Tíminn - 13.05.1995, Qupperneq 8

Tíminn - 13.05.1995, Qupperneq 8
 Laugardagur 13. maí 1995 áfram. Hvernig má lifa í guð- lausum heimi? En því miður — þeirri angist nútímans sem ligg- ur eins og farg á hinni hrjáðu fjölskyldu leiksins, tekst höf- undi ekki að miðla. Það vantar dýpt í þetta fólk, hugarstríð þess er allt á ytra borði. Þetta er slæmt því vissulega hefur höf- undur sterk spil á hendi. Engum hugsandi manni blandast hug- ur um hver hið tæknivædda of- neyslu- og mengunarþjóðfélag okkar er mannfjandsamlegt, þrátt fyrir allan sinn yfirborðs- gljáa. En úr því verður ekki bætt með því að senda ungviðiö á gras í sveitinni. Þess konar björgunarstarfsemi er einfald- lega tímaskekkja, fánýt lausn, eins konar síðborin hippa- stefna. Og vel á minnst: liggur ekki fólkið í sveitinni fyrir fram- an sjónvarp og myndbandstæki rétt eins og við hin? Má það nokkuð vera að því að hlusta á lækjarniðinn? Er ekki goðið á stalíinum alls staðar það sama í alheimsþorpinu, og er þá nokk- ur lausn í því að rústa sitt eigiö heimilistæki? Maður flýr víst ekki tákn nútímans. Þaö væri fávísleg iðja að gefa leikurum einkunnir. Hverjum þarf að segja að stórstjörnur eins og Helgi Skúlason og Krist- björg Kjeld skili ágætu verki? Helgi gerir Harald eins mann- legan og frekast er unnt þar sem hlutverkið skortir svo mjög undirtóna frá höfundarins hendi. Kristbjörg hefur átt hvern stórleikinn af öðrum í vetur og slær á alla þá strengi sem á annaö borð hafa ómbotn í hlutverki Ingunnar. Guðrún Gísladóttir bregst ekki frekar en vant er og átti skemmtilegan samleik með Árna Tryggvasyni (afanum). Árni er raunar ekki nógu öldurmannlegur í hlut- verki afans og hefði áreiðanlega verið unnt aö velja betur í það hlutverk. Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir leikur Mörtu, hina ráðþrota nútímakonu, á geð- felldan hátt, og Randver Þor- láksson Jóhann, sem hengslast um sviðið á eftir henni og svo sem skiljanlegt aö hann geti engan neista kveikt í Mörtu. Þá eru ótalin Árni og Hildur, Sigurður Sigurjónsson og Edda Arnljótsdóttir, alveg eins og út úr viðtali í Mannlífi eöa Heims- mynd, fólkið sem flýtur ofan á í þjóðfélaginu, heilsuræktarfrík og fremur svona menningar- snauðir gosar. Og síðast en ekki síst er það svo Ingunn yngri, eina nýja framlagiö til leiksins ef svo má kalla, unglingur á glapstigum. Elva Ósk Ölafsdótt- ir skilar í samvinnu við leik- stjórann vel mótaðri persónu, tal og limaburöur sannfærandi. Það reynir verulega á Elvu Ósk, ekki síst í atriðinu þegar hún kemur illa til reika að borði fjöl- skyldunnar á aðfangadags- kvöld. Það er vandmeðfarið at- riði og í sjálfu sér býsna mel- ódramatískt, en Elva Ósk skilar því eftir mætti. Hún er álitleg leikkona. En persóna Ingunnar litlu líður vitanlega fyrir hina almennu veilu verksins, grunna persónusköpun höfundar. Það verður óhjákvæmilega niöurstaðan að Guðmundur Steinsson hafi ekki haft erindi sem erfiði með þessu verki sínu, og þaö sérstaka tiltæki að semja nútímaviðbót við Stundarfrið skili ekki viðhlítandi árangri. En hvað sem því líður er hér af ein- lægni og heiðarleika unnið af hálfu höfundarins, svo langt sem það nær, og listamenn leik- hússins gefa verkinu það líf sem um er að gera. Og sýningin er hreint ekki leiðinleg, heldur áhorfandanum aö minnsta kosti vel vakandi þá stund sem hún varir. ■ Þjóbleikhúsib: Stakkaskipti eftir Cub- mund Steinsson. Leikmynd og búningar: Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Lýsing: Páll Ragnars- son. Frumsýnt á Stóra svibinu S. maí. Þessi umsögn um Stakkaskipti er síðbúin vegna lasleika gagn- rýnandans; ég sá þriðju sýningu á miðvikudagskvöld. Það hefur því allmikil umræða um leikinn farið fram í fjölmiðlum og ætti ekki að þurfa að rekja efni hans mörgum orðum. Eins og marg- sagt er fjalla Stakkaskipti um sömu fjölskyldu og Stundarfrið- ur, hið fjölsótta leikrit höfundar fyrir fimmtán árum og bregða upp mynd af lífi fjölskyldunnar nú; leikurinn á að gerast á þeirri stund sem yfir okkur gengur. Leikarar eru auk heldur þeir sömu nú og í Stundarfriði, að ööru leyti en því að Árni Tryggvason kemur í stað Þor- steins heitins Stephensens í hlutverki Örnólfs, og svo hefur ný kynslóð komið til sögunnar. Þetta er fjölskylda Haralds og Ingunnar (Helgi Skúlason og Kristbjörg Kjeld). Þau eru í betri borgara röð, en yfir þau ganga ýmsar hremmingar í rás leiks- ins. Þar er fyrst að telja að Har- aldur missir vinnuna og sér í lokin fram á að geta ekki haldið húsi sínu. Gamli maðurinn, faðir hans, deyr í leiknum og kemst þannig aftur heim í sveit- ina til hvílu við hlið konu sinn- ar sem kvaddi í Stundarfriði. Börn þeirra Haralds og Ingunn- ar hafa hlotið ýmiss konar ör- lög. Einn sonurinn, Magnús, hringir öðru hverju frá fjarlæg- um löndum en er kominn heim þegar tjaldið fellur. Sonurinn Árni er þjóðfélagsprílari mikill og hefur fest sér konu, einnig á framabraut — fyrir þeim þvælist ekkert. Dóttirin Guörún er jarð- vegsfræðingur eða eitthvað þess konar, með tengsl viö moldina, og um það er lýkur hefur hún fest kaup á eyðibýli. Önnur dóttir, Marta, er komin heim aftur eftir misheppnaðan hjú- skap, er í slagtogi við Jóhann nokkurn, en það samband vesl- ast upp. Dóttir Mörtu, Ingunn, er í dópi, en undir lokin sýnist hún ætlað að rífa sig upp úr því. Og hvernig þá? Auðvitað með því að fara með Gunnu frænku upp í sveit. Þótt líf þessarar fjöl- skyldu sé sundurtætt í margvís- legum skilningi lætur höfundur þó sjást vonarglætu undir lokin, svo að leikhúsgestir þurfa ekki að hverfa heim með dapran hug eftir ab hafa horft í þann spegil sem upp er brugöiö. Vel á minnst, speglar. Stefán Baldursson leikstjóri skrifar grein í leikskrá og svarar þar spurningu fólks úti í bæ um hvað leikritið sé: „Nei, þetta er ekki leikrit um atvinnuleysi, þetta er ekki leikrit um fíkni- efnaneyslu unglinga, um upp- lausn fjölskyldunnar eða ægi- Stakkaskiptin. Cubrún 5. Gísladóttir, Sigrún Sigurjónsson, Edda Arnljótsdóttir og Helgi Skúlason meö heimilistœkin. Hvað er undir stakknum? vald sjónvarpsins. Þetta er leik- húsverk um íslenska fjölskyldu hér og nú og þar koma allir þessir þættir við sögu. ísland í dag." Þetta er rétt: Stakkaskipti er umfram allt leikhúsverk, enda skrifað af einum okkar reynd- asta leikhöfundi. Og leikstjór- inn hefur tekið verkið fagmann- legum tökum eins og vænta má og í samstarfi við leikmynda- smið og leikara búið til áferbar- fallega og heilsteypta sýningu. Umgjörðin er hæfilega stílfærð, eins konar kassar í hvítu, bláu og rauðu, beinar línur, skörp form, sterílt svib. Tónlist og há- vær leikhljóð óspart notuð til að undirstrika þann leikheim sem hér blasir vib, líkt og í Stundarfriði. Og leikaralið Þjóð- leikhússins bregst ekki, enda valinn maður í hverju rúmi. En samt er nokkurs vant til að áhorfandinn geti orðið innlífur þeim reykvíska samtíðarveru- leik sem hér getur að líta. Og þab sem á skortir er blátt áfram mergur í persónusköpun frá hendi höfundar. Eiginlega gerir höfundur bæbi of mikið og of LEIKHUS GUNNAR STEFÁNSSON lítib til að þessar manneskjur verki sem lifandi leikpersónur. Of mikið að því leyti að hann sælist eftir því að rjúfa ramma hinnar raunsæislegu orðræðu á sviðinu og lætur þá persónurnar stíga út úr rullunni og útskýra sjálfar sig. Áhrif atvinnuleysis- ins á Harald eiga auðvitaö ab birtast í hegðun hans og látæði, án þess að hann þurfi að halda ræbur um „vinnufúsar hendur" og annað þesskonar. Ennþá neyðarlegra verður þetta hjá Ingunni, konu hans, sem stígur fram alveg undir lokin og talar um það að hún hafi bara hugs- að um að hafa allt slétt og fellt á yfirborðinu og ekki orkað ab hugsa um þab sem inni fyrir bjó. Eins og áhorfandinn hafi ekki verið búinn að sjá það út! Svona er þetta í fleiri tilfellum og er engu líkara en Guðmund- ur Steinsson haldi áhorfendur svo sljóskyggna ab þurfi ab tyggja í þá boðskapinn. Þab verður nefnilega seint sagt um þetta leikrit að boöskapur höf- undar og þab erindi sem hann vill rækja meb verki sínu sé óljóst eða torskilið. En skáldverk verður ekki gott af því einu að hafa skýran og góban boðskap ab flytja. Höf- undur gerir of lítið af því að skoða undir yfirborðið. Eigin- lega er hugsunin í verkinu furðu banal og lausnirnar harla kunn- uglegar, gamaldags sveitaróm- antík og andtæknihyggja. Þab er sem sé allífisbrekkan í sveit- inni, úr Atómstöðinni og fleiri verkum, sem á að lækná sálar- mein hinnar ungu kynslóðar. Og heimilisfabirinn fær frið í húsi sínu með því ab mölva sjónvarpið. Næst þarf svo lík- lega að taka farsíma, dyrabjöll- ur, hljómflutningstæki og aðra hljóðmengunarvalda úr sam- bandi. Stakkaskipti er heiðarlega samið leikrit og um margt hin þarfasta ádrepa. Þab eru í verk- inu ýmsir þræbir, sem við þekkjum frá höfundinum, til dæmis trúarlegur strengur sem forvitnilegt væri ab spinna Leikfélag Rangceinga: Kertalog eftir Jökul Jakobsson Leikfélag Rangæinga sýnir um þess- ar mundir leikritið Kertalog eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóm er í höndum Ingunnar Jensdóttur en alls taka þátt í uppsetningunni um 15 manns. Verkið segir frá lífi vistmanna á geðveikrahæli. Nýr vistmaður kem- ur á staðinn og hlutirnir fara að glæöast meira lífi. Leikritib er fal- legt, einlægt og átakanlegt og þaö má svo sannarlega segja að persón- urnar séu hver annarri litríkari. Miðasala er í símum 78181 og 78635 og kostar miöinn 1.100 kr. Næstu sýningar eru fimmtudags- kvöldið 11. maí kl. 20.30, laugar- daginn 13. maí kl. 15.00 og mánu- dagskvöldið 15. maí kl. 20.30. Þess má geta að eina leiklistar- starfsemi Rangárvallasýslu er hjá I.eikfélagi Rangæinga og ættu íbúar sýslunnar sem og aðrir Sunnlend- ingar að styrkja þennan menning- arlið því enginn skyldi efast um ágæti og gagnsemi þessa starfs. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.