Tíminn - 08.04.1995, Síða 7
Laugardagur 8. apríl 1995
9ÍMVKH
7
Hlutur matvœla í framfœrslukostnaöi aö meöaltali 20,7% i 12
ESB-löndum en 17,7% á íslandi:
Aöeins 4 ESB-lönd meö
lægri matarkostnaö
%
40
í aöeins 4 af 12 löndum Evr-
ópusambandsins (fyrir síöustu
áramót) var hlutfall matar-
kaupa af heildar framfærslu-
kostnaöi lægra heldur en hér
á landi, miöaö viö árslok
1993. Samkvæmt heimildum
frá ESB var hlutfall matvöru
og óáfengra drykkja í fram-
færsluvísitölu (sem byggist á
neyslukönnunum í hverju
landi) í ESB-löndunum þá
20,7% aö meöaltali en 17,7%
hér á landi (og hefur nú lækk-
aö niöur í 17,1%). Belgía, Hol-
land, Danmörk og Bretland
voru þau einu af gömlu ESB
löndunum þar sem matar-
Suöurland. Sameiginlegur framboösfundur
flokkanna haldinn á vegum krata:
Rætt um hluta Fiski-
stofu og Gæslu til Eyja
Frá Þorsteini Gunnarssyni, fréttaritara Tfm-
ans íVestmannaeyjum:
Þingmenn Suöurlandskjör-
dæmis komu sér saman um aö
halda engan sameiginlegan
framboösfund fyrir kosningam-
ar í kjördæminu þar sem lítill
áhugi var fyrir þeim fyrir síö-
ustu kosningar, auk þess sem
framboöin eru svo mörg. Þetta
var upplýst á eina sameiginlega
framboösfundinum í kjördæm-
inu sem haldinn var í Eyjum aö
frumkvæöi Alþýöuflokksfélags
Vestmannaeyja. Kratar skoruöu
á aöra flokka aö mæta á fram-
boösfund meö tveggja daga fyr-
irvara og var óljóst fram á síö-
ustu stundu hvaöa flokkar
myndu mæta. Svo fór aö allir
mættu, aö undanskildum Sam-
tökum um kvennalista og Nátt-
úruíagaflokknum.
Á fundinum lýsti m.a. Amar
Sigurmundsson, 4. maöur á lista
Sjálfstæöisflokksins og formaður
samtaka fiskvinnslustöðva því yfir
aö hann vildi fá hluta af starfsemi
Fiskistofu til Vestmannaeyja svo
og Landhelgisgæslunnar. Einnig
sagðist hann vera hlynntur þeirri
hugmynd að aöildarfélagar í Líf-
eyrissjóðnum hefðu atkvæðisrétt í
sjóðnum.
Ragnar Óskarsson, annar mað-
ur á lista Alþýðubandalagsins,
gagnrýndi það sem hann kallaði
lágkúmlegan kosningaáróður Al-
þýðuflokksins, sem væm að dreifa
þeim orðrómi um kjördæmið að
Margrét Frímannsdóttir ætlaði að
segja af sér þingmennsku um leið
og hún næði kjöri. Sagði Ragnar
að enginn fótur væri fyrir þessu og
Margrét myndi að sjálfsögðu sitja
út allt kjörtímabilið.
Guðni Ágústsson, alþingismað-
ur Framsóknarflokksins, sagði af
þessu tilefni að þaö hefði verið
átakanlegt að sjá skelfingarsvip-
inn á Ragnari þegar hann lýsti því
yfir að það væri ekki rétt að hann
væri að setjast á þing! Um 50
manns mættu á þennan fund sem
bar þess merki að flokkamir lögðu
ekki mikinn metnað í að undir-
búa sig fyrir hann, enda fyrirvar-
inn mjög skammur. ■
Auglýsing í kvikmyndahúsum þar sem Halldór Ás-
grímsson, formabur Framsóknarflokksins, er látinn
baula. Cuölaugur Þór Þórbarsson, formabur SUS:
„Húmorsleysi fram-
sóknarmanna ekki
okkar vandamál"
„Húmorsleysi framsóknar-
manna er ekki okkar vanda-
mál," segir Guölaugur Þór
Þóröarsson, formaður Sam-
bands ungra Sjálfstæöismanna,
um auglýsingu sem birt hefur
verið í kvikmyndahúsum, þar
sem Halldór Ásgrímsson, for-
maöur Framsóknarflokksins er
látinn baula. í umræddri aug-
lýsingu koma fram auk Hall-
dórs Ásgrímssonar, þau Jó-
hanna Siguröardóttir, Jón
Baldvin Hannibalsson, Kristín
Ástgeirsdóttir og Ólafur Ragnar
Grímsson.
„Málið er einfalt. Við erum í
harðri kosningabaráttu og við
höfum ekki farið dult með þá
skoðun okkar aö okkur hefiir
fundist kosningabarátta félags-
hyggjuflokkanna vera einstak-
lega óábyrg og einkennast af yfir-
boðum og loforðum sem eiga sér
engan stað í raunveruleikanum,"
segir Guðlaugur Þór. Hvað aug-
lýsingarnar í kvikmyndahúsun-
um varðar er að sögn Guölaugs
aðallega gert út á kímnina, þar
sem ýmislegt sé haft eftir stjórn-
málaleiðtogunum, sem þeir hafa
‘'sagt í kosningabaráttunni og
baulið sé í kímni gert.
„Húmorsleysi framsóknar-
manna hefur komið okkur í opna
skjöldu, frekar en hitt. Það sjá all-
ir út á hvað þessi auglýsing geng-
ur og að ætla það að hún sé at-
laga að bændum er fráleitt. Því
fer víðs fjarri að viö séum á móti
bændum. Sjálfstæðisflokkurinn
er besti vinur bænda."
Guðlaugur Þór leggur áherslu á
að það sé Samband ungra sjálf-
stæðismanna sem beri ábyrgð á
auglýsingunum og að kosninga-
stjórn Sjálfstæðisflokksins hafi
ekki komið nálægt þeim. „Það er
ungt sjálfstæöisfólk sem ber
ábyrgðina."
Guðlaugur Þór segir að forystu-
menn í Sjálfstæðisflokknum hafi
mistúlkab þessar auglýsingu og í
framhaldi af þeim hafi þeir kom-
ið fram athugasemdum við ung-
liðana, sem hafi skýrt mál sitt. ■
kostnaður var hlutfallslega
minni en hér á landi, en Sví-
þjóð og Finnland hafa síöan
bæst í þann hóp.
Matarkostnaður er áberandi
stærsti útgjaldaliður fjölskyldna
í Portúgal, rúmlega 39% fram-
færslukostnaðarins, svipað og
hjá íslenskum fjölskyldum upp
úr miðri öldinni. Grikkland er
næst efst, með 29% heimilisút-
gjaldanna í matarkostnað, sem
er álíka og í íslensku framfærslu-
vísitölunni frá 1968. Þar á móti
er húsnæðiskostnaður (orka þar
meðtalin) hlutfallslega lágur
póstur í báðum þessum löndum.
Bretar eru aftur á móti á hin-
um endanum, fara með aöeins
13,3% heimilisútgjaldanna í
matarkostnað að meðaltali og
Danir koma þeim næstir með
14,4%. Hjá Bretum, Dönum og
öbrum ESB-þjóðunum, sem
sleppa betur í matarinnkaupun-
um heldur en íslendingar, er
"HLUTFALL MATVÖRU ( FRAMFÆRSLUVlSITÖLU"
^=71
M.
miöaft viö desambermánuö 1993
M
7\C.
M A
J4
cm jn gj
5 J B
<n 6
UJ <D
•S
hins vegar húsnæðiskostnaöur-
inn mun stærri póstur, allt upp í
um 50% hærri í Danmörku. En
hjá þeim, Þjóðverjum og Hol-
lendingum er húsnæöiskostn-
aburinn um og yfir fjórðungur
allra heimilisútgjaldanna, borið
saman við 17,8% hérlendis.
Útgerð einkabílsins/bílanna
er aftur á móti stærri útgjalda-
liður hjá íslenskum fjölskyldum
heldur en í nokkru ESB-land-
anna og engin ESB þjóðanna
eyðir heldur eins miklu í tóm-
stundaiðkanir, ferðalög m.a.,
heldur en við.
Þá vekur athygli, að einungis
Danir og Bretar borga minna í
heilbrigðiskostnað beint úr eig-
in vasa heldur en við. Hjá Hol-
lendingum, Frökkum, Lúxem-
V'
T> T> T> « CTJ-JC »
| “ æ “ ! * i &
211-M43ÆSS nVH. ■!*. 94
búrgurum og Grikkjum er þessi
kostnaðarliður 3-4 sinnum
stærri útgjaldaliður en hjá okk-
ur. ■
Leiðrétting
Sú meinlega villa varð í kosn-
ingahandbók Tímans sem
fylgdi blaðinu í gær, að nafn
Halldórs Ásgrímssonar var í
efsta sæti í Reykjavík.
Eins og lesendum er án efa vel
kunnugt er það Finnur Ingólfs-
son, sem leiðir B-listann í
Reykjavík, en Halldór Ásgríms-
son á Austurlandi.
Biðjumst við velvirðingar á
þessum leibu mistökum. ■
r
•••
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumarið
1995.Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu félagsins þurfa
að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi föstudaginn
28. apríl 1995.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl.
Flúðum Hrunamannahreppi
Akureyri
Húsafelli í Borgarfirði
Ölfusborgum við Hveragerði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Kirkjubæjarklaustri
Auk húsanna eru 10 tjaldvagnar leigðir tiL félagSmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til 'umsóknar tímabilið 26. maí til 15. september.
- *
Úthiutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist rétturtil úthlutunar áfélagsaldri í V.R. að frádregnum
fyrri úthlutunum orlofshúsa.’ Nánari .upplýsingar um úthlutunarreglur fást á
skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.000,00 -,.10.500,00 á viku í orlofshúsi.
kr. 7.000,00 -'f.tjaldyagni í 6 daga
kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í
síðasta lagi 28. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 8. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 588 8356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur