á tíðum á að- stoð að halda til þess að nýta hann. Þab er staðreynd, sem ekki verður um deilt, að markabsmál hafa legið nokkuð eftir og fyrir- tækin hafa ekki haft afkomu til þess að leggja til hliðar fjármuni í þessu skyni, sem er höf- uðnauðsyn. Því er fullkomlega réttlætanlegt að efla stuðning við þá starfsemi, og þá má ekki gleyma menntun í þessum fræðum. Hreint land Við búum í stóm landi og víðfeðmu og þab er lífsnauðsyn að halda umhverfinu hreinu. Umhverfismálin eru svo nátengd atvinnulíf- inu að þar verður ekki skilið á milli. Matvæla- framleiðsla í sóðalegu og menguðu umhverfi gengur ekki í nútíma samfélagi með nútíma kröfur. Það stendur ekki eingöngu í okkar valdi að halda umhverfinu hreinu, ekki síst hafinu í kringum okkur. Þab tekst ekki nema með nánu alþjóðlegu samstarfi. Kosninqabarátta sjálfsánægjunnar Sjálfstæðisflokkurinn rekur sína kosninga- baráttu undir merkjum sjálfsánægjunnar og þeirra staðhæfinga að allt sé í besta lagi, stöð- ugleiki ríki, og ef Sjálfstæðisflokkurinn verði ekki í ríkisstjóm áfram verði þjóðin í vondum málum og fái mikla og stóra reikninga. Mér finnst að vanti sóknarhuginn í þessa baráttu Sjálfstæðisflokksins. Alþýðuflokkurinn er svo upptekinn af Evrópudraumnum að ekkert kemst annað að. Jón Baldvin sagði einhverstaðar í blaða- viðtali að það væri ekki hlutverk stjóm- málamanna að skapa störf. Það kann rétt að vera. Hins vegar er það skylda stjómmála- manna ab skapa það umhverfi í þjóðfélag- inu að það sé aðlaðandi fýrír ungt fólk að nefja atvinnurekstur. Það fái til þess mennt- un og ráðgjöf og eigi aðgang að áhættufjár- magni án þess að veðsetja allar eigur ætt- ingjanna til viðbótar við sínar eigin. Þannig er myndin sem blasir við núna. Þetta laðar ekki ungt fólk til stórræða í þeim mæli sem þarf til þess að snúa þróuninni við í at- vinnumálum. Það er þetta umhverfi sem við framsóknarmenn viljum skapa meb breytingu á opinberum stofnunum sem vinna í þágu atvinnulífsins. Það er verkefni nýrrar atvinnuþróunarstofnunar að skapa þetta umhverfi. Ferðir mínar að undan- fömu sannfæra mig um það ab framfara- hugurinn og hugmyndirnar em fyrir hendi. Til þess að virkja hvorutveggja þarf breytta stefnu. Dagurinn í dag ræður úrslitum um hvort hún nær fram ab ganga.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.