Tíminn - 05.05.1995, Page 7
Föstudagur 5. maí 1995
7
Kirkjulistavika hefst
á Akureyri á morgun
kirkjunnar. Yfirskrift málþingsins
er „Kirkjan fræðir" og fundar-
stjóri veröur dr. Haraldur Bessa-
son, fyrrverandi rektor Háskóians
á Akureyri.
Af föstum liöum í safnaðarstarfi
Akureyrarkirkju má nefna
mömmumorgna í safnaöarheim-
ilinu, en þar hittast foreldrar
reglulega meö börn sín. Á kirkju-
listavikunni verður efnt til sér-
staks mömmumorguns þar sem
foreldrar og börn hlýða á érindi
um börn og barnauppeldi, auk
þess sem leikarar frá Leikfélagi
Akureyrar skemmta viðstöddum.
Fundir eldri borgara eru einnig
fastur liður í safnaðarstarfinu, og í
tilefni af kirkjulistavikunni verö-
ur efnt til sérstaks fundar þar sem
Bjarni Guðleifsson flytur erindi
um listir og Tjarnarkvartettinn
syngur.
Frá Þór&i Ingimarssyni, fréttaritara Tímans
á Akureyri:
Kirkjulistavika í Akureyrar-
kirkju er orðin fástur liður á vor-
dögum í lista- og menningarlífi
á Akureyri. Markmið með
kirkjulistavikunni er að auka
tengsl listafólks og kirkjunnar
og menningarviðburður af
þessu tagi er einnig vel fallinn
til þess að efla tengsl hinna
ýmsu listgreina sem stundaðar
eru í bænum, auk þess sem bæj-
arbúum og gestum gefst kostur
á að njóta fjölbreyttra listvið-
burða á þessum vikutíma.
Þekkt myndlistar-
fólk frá Noregi
Á morgun, laugardag, hefst
fjórða kirkjulistavikan á Akur-
eyri og er dagskrá hennar byggð
upp af mörgum áhugaverðum
viðburðum. Fyrstan þeirra má
nefna sýningu á verkum norsku
mynd- og veflistakonunnar Else
Marie Jakobsen í Listasafninu á
Akureyri. Hún er á meöal
fremstu listamanna Noregs og
hefur unnið mörg verk um trú-
arleg efni. Hún sækir fyrir-
myndir í táknmál kirkjunnar og
helgisögur og prýða mörg verka
hennar kirkjur í heimalandinu.
Auk sýningar Else Marie í lista-
safninu verbur efnt til sýninga á
verkum tveggja annarra norskra
listakvenna: sýning á verkum
Ninu Gjestland veröur í Heklu-
salnum á Gleráreyrum og verk
Ann Rasmussen verða til sýnis í
Heklusalnum og einnig í Gallerí
AllraHanda, sem er í sama húsi
og listasafniö í Grófargili. Ann
Rasmussen er af dönsku bergi
brotin, en hefur búið í Noregi
frá 1973. Hún er kunn fyrir
kirkjulist og prýða verk hennar
margar kirkjur, einkum í Nor-
egi. Ann Rasmussen lauk námi
1986 og starfaði fyrstu árin sem
aðstobarmaður hjá Else Marie
Jakobsen, en hefur rekið eigið
verkstæði frá 1991. Nina Gjest-
land er einnig þekkt textíllista-
kona í Noregi, er sótt hefur
menntun sína til Sviss og Aust-
urríkis auk Suður-Evrópulanda.
Verk Ninu er meðal annars að
finna í eigu margra stofnana í
heimalandi hennar og norrænu
menningarmálanefndarinnar.
„Magnlficat7' í Akur-
eyrarkirkju
Af öðrum listviöburðum má
nefna flutning Kórs Akureyrar-
kirkju á „Magnificat" eftir Johann
Sebastian Bach. Kórinn er 50 ára á
þessu ári og efnir af því tilefni til
hátíðartónleika í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 7. maí kl. 17.00.
Einsöngvarar með kórnum verba:
Margrét Bóasdóttir, sópran, Marta
G. Halldórsdóttir, sópran, Óskar
Pétursson, tenór, Sverrir Guð-
jónsson, kontratenór, og Michael
Jón Clarke, bassi. Stjómandi og
einleikari meb kórnum verður
Björn Steinar Sólbergsson. Kórinn
kemur oftar fram á kirkjulistavik-
unni, því að loknu málþingi í
safnaðarheimilinu laugardaginn
13. maí eða kl. 18.00 flytur hann
aftansöng eða vesper eins og
söngurinn nefnist á latínu og er
ein hinna klassísku tíðagjöröa
kirkjunnar er rekja má til fyrri
alda. Prestur við aftansönginn
veröur sr. Þórhallur Höskuldsson
og stjórnandi kórsins Björn Stein-
ar Sólbergsson.
Myndverk barna
Þá má geta fjölskyldumessu í
Akureyrarkirkju sunnudaginn 7.
maí. Þar setur Guðríður Eiríks-
dóttir, formaður sóknarnefndar
Akureyrarsóknar, Kirkjulistaviku
1995, sr. Svavar A. Jónsson,
nýráðinn héraðsprestur á Norður-
landi eystra og fyrrum sóknar-
prestur í Ólafsfirði prédikar og
Barnakór Akureyrarkirkju syngur.
Að messu lokinni verður kirkju-
gestum bobið að þiggja veitingar í
safnaðarheimilinu og þar mun
Rósa Kristín Júlíusdóttir, mynd-
listarkennari, opnar sýningu á
myndverkum barna sem stunda
nám við Myndlistarskólann á Ak-
ureyri, en þemað í myndunum er
tengt páskahátíðinni.
Kirkjulistavikuna ber að á sama
tíma og heimsmeistaramótið í
handknattleik, sem að þessu sinni
verður haldið hér á landi. Hluti
mótsins fer fram á Akureyri og af
því tilefni verður helgistund í Ak-
ureyrarkirkju í tengslum við HM
frá kl. 12 á hádegi til 12.20 alla
daga kirkjulistavikunnar.
Hróbmar Ingi Sigurbjörnsson.
dr. Hjalti Hugason, dósent, og í
lok messunnar frumflytur Asako
Ichihashi dans vib brúbkaupið í
Kana ásamt átta dönsurum, en
tónlistin er eftir tékkneska tón-
skáldið Petr Eben. Þann dag verð-
ur frú Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, sérstakur gestur
kirkjulistavikunnar.
Kirkjan fræöir
Efnt verður til málþings í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju laug-
ardaginn 13. maí, þar sem séra
Bolli Gústavsson, vígslubiskup,
Edda Möller, framkvæmdastjóri
Skálholtsútgáfunnar, dr. Hjalti
Hugason, dósent við Guðfræði-
Akureyrarkirkja.
GUÐ/jón bak viö
tjöldin
Leikfélag Akureyrar og Tjarnar-
kvartettinn flytja nýstárlegt leik-
húsverk á kirkjulistavikunni.
Nefnist það „Hvar er ekki
GUÐ/jón bak við tjöldin?" og er
handrit þess og leikstjórn í um-
sjón Viðars Eggertssonar, leikhús-
stjóra á Akureyri. Verkið er byggt
á textabrotum og myndum eftir
ýmsa fræga sem ófræga höfunda,
er fjalla um manninn andspænis
almættinu. Verkið verður frum-
flutt í Safnabarheimili Akureyrar-
kirkju þriöjudaginn 9. maí, en
síðasta sýning þess verður sunnu-
daginn 14. maí.
Ljóöatónleikar, frum-
flutningur sálmfor-
leiks og dans
Á kirkjulistavikunni gengst
Tónlistarfélag Akureyrar fyrir
Ijóðatónleikum Jóns Þorsteins-
sonar, óperusöngvara, og Gerrits
Schuil, píanóleikara, þar sem trú-
arleg ljóð verða uppistaða í efnis-
skrá. Þá verbur einnig frumflutt
trúarlegt tónverk, því vib guðs-
þjónustu sunnudagirm 14. maí
verður fluttur sálmforleikurinn „í
þennan helga herrans sal" eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og
er það frumflutningur verksins.
Viö þessa guðsþjónustu prédikar
deild Háskóla íslands, séra Jón
Helgi Þórarinsson, sóknarprestur
á Dalvík, og Margrét Bóasdóttir,
sópransöngkona, verba fyrirlesar-
ar um málefni sem snerta starf
Vibar Eggertsson.