Tíminn - 13.05.1995, Side 2

Tíminn - 13.05.1995, Side 2
2 Wímitm Laugardagur 13. maí 1995 Skólastjórn Odds Albertssonar harölega gagnrýnd af undirmanni hans og fyrrverandi kennara viö skólann. Nemendur í heimavist fœstir prófhœfír vegna lélegrar mœtingar. Fundiö aö „dómgreinarleysi" og vafasömum athöfnum skólameistarans. Abeins 25-30 nemendur hæfir aö gangast undir próf Nemendur Reykholsskóla mótmœla. Oddi Albertssyni er borib sitthvað á brýn sem skóla- meistara í Reykholti. Frjáls- ræöib vib skólann, nýtt form í menntunarmálum, er sagt hafa farib út í þvílík- ar ógöngur ab abeins 25 til 30 nemenda skólans eru prófhæfir í vor. Skólameist- arinn er gagnrýndur fyrir ab hafa rætt um ágæti sjálfsfró- unar í Borgarneskirkju, og aö sinna vinnu sinni slæ- lega. Fjölmiðlar hafa rætt ítarlega um væntanlega endurkomu Ólafs Þ. Þórðarsonar sem skólastjóra Reykholtsskóla næsta haust. Þá mun Oddur Albertsson láta af störfum. Fram er komið ab lögmæti þess ab geyma stööur sem þessa er yfir allan vafa hafib og á sér fjölda fordæma. Þá er rætt um nýtt rekstrarform, nýtísku stjórnun Odds á skól- anum undanfarin þrjú ár, sem margir hæla, en aðrir for- dæma. Pétur Önundur Andrésson, skólastjóri Andakílsskóla, áð- ur stæröfræðikennari í Reyk- holti, margsinnis kjörinn vin- sælasti kennari skólans sagbi í gær: „Þab er rétt, ég hætti vib Reykholtsskóla vegna þess aö ég var ekki yfir mig hrifinn af stjórnandanum," sagbi Pétur Önundur. „Eftir þennan fyrsta vetur hættum viö nokkur sem höföum starfaö við skólann. Á síðasta ári hættu líka nokkr- ir kennarar, þeir voru frystir út ef svo má segja. Það var uppi ágreiningur um almenn samskipti viö fólk," sagbi Pét- ur Önundur. Hann segir Odd Albertsson hafa veriö dugleg- an að betrumbæta skólahús- næbið, en krakkarnir sem áttu ab vera í eölilegu námi, fengu ekki slíkt. Margir duttu út á vetrinum, mættu illa og misstu réttinn til ab taka próf. „Það var eins og krakkarnir væru á hálfgildings hóteli, vetrarhóteli. Þaö var uppi ágreiningur hvernig ætti að taka á þessu og styðja krakk- ana. Mér sýnist að þurfi að skilgreina skólann upp á nýtt. Foreldrar og nemendur verða aö vita hvað býður þeirra. Óharðnabir unglingar geta ekki stabib einir og stundað sitt nám, ef hópurinn fer aðra leib," sagði Pétur Önundur. Hann bætti því við að þarna hefbu verið ágætis náms- menn innan um en sumir nemendanna hefðu áður átt erfitt með ab fóta sig í öðrum skólum. Meðal þess sem Oddur skólameistari er hart gagn- rýndur fyrir er ræða nokkur sem hann hélt frammi fyrir fullri kirkju ungmenna í Borg- arnesi í vetur. Þar ræddi hann um sjálfsfróun ungs fólks. Þar voru fermingarbörn séra Árna Pálssonar, hópur ungmenna úr Reykjavík og fleiri. For- svarsmenn barnanna voru vægast sagt undandi á því sem þeir kalla „dómgreindar- leysi" Odds skólameistara. Ensku- og dönskukennari Reykholtsskóla, Snorri Þór Jó- hannesson, sagði í viðtali við Tímann að hann væri fráleitt ánægður með stjórn Reyk- holtsskóla þessa dagana. Hann sagði aö Oddur væri um sumt hinn driftugasti ná- ungi, hann hefði verið dug- legur að afla tækja til skólans og gera húsnæðib vistlegt. Margt væri jákvætt, annaö mjög neikvætt. „En eitt hefur verið stórlega ýkt í fjölmiðlum. Það er nem- endafjöldinn, hann er núna milli 50 og 60 nemendur, ekki- hundrað eins og stabhæft hef- ur verið í fjölmiðlum. Það sem ég finn að er allt of mikið frjálsræði, þeir hafa margir ekki náð þessari 80% skyldu að mæta í kennslu- stundir. Sennilega eru það 25 til 30 sem mega fara í prófin í vor samkvæmt reglugerð. Þá hefur það farið í taugarn- ar á mér frá byrjun hvað Odd- ur hefur verið mikið fjarver- andi. í vetur blöskraði mér. Á 20 dögum í janúar var hann 8 daga á staðnum. Frá í haust hefur hann verið 55 daga í burtu meira og minna. Ég hef fundið að þessu við hann. Kannski á hann rétt á fríum um helgar, en það er slæmt að skólastjóri sé burtu frá heima- vistarskóla eins og þessum," sagði Snorri Þór. Oddur Albertsson hefur innleitt afar mikiö frjálsræði í skólamálum, form sem hvergi hefur þekkst til þessa á land- inu. Snorri Þór segir aö þetta frjálsræði þýði að hópur krakka vaki frameftir nóttum og geti síðan ekki mætt til tíma. Óreglusemi sé ekki um að kenna, hvorki vín né hass, þó hafi nemanda verið vísað úr skóla fyrir notkun á slíku. „Sem skólastjórnandi er Oddur alls ekki hæfur. Sem hugmyndasmiður er hann af- ar frjór. Og óhræddur er hann vib að framkvæmda. En hann valtar hressilega yfir fólk sem mótmælir honum. Hann er líka laginn að koma störfun- um yfir á aðra kennara," sagði Snorri Þór, sem kennt hefur við skólann frá 1967. Hann vann undir stjórn Ólafs Þ. á sínum tíma og segist treysta honum fullkomlega. Hann segist nú ætla að leita sér nýrrar vinnu. Hann eigi fimm ár í eftirlaunin. Tíu kennarar eru við Reyk- holtsskóla. Kennaraskipti hafa verið tíð undir stjórn Odds, hann hefur yngt starfs- liðið til muna, en Snorri Þór segir að mönnum hafi verið ýtt út af borðinu með yfir- gangi. Snorri sagöi að krakk- arnir væru yfirleitt kurteisir og góðir krakkar, en þau þyrftu stjórn. Ólafur Þ. Þórðarson sagði í samtali við Tímann í gær að hann vildi sem minnst segja. Hann mun mæta í Reykholti í haust sem skólastjóri þrátt fyrir óskir nemenda um að Óddur verði áfram skóla- meistari en þau gengu á fund Björns Bjarnasonar mennta- málaráðherra til að leggja áherslu á þær óskir sínar. „Ég vil aðeins segja eitt í sambandi við þetta mál, og vitna þar í bók Símons Jó- hanns Ágústssonar, Hagnýt sálarfræði: Reyndir stjórn- málamenn taka ekki mark á undirskriftum. Þetta er bara múgsefjun. Það er hægt að fara meb alls konar lista af stab og þú getur fengið fjölda manns til að skrifa undir ein- hverja vitleysu," sagði Ólafur Þ. Þórðarson. Oddur Albertsson: Sorgleg lágkúra Oddur Albertsson skólameist- ari í Reykholti sagðist í samtali við Tímann í gær vera leiður yfir því að fyrrum samstarfs- menn hans skuli kjósa ab vega að honum með staölausum ásökunum og lágkúru nú þeg- ar hann væri að fara. Hann vísar þessari gagnrýni á sig á bug sem óréttmætri. Oddur benti á ab þessir aðlar hafi ver- ið þátttakendur í mótun skólastarfsins og þau vanda- mál sem upp hafi komið í skólanum verib leyst í samein- ingu af kennarahópnum. „Ég tel ab það geti verið fallegt í sjálfu sér af ákveðnum kenn- ara hér ab fagna því að Ólafur Þórðarson vinur hans er að koma hingað. En mér finnst það lágkúrulegt ef hann velur sér þá leib að sverta það starf sem ég hef unnið hér í skólan- um og þá hugmynd sem hér hefur verið unnið með í við- tölum við fjölmiðla," sagði Oddur. Varðandi ræðuhöld í Borgarneskirkju um sjálfsfró- un sagði Oddur að hann hafi vikib að félagsfræðirannsókn sem gerð hafi verið af nem- endum í skólanum og þetta hafi verið algert aukaatriði í prédikuninni. Hins vegar væri þetta talandi dæmi um kyn- slóðabilið sem svo oft virtist koma upp ab það væri tabú að nefna orðiö sjálfsfróun. ■ í heita pottinum... Jafnréttisráö mun þessa dag- ana vera a& hrinda af staö könnun um kynferðislega áreitni á vinnustöbum og mun hugmyndin m.a. vera aö spyrja eftir viöhorfum innan fjölmiöl- anna. Þessu framtaki mun sér- staklega fagnaö á Ríkisútvarp- inu og Stöð 2. Ekki þó vegna þess að þar sé mikð um kyn- ferðislega áreitni heldur svo lít- ið af henni að það sé til leiðinda á vinnustað. Vonast menn til að könnun Jafnréttisráðs minni starfsfólk á að þetta fyrirbæri sé til! Ekkert lát er á orðrómnum um að Friðrik Sópusson muni hætta í stjórnmálum á kjör- tímabilinu og kveður svo rammt að þessu að dyggir flokksmenn í trúnaðarstöðum eru farnir að spyrja hver annan hvort þetta sé rétt. Opinber- lega er hins vegar öllu síku tali vísað á bug. Hins vegar hefur verið bent á að það sé mjög slæmt fyrir Friðrik að svona orðrómur sé á kreiki ef hann ætli ekki að hætta, menn efist ósjálfrátt um varanleika um- boðs hans. Og úr þvf orðróm- urinn er á annað borð kominn á dagskrá, er rétt að klára sög- una því tvær útgáfur eru á sveimi. Annars vegar að hann sé á leið í Landsbankann fyrir Sverri Hermanns og hins vegar að hann eigi að taka við Árna Sigfússyni sem oddviti sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Ef- laust hefur hvor útgáfan ein- hverja pólitíska merkingu en hver hún er skal ósagt látið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.