Tíminn - 08.04.1995, Síða 19
Laugardagur 8. apríl 1995
fgflfflSllfl
19
Olafuríónsson
frá Vík
Fæddur 22. mars 1895
Dáinn 1. apríl 1995
Ólafur Jónsson var fæddur á
Höfðabrekku í Mýrdal. Foreldr-
ar hans voru hjónin Jón Brynj-
ólfsson, trésmiður og vega-
vinnuverkstjóri í Vík í Mýrdal,
f. 24.8.1865 í Breiðuhlíð, d.
24.8.1948 í Vík, og kona hans
Rannveig Einarsdóttir, f.
6.9.1867 á Strönd í Meðallandi,
d. 1957 í Vík. Foreldrar Jóns
Brynjólfssonar voru hjónin
Brynjólfur Guðmundsson, f.
22.8.1833 í Skammadal, d.
19.9.1900 á Litlu-Heiði, og
kona hans Þorgeröur Jónsdóttir
ljósmóðir, f. 12.12.1830, d.
11.2.1920 á Litlu-Heiði.
Móðir Brynjólfs var Guðrún,
systir Helgu, ömmu Þorsteins
Erlingssonar skálds. Guðrún var
dóttir Hallgríms bónda á
Neðra-Velli, Brynjólfssonar, og
Guðríðar, systur Sæmundar,
föður Tómasar Fjölnismanns.
Guðríður var dóttir Ögmundar,
prests á Krossi, bróður Böðvars
prests í Holtaþingum, föður
Þorvalds prests og skálds í
Holti, föður Þuríðar, Iang-
ömmu Vigdísar forseta. Foreldr-
ar Þorgerðar ljósmóður frá
Svartanúpi í Skaftártungu voru
hjónin Jón Þorláksson, f. um
1797, d. 1847, og kona hans
Sigríður Sturludóttir, f. 1797, d.
1857, Jónssonar bónda á Þóru-
stöðum í Grímsnesi, f. 1761, d.
1846. Kona Sturlu var Guðrún
Gísladóttir frá Kiðjabergi í
Grímsnesi, f. 1761, d. 1846.
Foreldrar Jóns Þorlákssonar í
Svartanúpi voru Þorlákur Jóns-
son á Flögu í Skaftártungu, f.
1776, d. 1839, og kona hans El-
ín Loftsdóttir, f. 1771. Afi Þor-
láks Jónssonar var Ólafur Ólafs-
son í Hjörleifshöfða, f. um
1689, d. 1755.
Foreldrar Ólafs Jónssonar,
þau Rannveig og Jón Brynjólfs-
son, fluttu frá Litlu-Heiði 1894
að Höfðabrekku. Þau bjuggu
þar á hálfum parti jarðarinnar,
sem Rannveig hafði fengið í arf.
Á hinum partinum bjó systir
hennar Vilborg, sem erfði hinn
helming jarðarinnar. Vilborg
var gift Sveini Ólafssyni, föður
Einars Ólafs, föður Sveins Ein-
arssonar fyrrv. leikhússtjóra.
Rannveig og Jón Brynjólfsson
fluttu frá Litlu-Heiði að Höfða-
brekku árið 1894 meö son sinn
Magnús, f. 1893, d. 1971. Þar
bjuggu þau í 13 ár. Á þeim tíma
eignuðust þau sex börn, auk
Magnúsar, sem upp komust.
Þau Jón og Rannveig fluttu til
Víkur árið 1907, þar hafði Jón
byggt íbúðarhús undir bökkun-
um í Vík. Á þessum árum var
þorpið í Vík í örum vexti, en þá
voru liðin tíu ár frá því að tómt-
húsmenn byrjuðu að setjast að
í Vík. Verslun í Vík og sjósókn
var um þessar mundir vaxandi.
Vörur komu með flutninga-
skipum erlendis frá og úr Vest-
mannaeyjum. Uppskipunarbát-
ar frá Vík voru notaöir til þess
að flytja vörurnar í land.
Þegar þau hjónin Rannveig
og Jón hefja búskap í Vík er Ól-
afur Jónsson tólf ára. Gerðist
hann fljótt vinnudrengur og
síðar vinnu- og starfsmaöur í
Suður-Vík 1907-1918 hjá Hall-
dóri Jónssyni, sem þá rak versl-
un í Vík og útræði auk búrekstr-
ar. Ólafur lauk barnaskóla- og
unglingaskólanámi í Vík og síð-
ar námi við Flensborgarskólann
í Hafnarfirði.
Ólafur kvæntist 1.12.1917 El-
ísabetu Ingibjörgu Ásbjörns-
dóttur, f. 6.10.1897. Foreldrar
hennar voru Ásbjörn Jónsson,
húsasmiður í Melhúsum á
Akranesi, og kona hans Sigríður
Árnadóttir. Dóttir Ólafs og El-
ísabetar var Sigríður, f.
1.11.1918, d. 1990, organisti
við kirkjuna í Vík um árabil.
Hún var gift Valdemar Tómas-
syni verslunarmanni í Vík, f.
22.11.1914, d. 1978.
t MINNING
Systkini Ólafs Jónssonar
voru: Magnús, f. 1893, d. 1971,
kvæntur Halldóru Ásmunds-
dóttur, f. 1896. Börn þeirra: Ás-
geir, f. 1921, d. 1976, Karl, f.
1924, Jón Reynir, f. 1931. - Þor-
gerður, f. 1897, d. 1991, gift
Einari Erlendssyni. Börn þeirra:
Erlendur, f. 1921, Steinunn, f.
1924, Erla, f. 1930. - Brynjólfur,
f. 1899, kvæntur Maren Guð-
mundsdóttur. Barn hans meb
Svanhvíti Sveinsdóttur fyrir
hjónaband: Sveinn Hilmar, f.
1930. - Guðrún, f. 1900, gift
Guðmundi Þorsteinssyni. Börn
þeirra: Sigríður, f. 1917, Guð-
rún, f. 1921, Sólveig, f. 1922,
Óskar, f. 1925, Jón Rafn, f.
1925, Ólafur, f. 1930, Kristrún,
f. 1933, d. 1983. - Einar, kvænt-
ur Kristínu Pálsdóttur, f. 1903,
d. 1983. Börn þeirra: Guðlaug,
f. 1936, Málfríbur, f. 1942, d.
1989. - Steinunn, f. 1905, d.
1945, gift Valmundi Björns-
syni, f. 1898, d. 1973. börn
þeirra: Jón, f. 1929 og Sigur-
björg, f. 1930.
Ævistörf Ólafs Jónssonar voru
við verslunarstörf hjá Halldórs-
verslun í Vík, en í þeirri verslun
var um árabil pósthúsþjónust-
an í Vík. Eftir að Jón Halldórs-
son féll frá kom það í hlut Ólafs
að annast þá afgreiðslu. Þegar
Póstur og sími byggbi síðar nýtt
hús í Vík fluttist póstafgreiðsl-
an þangað og var Ólafur starfs-
maður þar uns hann lét af störf-
um 1972, þá sjötíu og sjö ára
gamall. Með starfi sínu við
Halldórsverslun gegndi Ólafur
ýmsum öðrum störfum, m.a.
var hann gjaldkeri sjúkrasam-
lagsins í Vík um árabil.
Hér áður fyrr fylgdu oft auka-
störf verslunarstarfsmönnum í
Vík. Veiddur var fugl í björgun-
um, farið var til veiða á Heiðar-
vatn og síðast en ekki síst var
róið til fiskjar. Ólafur Jónsson
var áhugasamur í þeim störfum
sem hann tók sér fyrir hendur.
Hann var.í ígripum formaður á
fiskibátum í Vík í mörg ár. Var
Ólafur mjög farsæll formaður,
enda gætinn og íhugull og
þekkti vel til strauma og sjávar-
falla. Var hann laus við óhöpp.
Hins vegar voru þeir ekki ófáir
sem á þeim árum féllu fyrir ægi
við brimströndina í vík. Sá sem
þessar línur skrifar var munstr-
aður eina vertíð á sexæringinn
Víking, þá seytján ára, en Ölaf-
ur frændi var þar formaður. Bát
þennan hafði Erlendur afi
smíðað og er hánn enn sjófær
eftir því sem ég best veit. Ekki
hefði ég viljað missa af þessari
sjósókn, þótt stutt væri. Þab var
vissulega lærdómsríkt ab
stunda sjó frá brimströndinni í
Vík.
Skipsströnd voru tíð áður fyrr
við brimströnd suðurlandsins.
Hér verður aðeins minnst á eitt
þeirra. Aðfaranótt 25. nóvem-
ber árið 1913 strandaöi breski
togarinn Lord Carrington á
Kerlingadalsfjöru austan Víkur.
Var þetta fyrsta ferö skipsins.
Allri áhöfn var bjargað. Minnst
er á þetta hér vegna þess, aö Ól-
afur Jónsson, þá sautján ára,
fékk leyfi til þess að nýta járn úr
skipinu. Úr járninu smíðaði
hann skeifur og seldi, en um
þær mundir var minna að gera í
Halldórsverslun. Þetta sýndi
vel, hve Ólafur var áhugasamur
að finna sér störf. Ég rifjaði upp
strand Lord Carringtons fyrir
fimm árum, þegar ég sat í boöi
hjá Steingrími Hermannssyni
með fyrrverandi utanríkisráð-
herra Breta, Lord Carrington.
Ég minntist á strand togarans
og spurði, hvort Carrington
fjölskyldan í Bretlandi hefði
gert út togara á þessum árum.
Hann sagði ab svo hefði ekki
verib. Eftir nokkra umhugsun
kom hann með ráðningu gát-
unnar. Hann sagði aö árið 1913
hefði afi sinn verið landbúnað-
arráðherra í bresku ríkisstjórn-
inni. Undir hann hefðu líka
heyrt sjávarútvegsmál. Útgerð-
arfyrirtækið sem lét smíða nýj-
an togara hefði þá trúlega kosið
að skýra hann þessu nafni, Lord
Carrington, til þess að heiðra
ráðherrann.
Ólafur Jónsson var áhuga-
maöur um byggingu kirkju í
Vík. Vann ásamt fleirum við
bygginguna. Var hann hringj-
ari kirkjunnar í mörg ár. Á
seinni árum þegar hann stóð
einn uppi, var búinn að sjá á
bak eiginkonu, tengdasyni og
svo dóttur, var hann búinn að
ráðstafa svo til öllum eignum
sínum og fékk inni á Dvalar-
heimili aldraðra í Vík, Hjalla-
túni. Þangað höfðu runnið stór
hluti eignanna og svo til kirkj-
unnar og kirkjuorgelsins.
Hreppsnefndin hafði gert hann
að heiðursborgara fyrir nokkr-
um árum og var hann vel ab því
kominn. Þá hélt hreppsnefndin
upp á 100 ára afmæli Ólafs þ.
22. mars sl. Naut hann vel
þeirrar samkomu og var hress
og kátur. Hann gat því glaður
og ánægður lagt sig til hinstu
hvíldar. Hann lést Iaugardag-
inn fyrsta apríl sl.
Auk þeirra ættingja sem hann
átti í Vík og reyndust Ólafi vel,
átti hann marga vini sem oft
litu til hans og sýndu honum
hlýju og vináttu síöustu árin og'
var honum þab mikils virði.
Fyrst af öllu ber þó ab þakka
starfsfólkinu á Dvalarheimilinu
Hjallatúni, sem veitti Ólafi
góba umönnun síðustu árin.
Útför Ólafs Jónssonar fer
fram frá Víkurkirkju í dag, laug-
ardaginn 8. apríl.
Megi blessun guðs fylgja Ól-
afi frænda á nýrri braut, í nýj-
um heimi.
Erletidur Einarsson
Fréttir í vikulok
Öll dagmömmugæsla niöurgreidd
Borgarráð hefur samþykkt tillögu stjórnar Dagvistar barna
um að í september nk. verði teknar upp niðurgreiðslur fyrir öll
börn sem eru í vistun hjá dagmæðrum. Aðeins einstæðir for-
eldrar hafa fengið þessar greiðslur hingaö til.
Banaslys á Ólafsvík
Maður beið bana þegar hann féll í Ólafsvíkurhöfn. Hann féll
á milli skipa í slæmu veðri.
Meirihluti bílasala ólöglegur
Meirihluti bílasala í Reykjavík er enn ólöglegur. Ný lög um
sölu notaöra bíla tóku gildi í fyrra og er 9 mánaba aðlögunar-
tími runninn út.
✓
Alversstækkun í ár?
Sighvatur Björgvinsson iönaðarráðherra segir að í júnímán-
uði verbi tekin ákvöröun um hvort Alusuisse stækki álverið í
Straumsvík. Rætt hefur verið um framkvæmd sem myndi ksta
10-11 milljaröa króna og gæti álframleiðsla allt ab tvöfaldast
við breytinguna.
Slakaö á í tilvísanadeilunni
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra tilkynnti í vik-
unni um breytingu á tilvísanakerfinu. Þar er gert ráð fyrir að
Tryggingastofnun greiði rannsóknir og röntgengreiningar að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Banaslys viö Blönduós
Maður á fertugsaldri lést af völdum raflosts í Laxárvatnsvirkj-
un skammt frá Blöndudósi.
Opinberar skuldir tvöfaldast
Opinberar skuldir hafa hækkað um 50% á síðustu fjórum ár-
um skv. nýrri skýrslu Þjóðhagsstofnunar. Þetta samsvarar að
skuldaaukningin sé 1,15 milljónir kr. á hverja 4 manna fjöl-
skyldu.
Haröari lög um skattsvik
Nýtt ákvæði er að finna í hegningarlögum er varða stórfelld
skattsvik. Refsing slíkra brota getur orðið allt að sex ára fangelsi
auk þess sem fjársektir eru hækkaðar til muna frá því sem áður
var. Skattrannsóknastjóri, Skúli Eggert Þórðarson, býst við að
hert viðurlög muni bæta skattskil á landinu.